Morgunblaðið - 04.02.1999, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 57
+ Guðrún Bjarna-
dóttir fæddjst á
Leifsstöðum í Ong-
ulsstaðahreppi í
Eyjafirði 21. apríl
1918. Hún lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
27. janúar síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Akureyrarkirkju 2.
febrúar.
Vegna mistaka
birtist greinin sem
hér fer á eftir undir
röngu höfundar-
nafni í Morgunblaðinu þriðju-
daginn 2. febrúar. Hlutaðeig-
endur eru beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
Guðrún Bjarnadóttir eða Gunna
Bjarna, einsog hún var oftast kölluð
meðal ættingja og vina, var yngst af
fjórum systkinum. Þessi systkini,
sem nú eru öll látin, Kristján,
Bubba, Magga og Gunna, voru í
nánum tengslum við fjölskyldu
mína svo lengi sem ég man eftir, og
ég á ljúfar minningar um þau öll.
Amma mín, Guðbjörg Bjarna-
dóttir, var afasystir þeirra, en það
voru forlögin, sagði hún amma mín,
sem sáu til þess að hún kynntist
þessu frændfólki sínu. Oft sagði hún
söguna af því þegar hún hitti Bene-
dikt hálfbróður sinn, afa systkin-
anna, í fyrsta sinn. Amma mín, sem
átti tvö alsystkini og ellefu hálf-
systkini, ólst upp hjá frændfólki
sínu í annarri sveit og þekkti ekkert
systkina sinna. Þá var það dag einn
snemma á þriðja áratugnum að
amma, sem þá var löngu orðin
ekkja og nýflutt til Akureyi-ar,
rakst þar á mann sem henni var
sagt að byggi yfir í Kaupangssveit,
og flaug henni þá í hug að spyrja
þennan mann um Benedikt hálf-
bróður sinn, en hún var búin að
frétta að hann byggi hjá Bjarna
syni sínum og Snjólaugu konu hans
á Leifsstöðum í Kaupangssveit.
„Þekkir þú Benedikt á Leifsstöð-
um?“ spurði amma.
„Já,“ svaraði maðurinn, „ég þekki
hann.“
Amma mín sagði þá hver hún
væri og hvers vegna hún væri að
spyrja um Benedikt, hann væri
bróðir hennar, en þau hefðu aldrei
sést.
„Já, það er nú það,“ sagði bónd-
inn með hægð, „ég er Benedikt á
Leifsstöðum.“
„Þá erum við systkini,“ sagði
amma.
„Svo mun vera,“ sagði Benedikt.
Þannig hófust kynnin milli fjöl-
skyldna okkar Gunnu, og hafí for-
lögin verið þar að verki, einsog
amma mín trúði, þá voru forlögin
henni og okkur afkomendum henn-
ar sannarlega hliðholl á þeirri
stundu. Foreldrar Gunnu, þau
Bjarni og Snjólaug, og síðar börnin
þeirra fjögur áttu eftir að reynast
ömmu einstaklega vel og á efri ár-
um hennar má segja að hjá þeim
systkinunum hafi hún átt sitt annað
heimili, þegar svo bar undir.
Fyrst þegar ég man eftir Gunnu
bjó hún ásamt móður sinni á heimili
Bubbu systur sinnar og Stefáns
Reykjalín, sem þá voru nýlega gift.
Gunna var þá að læra tannsmíði, en
hún var ein fyrsta íslenska konan
sem lagði stund á þá grein og starf-
aði hún við tannsmíði um árabil.
Frá fyrstu tíð var Gunna mér eink-
ar góð og hlýleg, og man ég hvað
mér fannst alltaf gaman að koma
inn í litla herbergið hennar í Holta-
götu 7, þar sem allt var svo smekk-
legt og fallegt. Hún var líka rauð-
hærð einsog ég, og það vakti sam-
kennd mína, því það var ekkert
gaman að vera rauðhærður á þeim
árum. Margan greiða gerði hún mér
þegar ég var í skóla á Akureyri á
unglingsárum mínum og var svo
heppin að vera kostgangari hjá
Bubbu og Stefáni.
