Morgunblaðið - 21.03.1999, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 21.03.1999, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 37 Yfirlýsing að gefnu tilefni MARGIR hafa haft samband við okkur undirrituð til að ræða stöðu Dalbrautarskóla í Reykjavík. Hér með lýsum við því yfir að við störf- um ekki lengur við þann skóla og þess vegna er starfsemi hans okkur óviðkomandi. I mars, Ragna Freyja Karlsdóttir, sérkenn- ari, fyrrverandi skólastjóri Dal- brautarskóla Olafur Olafsson, sérkennari, íyrr- verandi skólastjóri Dalbrautarskóla Asdís Guðjónsdóttir, myndmennta- kennari Karl Jónsson, sérkennari Steinunn Torfadóttir, sérkennari Athugasemd frá Samtökum eldri sjálfstæð- ismanna MORGUNBLAÐIÐ hefur verið beðið um að birta athugasemd frá Samtökum eldri sjálfstæðismanna vegna skýringa, sem fram koma af hálfu Sæmundar Stefánssonar, yfir- manns fræðslu- og útgáfudeildar Tryggingastofnunar ríkisins í um- fjöllun Morgunblaðsins hinn 17. þ.m. vegna ályktunar Landsfundai' Sjálfstæðisflokksins um efth'laun til aldraðra: „Frá upphafi hafa samtökin unnið að málinu á eftirfarandi forsendum: 1. Oraunhæft er að miða við nú- verandi reglur um ellilífeyri þar sem kerfið hefur búið við uppbóta- og skerðingasmáfikt úrræðaleysis í áratugi. Hér þarf nýja hugsun. 2. Tekjutenging bóta er ómann- úðleg réttarskerðing, sem ber að af- nema. 3. Ohjákvæmilegt er að einfalda núverandi framkvæmd og lækka kerfiskostnað ríkissjóði og öldruð- um til hagsbóta. 4. Samtökin gera sér grein fyrir því, að höfuðatriði varðandi lausn og framgang málsins væri að gera sér grein fyrir og meta með réttum hætti og vönduðum útreikningi allan kostnað og beinan og óbeinan ávinn- ing breytingarinnar, svo sem skatta- ávinning, lækkun kostnaðar, marg- feldisáhrif og ýmis önnur áhrif. A ofannefndum forsendum var tillaga S.E.S. um eftirlaun fyrir alla 67 ára og eldri lögð fram. Það er því með ólíkindum, að yfir- maður fræðslu- og kynningardeild- ar Tryggingastofnunar ríkisins skuli meta jafnstórt og þýðingar- mikið mál og hér er um að ræða á jafnþröngum forsendum og hann gerir í áðumefndu blaðaviðtali." Stuð í rafdeildinni TÓJVLIST Tónaba;r MÚSÍKTILRAUNIR Músíktilraunir Tónabæjar, þriðja tilraunakvöld af fjórum. Þátt tóku Dikta, Moðhaus, Smala- drengirnir, Sauna, Etanol, Frum- efni 114, Tin og Niðurrif. Haldið í Tónabæ sl. föstudagskvöld. Gestahljómsveitir voru Jagúar og Sigur Rós. ÞRIÐJA tilraunakvöldið rann tiltölulega tíðindafátt í gegn síð- astliðinn fóstudag. Aberandi var hversu lítil spilagleði var í hljóm- sveitunum almennt. Enginn beit í neðri vörina af einskærri innlifun nema gestahljómsveitin Jagúar. Tilraunasveitirnar mættu margt af þeim læra. Fyrst á svið vom sveiflurokk- aramir í Dikta sem vom með þeim betri fyrir hlé. Sæt blómanýbylgja, sagði sessunaut- ur minn, og ekki fjarri lagi enda skein af þeim einlægnin. Eg er viss um að þau fá sér jarðarberja- hristing saman fyrir æfingar. Ekki slæmur gítarleikur en söng- urinn var heldur valtur, einkum þó í fyrsta lagi. Bassaleikurinn í fyrsta laginu var nokkuð sniðug- ur. Liðsmenn Moðhauss skokkuðu næstir á svið uppstrílaðir með puttabrotinn trommara. Trommarinn var ekki alveg sam- mála hinum