Morgunblaðið - 04.02.1999, Side 51

Morgunblaðið - 04.02.1999, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 51 hún svo sannarlega á heimavelli í slíku spjalli. Garður hennar á Lindargötunni var einstaklega fallegur þótt ekki væri hann stór. Fjölskrúðug blóm sem greinilega var hugsað um af natni. Þannig ræktaði hún einnig þann garð sem næstur henni stóð, í velferð barna og ástvina. Ast hennar og alúð hefur hún skilið eftir í afkomendum sínum sem voru henni allt og getur stolt og ánægð hitt skapara sinn. Börnin mín eru á sama tíma og ég skrifa þessa fátæklegu grein að teikna mynd sem fylgja á Huldu og á myndina er skrifað. „Hafðu það gott hjá Guði og Jesú.“ Þessa kveðju vil ég einnig gera að minni. Að lokum sendi ég mínar inni- legstu samúðarkveðjur til barna og fjölskyldu. Kristján Þór. Hulda Jónsdóttir, tengdamóðir mín, hefur nú kvatt þetta jarðlíf og er hennar sárt saknað af okkur sem eftir sitjum. Hulda var af þeirri kynslóð sem sá þjóðina breytast úr fornu bændasamfélagi í nútíma þjóðfé- lag. Ung að árum fór hún sem kaupakona austur undir Eyjafjöll. Tók sú ferð nokkra daga og þurfti að sundríða óbrúað Markarfljót á leiðinni. í fai-tesld sínu hafði Hulda með sér skeið og gaffal og mun heimilisfólkinu hafa fundist það hé- gómi hjá Reykjavíkurstúlkunni að nota slík áhöld til að matast. Foreldrar Huldu fluttu til Reykjavíkm- árið 1918, þegar hún var á fyrsta ári, og keyptu þá húsið á Lindargötu 44a, þai- sem Hulda bjó alla tíð, þar til fyrir nokkrum árum að hún flutti annað. Húsið mun m.a. hafa verið valið vegna þess að þaðan mátti sjá upp að Brautarholti á Kjal- amesi þar sem faðir Huldu hafði verið bústjóri hjá Sturlubræðrum og móðir hennar starfaði einnig við búið um það leyti sem þau kynntust. Hulda var aðeins átta ára gömul þegar faðir hennar lést, og hefur það ekki verið auðvelt fyrir móðm- hennar að sjá sér og sjö bömum sín- um farborða á þeim tíma. Einhvem veginn hafðist það, m.a. með því að leigja út bróðurpartinn af húsinu á Lindai-götunni og þegar Hulda hafði talið upp fyrir manni íbúana sem þar bjuggu samtímis er erfitt að ímynda sér hvemig allt það fólk rúmaðist í þessu litla húsi. Sem unglingur starfaði Hulda við bamagæslu og sem vinnukona á heimilum í Reykjavík og um tveggja ára skeið starfaði hún á heimilum í Kaupmannahöfn. Um tvítugt stofn- aði hún sitt eigið heimili, ásamt manni sínum Birgi Einarssyni, í húsi fjölskyldunnar á Lindargötu. Þar uxu böm hennar úr grasi og varð heimili hennar sannkölluð fjöskyldumiðstöð, þar sem bömin og síðar bamabömin nutu hlýju hennar og umhyggju í i-íkum mæli. Hulda var mikil hagleikskona og var hún snillingur við hvers kyns saumaskap, föndur og handavinnu. Saumaði hún meira og minna allan fatnað á börn sín og síðar nutu barnabörnin handbragðs hennar. Hún var mjög fmmleg og tókst henni oft að framkvæma hluti sem öðrum datt ekki í hug, eða töldu ekki mögulega. Hulda var afskaplega ljúf kona og kom það ekki síst fram í mjög mikilli blíðu gagnvart öllum börn- um sem urðu á vegi hennar. Dæt- ur okkar Margrétar, Lilja og Berglind, bundust henni trúnaðar- og