Svo liðu árin, og þegar ég kom
heim eftir nokkurra
ára dvöl í útlöndum var
Gunna gift Árna Jóns-
syni amtsbókaverði og
þau búin að eignast tvö
indæl börn, Maríu og
Bjarna. Þá var gaman
að koma á heimili
þeirra á Gilsbakkaveg-
inum og kynnast Árna,
sem var svo Ijúfur og
skemmtilegur. Árni
lést langt um aldur
fram og var það mikið
áfall fyrir Gunnu og
bömin. Gunna fluttist í
minni íbúð og fór að
vinna á Amtsbókasafninu. Á þess-
um árum dvaldist ég með fjölskyldu
minni á Akureyri á hverju sumri, og
það var fastur liður hjá okkur að
fara út á bókasafn til að hitta Gunnu
fljótt eftir að við komum í bæinn, og
alltaf var jafn notalegt að sjá hana á
sínum stað við afgreiðsluborðið,
brosandi og alúðlega.
Gunna var hlédræg og tranaði
sér ekki fram, hæg í framkomu,
jafnvel dálítið feimnisleg, en bros
hennar fallegt og heillandi. Hóg-
værð var henni í blóð borin, og
kemur upp í huga minn að oft sagði
hún við mig og fjölskyldu mína,
þegar hún var að aka okkur um all-
ar trissur á litla bílnum slnum, að
hún væri nú ekki góður bílstjóri.
En Gunna var einmitt góður bíl-
stjóri, gætin og tillitssöm í umferð-
inni. Þannig vandaði hún allt sem
hún tók sér fyrir hendur. Útsaum-
aðir munir, sem prýddu heimili
hennar, báru vott um prýðisgott
handbragð, en Iíka fágaðan smekk
og næmi fyrir litum. Einhverntíma
sagði ég við hana að hún hefði list-
ræna hæfileika, og þá brosti hún og
fannst að ég hefði sagt mikla fjar-
stæðu.
Síðustu árin fór heilsu Gunnu
hnignandi, alltaf bar hún sig þó vel,
en svo fór að lokum að hún gat ekki
lengur séð um sig sjálf í íbúðinni
sinni í Víðilundi, og varð að flytjast
á Dvalarheimilið Hlíð. Þegar ég
sagði dóttur minni að Gunna væri
komin í Hlíð varð henni að orði: „Ég
á erfítt með að sjá Gunnu fyrir mér
innan um gamalt fólk, í mínum huga
verður Gunna aldrei gömul." Þessi
orð rifjast upp fyrir mér nú við and-
lát Gunnu. Gunna var í rauninni
aldrei gömul þó að hún kæmist yfir
áttrætt og líkamleg heilsa væri far-
in að gefa sig. í útliti hélt hún sér
ótrúlega vel; grönn og beinvaxin og
létt á fæti, rauðgullna hárið var að
vísu löngu orðið snjóhvítt, en það
var þykkt og fór henni vel. Og mál-
rómurinn var alltaf hinn sami, þýð-
ur og unglegur.
Ævi Gunnu var löng og farsæl.
Ég, sem er ein af þeim mörgu sem
hlutu ríkulegan skerf af tryggð
hennar og vináttu, minnist hennar
með söknuði, og mikið er ég for-
sjóninni þakklát fyrir að hafa leitt
hálfsystkinin tvö, ömmu mína og afa
Gunnu, saman á Akureyri fyrir nær
áttatíu árum.
