Morgunblaðið - 25.04.1999, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hundblautir
'?3? fe-; ' :■
BAKSVIÐ
Þegar mikilvægustu menn í heimi hér
koma saman hlýtur eitthvað að ganga á.
Asgeir Sverrisson komst blautur og
hrakinn inn í Hvíta húsið og dáðist eink-
um að elju garðyrkjumannsins.
PAÐ ei-u ekki einungis steikurnar taka frekar en þaulæfðar hreyfíngar
og kókskammtai-nii- sem eru risa- varðliðs sem bar riffla heldur fomfá-
vaxin í Bandaríkjunum, það eru lega um leið og hvítklæddii- menn
túlípanarnir við aðalinngang Hvíta svifu inn og út úr byggingunni í held-
hússins líka. Og þessum undursam- ur óræðum tilgangi.
legu blómjurtum fengu þelr, sem Og þá, og ekki seinna, þegar
valið hafa sér Ijósmyndun eða blaða- menn höfðu skipst á glósum og rifj-
mennsku til að draga fram lífíð, að . að upp kynni sín af einkennilegum
kynnast gjörla á föstudagskvöldiðíymönnum í Kópavogi og Búdapest
þegar þeim leyfðist að nálgast stóf- . gullu lúðramir við. Raunar höfðu
mennin og fylgjast með komu
þeiiTa til Hvíta hússins í ausandi
rigningu. Raunar fór þeim fjölgandi
sem bölvuðu stækkun NATO er bið-
in virtist engan enda ætla að taka
frekar en úrhellið sem steyptist yfir
þá gæfusömu þar sem þeir voni
saman komnir á palli fyrii- framan
húsið sem forsetahjúirr í Bandaríkj-
unum fylla með nærveru sinni.
Á slíkum samkundum sem Was-
hington-fundur leiðtoga NATO er
tíðkast það að gefa völdum fulltrú-
um fjórða valdsins tækifæri til að
fylgjast með leiðtogum hins frjálsa
heims í návígi. I Washington eru nú
staddir rúmlega 3.000 fréttamenn,
Ijósmyndarar og tæknilið en völdum
hópi er jafnan treyst til að fylgjast
með er leiðtogamir koma saman til
tiltekins atburðar. Og þannig var
því farið á fostudagskvöld er fulltrú-
ai- íslenskrar fólmiðlunar fengu,
sökum vasklegrai- framgöngu
starfsliðs sendiráðs lýðveldisins í
Washington, ásamt starfsbræðrum
sínum og -systrum aðgang að Hvíta
húsinu til að fylgjast með komu leið-
toga NATO til kvöldverðar í boði
Hillary og Bill Clinton og upphafi
þess viðburðar.
Garðyrkjumaður á heimleið?
„Hvað borga þeir þér fyrir þetta?“
sagði pólskur kvikmyndatökumaður
eftir að hinir útvöldu höfðu haldið til
úti á palli fyrir framan aðalinngang-
inn í tæpar tvær klukkustundir.
Rigningin virtist engan enda ætla að
þeir blásið svo oft og jafnan réýnst
tálheym ein að almenna niðúi-stað-
an varð sú að umsjónarmaður túlíp-
ananna, hinn opinberri garðyi-kju-
maður, pössum skrýddur, væri að
snúa heim ellegar sá hinn sami hefði
pantað sér flatböku.
Framandi tækni
Alltjent jukust umsvifin og menn
með tæki í eyrunum fóru um í flokk-
um. Fulltrúi Morgunblaðsins dró þá
ályktun að viðkomandi hefðu borið
varanlegan skaða á heyrn sinni sök-
um lúðrablásturs og trumbumslátt-
ar en það var ekki fyrr en velviljað-
ur fulltrúi fjölmiðla heimsins upp-
lýsti að þar færu öryggisverðir sem
fyrir þeim hinum sama rann upp
ljós. Sú hugsun að íslenska heil-
brigðiskerííð gæti flutt út starfsemi
sína til að aðstoða heymarskerta í
Washington sameinaðist eternum.