vinaböndum, sem þær eiga ljúf- ar minningar um. Fáa hef ég hitt eins og Huldu, sem fannst það sjálfsagt að þjóna þeim sem í kringum hana voru, án þess að óska nokkurs í staðinn. Þannig var eðli hennar og lífssýn og þessa nutum við fjölskylda hennar og samferðafólk. Fyrir fáum árum gekkst Hulda undir erfiða skurðaðgerð sem tók nokkrar klukkustundir. Þegar hún vaknaði að aðgerðinni lokinni þótti henni verst að hafa tafíð læknana svona lengi yfír sér, „menn sem höfðu nóg annað og merkilegra að gera“. Hulda var glæsileg kona á velli og jafnvel eftir að ki'aftar fóru dvín- andi var aðdáunarvert að sjá hversu vel hún hélt reisn sinni og glæsileik allt til hins síðasta. Hún gerði sér far um að láta okkur halda að henni liði betur en henni leið kannski í raun og veru, til þess að við hefðum ekki af henni óþarfa áhyggjur. Blessuð sé minning Huldu Jóns- dóttur. Jón Þorsteinn Gunnarsson. Mig langar til að minnast ömmu minnar með nokkrum orðum, þó að af miklu sé að taka þegar sest er niður og minningarnar streyma fram. Amma var mjög hugmynda- rík kona og fær í öllu sem viðkom saumaskap og handavinnu, mér er minnisstætt þegar hún bjó til brúðu og saumaði fatnað á þær, leiktjöld og annað af mikilli natni. Man ég sérstaklega þegar hún var fengin til að búa til bmðurnar um jesúbarnið og vitringana þrjá, og bað hún okkur, elstu bamabörnin, að koma og stjórna strengjabrúð- unum á sýningum sem haldnar voru í sunudagaskólum kirkjunnar. Þarna fannst mér ég leika svo stórt hlutverk, með því að stjóma einum vitringnum að ég vaknaði íyrir all- ar aldir af spenningi á hverjum sunnudegi, fyrir utan það hvað ég var stolt af ömmu minni að geta búið allt þetta til. Einhvem veginn fannst mér að amma ætti að lifa endalaust, þótt ég sé nú orðin fullorðin og viti hvemig lífið gengur fyrir sig. Hún var bara alltaf til staðar og bar ætíð velferð fjölskyldunnar fyrir brjósti. Amma veiktist og var flutt á Landspítalann 26. janúar og lést þar tveimur sólarhringum seinna. Ég fór að heimsækja hana daginn áður en hún kvaddi, fyrst í hádeg- inu þar sem mér fannst hún vera orðin ansi veik og ljóst var að bragðið gat til beggja vona. Síðan kom ég seint um kvöldið og þá fannst mér hún vera öllu hressari, þar sem hún hló og sló á létta strengi. Þarna kvaddi ég hana og kyssti góða nótt og hún bað mig fyrir kveðju heim. Þessa stund ætla ég alltaf að geyma í hjarta mínu. Að endingu langar mig að láta fylgja litla vísu sem amma söng alltaf fyrir mig þegar ég var lítil telpa, og ég syng nú fyrir böm- in mín, en hún er: Blátt lítið blóm eitt er, ber nafnið: „Gleymdu ei mér“, væri ég fleygur fugl, flygi ég til þín. Svo mína sálu nú sigraða hefur þú, engu ég unna má öðru en þér. (Þýsk þjóðvísa.) Far þú í friði og hafðu þökk fyrir allt, amma mín. Þín Guðrún Hulda. Amma, það er líklega orðið sem við læram á eftir mamma og pabbi. Hver er merkingin á bak við orð- ið amma? I huga okkar kemur hlýja, traust og kímni. Oft er ömmu ímyndin; gráhærð, lágvaxin, þétt kona. Amma okkar var öðra- vísi amma. Hún var há, grönn og glæsileg. Amma Lindó var eina amma okkar