Morgunblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 1
97. TBL. 87. ÁRG. LAUGARDAGUR L MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sprengja verður tveimur mönnum að bana í hjarta Lundúna - tugir særðust alvarlega
Reuters
LIÐSMENN sérsveitar neyðarþjónustunnar í Lundúnum gera að sárum þeirra er særðust í sprengingunni í
Soho-hverfinu í gærkvöldi. Samtök hægri öfgamanna hafa lýst ábyrgð tilræðisins á hendur sér.
Aðkoman
ólýsanleg
Lundúnum. Reuters.
ÖFLUG naglasprengja sem sprakk
við öldurhús í miðborg Lundúna í
gærkvöld varð tveimur mönnum að
bana og særði 73. Þrettán þeirra
voru alvarlega særðir og varð að
aflima tvo einstaklinga vegna
slæmra sára. Sir Paul Condon, lög-
reglustjóri Scotland Yard, sagði á
blaðamannafundi í gærkvöldi að
öfgasamtök sem kalli sig Hvítu úlf-
ana, hafi lýst verknaðinum á hendur
sér. Var tilræðinu beint að samkyn-
hneigðum en öldurhúsið, sem stend-
ur í hjarta Soho-hverfisins, er eink-
um sótt af samkynhneigðu fólki. Er
sprengjan sprakk var hverfið iðandi
af mannlífi.
John Pooley, deildarstjóri neyð-
arsveita Lundúnaborgar, sagði í
viðtali við fréttamann Reuters á
slysstað að aðkoman hafi verið ólýs-
anleg. Hann hafi aldrei séð annað
eins. Sjónarvottur lýsti aðstæðum
sem „algeru blóðbaði".
Talsmaður Lundúnalögreglunnar
sagði að sprengjan hafi sprungið
um klukkan hálfsjö að staðartíma í
Admiral Duncan-kránni sem stend-
ur við Old Compton Road.
Árásin nú gerist aðeins einni viku
eftir að naglasprengja sprakk í
Brick Lane, hverfi Bangladesh-
manna í Lundúnum og tveimur vik-
um eftir sams konar tilræði í
Brixton-hverfi þar sem fjöldi
blökkumanna býr. Hvítir kynþátta-
hatarar höfðu lýst tilræðunum á
hendur sér og hafði lögreglan varað
við því undanfarna daga að fleiri
slík kynnu að fylgja í kjölfarið.
NATO hafnar fríðartillögum Rússa til lausnar stríðinu í Júgóslavíu
Langur vegur frá því að
skilyrðum NATO sé fullnægt
Belgrad, London, Washington, Brussel. Reuters, AP.
LOFTÁRÁSIR Atlantshafsbandalagsins
(NATO) á Júgóslavíu í fyrrinótt voru hinar hörð-
ustu til þessa. Auk skotmarka víðs vegar um
landið var árásum beint að Belgrad, höfuðborg
landsins, þar sem herstöð serbneska hersins,
stjómarbyggingar og íbúðarhús í borginni voru
eyðilögð. Telja serbneskir fjölmiðlar að lögreglu-
maður hafi farist og allt að 37 manns hafi særst í
árásinni á Belgrad. Eyðilegging á húsum hafi
auk þess verið umtalsverð. Árásimar héldu
áfram í gærkvöld og sögðu serbneskar fréttastof-
ur að fjórir almennir borgarar hefðu fallið í árás
á þorp í Kosovo.
Sáttatilraunir Rússa í deilunni héldu áfram í
gær er Viktor Tsjérnómýrdin, sérlegur sátta-
semjari Rússlands, hélt tíl Belgrad og fundaði
með júgóslavneskum ráðamönnum. Þá er talið að
farið sé að bresta verulega í stoðum stjómarinn-
ar í Belgrad en í gær hvatti stjómarandstaðan
Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta til að sýna
aukinn sveigjanleika í samningaumleitunum um
átökin í Kosovo.
Talsmenn júgóslavneskra stjórnvalda lýstu því
yfir í gær að þau hefðu fallist á nýjar friðartillög-
ur Rússa til lausnar Kosovo-deilunni. Aðildarríki
NATO höfnuðu tillögunum hins vegar algerlega
og sögðu þær ekki fullnægja skilyrðum sem
bandalagið hefði sett Serbum um að leyfa alþjóð-
legu friðargæsluliði að koma inn í Kosovo eftir að
serbneskar hersveitir yfirgæfu héraðið.
Talsmaður júgóslavneska utanríkisráðuneytís-
ins sagði í gær að á fundi Tsjémómýrdins og
Milosevics hefðu þeir komist að samkomulagi um
friðaráætlun fyrir Kosovo-hérað sem væri í sjö
liðum. Einn liðurinn kvæði á um aðgang óvopn-
aðra alþjóðlegra friðargæslusveita að Kosovo,
undir merkjum Sameinuðu þjóðanna. NATO hef-
ur hins vegar sett það sem skilyrði fyrir friði að
friðargæslusveitir í héraðinu verði vopnum búnar
og mannaðar hermönnum NATO.
