Morgunblaðið - 04.02.1999, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
u*-------------------------------
Veljum sterka
sveit á
Reykjanesi
Jón Kr. Ósknrsson loftskcytamaður,
Hnfnnrfirði, skrifnr:
ÉG TEL að
framboðslisti okkar
myndi styrkjast
mjög ef við hefðum
Lúðvík Geirsson,
Hafnarfirði, í þriðja
sæti og Jón Gunn-
arsson, Vogum, í
fímmta sæti á lista
Samfylkingar í
Reykjaneskjör-
dæmi. Jón Gunnarsson og Lúðvík
Geirsson eru menn sem hafa all-
lengi starfað að sveitarstjórnarmál-
• um í sínum byggðarlögum og hafa
yfirgripsmikla reynslu í þeim mála-
flokkum. Jón hefur til að mynda
starfað mikið í ýmsum mikilvægum
nefndum á vegum sveitarfélaganna
á Suðurnesjum, Lúðvík hefur t.d.
starfað mikið innan íþróttahreyfing-
arinnar, meðal annars sem formað-
ur Knattspymufélagsins Hauka
undanfarin ár. Reyknesingar, veit-
um þessum mönnum brautargengi
til áframhaldandi góðra mála hinn
5. og 6. febrúar nk.
Með Guðmund Arna í forystu list-
ans og með góða menn sem Lúðvík
og Jón innanborðs, þá eru okkur all-
ir vegir færir. Fram til baráttu jafn-
aðarmenn.
Ágúst Einars-
son til forystu
Sigrún Benediktsdóttir, Lundi,
Svíþjóð, skrifnr:
ÉG STING hér
niður penna til þess
að mæla með einum
þeirra í efstu sæti
listans, Agústi Ein-
arssyni alþingis-
manni. Agúst þarf
að sjálfsögðu ekki
að kynna svo vel
sem hann hefur
kynnt sig sjálfur í
störfum sínum. Þama er óumdeilt
þungavigtarmaður á ferð í íslenskri
pólitík.
Ágústi er greindur vel og fljótur
að setja sig inn í hlutina. Hann er vel
menntaður og hefur yfirgripsmikla
þekkingu og reynslu í mörgum mik-
ilvægum málaflokkum. Þar nægir að
nefna sjávarútvegsmál og efnahags-
mál. Ágúst er prinsípmaður sem
fylgir einarðlega sannfæringu sinni.
Állir þessir þættir skipta miklu máli
í okkar hraða upplýsingaþjóðfélagi.
f Ég hef kynnst Ágústi í gegnum
flokksstarf mitt í Alþýðuflokknum
og get því hiklaust sagt að með því
að tryggja Ágústi forystusæti á lista
samfylkingarinnar á Reykjanesi er-
um við að styrkja hana sem stjóm-
málafl í landinu. ►Meira á Netinu
Veljum
Valþór á þing
Logi Kristjnnsson verkfræðingur
skrífnr:
EINN þeirra
sem býður fram
krafta sína í próf-
kjöri Samfylking-
arinnar í Reykja-
neskjördæmi er
Valþór Hlöðvers-
son, fyrrverandi
bæjarfulltrúi í
Kópavogi. Biður
hann um stuðning í
2. sæti listans.
I meirihlutatíð Valþórs í bæjar-
stjórn Kópavogs voru gerðir rekstr-
ar- og framkvæmdasamningar við
Breiðablik. Kom það í minn hlut
sem þáverandi formaður félagsins
að semja við bæjaryfirvöld og átti
ég góð samskipti við Valþór og fé-
' laga hans um þau efni. Þar sýndi
hann framsýni og skilning á högum
þeirra sem vildu efla æskulýðs- og
íþróttastarf í bænum enda hafa þeir
samningar orðið til eftirbreytni um
land allt.
Ég hef þekkt Valþór lengi og hef
góða persónulega reynslu af þeim
kynnum. Ég hvet því Reyknesinga
til að fjölmenna í prófkjörið og
tryggja honum verðugt sæti á Al-
þingi.
