Morgunblaðið - 04.02.1999, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
Þegar ljóst var að í
febrúarþætti Spuna
niyndi verða uppskrift
að sjali var þeirri
spurningu varpað fram
við mig; hver er munur-
inn á sjaii og hyrnu?
-y Við eftirgrennslan á
gömlum uppskriftum
hér og þar þá virðast
þessi orð, „sjal“ og
„hyrna“, vera notuð jafnt yfir
klæði sem lagt er yfir herðarnar.
Skv. orðabók Máls og menningar
kemur þó fram munur á þessum
orðum. Þar kemur fram að „sjal“
sé klæði (með kögri) sem lagt er
yfir herðarnar en að „hyrna“ sé
höfuðklútur. Astæðan fyrir að í
(laglegu máli virðist enginn
greinarmunur gerður á þessum
orðum gæti verið sú að sjalið og
hyrnan þjóna oft sama tilgangi.
Sjalið er oft notað sem höfuð-
klútur t.d. í vondu veðri og hyrn-
an tekin af höfðinu og sett yfir
herðarnar. Þannig gæti orðnotk-
unin, hin upprunalega merking
orðanna, hafa blandast. Aðal-
munurinn á þessum orðum virð-
ist sá að „sjalið“ getur bæði ver-
ið fjórhyrnt og þríhyrnt en fjór-
hyrnt sjal er lagt saman í þrí-
hyrnu en hins vegar virðist orðið
„hyrna" alltaf vera notað í merk-
ingunni þríhyrna þ.e.a.s. með
þremur hornum, þegar skoðaðar
eru gamlar uppskriftir.
Skv. orðabók Máls og menn-
Hngar þýðir orðið þríhyrna =
herða- eða höfuðsjal. Þannig að í
þessu orði „þríhyrna" sameinast
orðin í eina og sömu merk-
inguna. „Sjal“ og „hyrna“
er því að vissu leyti sam-
heiti en að öðru Ieyti
ekki, enda sjaldgæft að
tvö orð (samheiti) séu að
öllu leyti eins. Einnig get-
ur orðnotkun og þar með
merking orða í hugum
fólks verið misjöfn frá
einum einstaklingi til
annars, einnig frá einu svæði til
annars og frá einum tíma til
annars. Hafa ber því í huga að
orðabókardæmi er ekki heilagur
sannleikur í öllum tilvikum.
Það má geta þess að orðið
„sjal“ er tökuorð í íslensku og
kemur til í gegnum dönsku úr
ensku (shawl) en kemur upphaf-
lega úr persnesku skv. orðsilja-
bók Asgeirs Blöndals. Þriðja orð-
ið er til um þennan hlut en það er
orðið „skakki" sem er reyndar
staðbundið málfar, t.d. var það
notað í Jökulijörðum en skv.
orðabók þá er „skakkinn" pijón-
uð þríhyrna. Hvort „skakki" gat
verið heklaður kemur ekki fram.
Sú heklaða þríhyrna sem hér
er á herðum má því notast jafnt
yfir herðar og/eða höfuð þegar
hemja þarf hárið í villtum dansi
sínum við íslenskt hvassviðri.
Mig langar í lokin að geta þess
við lesendur Spuna sem ekki
hafa áttað sig á reglubundinni
birtingu hans að Spuni birtist
alltaf fyrsta fimmtudag í hverj-
um mánuði. Þannig geta dag-
setningar verið misjafnar frá ein-
um mánuði til annars.
HYRNUNA er einfalt að hekla, bara loftlykkjur, fastapinnar og stuðlar.
Hekluð
þríhyrna
um herðar
Hönnun; Bergrós Kjartansdóttir.
Heklað úr Sisu 80% ull 20% acryl.
Lengd á sjali u.þ.b. 150 sm.
Sídd þar sem það er breiðast u.þ.b.
55 sm. ,
SISÚ:
Mosagrænt nr. 9863 eða Orans nr.
3525
Heklunál nr. 3
Heklið 299 loftlykkjur (ef óskað
er eftir stærra sjali eru heklaðar
303-310-317-324 ' loftlykkjur
o.s.frv.)
1. umf.: Stingið heklunálinni í
fjórðu loftlykkjuna frá nál = 1
stuðull. 2 stuðlar í sömu lykkju,
tvær loftlykkjur, 3 stuðlar í næstu
lykkju við hliðina. * 2 loftlykkjur,
hoppa yfir tvær lykkjur, 1 fastap-
inni í 3. loftlykkju, 2 loftlykkjur
hoppa yfir tvær lykkjur, 3 stuðlar í
næstu lykkju, 2 loftlykkjur, 3 stuðl-
ar í næstu lykkju við hliðina.* End-
urtakið frá * - * út umferðina.
