Morgunblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
STJÓRNANDA gröfunnar var bjargað á þurrt um hálfri klukkustund eftir að grafan festist, en hann hafði
komist upp á þak hennar í gegnum þaklúgu og beið björgunar.
32 tonna grafa á bólakafi
32 TONNA ný grafa í eigu Reiss
ehf. verktaka í Njarðvík festist í
Arnarnesvogi í gær þegar stjórn-
andi hennar ók á henni út á fjör-
una til að skola óhreinindi af
gröfunni í sjónum, en verið var að
grafa ræsi með henni í nágrenni
íjörunnar áður en óhappið varð.
Stjórnandi gröfunnar hringdi í
starfsfélaga sína í landi, þegar
ljóst var að grafan sat sem fastast
og gerðu þeir lögreglunni í Hafn-
arfirði viðvart sem fékk tilkynn-
ingu um atburðinn um klukkan
13.30. Fljótlega eftir að grafan
festist flæddi að og fór grafan á
kaf í sjó á skömmum tíma.
Slökkvilið Reykjavíkur sendi tvo
kafara og gúmmíbjörgunarbát á
vettvang og tókst að bjarga
stjórnanda gröfunnar á þurrt um
hálfri klukkustund eftir að graf-
an festist, en hann hafði komist
upp á þak hennar í gegnum
þaklúgu og beið björgunar.
Að sögn stjórnanda gröfunnar
átti að gera tilraun til að ná gröf-
unni á þurrt með tveim 45 tonna
gröfum skömmu eftir hádegi í
dag á háfjöru.
Valdimar Jóhannesson stefnir sjávarút-
vegsráðherra vegna synjunar á veiðileyfí
Akvörðun Fiski-
stofu verði lýst
ólögmæt
VALDIMAR Jóhannesson hefur
höfðað mál fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur á hendur sjávarút-
vegsráðherra og krafist þess að lýst
verði ógild og ólögmæt synjun
Fiskistofu á því að veita stefnanda
aflahlutdeildir sem hann sótti um
til sjávarútvegsráðuneytisins í des-
ember 1996. Héraðsdómur hefur
fallist á að veita málinu flýtimeð-
ferð.
Þess er einnig krafist að viður-
kennt verði með dómi að stjómvöld-
um beri að veita stefnanda heimild
til að veiða sjávarafla án þess að
hann þurfi að leita til þeirra sem
þegar hafa fengið til þess rétt.
Valdimar Jóhannesson segir til-
efni málshöfðunarinnar það að
stjómvöld hafi ekki virt dóm Hæsta-
réttar frá 3. desember 1998. „Ég skil
dóminn þannig að rétturinn hafi fall-
ist á það álit mitt að það brjóti í bága
við grundvallarreglur samfélagsins
að binda aðgang að íslenskum fiski-
miðum við forréttindi þeirra sem
mér er í raun vísað á til að kaupa
rétt af til að nota veiðileyfi," segir
Valdimar. Hann segir því nauðsyn-
legt þrátt fyrir dóm Hæstaréttar að
dæmt verði um kröfur sínar nú.
Valdimar segir að stjórnvöld
hafí, eftir að dómur Hæstaréttar
gekk, beitt sér fyrir því að löggjaf-
arvaldið héldi til streitu skipulagi
sjávarútvegsmála í grundvallarat-
riðum. „Það er því enn ranglega
komið í veg fyrir að ég og aðrir sem
ekki njóta til þess forréttinda geti
stundað atvinnu við fískveiðar
nema að uppfylltum ólögmætum
skilyrðum," segir Valdimar enn-
fremur.
Eldur í feiti
SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur
var kvatt að íbúðarhúsi við
Óðinsgötu skömmu fyrir
klukkan 21 í gærkvöld, þar
sem kviknað hafði í feiti í potti
og viftu í eldhúsi.
Tókst slökkviliðinu að
slökkva eldinn í tæka tíð áður
en hann breiddist út, en að
sögn varðstjóra slökkviliðsins
má litlu muna í tilvikum sem
þessum, að tjón hljótist af.
Hundrað ár
liðin frá fæð-
ingu Jóns Leifs
ÞESS er minnst á margan hátt í
dag, 1. maí, að hundrað ár eru
liðin frá fæðingu tónskáldsins
Jóns Leifs. Afmælisdagskráin
hefst kl. 10 með því að tónskáld
leggja blómsveig að leiði Jóns í
F ossvogskirkjugarði.
I Þjóðarbókhlöðunni hefst
dagskrá kl. 11, þar sem Björn
Bjamason menntamálaráðherra
opnar heimasíðu Jóns Leifs, sem
tónlistardeild Ríkisútvarpsins og
Islensk tónverkamiðstöð hafa
sett upp. Þá hefst þar einnig
sýning á handritum Jóns Leifs,
auk þess sem þeir Árni Heimir
Ingólfsson og Carl-Gunnar
Áhlen munu halda stutta fyrir-
lestra um Jón og tónlist hans.
Kammersveit Reykjavíkur
leikur fjögur verk eftir Jón
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út þriðjudaginn 4. maí.