Kjósum Sigríði
Jóhannesdótt-
ur í prófkjör-
inu
Pnin Færseth skrífnr:
ÉG VIL hvetja
alla kjósendur til
að taka höndum
saman og tryggja
Sigríði Jóhannes-
dóttur alþingis-
manni í Reykjanes-
kjördæmi áfram-
haldandi setu á Al-
þingi, en hún býður
sig fram í annað
sæti í prófkjöri samfyikingarinnar
sem fram fer 5. og 6. febrúar næst-
komandi. Þar gefst ölium, jafnt
flokksbundnu sem óflokksbundnu
fólki, færi á að hafa áhrif á hverjir
munu skipa framboðslista samfylk-
ingarinnar í kosningum í vor. Ég
þekki Sigríði vel og treysti henni til
góðra verka í þágu kjördæmisins
enda hafa hennar störf á þingi sýnt
að hún er vel að því trausti komin.
Þórunni í
þriðja sæti
Pnll Vnlsson, ritstjóri, Kópnvogi
skrífnr:
NÚ ÞEGAR hfil-
ir undir að lang-
þráður draumur
okkar jafnaðar-
manna um eina
fylkingu verði að
veruleika skiptir
ákaflega miklu
máli að velja gott
fólk til forystu. Við
í Reykjaneskjör-
dæmi erum þeir lukkunnar pamfílar
að okkur stendur til boða að velja
einn af frumkvöðlum þessa fram-
boðs, Þórunni Sveinbjarnardóttur,
stjórnmálafræðing, í öruggt sæti.
Ein mikilvægasta fyrirmynd
samfylkingar er Röskva - hið prýði-
lega félag ungra jafnaðar- og vinstri
manna í Háskóla íslands, þar sem
félagshyggjufólk hefur starfað sam-
an með góðum árangri í rúm tiu ár.
Fyrsti formaður Röskvu og einn
arkitekta þess félags var einmitt
Þórunn Sveinbjarnardóttir. Allar
götur síðan hefur Þórunn verið ötull
talsmaður samfylkingar jafnaðar-
manna og m.a. einn kosningastjóra
R-listans í Reykjavík við síðustu
kosningar. Ég skora á Reyknesinga
að tryggja sér starfskrafta Þórunn-
ar og velja samfylkingunni um leið
réttsýnan og heiðarlegan forystu-
mann af nýrri kynslóð.
Stuðningur
við Drífu
Guðrún Aradóttir skrífnr:
DRÍFA Hjartar-
dóttir, bóndi á
Keldum, Rangár-
völlum, býður sig
fram í annað sæti á
lista Sjálfstæðis-
flokksins í Suður-
landskjördæmi í
komandi kosning-
um. Drífa hefur víð-
tæka reynslu í fé-
lagsmálum, hefur m.a. setið í sveitar-
stjóm Rangárvallahrepps um árabil
og í héraðsnefnd Rangæinga og er
því gjörkunnug málefnum sveitarfé-
laga. Hún hefur verið virk og valist
til forystu í samtökum kvenna bæði
innan lands og á fjölþjóða vettvangi.
Hún var formaður Sambands sunn-
lenskra kvenna í sex ár og er núver-
andi forseti Kvenfélagasambands ís-
lands. Einnig er hún forseti Nor-
ræna húsmæðrasambandsins.
Hún vill stuðla að velferð íbúa
kjördæmisins, byggja upp atvinnu-
lífið og sinna málefnum fjölskyldna.
Drífa er kona sem þorir og er alltaf
jákvæð og tilbúin til að bæta á sig
verkefnum í þágu samfélagsins.
Hún er eini Rangæingurinn á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins,
sem hefur raunhæfan möguleika á
því að komast á þing.
Veljum Drífu Hjartardóttur í
annað sæti D-listans á Suðurlandi.