2. umf.: Snúið við. Keðjulykkjur að
fyrsta 2ja loftlykkjuboganum. 3
loftlykkjur = 1 stuðull. 2 stuðlar 2
loftlykkjur og 3 stuðlar í sama loft-
lykkjuboga. * 5 loftlykkjur, 3
stuðla 2 loftlykkjur 3 stuðla í næsta
2ja ioftlykkjuboga. * Endurtakið
frá *-* út umferðina.
Ath. I hverri umferð er fækkað
um eina skel þ.e.a.s. það er snúið
við þegar ein skel er eftir. Þannig
fækkar skeljaröðinni um eina í
hverri umferð þar til ein skel er
eftir.
3. umf.: Snúið við. keðjulykkjur að
fyrsta 2ja loftlykkjuboganum. 3
loftlykkjur = 1 stuðull. 2 stuðlar 2
loftlykkjur og 3 stuðlar í sama loft-
iykkjuboga. * 21oftlykkjur, 1
fastapinni utan um 5 loftlykkjubog-
ann, 2 loftlykkjur. 3 stuðlar 2 loft-
lykkjur 3 stuðlar í 2ja loftlykkju-
bogann. * Endurtakið frá *-* út
umferðina.
Endurtakið síðan til skiptis 2. og
3. umferð.
Kögur: Klippið 30 sm langa
spotta, leggið saman 10 spotta og
notið aðferðina sem sýnd er á
myndinni til að gera kögrið. Einnig
getur lengdin og þykktin á kögrinu
farið eftir smekk hvers og eins.
Ver Jón Viktor Reykja-
víkurmeistaratitilinn?
Jón V. Gunnarsson -
Róbert Harðarson
Kristján Eðvarðsson -
Sigurbjörn Björnsson
Sigurður D. Sigfússon
- Bragi Þorfinnsson
Þorvarður F. Ólafsson
- Hrafn Loftsson
Ami H. Kristjánsson -
Tómas Bjömsson
Arnar E. Gunnarsson
- Davíð Kjartansson
Einar K. Einarsson -
Bergsteinn Einarsson
Jóhann H. Ragnars-
son - Páll A. Þórarins-
son
Dan Hansson - Hjalti
R. Ómarsson
Jón Árai Halldórsson
- Torfi Leósson
Jón Viktor
Gunnarsson
Helgi Áss næstefstur
á Bermúda
Þegar einni umferð
er ólokið á alþjóðlega
skákmótinu á Bermúda
er Helgi Áss Grétars-
son í öðru sæti með sex
vinninga, en á auk þess
eina skák óteflda. Tak-
ist Helga Áss að vinna
skákina verður hann
hálfum vinningi á eftir
franska stórmeistaran-
um Bacrot fyrir síðustu
umferð. Þröstur Þór-
hallsson hefur lokið sín-
um skákum og hlaut 5!4
vinning. Þrettán skák-
menn taka þátt í þessu
lokaða skákmóti.
SKAK
Taflfélag Ileykjavík-
ur, Faxafeni 12
SKÁKÞING
REYKJAVÍKUR
Jón Viktor Gunnarsson er í efsta sæti
á Skákþingi Reykjavíkur að loknum
sjö umferðum.
ÞEGAR sjö umferðir hafa verið
tefldar á Skákþingi Reykjavíkur er
~ *Jón Viktor Gunnarsson efstur á
mótinu með 6'/2 vinning og hefur
hálfs vinnings forskot á Sigurbjörn
Björnsson úr Hafnarfirði. Jón
Viktor sigraði á mótinu í fyrra og
er langstigahæsti keppandinn nú.
Sigurbjörn Björnsson vann Dan
Hansson í frestaðri skák og skaust
þar með upp í annað sætið fram úr
þeim Braga Þorfinnssyni og Krist-
jáni Eðvarðssyni. Röð efstu
manna:
1. Jón Viktor Gunnarsson 6V2 v.
2. Sigurbjöm Björnsson 6 v.
r 3.-4. Bragi Þorfínnsson 5'/t v.
3. -4. Kristján Eðvarðsson 5'A v.
5.-13. Tómas Björnsson, Hrafn Loftsson,
Davíð Kjartansson, Róbert Harðarson,
Arnar E. Gunnarsson, Sigurður Daði
Sigfússon, Einar K. Einarsson, Árni H.
Kíistjánsson 5 v.
o.s.frv.
I áttundu umferð, sem tefld var í
; gærkvöldi, tefldu m.a. saman:
Guðjón Heiðar sigrar í unglinga-
flokki Skákþings Rvk.
Keppni í unglingaflokki á Skák-
þingi Reykjavíkur er lokið. Tefldar
voru sjö umferðú' eftir Monrad-kerfi.
Umhugsunartíminn var 30 mínútur á
skák. Úrslit urðu sem hér segir:
1. Guðjón H. Valgarðsson 7 v.
2. Ólafur Gauti Ólafsson 6 v.