um keyrslutempóið en þetta virkaði samt bærilega, enda vora þeir nokkuð öraggir með það sem þeir vora að gera. Stíll þeirra var kunnugleg sam- suða fyrrverandi sigursveita, en áheyrendur virtust ekki láta það spilla fyrir sér. Smaladrengimir mættu með kassagítar og plastflösku með grjónum í og sungu fjórraddað um drauminn um að sigra Mús- íktilraunir. Þeir piltar hefðu sómt sér betur sem skemmtiatriði á Is- landsmótinu í félagsvist en tóku þó hressandi sprett á írska flautu í öðra lagi og klarínett í því þriðja. Sauna var síðust á svið fyrir hlé með mæðulegar ballöður. Til- þrifalitlar lagasmíðar á ferðinni en þeir vora þó þokkalega sam- stilltir í því sem þeir vora að gera. Heldur kættist geðið þegar Etanol mætti til leiks eftir áhyggjufullt hléið. Glansandi stuð úr tölvudeildinni. Engar óþarfa krúsídúllur, heldur einfaldar og flottar taktpælingar sem byggð- ust upp af viti og smekk og virk- uðu. Framefni 114 tók til við hljóða- matreiðslu að rafrænum hætti einn síns liðs. Að undanskildum einstaka klígjulegum gervi- strengjahljóðum, var margt skemmtilegt í gangi sem náði há- punkti sínum í öðra lagi í glimr- andi stuði og tilþrifum. Sýrarokkaramir í Tin léku al- varlega kærastuparatónlist. Skýjaðir gítartónar einkenndu heiðarleg lögin sem voru fram- sett af leikni og innlifun. Mjúkt sófaflæði sem rann áreynslulaust ígegn. Síðasta orðið þetta kvöldið átti TÖHNDALAUST Niðurrif. GUFULEG Sauna. SMALADREN GIRNIR vUltust inn. Niðurrif sem var frekar niður- drepandi eins og nafnið gefur til kynna. Lögin einsleit og hljóð- færaleik ábótavant. Það væri ráð að þeir félagar nældu sér í söngv- ara sem mætti vera að því að syngja jafnvel smálaglínu. Að þessu sinni ákvað dóm- nefnd eftir atkvæðagreiðslu að senda tvær hljómsveitir í úrslit, en það voru tásukitlararnir í Et- anól og Framefni 114. Aheyrend- ur völdu Moðhaus áfram. Kristín Björk Kristjánsdóttir Námskeið í skj alastj órnun SKIPULAG og skjöl ehf. heldur á næstunni tvö námskeið í skjala- stjórnun. Þann 19. og 20. apríl nk. verður námskeiðið Inngangur að skjalastjórnun sem er kynning á viðfangsefninu og því hagræði sem skjalastjórnun hefur í fór með sér; rætt verður um lífshlaup skjala, skjalalykil, skjalaáætlun og verk- leiðbeiningar um meðferð skjala. Kröfur stjórnsýslu- og upplýsinga- laga til skjalastjórnunar opinben-a vinnustaða verður farið sérstaklega í. Sýnt verður bandarískt stjórnun- ai-myndband um skjalavana á vinnustað. Námskeiðið Skjalastjórnun 2; skjöl í gæðaumhverfi verður síðan haldið viku síðar eða 26. og 27. aprfl nk. í námskeiðinu verður bent á hagnýtingu Netsins fyrir skjala- stjórnunaivinnu. Stjórnun tölvu- pósts er sérstakt viðfangsefni og skjalastjómun tölvugagna. Einnig verður farið yfir þær kröfur sem gera verður til tölvuhugbúnaðar sem nota á við skjalastjórnun. Nám- skeiðið er sjálfstætt framhald nám- skeiðsins Inngangur að skjala- stjórnun. Alfa Kristjánsdóttir, bókasafns- fræðingur og Sigmar Þormar M.A. kenna. Námskeiðsgjald er 15.000 kr. Námskeiðsgögn ásamt kaffi og meðlæti báða dagana eru innifalin í þessu gjaldi. Aðsendar greinar á Netinu <|> mbUs —ALLTJ\f= GITTH\SA£> NÝTT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.