systranna og gegndi stóra hlutverki í lífí okkar. Spennandi var að fá að vera með henni þar sem ýmislegt var brallað. Hana skorti aldrei hugmyndir að afþrey- ingu fyrir okkur. Það var fóndur úr öllu milli himins og jarðar, s.s. sogi’örum, pípuhreinsurum, tvinna- keflum og öðram ótrálegum hlut- um. Undir leiðsögn ömmu urðu úr þessu hin glæsilegustu listaverk. Amma hafði endalausa þolin- mæði við okkur í spilamennsku. Það sem við gátum þvælt henni í löngu vitleysu, hæ gosa, rommí, kleppara og svo mætti lengi telja. Oft var kátt í eldhúsinu, sungið og dansað við lagið „ég lonniett- urnar lét á nefíð“. Þegar við eignuðumst okkar heimili og fjölskyldur sjálfar, var gott og gaman að eiga ömmu að. Ef einhverjar framkvæmdir stóðu til á heimilum okkar sýndi amma því mikinn áhuga alla tíð. Þótt mikið vanti þegar amma er farin eigum við góðar minningar um yndislega konu sem kenndi okkur margt með að vera til. Hulda María og Asdís. Elsku amma Lindó. Einhvem veginn átti ég aldrei von á því að til þess kæmi að ég þyrfti að kveðja þig í hinsta sinn. Þú áttir alltaf að vera til staðar - tilbúin að ræða um allt milli himins og jarðar, eins og við gerðum svo oft í eldhúsinu á Lindargötunni, síðan í Skaftahlíðinni og síðast í Lönguhlíðinni. Sátum yfir kaffí- bolla og ræddum framtíð mina og minnar fjölskyldu, hvemig mér gengi að jafna mig á bakmeiðslum mínum, hvort allir væra ekki frísk- ir, hvernig gengi hjá krökkunum í skólanum og nú síðast hvernig Höllu minni liði á meðgöngunni. Alltaf varstu að hugsa um að öðr- um liði vel og gengi vel í því sem þau voru að gera. Nú þegar ég lít yfír farinn veg þá er svo margt sem ég átti eftir að segja þér, hversu vænt mér þykir um þig og hversu hreykinn ég var að segja þér frá fæðingu Höllu Kristínar og Hjálm- ars Arnar, og að við Halla ættum von á okkar þriðja barni á afmælis- daginn þinn nú í sumar. Nú ertu skyndilega farin og heimsóknirnar verða ekki fleiri en alltaf mun minningin um þig hlýja mér um hjartarætur eins þær samvera- stundir sem við áttum. Guð blessi þig og geymi elsku amma mín. Þinn ljúflingur, Hannes Birgir. Er ég lít yfir farinn veg sé ég hversu lánsöm ég hef verið frá unga aldri að hafa kynnst og verið samferða svo mörgum einstökum manneskjum á lífsleiðinni. Heil- steyptum og góðum einstaklingum, sem eru af þeirri kynslóð, sem nú er að hverfa. Ein þeirra er Hulda Jónsdóttir. Hulda mágkona, Hulda hans Birgis, Hulda frænka var ein og sama manneskjan, - ég kallaði hana alltaf „frænku", en hún var gift Birgi Einarssyni, móðurbróður mínum. Allan þeirra búskap bjuggu þau á Lindargötunni með bamahópinn sinn, Kiddý, Birgi Örn, Önnu og Margréti. Ég minnist sérstaklega einnar heimsóknar minnar á Lindargöt- una til Huldu frænku, en ég mun hafa verið 13 ára gömul, þegar ég bankaði upp á með rósótt efni und- ir hendinni. Ég var búin að sjá sömu dans- og söngvamyndina í Austurbæjarbíói a.m.k. fjóram sinnum. Þar var aðalsöngstjarnan í svo óskaplega fallegum kjól, að annað eins hafði ég aldrei séð. Mig dreymdi þennan kjól. Ég stóð á eldhúsgólfinu hjá Huldu frænku með efnið rósótta, keypt