Morgunblaðið - 21.03.1999, Side 56
,56 SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
-V
FÓLK í FRÉTTUM
Góð myndbönd
Söngdísirnar (Heroines) -k-k1/\
Kraftmikil tónlistarmynd sem
fjallar á dramatískan hátt um
frægð, vináttu og mannkosti.
Skemmtileg tilbreyting, einkum
fyrir yngri kynslóðina.
Þveröfugt við kynlíf
(The Opposite of Sex) ★★★
Ahugaverð og vel leikin mynd
sem byggir á vönduðu handriti,
þar sem sjálfsvísandi frásagnar-
hætti er beitt á einkar hugmynda-
ríkan máta.
í garði góðs og ills (Midnight
in the Garden og Good and
Evil) ★★I/2
Um margt framúrskarandi kvik-
mynd sem miðlar töfrum Suður-
ríkjanna. Líður fyrir gríðarlegt
umfang skáldsögunnar sem hún
er byggð á.
Á niðurleið (Down Time) k~klh
Bresk hasarmynd að bandarískri
fyrirmynd þar sem ferskt sjónar-
horn á Hollywoodlummur nýtur
sín vel.
Björt og fögur lýgi (A Bright
and Shining Lie) kkV.í>
Enn ein Víetnammyndin, óvenju
fróðleg með þokkalegt afþreying-
argildi.
Mafía kk'A
Állinn (U Na Gi) ★★★
Hæglát mynd japanska leikstjór-
ans Shohei Imamura sem blandar
saman kyrrð og ofbeldi, fálæti og
ástríðum á athyglisverðan hátt.
Allar helstu mafíumyndir leik-
stjóra á borð við Coppola og Seor-
Margverðlaunað verk
eftír einn
umtalaðasta
höfund samfímans.
Sýning sem enginn
má missa af.
«1
sese eru teknar fyrir og
skopstældar í prýðilegri
gamanmynd í vitlausari
kantinum.
Malevolance (Mann-
vonska) ★★★
Ein af þessum sorglega
fáu sem kemur verulega á
óvart, sérstaklega fyrri
hlutinn. Mynd sem ætti
ekki að valda vonbrigðum.
Koss eða morð
(Kiss Or Kill) ★★★
Hefðbundin, en þó ótrú-
lega nýstárleg, spennandi
og skemmtileg þjóðvega-
mynd frá Astralíu sem
veitir ómetanlegt mót-
vægi við einsleita sauð-
hjörðina frá Hollywood.
Fullkomíð morð
(A Perfect Murder)
kkVz
Aferðarfalleg og sæmi-
lega spennandi endurgerð
Hitcheock-myndarinnar
„Dial M For Murder".
Leikarar góðir en myndin
óþarflega löng og gloppótt.
Bambi kkkV2
Eitt frægasta meistaraverk Disn-
ey-fyrirtækisins er afskaplega fal-
legt og eftirminnilegt þótt boð-
skapurinn sé gamaldags og um
margt úreltur.
Hjarta Ijóssins (Lysets Hjerte)
★★★
Fyrsta framlag Grænlendinga til
norrænnar kvikmyndamenningar
er áhrifamikið og tekur á alvar-
legum viðfangsefnum af einlægni
og festu.
Takk fyrir síðast (Since You’ve
Been Gone) kkVz
Góð stemmning ríkir í þessari
hnyttnu bekkjamótsmynd sem
vinurinn David Schwimmer leik-
stýrir hreint ágætlega.
Af nógu að taka (Hav Plenty)
★★★
Andríkt og fyndið byrjandaverk
ungs kvikmyndagerðarmanns
sem leikstýrir, semur, klippir og
leikur - og tekst vel til.
Gríma Zorrós (The Mask of
Zorro) ★★★
Sígild hetjusaga í glæsilegum
búningi sem þó hefur húmor fyrir
sjálfri sér. Hopkins, Banderas og
Zeta-Jones bera grímu Zorrós
með sóma.
Keimur af kirsuberi (Ta’m E
Guilass) ★★★
Sterk og einföld mynd íranska
leikstjórans Abbas Kiarostami
gefur innsýn í ytri og innri bar-
áttu ólíkra persóna á fjariægu
heimshorni.
Vesalingarnir (Les Miséra-
bles)^*^
Lífleg og kraftmikil aðlögun Bille
CATHERINE Zeta-Jones leikur annað
aðalhlutverkið í Grímu Zorró.
August á klassísku verki Victors
Hugo. Liam Neeson og Geoffrey
Rush túlka erkifjendurna Jean
Valjean og Javert á ógleymanleg-
an hátt.
Guðmundur Ásgeirsson/Heiða
Jóhannsdóttir/Ottó Geir Borg
MYNPBONP
Kræfar
konur
og kaldir
karlar
Mamma gamla
(Big Bad Mama)
GTæpamyna
★★
Framleiðendur: Roger Corman. Leik-
stjóri: Steve Carver. Handritshöfund-
ur: William W. Norton, Frances Doel.
Kvikmyndataka: Bruce Logan. Tón-
list: David Grisman. Aðalhlutverk:
Angie Dickinson, William Shatner,
Tom Skerrit, Susan Sennet, Robbie
Lee, Dick Miller. 83 mín. Bandaríkin.
Bergvík 1999. Myndin er bönnuð
börnum innan 16 ára.
TAREFNI
líkamsrœktarfólk
fýrír
Læqra verð!
Meira úrval!
©EAS CBPBJ.C) TWlNLAB'
D4VI N A
FÆÐUBOTAREFIUB
Eilsuhúsið
Opití fra kl. 10:00-20:00 virka daga og
kl. 10:00-18:00 Laugard. og sunnud.
ÞAÐ ER Roger Corman sem fi’am-
leiðir þessa kvensömu útgáfu af
„Bonnie and Clyde“ og fjallar hún um
móður og tvær
dætur hennar sem
leiðast út í sprútt-
sölu, sem verður til
þess að þær verða
hundeltar af lag-
anna vörðum um öll
Bandaríkin. Mynd-
in kom út fyrst árið
1974.
Mamma gamla
er frægust fyrir nektarsenumar með
Angie Dickinson sem gerðu hana
strax að „Cult“-mynd og leiddi til
framhalds á 9. áratugnum með
Shelley Winters í aðalhlutverki. Það
virðast allir þurfa að striplast í þessari
mynd jafnvel kafteinn Kirk sjálfur
(William Shatner) og ágætis leikarar
eins og Tom Skerritt sleppa ekki.
Myndin ei’ óviljandi mjög fyndin og
hallærisleg og eykur það á skemmt-
anagildi hennar. Tónlist David Grism-
an er einkar lífleg og ólíkt mörgum af
myndum Cormans frá þessum tíma er
umgjörð myndarinnar nokkuð fag-
mannlega unninn. Dick Miller, sem
var fastaleikari í myndum Cormans,
lætui’ sig ekki vanta en hlutverk hans
er ekki mjög stórt. Leikurinn er vel
undir meðallagi og eru stúlkumar
tvær verstar af slökum hópi leikara.
Ottó Geir Borg
^mb l.is
e/77WlM£> rjY7~t