Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
TIMAALDAN er
stærsta myndin á
sýningunni. „Hún á
við núna þegar árið
2000 færist óðum
nær
ur
I byrjun mánaðarins
hófst einkasýning
Thelmu Herzl Ingvars-
dóttur í þjóð- og lista-
safni austurrísku borg-
arinnar Graz. Thelma
THELMA Herzi r
InS*arsd óttir
Is og eldur
skreyttir skartgiipum eftir Thelmu,
skáluðu í víni og gæddu sér á
konfekti. Formaður Steyrischer
Herbst listahátíðarinnar opnaði
sýninguna. Hann fór fögrum orðum
um innri kraft íslensku listakonunn-
ar og sagði hana enn búa að inn-
blæstrinum sem hún fékk frá hafinu
fyrir framan stofugluggann í
Skerjafirðinum á barnsaldri.
Thelma kallar sýninguna
„Wandobjekte". „Petta er það sem
ég vil núna helst fást við,“ sagði
hún. „Eg hanna jafnt sem áður hús-
gögn og skartgripi en ég legg höf-
uðáherslu á veggmyndirnar." Hún
er með 12 verk á sýningunni, nokkr-
ar stórar myndir úr felldu áli á tré
og stór verk úr stáli. Stærsta mynd-
in er 4,5 metrar á iengd. „Hún er
tákn um tímann eða líðandi stund -
ég kalla hana tímaölduna. Hún á við
núna þegar árið 2000 færist óðum
nær.“
Stflhrein list
Thelma sneri sér að listsköpun
fyrir alvöru fyrir 12 árum eftir að
hún skildi að borði og sæng við eig-
inmann sinn og stóð frammi fýrir
nýjum kafla í lífi sínu. ;,Eg ákvað að
snúa mér að hönnun. Eg hafði lengi
safnað antík-húsgögnum og oft
hannað húsgögn sjálf til að hafa
með þeim. Það er ekki hægt að
skreppa út í IKEA og kaupa borð
inn í stofu sem er annars full af 17.
aldar húsgögnum."
Fyrsta borðið sem hún gerði
stendur enn í stofunni heima hjá
henni. Það er glerborð smíðað utan
um stálskúiptur. Síðan hefur hún
haldið einkasýningar á húsgögnum
víða um Austurríki. Húsgögnin
vöktu strax athygli og gera enn.
Hún er með sýningaraðstöðu fyrir
þau í íbúð á góðum stað í Vín. Þeir
sem hafa áhuga á að skoða borð
hennar og bekki, lampa, hillur og
stóla geta beðið um einkasýningar-
tíma. En viðskiptavinir vilja ekki
aðeins húsgögnin sem þeir sjá þar.
„Þú verður að fýrirgefa,“ sagði hún
áður en mér hafði gefíst tækifæri til
að líta almennilega í kringum mig
heima hjá henni. „Það hringdi kúnni
í gær og heimtaði borðstofuborðið
okkar. Eg benti honum á að við
hefðum notað það í 8 ár og það væri
með nokkrum rispum. Honum var
alveg sama og vildi borðið strax.“
Ég hefði ekki tekið eftir að borð-
stofustólarnir sem Thelma hannaði
er þekktust hér á landi
sem fegurðardrottning
á árum áður og eftir-
sótt fyrirsæta en hefur
á síðari árum haslað
sér völl í myndlistinni.
Anna Bjarnadóttir brá
sér frá Sviss yfir til
Austurríkis til að vera
viðstödd opnun sýning-
arinnar og notaði tæki-
færið til að taka
Thelmu tali.
ÞAÐ var svo vel mætt á
opnun einkasýningar
Thelmu Herzl Ingvars-
dóttur í Graz á veggmynd-
um úr stáli og öðrum málmi í byrj-
un mars að þeir sem vildu skoða
myndirnar vandlega urðu að fara
aftur á sýninguna. Hún er haldin í
svokölluðum Hornsal Joanneums,
þjóð- og listasafni austurrísku
borgarinnar, og stendur til
marsloka. Um miðjan mars höfðu
margar myndir selst.
Thelma stóð í miðri mannþröng-
inni við opnunina. Ég hafði aldrei
séð hana fýrr en vissi strax hver
hún var. Há og tággrönn með fas
sem fer ekki af fyrrverandi fyrir-
sætum og fegurðardrottningum
þótt þær verði fímmtíu og fímm.
Hún heilsaði fólki hlýlega á báða
bóga. Gestirnir, margir þeirra
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir
THELMA sýnir 12 verk úr stáli og mótuðu áli á tré á einkasýningu sinni í Graz,
FYRSTA borðið sem Thelma
hannaði stendur í stofunni
heima hjá henni.
SKARTGRIPIR Thelmu eru til sölu í Handiðnaðarverslun Austurrík-
is í Vín en hún hefur einnig nokkra á lager heima. Landshöfðingi
Steiermark-sambandsríkisins skartar iðulega gripum eftir Thelmu.
THELMA hefur vinnustofu í gamalli myllu í útjaðri Graz.