Um leið og lúðrarnir gullu og fán-
ar viðkomandi aðildarríkis voru
bornir fram leið ljóshærð/gráhærð
kona fram á rauða dregilinn og tók
sér stöðu, ágætlega brosmild og vin-
gjamleg vel. Var þar kominn svo-
nefndur prótokoll-stjóri Hvíta húss-
ins en yfir það starf eiga íslending-
ar ekkert orð. Kona þessi var öld-
ungis dökk-klædd og vinstri fót sinn
staðsetti hún jafnan af vísindalegri
nákvæmni á að giska hálfu skrefi á
undan þeim hægri er hún bauð fyr-
irmennin velkomin. Eftir að hafa
mælt nokkur orð við dökkklæddu
konuna, snera leiðtogamir sér við
, Reuters
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra á eintali við Jacques Chirac Frakklandsforseta á hátíðarfundi NATO.
AP
MADELEINE Albright, utanrikisráðherra Bandarikjanna, ræðir við Haildór Ásgrimsson.
ásamt konunum sem fylgja þeim í
jarðlífinu og brostu til heimsbyggð-
arinnar sem skjalfesti þetta viðmót.
Eftir að hafa tekið inn vökva nátt-
úrunnar í á að giska tvær klukku-
stundir gall skyndilega við mikið óp.
Pá var komið að því að fulltrúar
upplýsingasamfélagsins færa í flýti
af pallinum og stefndu beint inn um
aðalinngang Hvíta hússins og þaðan
inn í sjálft Austurherbergið svo-
nefnda.
Og þar blasti við dýrðleg sjón.
Langborði, bogadregnu, hafði verið
komið fyrh- í salnum og blik
ljósakrónanna hefðu gert sérhvert
alþjóðlegt meðlamenni orðlaust ef
ekki hefðu skinið skært ljóskastarar,
trúlega til að auðvelda ljósmyndur-
um og kvikmyndatökumönnum störf
sín. Dúkar sýndust gulir rétt eins og
flauels-sessur stólanna en gul kerti
loguðu í stjökum. Dragsúgur er aug-
ljóslega ekki fyrirbrigði sem húsráð-
endur í Hvíta húsinu þurfa að óttast.
Loks tilkynnti stallaii að Bill
Clinton væri að ganga í Austurher-
bergið ásamt eiginkonu sinni Hillary.
Smellir myndavélanna ágerðust um
allan helming er forsetinn leið inn í
salinn og leiddi eiginkonu sína sér við
hönd. Svipur Bandaríkjaforseta vai-
gæskulegur og viðstaddir blaðamenn
létu þau ummæli falla á flestum
heimsins tungum að maðurinn væri
yfirtak unglegur, sennilega „hress“.
Hollusta stallai'ans reyndist ekki
bundin við húsráðendur því sá hinn
sami kvað jafnan upp raust er tiltek-
ið mikilmenni heiðraði salinn með
nærveru sinni. Fylgdi þeim og kon-
um þeirra ávallt einkennisklæddur
fylgdarmaður/-kona og virtist þetta
fólk eiga það sameiginlegt að hafa
höndlað alvöra jarðlífsins.
Er leiðtogamir höfðu allir verið
kallaðir til málsverðarins fylgdu þeir
fordæmi húsráðenda og vora við fót
uns forsetahjónin gáfu til kynna að
óhætt væri að taka sér sæti.
Clinton forseti tók síðan til máls
og flutti stutt erindi, sem einkennd-
ist af heldur almennu orðalagi. Því
næst bað hann viðstadda að skála
fyrir NATO, sem fagnar fimmtugs-
afmæli sínu um þessar mundir auk
þess sem forsetinn fór þess á leit við
viðstadda að þeir hylltu sérstaklega
spænska eðlisfræðinginn, Javier
Solana, sem nú gegnir stöðu fram-
kvæmdastjóra NATO.
Smávaxnar konur vísa veginn
Eftir að forseti Bandaríkjanna
hafði kastað ávarpi sínu á viðstadda
tók Solana, sem nýtur mikillar virð-
ingar fyrir skýra hugsun og kröftuga
framsetningu hennai' til máls. I
stuttu en hnitmiðuðu ávaipi sínu
sagði framkvæmdastjórinn efnislega
að NATO hefði verið myndað um
ákveðin grandvallarréttindi manna.