hjá Toft, og margþvælda teikningu og riss af kjólnum úr bíó- myndinni í lófanum, - og auðvitað saumaði listakonan ljúfa á mig kjólinn. Hún var eins og góða dísin í ævintýrinu með töfrasprotann sinn. Draumakjóllinn varð til. Annan kjól ekki síðri gaf hún mér seinna meir. Það var skírnar- kjóll fyrir elstu dóttur mína, úr hvítu lérefti með innlagðri blúndu, sem hún sjálf hafði saumað. Dætur mínar fjórar og barnabömin hafa öll verið skírð í skírnarkjólnum hennar Huldu frænku. Ein kynslóð ber hina til grafar og eftir stendur tómarám og sökn- uður. A kveðjustund sem þessari er flest allt ósagt sem í huga manns býr. Hlýhugur og þakklæti er mér efst í huga þegar ég þakka góðri frænku samíylgdina. Hjálpsemi, hlýja, virðuleiki og einstök útgeislun einkenndu Huldu Jónsdóttur. Þannig mun ég alltaf minnast hennar. Guðrún Sverrisdóttir. Elsku besta amma Lindó. Þetta er eitthvað það erfiðasta sem ég hef um ævi mína gert, að skrifa niður á blað örfá minningarbrot þegar af svo óteljandi mörgu er að taka. Sú tilhugsun að amma Lindó skuli vera öll, er hreint út sagt mjög óraunveraleg, en sagt er að tíminn græði flest sár. Upp í huga minn koma margar hlýjar minningar úi' æsku, því aldrei sat maður auðum höndum þegar maður fékk að gista hjá ömmu á Lindó. Hún spilaði mikið við okkur barnabömin, svo sem rássa, kleppara, veiðimann, þar sem við söfnuðum buxum, og lúdó, _ spilatíminn gekk oft lengur en al- menn tímamörk gerðu ráð fyrir, sem gerði þetta allt meira spenn- andi fyrir vikið. Mér er líka minnisstætt þegar hún leyfði okkur að búa til gipsstytt- ur sem við svo máluðum í öllum regnbogans litum og bjuggum til platta úi' gömlum kökudiskum sem við límdum á litla marglitaðar mósaíkflísar eða gimsteina eins og þetta leit út fyrir mér og ekki má gleyma matargerðinni þegar ég fékk oft að hjálpa til við að leggja á borð og banka niður til Ragnars"* bróður ömmu og láta vita að nú væri kominn tími til þess að borða. Mörg- um finnst kannski ekld mikið til þess koma en hún amma gerði þetta allt svo spennandi. Hún amma mín var alltaf svo úrræðagóð og nýtin og breytti hún oft svo ekki meridlegum hlutum í djásn. Hún var hjartahlý og með eindæmum bamgóð og vildi aldrei neinum illt, sem sýndi sig best þar sem hún átti marga vini og kunningja sem vora tíðir gestir á Lindargötunni. Gestrisni vantaði ekld hjá elsku ömmu sem bakaði oft epla- og pönnukökur án þess að til- efni væri til. Erfítt er að hætta þegar maður>-~ fer af stað með svona fáar línur og ekki hægt að koma öllu til skila til að heiðra minningu þessarar virðu- legu konu sem mér fannst alltaf allt kunna og geta með sinn botn- lausa viskubrann. Nú ert þú farin, elsku amma mín, komin yfír móðuna miklu þar sem þín bíða margir ástvinir, þó sérstaklega afí Birgir, sem ég veit að tekur á móti þér með ást og hlýju og fagnar endurfundum eftir svo langan tíma. Guð hefur vísað þér veginn í ljósið skæra þar sem nýtt og göfugt hlutverk tekur við, að gæta og vaka yfír okkur hinum sem eftir era. Ég kveð þig með söknuði og eft- irsjá, og hugga mig við það að ég veit að við sjáumst aftur