Morgunblaðið - 25.04.1999, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
.J*
r • i
HÁSKÓLABÍÓ
HASKOLABIO
Hagatorgi, sími 530 1919
Fullkominn faöir...
fyrirtaks nágranni...
...hættulegur hryðjuverkamaður?
HUGO
Réttlætið kostar sitt
A CIVIL ACTION
MÁLSÓKN
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15.
Sýnd kl. 3.
Sýnd kl. 3.
Sýndkl.4.40, 6.50, 9 og 11.10. B. i. 16.
/ Óikars-
! T1I.NEFNINC \
ItOBERT PU\ AL i
5BESTI I.EIKAR1 /
j^ALKAHLUTV/
ÍjJ Jl'J
PERMANENT MIDNIGHT
i. 16 ára. BXDiGt
Forsýning kl. 9 B.
Sýnd mánudag. kl. 9
Alfabakka 8, simi 587 8900 og 587 8905
N0 M0RE MR.NiCE GUY
T^fojpaSakamalamvnd
OHT Rás2
IVBACK
www.samfilm.is
Minnstu hund-
ar í heimi?
► BUDDY og Darika eru svo litlir
að þeir komast fyrir í litlum vatns-
glösum, enda eru þeir minnstu
hundar í heimi. Eigandi þeirra, dr.
Chai Kanjanakom frá Taflandi,
sýndi þá á fimmtudaginn í von um
að koma þeim á spjöld sögunnar,
nánar tiltekið í hEimsmetabók Gu-
inness. Buddy vegur aðeins 450
grömni og Darika 475 grömm og
eru þeir af ætt yorkshire terríer-
hunda. Eftir er að skera úr um
hvort Buddy og Darika eru sannan-
lega minnstu hundar heimsins en
víst er að margt bendir til þess að
þeir séu ekki langt frá því marki.
Anna Sigga og Alla með gömul íslensk dægurlög í Kaffileikhúsinu
Lög sem vekja upp
sólríkar minningar
Ljúfur andi fyrri tíma
mun ráða ríkjum í
Kaffíleikhúsinu á
mánudagskvöldið þegar
þær Anna Sigríður
Helgadóttir söngkona
og Aðalheiður Þor-
steinsdóttir píanóleik-
ari flytja íslensk
sönglög. Dóra Osk
Halldórsddttir hitti
Onnu Siggu og spurði
hana um tónleikana.
ANNA Sigga og Alla rifja upp gömlu, góðu, íslensku dægurlögin
á mánudagskvöldið í Kaffileikhúsinu.
MARGIR eiga ljúfar minningar frá
þeim tíma þegar Óskalög sjúklinga
hljómuðu í útvarpstækjum lands-
manna á sólríkum laugardagsmorgn-
um og mamma var í eldhúsinu eitt-
hvað að fást við mat. Lögin frá þessu
tímabili hljóma æ sjaldnar í útvörp-
um landsmanna og því eflaust mörg-
um fagnaðarefni að búið sé að dusta
af sumum þeirra rykið og flytja á
nýjan leik. Tónlistarkonurnar Alla
og Anna Sigga settu saman dagskrá
byggða á íslenskum dægurlögum frá
miðri öldinni og fluttu í Kaffileikhús-
inu 11. mars síðastliðinn og komust
þá færri að en vildu. Var því afráðið
að endurtaka tónleikana á mánu-
dagskvöldið í Kaffileikhúsinu.
Óskalög sjúklinga
hljómuðu um hverfið
Anna Sigga var spurð um þennan
áhuga á þessum gömlu íslensku
dægurflugum. „Við höfðum áður ver-
ið með dagskrá byggða á gömlum
bandarískum dægurlögum frá
fimmta og sjötta áratugnum sem eru
í miklu uppáhaldi hjá okkur og þegar
við hittumst einn daginn og fórum að
spá í hvaða efni væri skemmtilegt til
flutnings kom þessi hugmynd upp að
endurvekja gömlu, góðu, íslensku
dægurperlurnar. Fyrst ætluðum við
að hafa dagskrána eingöngu bundna
við lög bræðranna Jóns Múla og
Jónasar Arnasona en síðan þróaðist
hugmyndin og fleiri bættust við.“
A dagskránni eru lög eftir Jenna
Jónsson, Ingibjörgu Þorbergs, Odd-
geir Kristjánsson, Freymóð Jó-
hannsson, Hallbjörgu Bjamadóttur,
Hjördísi Pétursdóttur svo aðeins
nokkrir séu nefndir. „Ég hef alltaf
haldið svo mikið upp á lögin sem
voru í óskalagaþáttunum í útvarpinu
í gamla daga. Ég á svo góðar minn-
ingar frá þessum þáttum frá því ég
var lítil. Það rifjast upp fyrir mér
einn ákveðinn sólríkur laugardagur
þegar verið var að setja möl í inn-
keyrsluna heima. Ég var í rauðum,
köflóttum buxum með bandi undir il-
inni og kveikt var á bláa útvarpinu
og óskalög sjúklinga hljómuðu um
hverfið." Nú hefur Anna Sigga upp
raust sína þar sem við sitjum á kaffi-
húsi og syngur skemmtilega djass-
aðri röddu: „Ég vildi að ég væri eins
og þú / og vakað gæti bæði dag og
nætur...“ og með laginu berst and-
blær tímabilsins fullkomlega til
skila.
Anna Sigga segist hafa farið niður
á útvarp og fengið að gramsa þar í
plötusafninu. Mörg laganna á dag-
skránni heyrðust fyrst í danslaga-
keppni Skemmtiklúbbs templara
sem Freymóður Jóhannsson öðru
nafni Tólfti september stóð fyrir.
„Ég segi örlítið frá danslagakeppn-
inni og höfundum á milli laga og fyrir
mér breytir það heilmikið svip tón;
leikanna. Þeir verða ekki jafn stífir
fyrir bragðið heldur kemur meira sú
stemmning að skemmta sér saman
og rifja upp ákveðið tímabii í tónlist-
arsögunni."
Anna Sigga segir að með því að
grúska í lögum þessa tímabils hafi
hún og Aðalheiður ákveðið að ein-
beita sér svolítið að kvenkyns laga-