Morgunblaðið - 26.03.1999, Side 1
STOFNAÐ 1913
71. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Yfírhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins krefst þess að Milosevic gefí eftir
HER SERBA EYTT SAM-
ÞYKKIÞEIR EKKIFRIÐ
Washington, Belgrad, London, Berlín, Sameinuðu þjóðunum. Reuters.
FLUGVÉLAR og herskip Atlantshafsbandalagsins hófu aðra hrinu
flugskeyta- og sprengjuárása á skotmörk í Júgóslavíu í gærkvöldi. Að
sögn bandaríska varnarmálaráðuneytisins beindust árásirnar einkum
að serbneskum hersveitum, sem beitt hefur verið gegn albönskum íbú-
um Kosovo. Miklar sprengingar heyrðust í Pristina, höfuðstað héraðs-
ins, og einnig í grennd við Belgrad. Wesley Clark, yfirhershöfðingi
NATO, sagði að lokamarkmið bandalagsins væri að gereyða Júgó-
slavíuher ef Serbar féllust ekki á samkomulag um frið í Kosovo.
Reuters
VERKAMENN í Novi Sad f Serbíu hreinsa rústir lögreglustöðvar sem eyðilagðist í árás Atiantshafsbanda-
lagsins í fyrrakvöld. Önnur hrina Ioftárásanna liófst í gærkvöldi.
Á meðal skotmarka NATO í gær
voru stór herstöð í Urosevac í
Kosovo, hergagnaverksmiðja í bæn-
um Trstenik í miðhluta Serbíu, flug-
völlur í suðurhluta landsins, auk
fjarskipta- og loftvarnastöðva í
Svartfjallalandi.
BUl Clinton Bandaríkjaforseti
sagði að Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, yrði að „velja frið“, ella
yrði loftárásum NATO haldið áfram.
Meginmarkmið hernaðaríhlutunar-
innar væri að afstýra miklum hörm-
ungum meðal albanskra íbúa Kosovo
vegna árása Serba og koma í veg
fyrir að átökin breiddust út um
Balkanskaga.
Ljá máls á málamiðlun
Vuk Draskovic, aðstoðarforsætis-
ráðherra Júgóslavíu, sagði í viðtali
við Sky-sjónvarpið í gærkvöldi að
Serbar væru tilbúnir að láta af árás-
unum í Kosovo ef NATO hætti fyrst
loftárásunum. „Hættið sprengju-
árásunum og við munum hætta öll-
um aðgerðum gegn fólkinu, hryðju-
verkamönnunum sem ollu því að
árásir NATO hófust,“ sagði hann.
„Ég hygg að við verðum að sættast á
málamiðlun," svaraði Draskovic þeg-
ar hann var spurður hvort tími væri
kominn til að hefja viðræður um
málamiðlun.
Vojislav Seselj, aðstoðarforsætis-
ráðherra Serbíu, hvatti hins vegar
Serba úti um allan heim að ráðast
„af öllum mætti“ á hermenn NATO-
ríkjanna, hvar sem þeir væru stadd-
ir, og „tortíma" þeim.
Stjórnvöld í Júgóslaviu ákváðu
einnig í gærkvöldi að slíta stjórn-
málasambandinu við Bandaríkin,
Frakkland, Þýskaland og Bretland.
Milo Djukanovic, forsætisráð-
herra Svartfjallalands, sagði að
mannfall hefði orðið í landinu vegna
árása NATO og sakaði Milosevic um
að hafa dregið landið inn í „heimsku-
leg“ átök við Atlantshafsbandalagið.
Stjórnvöld í landinu tóku þó skýrt
fram að þótt Svartfellingar vildu
ekki berjast með Serbum við NATO
merkti það ekki að þeir hygðust
segja sig úr júgóslavneska sam-
bandsríkinu.
Samstaðan að bresta?
Fyrstu merkin um að samstaða
NATO-ríkjanna kynni að bresta
komu fram í gær þegar Massimo
D’Alema, forsætisráðherra ftalíu,
hvatti til þess að hafnar yrðu samn-
ingaviðræður við Serba að nýju eftir
fyrstu hrinu sprengjuárásanna sem
lauk í fyrrinótt. Tony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands, hafnaði þeirri
hugmynd að gert yrði hlé á árásun-
um til að greiða fyrir frekari viðræð-
um við Serba og neitaði því að klofn-
ingur væri kominn upp meðal
NATO-ríkjanna. Bandarískir emb-
ættismenn lögðu einnig áherslu á að
„full samstaða" væri innan NATO.
D’Alema fullyrti að hernaðan"hlut-
unin hefði þegar orðið til þess að
Serbar hefðu neyðst til að hætta
árásum sínum í Kosovo. Ummæli
hans voru þó ekki í samræmi við yf-
irlýsingar embættismanna NATO,
sem sögðu að serbneskar öryggis-
sveitir hefðu haldið áfram árásum
sínum á albönsk þorp í Kosovo í
gær.
Wesley Clark sagði að NATO
myndi halda árásunum áfram með
skipulegum hætti td að „sundra, nið-
urlægja og tortíma" her Júgóslavíu
ef Milosevic yi-ði ekki við kröfum al-
þjóðasamfélagsins.