► Meira á Netinu
Ferskleiki
og kraftur
Olnfur Thordersen, frnmkvæmdn-
stjóri, ski’ifnr:
NÝTT framboð,
Samfylking jafnað-
armanna, hefur
loksins litið dags-
ins ljós. Þegar nýtt
og ferskt framboð
kemur fram á sjón-
arsviðið tel ég
brýnt að ferskleik-
inn sé undirstrik-
aður þegar valið á
framboðslista til alþingiskosninga.
Um næstu helgi mun þetta nýja og
ferska afl halda prófkjör þar sem
öllum stuðningsmönnum listans
gefst kostur á að velja á framboðs-
listann í Reykjaneskjördæmi.
í prófkjörinu tekur þátt ungur
maður, sem ég þekki vel til. Hann
heitir Gestur Páll Reynisson, fram-
kvæmdastjóri og háskólanemi. Ég
hef þekkt vel til Gests Páls og
starfa hans í Alþýðuflokknum og
líkað vel. Hér er á ferðinni öflugur
og greindur ungur maður, sem á
fullt erindi á framboðslista Sam-
fylkingarinnar. Gestur Páll undir-
strikar þann ferskleika sem þessu
nýja framboði fylgir og nú er lag að
láta kné fylgja kviði og kjósa góðan
dreng í 5.-6. sæti í prófkjörinu.
Guðmund Árna
sem leiðtoga
Helgi R. Gunnarsson, starfsmaður Raf-
iðnaðarsambands Islands:
ÉG VARÐ þeirr-
ar ánægju aðnjót-
andi að starfa með
Guðmundi Árna í
bæjarmálum Hafn-
arfjarðar í nokkur
ár meðan hann var
þar bæjarstjóri.
Þar sá ég framtíð-
arforystumann
jafnaðarmanna,
mann sem sýndi áræði og styrk í
störfum sínum um leið og hann
treysti fólki 100% í þeim störfum
sem þeim voru falin. Guðmundur
hefur sýnt og sannað að hann hefur
kjark og þor að takast á við krefj-
andi verkefni. Hann ávann sér virð-
ingu Hafnfirðinga, hvar í fiokki sem
þeir stóðu, í bæjarstjóratíð sinni,
enda fór hann aldrei í manngreinar-
álit í störfum sínum. Störf hans hafa
einkennst af hugsjónum hans, jafn-
réttið í öndvegi og hann tekur jafn-
an málstað þeirra sem minna mega
sín. Guðmundur er enn ungur að ár-
um, en hefur óvenjumikla lífs-
reynslu. Hann hefur mátt þola bæði
súrt og sætt, sigra sem ósigra bæði
í starfi sem einkalífi. Það er aðdáun-
arvert það æðruleysi sem Guð-
mundur hefur sýnt í því mótlæti
sem hann hefur mætt og hvernig
hann hefur notað það sem lífreynslu
til að læra af og þroskast. Reyknes-
ingar! Það er mikið og gott mannval
á lista samfylkingarinnar og vil ég
þar sérstaklega nefna Rannveigu og
Lúðvík Geirsson, sem ég tel eiga er-
indi á þing. Veljum Guðmund Árna
til að leiða þennan föngulega hóp.
Jón Gunnars-
son á þing
Jóhnnna Reynisdóttir, sveitarstjórí
Vatnsleysustrandarhrepps, skrífar:
JON Gunnars-
son, framkvæmda-
stjóri, býður sig
fram í prófkjöri
samfylkingarinnar
í Reykjaneskjör-
dæmi 5. og 6. febr-
úar nk.
Jóni kynntist ég
fyrir 10 árum þeg-
ar hann rak fisk-
vinnslufyrirtæki í Njarðvík. Ég var
þá útibústjóri í Verslunarbankanum
sáluga og stundaði Jón viðskipti við
bankann.
Tveimur árum síðar kynntist ég
Jóni á öðrum vettvangi, þ.e. á vett-
vangi sveitarstjórnamála en hann
var þá oddviti í Vatnsleysustrandar-
hreppi. Samstarfshæfni hans, metn-
aður hans að tryggja fé til fram-
kvæmda í hreppnum, hæfni hans í
ræðumennsku og ekki síst leiðtoga-
hæfileikar eru kostir sem Jón getur
státað af.