Kristín Jónsdóttir.
t
Hjartkær eiginmaður minn,
ÞORVALDUR ÁRNI GUÐMUNDSSON
fyrrv. starfsmaður Alþingis,
Safamýri 42,
lést á hjartadeild Landspítalans að kvöldi þriðju-
dagsins 2. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Áslaug Guðjónsdóttir.
t
Hjartkær bróðir minn,
STEINAR PÁLL ÞÓRÐARSON
kennari,
Hraunbæ 168,
Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. febrúar kl. 13.30.
Trausti Þórðarson,
frændi og vinir.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
JÓN F. ARNDAL
fyrrv. svæðisstjóri hjá
Vátryggingafélagi Islands í Hafnarfirði,
Naustahlein 3,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði,
föstudaginn 5. febrúar kl. 13.30.
Margrét Jóhannsdóttir,
Hlynur Jónsson Arndal, Auður G. Eyjólfsdóttir,
ívar Jónsson Arndal, Elín Helga Káradóttir,
Margrét Helga ívarsdóttir, Karen Lísa Hlynsdóttir,
Jóhann Kári ívarsson,
Finnbogi F. Arndal, Kristjana F. Arndal.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
GUÐRÚN
BJARNADÓTTIR
+
Maðurinn minn, faðirokkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐBJÖRN GUÐMUNDSSON
byggingameístari
frá Böðmóðsstöðum, Laugardal,
Vesturhúsum 14,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstu-
daginn 5. febrúar kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Islands.
Unnur Dorothea Haraldsdottir,
Arnbjörg Edda Guðbjörnsdóttir,
Hafdís Karólína Guðbjörnsdóttir,
Kristján Valberg Guðbjörnsson
Guðmundur Guðbjörnsson,
Sólrún Guðbjörnsdóttir,
Ásgerður Guðbjörnsdóttir,
Arinbjörn Guðbjörnsson,
Jóhanna Guðbjörnsdóttir,
Þuríður Guðbjörnsdóttir,
barnabörn oc
Grímur Valdimarsson,
Kristján Gíslason,
Eygló Eyjólfsdóttir,
Ólafur Sigurðsson,
Baldvin Jónsson,
Eggert Snorri Guðmundsson,
Torfi Markússon,
aðrir ástvinir.
+
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, sambýlis-
kona og amma,
MAGNEA G. GUÐJÓNSDÓTTIR,
Blikahólum 4,
áður til heimilis á Austurströnd,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju
föstudaginn 5. febrúar kl. 15.00.
Guðjón Stefánsson,
Sigurjón Stefánsson, Ingibjörg E. Halldórsdóttir,
Jón Stefánsson, Rannveig Hjörtþórsdóttir,
Guðbjörg A. Stefánsdóttir, Gunnar G. Andrésson,
Jón G. Guðjónsson
og barnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, systir okkar, móöir og
amma,
HALLDÓRA ODDNÝ ALEXANDERSDÓTTIR
EGGERTSSON,
frá Suðureyri við Súgandafjörð,
Lindargötu 62,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum föstudaginn 29.
janúar, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
föstudaginn 5. febrúar kl. 15.00.
Ásgeir Eggertsson,
Soffía Alexandersdóttir,
Gyða Halldórsdóttir,
Hannes Alexandersson,
börn og barnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
EVA ÞORFINNSDÓTTIR,
Austurvegi 21B,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugar-
daginn 6. febrúar kl. 13.30.
Aagot F. Snorradóttir,
Sigríður Snorradóttir,
Gunnar S. Snorrason,
Þorfinnur Snorrason,
Árni Snorrason,
Sigurður Hjaltason,
Skúli Magnússon,
Rannveig Friðriksdóttir,
Ingunn Stefánsdóttir,
Jóhanna Bogadóttir,
Anna María Snorradóttir, Óli R. Ástþórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURJÓN VÍDALÍN GUÐMUNDSSON,
Vestmannabraut 53,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Landakirkju laugar-
daginn 6. febrúar kl. 14.00.
Guðlaug Sigurgeirsdóttir,
börn, tengdabörn
og afabörn.