Jamie Shea, talsmaður NATO, sagði að tillög-
umar væra „víðs fjarri kröfum alþjóðasamfélags-
ins.“ Þá sagði Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, að tillögumar væri ekki
hægt að taka alvarlega. Bresk stjómvöld höfn-
uðu tillögunum einnig.
Búist er við hörðum loftárásum yfir helgina og
hafa talsmenn NATO sagt að hin hagstæðu veð-
urskilyrði sem spáð er fyrir Balkanskaga um
helgina verði nýtt til fullnustu.
Reuters
SERBNESKUR karlmaður hjólar hjá brenn-
andi rústum olíuhreinsunarstöðvar í borg-
inni Novi Sad eftir að loftárásum NATO
linnti í gærmorgun.
Fjöldamorð í Kosovo
Lundúnum. Reuters.
TALSMAÐUR Flóttamannastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna (UNHCR) sagði í London í
gær, að sannanir væra fyrir því, að Serbar
hefðu myrt stóran hóp Kosovo-Albana í þorp-
inu Meja í Suðvestur-Kosovo fyrr í vikunni.
„Það er enginn vafi á, að þama áttu sér stað
fjöldamorð,“ sagði Lyndall Sachs, talsmaður
IJNHCR, í viðtali við breska ríkisútvarpið,
BBC. „Við höfum tekið á móti hverjum flótta-
mannahópnum á fætur öðram og allir segjast
hafa séð fjölda líka ofan í skurðum eða á
ökranum," sagði Sachs.
Jeremy Bowen, fréttamaður BBC, sem
staddur er í Albaníu, hafði í gær eftir flótta-
fólki, að serbneskir hermenn hefðu stöðvað
það í Meja á þriðjudagsmorgni, skilið 280
karlmenn frá hópnum og neytt þá til að taka
sér stöðu úti á akri.
Annar hópur, sem fór um Meja síðar um
daginn, sá þar stóran valköst og um 1.000
kosovo-albanska karlmenn á lífi. Sátu þeir all-
ir á jörðinni í langri röð og var gætt af
serbneskum hermönnum. „Fimm mínútum
eftir að við fóram frá þorpinu hófst mikil skot-
hríð, sem stóð án afláts í 10-15 mínútur,“
sagði einn flóttamannanna.
Skerst í
odda milli
Blairs og
Salmonds
Edinl>org. Morgunblaðið.
SKOSKI þjóðarflokkurinn (SNP)
lagði í gær fram áætlanir sínar um
stjóm efnahagsmála í sjálfstæðu
Skotlandi, fengi flokkurinn umboð
kjósenda til að hefja aðskilnaðarvið-
ræður við bresk stjómvöld. Aðrir
stjómmálaflokkar sögðu áætlanir
SNP algerlega óraunhæfar og
skarst í odda milli þeirra Alex
Salmonds, leiðtoga SNP, og Tony
Blairs, forsætisráðherra Bretlands,
vegna stefnumála SNP á fundi sem
báðir sóttu í Glasgow í gær.
Á fréttamannafundi fyrr um dag-
inn hafði Salmond lagt áherslu á að
Skotland væri fullkomlega fært um
að sjá sjálfu sér farborða og hann
gerði lítið úr áhyggjum manna um
að mikill halli yrði á rekstri skosks
ríkissjóðs fyrstu misserin eftir að
sjálfstæði væri í höfn. „Við getum
stýrt Skotlandi betur en gert er frá
London, skref 1 átt að sjálfstæði
væri gæfuskref.“
Blair gagnrýndi málflutning SNP
í ræðu sem hann hélt yfir góðgerð-
armálsverði á Hilton-hótelinu og
sagði að helsta markmið þjóðemis-
sinna væri að brjóta Bretland upp í
frameindir sínar, reka hníf í hjarta
sambands bresku ríkjanna. „Stefna
þeirra í efnahagsmálum er ekki trú-
verðug. Stefnumál þeirra era hættu-
leg og af þeim stafar ógn,“ sagði
Blair m.a. í ræðunni. Salmond, sem
viðstaddur var málsverðinn, tókst
hins vegar að stela senunni þegar
hann hélt á loft plaggi þar sem á var
ritað „blekkingar" í miðri ræðu for-
sætisráðherrans. „Þetta eru ekki
blekkingar heldur staðreyndir og
hann ætti að gera sér grein fyrir
mismuninum á þessu tvennu," svar-
aði Blair um hæl.
■ Stefnir í sigur/33