I viðskiptun og sveitarstjóma-
málum hefur Jón aflað sér víðtækr-
ar þekkingar og reynslu sem nýtist
þingmönnum vel. Með þann bak-
grunn að vopni eru fáir betur í
stakk búnir til að berjast fyrir mál-
efnum kjördæmisins. Jón Gunnars-
son er einfaldlega maður sem nær
árangri.
Ég hvet alla sem taka þátt í próf-
kjörinu að setja Jón Gunnarsson í
annað sæti. ►Meira á Netinu
Valþór I
öruggl sæti!
Heiðrún Sverrisdóttir leikskólakennari
skrifnr:
í OPNU próf-
kjöri samfylkingar
í Reykjaneskjör-
dæmi um næstu
helgi eiga kjósend-
ur möguleika á að
velja fulltrúa úr
stórum hópi til að
móta þetta nýja
stjórnmálaafl. í
þeim hópi er að
finna Valþór Hlöðversson, fyrrum
bæjarfulltrúa.
Ég sat með Valþóri í bæjarstjórn
í fjögur ár en þá var hann að byrja
sinn stjórnmálaferil. Af þeim kynn-
um hef ég góða reynslu. Síðan þá
hef ég haft ánægju af að fylgjast
með verkum hans, nú síðast í sam-
fylkingu félagshyggjufólks, kven-
frelsissinna og jafnaðarmanna í
Kópavogi sl. vor. Hafði hann frum-
kvæði að því framboði og var ein-
róma valinn bæjarstjóraefni þess.
Ég vil eindregið hvetja Reyknes-
inga til að taka þátt í þessu opna
prófkjöri og tryggja Valþóri
Hlöðverssyni öruggt sæti á listanum.
Ég treysti
Valþóri best
Halldóra Ottósdóttir húsmóðir skrifar:
Ég hef þekkt
Vaiþór Hlöðvers-
son frá því ég var
unglingur og síðan
fylgst með honum í
bæjarpólitíkinni í
Kópavogi. Hann
biður nú um stuðn-
ing í 2. sæti í próf-
kjöri Samfylking-
arinnar á Reykja-
nesi um næstu helgi. Mér er bæði
ljúft og skylt að verða við þeirri ósk.
Þeir sem hafa fylgst með Valþóri
á pólitískum vettvangi hingað til
vita að hann mun reynast öflugur
þingmaður. Hann er heiðarlegur
maður og vinnusamur en þó fyrst
og fremst baráttumaður fyrir þá
sem minna mega sín. Þannig fólk vil
ég að sitji á Alþingi.
Ég vil skora á fólk að taka þátt í
opnu prófkjöri um næstu helgi og
velja Valþór í 2. sæti listans eins og
hann hefur beðið um. Raunar ætla
ég sjálf að kjósa hann í 1. sætið því
þangað á hann erindi að mínu mati.
Sigríði Jó-
hannesdóttur
I annað sætið
Eyjólfur Eysteinsson, verslunarstjórí í
Keflavík, skrifar:
SIGRÍÐUR Jó-
hannesdóttir tók
sæti á Alþingi eftir
að Ólafur Ragnar
Grímsson var kjör-
inn forseti en áður
hafði hún verið
varaþingmaður
fyrir Reykjanes-
kjördæmi frá 1991.
Hún hefur unnið
mikið og gott starf á Alþingi þar
sem hún hefur verið öflugur
málsvari þeirra sem minnst mega
sín. Sú reynsla sem ég hef persónu-
lega af störfum hennar er varða
málefni Sjúkrahúss Suðumesja þar
sem ég var stjórnarmaður, vaskleg
framganga hennar gegn niður-
skurðarhníf framsóknar/íhalds-
stjórnarinnar, sannfærði mig enn
frekar um það að Sigríður setur
manngildi ofar auðgildi.