Þau réttindi væri NATO-bandalagið
ekki aðeins tilbúið að ítreka í lok 20.
aldarinnar heldur væru aðildaiTÍkin
tilbúin að verja það hið sama líkt og
komið hefði fram í Kosovo.
Eftir ávai-p Solanas var dregið úr
styrk ljósanna og smávaxnar en geð-
þekkar konur tilkynntu fjölmiðlafólki
að nærvera þess væri ekki óskað
lengur, leiðtogarnir vildu njóta
kvöldmáltíðarinnar í íriði. Fullfrískir
verðir með heyrnartæki sýndust full-
sáttir við að skila hinum sérvöldu
fulltrúum heimsbyggðai-innai- og Is-
lands í gegnum rimlahliðin og út í
kvöldið í höfuðborg Bandaríkjanna
þar sem veðui-guðimir höfðu loks
náð samstöðu um að láta stytta upp.
ömissandi fgrðafélaqi
Stök kort
790.-
f ■ ■p|»
Mál og menning
Vandað kortasett af íslandi:
Ferðakort 1:600 000 og fjc
iandshlutakort 1:300 000 í
hentugu hulstri og fallegri öskjo
■
íslandskort Máls og menningar
eru landakortnýrrar aldar,
sniðin að þörfum ferðamanna.
Laugavegi 18 • Siml 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
Stjórnarkreppa á Indlandi
Líklegt
verði til
Nýju Dehlí. Reuters.
FRÉTTASKÝRENDUR sögðu í
gær nánast óhjákvæmilegt að boðað
yrði til þingkosninga í Indlandi,
þeirra þriðju frá 1996, eftir að Kon-
gress-flokki Soniu Gandhi hafði mis-
tekist að mynda nýja ríkisstjórn.
Hins vegar er alls eldd víst að kosn-
ingar breyti stöðunni mikið og geri
Kongress eða höfuðandstæðingi
flokksins, BJP-flokki Atals Beharis
Vajpayees, auðveldar að mynda
stjórn.
Leiðtogar bæði Kongress og BJP
sögðu almenning þreyttan á kosn-
ingum en fáir aðrir kostir virtust í
stöðunni en að boða til kosninga.
Stjómarkreppa hefur nú verið í Ind-
að boðað
kosninga
Á föstudag lýstu fjórir litlir flokkar,
sem hafa samanlagt yfir 32 þing-
mönnum að ráða, því hins vegar yfir
að þeir væru ekki tObúnir að lýsa yf-
ir stuðningi við Kongress. Þrátt fyrir
þessi skakkaföll ákvað Kongress í
gærmorgun að lýsa sig reiðubúinn til
að taka við sem minnihlutastjórn.
Nokkm* þrýstingur er nú á K.R.
Narayanan, forseta Indlands, að
boða til kosninga eða finna leið út úr
þeim ógöngum sem stjórnarmynd-
unarviðræður eru komnar í. Átti
hann í gær og fyrradag frekari fundi
með helstu stjórnmálaleiðtogum í
landinu, sem og ýmsum stjórnar-
skrársérfræðingum.
landi í sjö daga, eða allt frá því að
stjórn Vajpayees féll með eins at-
kvæðis mun í atkvæðagreiðslu í
þinginu. Tilraunir Kongress um að
mynda nýja ríkisstjórn fóru út um
þúfur á föstudag þegar fjórir litlir
flokkar neituðu að lýsa yfir stuðningi
við flokkinn.
Kongress hafði alla vikuna reynt
sitt ýtrasta til að telja fjölda lítilla
flokka og svæðisbundinna framboða,
sem tóku þátt í því með Kongress að
fella ríkisstjórn Vajpayees um síð-
ustu helgi, á að mynda nýja ríkis-
stjórn með sér, eða í það minnsta
samþykkja að verja stjórn undir for-
sæti Kongress vantrausti í þinginu.