einhvem- tíma um ókomna framtíð. Ég elska þig af öllu hjarta og mun ávallt varðveita minningu þína í hjarta mínu. Þinn sonarsonur, Birgir Svanur Birgis (Biddi). SIGURÐUR KR. S VEINBJÖRNSSON + Sigurður Kr. Sveinbjörnsson forsljóri fæddist í Reykjavík 13. nóv- ember 1908. Hann lést í Landakots- spítala hinn 25. jan- úar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Laugarnes- kirkju 1. febrúar. Með láti Sigurðar Sveinbjörnssonar er fallinn frá einn af brautryðjendum ís- lensks málmiðnaðar á þessari öld. Starfsævi hans var ekki einasta löng heldur líka óvenju farsæl og örvandi fyrir málmiðnaðinn í heild enda lét hann sig allt skipta sem horfði til fram- fara í greininni. Sigurður hóf nám í vélsmíði hér á landi en lauk því síðan hjá Bur- meister og Wain í Kaupmannahöfn árið 1930. Þetta var óvenjulegur ferill ungs iðnnema á þeim tíma, en lýsandi dæmi um áræði Sigurðar, sem síðan var einkenni hans alla hans löngu og farsælu starfsævi. Þegar hann svo sneri heim frá Danmörku var kreppan skollin á og lítið um vinnu í þeirri iðngrein sem hann hafði lært. Hann lét þó ekki deigan síga og hóf af alkunnri seiglu að undirbúa sig að koma sjálfur á stofn smiðju, sem hann og gerði við upphaf síðari heimsstyrjaldarinnar. Fyrst starfaði hann og hans menn við við- gerðir í skipum og mótorbótum en sneri sé svo að framleiðslu á vindum fyrir skip og báta. Fyrir þess konar smíði varð Sigurður og fyrirtæki hans fljótt iandsfrægt. Skiptu togvindur, línu- og netavindur, sem fóra frá vélaverkstæði hans hundraðum áður en yfir lauk. Áj'ið 1940 gekk Sigurður í Meist- arafélag járniðnaðai-manna, sem nú heitir Málmur - samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Allt frá þessum tíma tók hann virkan þátt í starfi félagsins og heildarsamtaka, sem það var aðili að. Hann var í stjórn Meistarafélagsins í mörg ár og þar af tvisvar fonnaður, á árun- um 1958-59 og 1968-70. Þar kom vel fram eldmóður hans og áhugi fyrir eflingu íslensks málmiðnaðar í bráð og lengd. Með starfí sínu inn- an hagsmunasamtakanna lagði Sig- urður möi'g mikilvæg lóð á vogar- skálina og fyi’ir það stendur ís- lenskur málmiðnaður í þakkarskuld við hann. Það var því að vonum þegar Sigurður var sæmdur gull- merki Málms á 50 ára afmæli fé- lagsins árið 1987. En Sigurður Sveinbjörnsson var ekki einasta hugsjónamaðurinn og brautryðjandinn í hópi íslenskra meistara í málmiðnaði. Hann var líka góður félagi og allra manna kátastur þegar menn gerðu sér glaðan dag. Þá lék hann á als oddi og smitaði samferðamenn með lífs- gleði sinni. Hann var því einn af þeim mönnum sem era öllum félög- um og samtökum mikils virði, einn þessara sjaldgæfu manna sem hrífa aðra með sér hvort sem er í leik eða starfi. Við leiðarlok er viðamikilla starfa Sigurðar Sveinbjörnssonar fyrir íslenskan málmiðnað minnst með þakklæti og virðingu. Stjórn Málms - samtaka fyrir- tækja í málm- og skipaiðnaði. ^ Formáli miimingar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fædd- ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útfór hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.