Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 48
-*48 SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Hundalíf
flansv -éyttir
Suttcu/a^imoLa. \
ofan. á ne-fibá np'er. J
Egb'íðefbirþi/'/ áð \
butnn stip/ mer afy )
^g&kgryí-'
En/ þrf/n/frar i/i/éast iprátí-iM-
Qr/ sjÖMQrpinu fazfa öob db ctr&fo~.
v * athygli hans þessci siandina.
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
>
/ 6RAMPA 5AY5 SE REMEMBER5 U)HEN YOU
( 60T A MOVIE, A NEW5REEL, A 5ERIAL ANP
VJjA COMEPV ALL FOR ONLY TEN CENT5.
/ GRAMPA
/ REMEMBER5
\EVERYTHIN6.
I WONPER
IF HE KNEW
6AT5BY..
1-21
í
Afi segir að hann muni eftir því þegar þú fékkst, bíómynd,
fréttamynd, framhaldsþátt og grínmynd, allt fyrir aðeins tíu
krónur.
P
Afi man eftir öllu.
Skyldi hann hafa
þekkt Gatsby.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Tæki til
svefnrann-
sókna gefið
Frá Heimi Ólafssyni:
RANNSÓKNIR og meðferð sjúk-
linga með öndunartruflanir í svefni
hófust á lungnadeild Vífílsstaðaspít-
ala árið 1987. Kæfisvefn er eitt af-
brigðið af þessum öndunartruflun-
um. Fjölmargir hafa tekið þátt í
þessari starfsemi spítalans. Starf-
andi er sérstakt félag, SIBS-deildin
á Vífilsstöðum, sem hefur látið sér
sérstaklega annt um stuðning við
rannsóknirnar. A síðasta aðalfundi
SIBS-deildarinnar var Pórarni
Gíslasyni yfirlækni aíhent rafeinda-
mælitæki frá Emblu, sem notað er
til rannsókna á öndunar- og svefn-
truflunum.
Stjórn SÍBS-deildarinnar er nú
skipuð Gunnari Helgasyni, sem er
formaður, Bjarna S. Jónassyni, Sig-
rúnu S. Waage, Ólöfu Björnsdóttur,
Þorbjörgu Sóleyju Ingadóttur, Ög-
mundi H. Stephensen og Frímanni
Sigumýjassyni Stærri myndin er af
stjórninni, en sú minni er af þeim
Þórarni Gíslasyni yfirlækni og
Ferdínand Alfreðssyni fráfarandi
formanni er Emblutækið var af-
hent.
HEIMIR ÓLAFSSON,
Kvistabergi 21, Hafnarfirði.
Enn um forsjárhyggju
og greiðslumat
Frá Tryggva Hjörvar:
TIL að gera grein f'yrir áhuga mín-
um á gi’eiðslumati Ibúðalánasjóðs, og
áður Húsnæðisstofnunar, vil ég taka
fram að um nokkurra ára skeið vann
ég, ásamt lögíræðingum Húsnæðis-
stofnunar og veðdeildarmönnum, að
uppsetningu vanskilakerfis og síðan í
viðtölum og leit að úrræðum við þá
sem lent höfðu í vanskilum. Tel mig
því vita eitthvað um þau mál.
Hinn 6. feb. síðastliðinn birti
Morgunblaðið bréfkorn frá mér um
þá lítilsvirðingu sem fólki er sýnd
með greiðslumatinu. I grein frá
starfsmanni íbúðalánasjóðs skömmu
síðar er vikið að því að „ekki sé um
forvitni að ræða, heldur sé forsjá
nauðsynleg“ og kemur þar að kjama
málsins. Auðvitað er ekki um forvitni
að ræða heldur valdníðslu. Og nú,
þegar Landsbankinn er farinn að
veita lán til íbúðarkaupa, tekur hann
upp starfshætti íbúðalánasjóðs eins
og blindur kettlingur, og menn þar á
bæ virðast ekki sjá hvernig þeir eru
að lítilsvirða viðskiptavininn. Auðvit-
að verður kaupandi að sýna fram á
að hann geti fjármagnað kaupin en
annað kemur lánveitanda ekki við.
Nú geri ég ráð fyrir að fjöldinn viti
lítt um hvað greiðslumatið snýst, ekki
aðrir en þeir sem standa í íbúðakaup-
um og fylgjast með greiðslumati sínu
fara fimm sinnum fram og aftur milli
stofnana, og verða nánast að standa á
nærbrókunum einum frammi fyrir
þeim innanbúðarmönnum sem falið
hefúr verið að úthluta lánum til íbúð-
arkaupa. Þarna fer gífurleg vinna
fjölda fólks til einskis, aðeins svo ein-
hver geti sýnt vald sitt. Enn og aftur
legg ég áherslu á að lánin eru á fyrsta
veðrétti og fara ekki upp fyrir 70%
söluverðmætis eignarinnar, eru sem
sagt gulltryggð. Eg er verulega undr-
andi á því að hin ýmsu samtök fólks-
ins, svo sem Neytendasamtökin, ASI,
Verslunarmannafélagið og fleiri, sem
vinna að mannréttindum, skuli ekki
hafa mótmælt þessum nítjándu aldar
vinnubrögðum. Þetta er ekkert annað
en h'tilsvirðing við fólkið í landinu.
Fæstir þeirra sem standa í fbúða-
kaupum þurfa á forsjá að halda og
hafa allan aðgang að þeirri aðstoð
sem þeim er þörf á, hjá þjónustufuh-
trúum banka og sparisjóða.
Það er undantekning að maður
missi íbúð sína vegna lánanna sem
tengjast kaupunum, og greiðslumat-
ið sem slíkt kemur ekki á neinn hátt í
veg fyrir íbúðarmissi. Slíkt gerist
oftast af öðrum, oft ófyrirsjáanleg-
um, ástæðum. Eina raunhæfa að-
gerðin er sú að fylgjast náið með af-
borgunum lánanna og grípa nógu
snemma inn í ef eitthvað er að fara
úrskeiðis. Eg skora á félagasamtök
og fasteignasala að koma greiðslu-
matinu, svo gagnslaust sem það er,
fyrir kattarnef, og sjá svo um að
íbúðakaupendur geti gengið upprétt-
ir eins og aðrir.
TRYGGVI HJÖRVAR, eldri,
Austurbrún 35, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.