Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 45
Profkjor
Útdráttur greina um prófkjör vegna alþingiskosninga vorió 1999.
Greinarnar eru birtar í heild á Netinu www.mbl.is
Kristmundur
Ásmundsson
Jón Gunnars-
son - öflugur
baráttumaður
Kristmundur Asmundsson, bæjarfull-
tiiíi og yfirlæknir, skrifar:
FRAMUNDAN
er prófkjör Sam-
fylkingar í Reykja-
neskjördæmi og
hafa fjölmargir gef-
ið kost á sér í þann
slag. Eg hef unnið
mikið með Jóni
Gunnarssyni, fyrr-
um oddvita í Vog-
um, bæði á vett-
vangi Alþýðuflokksins og einnig að
sveitarstjórnarmálum á Suðurnesj-
um og fagna því að hann hefur
ákveðið að bjóða sig fram til starfa
á Alþingi íslendinga. Jón er öflugur
baráttumaður sem yfirleitt kemur
þeim málum sem hann tekur upp á
sína arma í höfn og hefur hann oft
verið kallaður til þegar leysa þurfti
erfið mál á samstarfsvettvangi
sveitarfélaganna.
Ég vil hvetja sem flesta til þess
að setja Jón Gunnarsson í öruggt
sæti í prófkjörinu 5.-6. febrúar nk.,
því okkur er það nauðsyn að fá inn á
Alþingi öfluga rödd sem þekkir vel
til málefna Reykjaneskjördæmis og
ég er sannfærður um að það myndi
efla kjördæmið okkai- til muna.
Ágúst á
toppinn!
Bragi J.
Sigurvinsson
Steindór
Karvelsson
Ágúst hefur hvatt til þess á Al-
þingi að skorin verði upp herör
gegn fíkniefnasölum, m.a. með því
að setja á lágmarksrefsingu fyrir
fíkniefnabrot.
Hann hefur einnig kynnt athygl-
isverðar hugmyndir um lækkun
tekjuskatts einstaklinga úr tæpum
40% í 25%, og lækkun tekjuskatta
smærri fyrirtækja úr 30% í 20%.
Hér er um að ræða róttækustu og
jákvæðustu breytingu á skatta-
kerfinu sem komið hefur fram í
áratugi.
Ágúst hefur lagt mikla áherslu á
að pólitísk forysta í Reykjaneskjör-
dæmi sýni meiri metnað fyrir hönd
þess og sæki réttmætan hlut kjör-
dæmisins á þingi og gagnvart ofur-
veldi Reykjavíkurborgar.
Við þurfum þingmann á borð við
Ágúst í forystu Samfylkingarinnar í
Reykj aneskj ördæmi.
Baráttukonu
á þing
Kristín Helga Gísladóttir, sjúkraliði,
skrifar:
KRISTÍN Á. Guðmundsdóttir er
kona sem við þurfum á þing. Kristín
hefur sem formaður Sjúkraliðafé-
lags Islands sýnt og sannað að í
henni býr mikil baráttukona. Pað er
einstaklega gaman að vinna með
Kristínu, hún er dugnaðarforku,
ósérhlífin, samkvæm sjálfri sér og
fylgin sínum málstað. Hún er verð-
1 ugur fulltrúi allra
Éj verkmenntaðra
stétta í bessu landi.
[ ‘0 * Henni er mikill
14 akkur í að styrk.ia -
bÁ '-wiMjH og efla starfsnóm á
1 framhaldsskóla- ■jP- .
vanbörf á að ein-
GMadóttír hver leggi )wí máli
lið af heilum hug.
Ég treysti Kristínu vel til að
starfa af heilindum fyrir fólkið í
landinu og styð hana í forystusæti
samfylkingarinnar í Reykjanesi um
leið og ég hvet aðra Reyknesinga til
að gera slíkt hið sama.