Leifs á afmælistónleikum í Þjóð-
leikliúsinu sem hefjast kl. 14.
Tvö verkanna, Helga kviða
hundingsbana og Grógaldr,
hafa aldrei heyrst áður á tón-
leikum.
Lesbók helguð minningu
tónskáldsins
Lesbók Morgunblaðsins í dag
er að hluta helguð minningu
tónskáldsins, en þar er m.a. end-
urbirt samtal sem Matthías Jo-
hannessen átti við Jón í tilefni af
sextujgsafmæli hans árið 1959.
Jón Asgeirsson minnist Jóns
Leifs sem ármanns íslenskrar
tónlistar og einnig er birt viðtal
við sænska plötuútgefandann
Robert von Bahr, en útgáfa
hans, BIS, vinnur að heildarút-
gáfu verka Jóns Leifs.
Þá er íjallað um fyrrnefnda
afmælistónleika Kammersveitar
Reykjavíkur í Þjóðleikhúsinu og
nýjan vef um Jón Leifs.
■ Lesbók/6-9 og 20
Fulltrúar feröaþjúnustufyrirtækja segja bókanir góðar
Besta nýting í apríl
á Sögu frá upphafí
BÓKANIR hjá íyiirtækjum í ferða-
þjónustu fyrir sumarið h'ta vel út að
sögn talsmanna nokkurra fyrir-
tækja sem Morgunblaðið ræddi við
í gær. Hrönn Greipsdóttir, hótel-
stjóri á Radisson SAS Hótel Sögu,
segir að nýtingin í apríl hafi verið sú
besta á hótelinu frá upphafi eða
75%.
„Sumarið verður algjör
sprengja," segir Ólafur Þorgeirs-
son, framkvæmdastjóri Fosshótela,
„og það verður þriðja árið í röð sem
mikill uppgangur er í fjölda er-
lendra ferðamanna hér.“ Fosshótel
reka í sumar 12 hótel og gististaði
með milli 600 og 700 herbergjum og
segir Ólafur að með nýju bókunar-
kerfi sé betur fylgst með bókunum
ferðahópa og hægt að tryggja betur
að þeir skih sér.
Hrönn Greipsdóttir telur útlitið
svipað og í fyrra fyrir sumarið í
heild. Hún segir apríl hafa verið
sérlega góðan, nýtingin sú besta frá
upphafi eða 75%. Hún segir meðal-
nýtingu hótela á Islandi vera um
61% sem skýrist af því að mánuð-
imir frá nóvember og fram í apríl
séu sérlega rýrir. Brýnt sé því að
auka nýtingu og telur hún raunhæft
að meðalnýting geti orðið um 75%.
Flug fullbókuð í júlí
Hún segir hótel í Reykjavík oft
vel bókuð í júní og síðan ágúst og
jafnvel september en í júh fari
ferðamenn mikið út um land og því
sé nýting þá minni. Erfitt sé samt
að auka hana þá þar sem allt flug til
og frá landinu sé fullbókað á þeim
tíma. Telur hún því gistirými í
Reykjavík nokkuð fullnægjandi
enda hafi herbergjum fjölgað úr um
1.100 árið 1996 í tæplega 1.500 nú
sem sé hátt í 30%.
Jóhannes Ellertsson, sem rekur
ferðaskrifstofuna Vestfjarðaleið,
segir greinilega aukningu verða í
sumar. Segir fyrirtækið taka á móti
fleiri hópum sem það hefur sjálft
skipulagt svo og fleiri hópum á veg-
um annarra aðila. Segir hann þessa
ferðamenn bæði koma með íslensk-
um og erlendum flugfélögum.
,Aukningin kemur bæði fram í fleiri
ferðamönnum yfir hásumartímann
og ferðaþjónustutíminn nær sífellt
lengra fram á haustið og byrjar fyrr
á vorin,“ segir Jóhannes og hefur
fyrirtækið þegar tekið á móti
nokki-um hópum.
Hjá Ferðaskrifstofu Guðmundar
Jónassonar sagði Signý Guðmunds-
dóttir framkvæmdastjóri að sumar-
ið hti vel út miðað við það sem kom-
ið væri. Hún sagði 20 til 30% aukn-
ingu hafa verið í móttöku erlendra
ferðamanna hjá fyrirtækinu í fyrra
eftir að tókst að vinna nýja markaði
og kvaðst ánægð með að halda því í
sumar. Fyrirtækið skipuleggur
bæði tjaldferðh’ á hálendinu og
ferðir með gistingu á hótelum og
gististöðum í öllum verðflokkum.
Hún kvaðst ekki vera frá því að
mynstrið væri að breytast nokkuð,
tjaldferðh’ virtust ekki eins vinsæl-
ar og áður, menn gerðu sífellt mein
kröfur um góða gistingu og þaeg'
indi.
Bjarki og
Marina val-
in leikmenn
ársins/DI
Ragnheiður
Stephensen
fékk
þrennu/D4
Afturelding
í Meistara-
deild Evr-
ópu/D3