Sigríður er eini þingmaður Suður-
nesja í hópi þingmanna Samfylking-
ar, skeleggur málsvari þess að verja
beri félagslega þjónustu og einlægur
málsvari þeirra sem vilja skapa þjóð-
félag jafnréttis og bræðralags. Hún
hefur starfað á Aiþingi af dugnaði og
elju og ég vil hvetja Suðumesja-
menn og alla Reyknesinga til að taka
þátt í prófkjörinu og tryggja henni
annað sætið í prófkjöri Samfylking-
arinnar sem fram fer 5. og 6. febrú-
ar. Athugið að prófkjörið er opið
jafnt flokksbundnu sem óflokks-
bundnu fólld. Allir í Reykjaneskjör-
dæmi geta haft áhrif á það að Sigríð-
ur Jóhannesdóttir fái kost á því að
halda áfram hinu góða starfi sínu á
Alþingi.
Þórunni
i forystu
Olafur Darri Andrason hagfræðingur
skrifar:
FYRIR um ára-
tug var Röskva,
samtök félags-
hyggjufólks_ í Há-
skóla Islands,
stofnuð en segja
má að með því hafi
grunnurinn að
Samfylkingunni
verið lagður. Þór-
unn Sveinbjamar-
dóttir var fyrsti formaður Röskvu
og hefur æ síðan verið sannur sam-
fylkingarsinni.
Þórann er fulltrúi nýrrar kyn-
slóðar í íslenskum stjórnmálum.
Hún hefur til að bera bæði áræði og
dugnað og hefur með störfum sín-
um aflað sér víðtækrar reynslu sem
gerir hana að verðugum fulltrúa í
forystusveit Samfylkingarinnar í
Reykjaneskjördæmi. Þórunn var
framkvæmdastjóri Kvennalistans
‘92- 95, varaþingkona ‘95-’99, í
nefnd Alþingis um endurskoðun
kosningalaganna ‘98, sat í útvarps-
ráði ‘95-’97, var kosningastjóri
Reykjavíkurlistans ‘98 þegar listinn
vann glæsilegan sigur í Reykjavík,
upplýsingafulltrúi Rauða krossins í
Tansaníu og Aserbaidsjan 95-97.
Tryggjum Þórunni sæti í forystu-
sveit Samfylkingarinnar á Reykja-
nesi.
Græn stóriðja
og búseta í
sveit
Georg Ottósson, stjórnnrformaður
Sölufélags garðyrkjumanna, skrífar:
FLUTNINGUR
fólks úr sveitum og
byggðakjörnum
landsins til höfuð-
borgarsvæðisins
ógnar mjög fram-
tíðarbúsetumögu-
leikum komandi
kynslóða. Fátt virð-
ist geta stöðvað
þessa þróun, en
uppbygging fjölbreyttra atvinnu-
greina er vissulega nokkuð sem
hjálpar til við að snúa þróuninni við.
Islensk garðyrkja er í sveitum
landsins og skapar mikinn fjölda
starfa víða um land, en þó sérstak-
lega á Suðurlandi þar sem um 90%
framleiðenda eru. Lækkun raforku-
verðs til greinarinnar er stærsta
hagsmunamál þessarar greinar, en
raforkukostnaður vegur um 25-30%
af rekstrargjöldum garðyrkjubýla.
Kjartan Ólafsson, formaður Sam-
bands garðyrkjubænda, hefur unnið
af mikilli hörku og óeigingirni að því
að fá taxtana lækkaða enda er hér á
ferðinni gríðarlega mikilvægt
byggðamál fyrir Suðurland og land-
ið í heild. Ég er sannfærður um að
nái Kjartan Ólafsson þeim árangri
að komast á þing mun reynsla hans
og leiðtogahæfni skila jákvæðum
árangri í baráttunni við fólksflutn-
inga af landsbyggðinni.
Logi
Kristjánsson
Páhi
Færseth
Páll
VaJsson
Ólafur
Thordersen
Helgi R.
Gunnarsson
Jóhanna
Reynisdóttir
Heiðrún
Sverrisdóttir
Halldóra
Ottósdóttir
Eyjólfur
Eysteinsson
Ólafur Darri
Andrason