Valþór
í annað sæti
Pétur Már Ólafsson, Kópavogi, skrifar:
VALPÓR Hlöðversson, sem býð-
ur sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri
Ólafsson
samfylkingarinnar
á Reykjanesi, hef-
ur sýnt með verk-
um sínum að hann
á brýnt erindi á
þing. Hann á að
baki 12 ára farsæl-
an feril í bæjar-
stjórn Kópavogs en
hefur að auki
byggt upp eigið
fyrirtæki. Hann hefur þannig bæði
víðtæka reynslu af stjómmálum og
atvinnulífi.
Valþór mun reynast okkur öflug-
ur bandamaður sem viljum koma á
réttlátu auðlindagjaldi í sjávarút-
vegi, gera umhverfismálum hærra
undir höfði en nú er, létta álögum af
barnafjölskyldum og efla menntun í
landinu. Þetta eru brýnustu mál
komandi kjörtímabils og þess vegna
styð ég Valþór Hlöðversson í 2. sæti ,
í prófkjöri samfylkingarinnar í
Reykjáneskjördæmi.
Bragi J. Sigurvinsson, Sjávargötu 6,
Bessastaðahreppi, skrifar:
HUGSJÓNIR
og áræði einkenna
Ágúst Einarsson
sem stjómmála-
mann og ég tel að
hann ,sé rétti mað-
urinn til að vera
forystumaður í
Samfylkingunni og
forvígismaður í
Reykjaneskjör-
dæmi. Hann er vaskur baráttumað-
ur á þingi og tillögur hans um um-
hverfismál, menningu, veiðileyfa-
gjald, málefni aldraðra og margt
fleira bera vitni um trúfesti hans við
jafnaðarstefnuna.
Ágúst heí'ur jafnan látið stefnumið
sín ganga fyrir stundai-hagsmunum í
stjórnmálum og barist ótrauðm-
gegn spillingu, m.a. með því að segja
af sér setu í bankaráði Seðlabankans
í mótmælaskyni. Hann er sá þing-
maður sem Samfylkingin má síst án
vera vegna þekkingar hans á efna-
hagsmálum og víðtækrar reynslu úr
atvinnulífinu.
Ágúst hefur verið einlægur bar-
áttumaður fyrir sameiginlegu fram-
boði. Ég treysti Ágústi Einarssyni
umfram aðra til þess að takast á við
foi-ystumenn Sjálfstæðisflokksins á
Alþingi og í Reykjaneskjördæmi.
Ágúst á topp-
inn I Reykja-
neskjördæmi
Steindór Karvelsson, Vallargerði 14,
Kópavogi, skrifar:
ÁGÚST Einars-
son hefur hugsjón-
ir og áræði til þess
að veita hugmynd-
um inn í stjóm-
málaumræðu á ís-
landi.
Hann hefur í
vetur lagt fram
kröfu um að sam-
tök eldri borgara
og öryrkja fái aðild að stjórn Trygg-
ingastofnunar ríkisins þar sem mál-
efni þeirra eru mjög til umfjöllunar.
SPARAÐU ÞUSUNDIR
DÆMI: ARMSTRONG
gólfdúkur
Teg. GALLERI
áður kr. 1.140 m2
nú kr. 798 m2
DÆMI: GOLFFLISAR
Stærð 30X30
áður kr. 1.995 m2
nú kr. 1.398 m2
DÆMI: D0EN Pj
Norsk gæði
Teg. MARKANT
áður kr. 4.771
nú kr. 3.340
DÆMI: GÖLFTEPPI
Teg. FANCY
4m á breidd
áður kr. 1.395 m2
nú kr. 837 m2
DÆMI: M0TTUR
Teg. RUBY
stærð 60x110
kr. 1.294 pr.stk.
ð120x100
kr. 3.7B0 pr.stk.
DÆMI: YEGGFLÍSAR
Stærð 15X20
MARGAR GERÐIR
Takið máiin
með það flýtir
afgreiðslu!
M
allt aðtHMJafsl.
verð frá kr. 1.354 m2
Góð greiðslukjörl
Raðgreiðslur til allt að
36mánaða
# AFGANGAR:
TEPPI, DÚKAR, FLÍSAR
ALLT AD 70% AFSL.
0PNUNARTÍMI: 9-18 virka daga
10-16 laugardaga
TEMBUDIN
Suðurlandsbraut 26 s: 568 1950