3. Dagur Arngrímsson 4!4 v.
4. Elí B. Frímannsson 4 v.
5. Birkir Örn Hreinsson 4 v.
6. Guðmundur Kjartansson 4 v.
7. Hjörtur Jóhannsson 3V5 v.
8. Aron Ingi Óskarsson 3 v.
9. Anna Lilja Gísladóttir 3 v.
o.s.frv.
Stefán Baldursson sigrar
á Fullorðinsmóti
Annað Fullorðinsmót Hellis var
haldið mánudaginn 1. febrúar. Mót-
ið var vel sótt, en það var einungis
opið fyrir 25 ára og eldri. Eins og
við er að búast hafa mót af þessu
tagi annað yfirbragð heldur en ai-
menn mót þar sem engin aldurstak-
mörk eru. Nokkurs konar „skák-
klúbbastemming" myndast, sem
skákmenn á þessum aldri kunna vel
að meta.
Mótið var jafnt og spennandi og
komu fjórir keppendur jafnir í mark.
Eftir stigaútreikning og síðan vara-
stigaútreikning stóð Stefán Baldur-
son uppi sem sigurvegari. Röð efstu
manna varð sem hér segir:
1. Stefán Baldursson 5 v.
2. Magnús Magnússon 5 v.
3. Gunnar Bjömsson 5 v.
4. Arnþór Hreinsson 5 v.
5. -7. Gísli Stefánsson, Hörður Garðars-
son og Þröstur H. Práinsson 4'Æ v.
8.-10. Vigfús Óðinn Vigfússon, Jón
Úlfljótsson og Harald Bjömsson 4 v.
11.-12. Grétar Áss Sigurðsson og Bene-
dikt Egilsson 3‘/2V.
o.s.frv.
Alls tóku 20 keppendur þátt í
mótinu. Skákstjórar vom Gunnar
Björnsson og Vigfús Oðinn Vigfús-
son.
Kvennamót Hellis
á laugardaginn
Nú á vormisseri ætlar Taflfélagið
Heilir að gangast fyrir nokkrum
mótum sem eingöngu verða fyrir
konur. Ekkert aldurstakmark er á
þessum mótum og vonast er til að
sjá sem flesta þátttakendur, bæði
þær stúlkur sem eru virkastar svo
og aðrar sem ekki hafa teflt í
nokkurn tíma. Fyrsta mótið verður
haldið laugardaginn 6. febrúar og
hefst kl. 13. Tefldar verða 7 umferð-
ir eftir Monrad kerfi með 10 mín-
útna umhugsunartíma.
Ekkert þátttökugjald. Góð verð-
laun verða veitt fyrir þrjú efstu sæt-
in á mótinu.
Skákþing
Fljótsdalshéraðs 1998
Skákþingi Fljótsdalshéraðs 1998
lauk 24. janúar sl., en mótið hafði þá
tafist verulega vegna frestaðrar
skákar. Skákmeistari Fljótsdals-
héraðs 1998 varð Gunnar Finnsson.
1. Gunnar Finnsson 3 v.
2. Rúnar Isleifsson 2V2 v.
3. Guðmundur Ingvi Jóh. 2 v.
4. Jón Bjömsson l'A v.
5. Gunnar Th. Gunnarss. 1 v.
Umhugsunartími var U/2 klst. á
30 leiki og 30 mín. til að ljúka skák-
inni. Umsjón með mótinu höfðu
Guðmundur Ingvi Jóhannsson og
Gunnar Finnsson.
Mót á næstunni hjá
Skákfélagi Akureyrar
Skákþing Akureyrar stendur nú
yfir og lýkur 21. febrúar. Á næst-
unni stendur Skákfélag Akureyrar
auk þess fyrir eftirfarandi mótum:
5.2. kl. 20: Fischerklukkumót 3+2
19.2. kl. 20: Tíu mínútna mót 45 ára
og eldri
20.2. Skákþing Akureyrar í yngri
flokkum
23.2. kl. 19:30: Áskorendamót 1. um-
ferð. 2000
25.2. kl. 20: Febrúar hraðskákmót-
ið.
28.2. kl. 14: Fimmtán mínútna mót.
Vafasamur
stigalisti frá FIDE
Það virðist nú fokið í flest skjól
fyrir FIDE. Nánast eini fasti
punkturinn í tilveru samtakanna
var reglubundin útgáfa skákstiga-
listans. Samkvæmt venju hefði átt
að koma út nýr stigalisti um ára-
mótin, en töluverður dráttur varð á
því. Nú hafa nokkrir aðilar birt
stigalista á Netinu, þó ekki FIDE
sjálft, en ástæða er til að vara skák-
menn við að treysta þeim upplýs-
ingum. Með því að skoða skákstig
íslensku skákmannanna má fljót-
lega sjá að lítið er að marka listann.
Einhver mót virðast tvíreiknuð,
auk þess sem skákmenn sem hafa
verið óvirkir birtast með tefidar
skákir.
Daði Orn Jónsson
Margeir Pétursson