Rússar fordæma árásirnar
Igor Ivanov, utanríkisráðherra
Rússlands, gagnrýndi árásir NATO
og sagði að þrá Bandaríkjamanna
eftir heimsyfirráðum hefði leitt til
mesta hættuástands í Evrópu frá
síðari heimsstyrjöldinni. „Þetta er í
fyrsta sinn frá seinna stríðinu sem
ráðist er á fullvalda ríki í Evrópu,“
sagði utanríkist'áðhcrrann.
Gennadí Seleznjov, forseti
dúmunnar, neðri deildar þingsins,
kvaðst telja að Rússar myndu veita
Serbum hernaðarlega og tæknilega
aðstoð vegna ái'ása NATO. Ráða-
menn í Rússlandi hafa gagnrýnt
hernaðaríhlutunina harkalega, en
ekki gengið svo langt að bjóða Serb-
um hernaðaraðstoð.
■ Árásir NATO/28-31
Arásir á
þorp í
Albaníu
Kukes, Dobrune. Reuters.
SERBNESKAR hersveitir í
Kosovo gerðu í gær árásir á tvö
þorp í norðausturhluta Albaníu eftir
að Atlantshafsbandalagið hóf loft-
árásir á skotmörk í Júgóslavíu.
Kudusi Lama, herforingi í alb-
anska landamærabænum Kukes,
um 25 km norðaustur af Tirana,
sagði að mikil spenna væri við
landamærin. Serbar hefðu skotið á
albanska hermenn og sært foringja
þeirra.
Lama sagði að albönsku her-
mennirnir hefðu ekki svarað
árásinni en bætti við að skotið yrði á
serbnesku hersveitirnar ef þær
reyndu að fara yfir landamærin.
Talsmaður albanska innanríkis-
ráðuneytisins sagði að Serbai- hefðu
einnig skotið þrettán sprengikúlum
á þorp í Albaníu. Sprengjurnar
hefðu valdið skemmdum á húsum
en engu mannfalli.
Ráðamenn í Albaníu telja að
Serbar vilji draga landið inn í átökin
í Kosovo með árásum yfir landa-
mærin. Flóttafólk frá Kosovo
streymdi til Albaníu í gær vegna
árása serbneskra öryggissveita.
Ráðist að skrifstofu ÖSE í Skopje
HUNDRUÐ serbneskra mót-
mælenda réðust síðdegis í gær
að hótelinu Aleksandar Palace í
Skopje í Makedóníu þar sem eft-
irlitsmenn OSE hafa komið upp
höfuðstöðvum eftir að þeir fóru
frá Kosovo um siðustu helgi.
Voru bifreiðar eftirlitsmanna
grýttar áður en óeirðaliigregla
greip í taumana. Einnig var
kveikt í bifreiðum og girðingar
rifnar niður við sendiráð Banda-
ríkjanna í borginni.
Að sögn Reuters-fréttastofunn-
ar heyrðu vitni skothvelli og
sprengjuhvelli í miðborginni og
lögregluþyrlur flugu yfir borg-
ina. Ekki bárust nánari fregnir
af sprengingum en talið var
hugsanlegt að um gastanka eða
bensíntanka bifreiða, er kveikt
var í, hefði verið að ræða. Eftir
að lögregla hafði dreift mann-
fjöldanum með táragasi stóð
hún vörð við byggingar þar sem
vestræn ríki og stofnanir hafa
starfsemi.
Urður Gunnarsdóttir, sem
starfar sem blaðafulltrúi hjá eft-
irlitssveitum ÖSE, sagðist hafa
verið að ganga niður tröppur í
anddyri hótelsins er þetta gerð-
ist. „Það er stór gluggi við and-
dyrið er snýr að bílastæðinu og
ég sá að mikill mannfjöldi hafði
safnast saman í nokkur hundruð
metra íjarlægð frá hótelinu,
sem stendur á opnu svæði í út-
jaðri Skopje. Allt í einu tekur
mannfjöldinn á rás í átt að hót-
elinu. Fréttamenn sem geymdu
upptökubúnað fyrir utan hótelið
Reuters
SERBAR kveikja í fána Banda-
ríkjanna við sendiráð landsins
í Skopje til að mótmæla árás-
um NATO á Júgóslavíu.
þustu út til að bjarga tækjum
sínum og öryggisverðir hlupu út
á bílastæðið, þar sem um þrjátíu
jeppar á vegum ÖSE stóðu,“
sagði Urður.
Hún sagði óeirðalögreglu
hafa náð að stöðva mótmælin
áður en teljandi skemmdir voru
unnar en nokkrar rúður voru
brotnar í bifreiðum.
„Það er greinilegt að mörgum
er farið að hitna í liamsi hér í
Makedóníu. Margir Makedóníu-
menn hafa mikla samúð með
málstað Serba og mátti sjá
serbneska og makedóníska fána
í mannþrönginni. Það er hins
vegar ekki fyrr en nú eftir að
sprengjuárásir hófust að við hjá
ÖSE verðum vör við þessa
reiði.“