Morgunblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 69r Hugmynd að flugvelli í Skerjafírði NÝR Reykjavíkur- flugvöllur (REK)? Það hljómar ekki illa, sér- staklega fyrir þá sem þurfa að hossast um brautirnar og flughlöð- in eins og nú er. Ann- ars er hann góður, vel staðsettur, aðflug og fráflug lítið yfír byggð og öll þjónusta stutt frá. I Kastljósi fyrir nokkru sagði Omar Ragnarsson að F okker-vél Flugleiða, sem farið hafði út af vestur/austur braut- inni út á Suðurgötu 1986, hefði ekki gert það hefði brautin verið 300 metrum lengi-i. Það er rétt, en það eru aðr- ar orsakir. Flugmennirnir fundu þungt högg og hættu við flugtak. Flugbrautirnar á REK eru ósléttar svo vatn safnast í stóra polla og í þetta skiptið skvettist mikið vatn frá hjólunum af afli á vélina. Þetta var fyrir 13 árum! Það þarf alltaf einhver að slasast eða verða fyrir tjóni áður en eitt- Flugvallarmál Hvers vegna á að leggja á farþega að lengja ferðatíma þeirra, spyr Matthías Arn- grímsson, þegar það er algjör óþarfí? hvað er að gert. Viðhald snýst ekki um það hvort hann verður þarna næstu sextán árin eða ekki, heldur um flugöryggi. Það tekur of langan tíma að skipuleggja og byggja nýj- an fullkominn flugvöll annars stað- ar svo réttlætanlegt sé að fresta viðhaldi. í þessar framkvæmdir verður að ráðast tafarlaust. Uppdráttur með grein Friðriks H. Guðmundssonar í Mbl. 25.2. sl. er óljós. Ekki er gert ráð fyrir flug- skýlum flugrekenda, slökkvistöð og öðrum byggingum sem nú eni á REK. Það er lágmark að gera ráð fyrir tveimui- 2.000 m brautum. Að- staða fyrirtækja, einkaaðila og fyr- ir þjónustu þarf að vera betri en hún er nú og hana þarf að færa. Hver á að greiða þann kostnað og hvaða rými fá þeir aðilar á nýjum Matthías Arngrímsson flugvelli? Það er merkilegt hve ódýr „Skerjafjarð- arvöllur" á að verða. Hver er áætlaður heildarkostnaður við að búa til uppfyllingu, leggja flugbrautir og akbrautir, færa bygg- ingar og skýli, færa og endumýja aðflugs- tæki, ljós o.s.frv.? Þetta er ekki einfalt mál. Sýna þarf út- reikninga til að skýra málið frekar. Með þessari nýju flugvallarhugmynd er kannski möguleiki að koma fyrir flugskýli og aðstöðu fyrii' Islenska flugsögufé- lagið? Flugsagan virðist ekki vera nógu merkileg til að yfirvöld virði hana viðlits og sýni henni þá virð- ingu sem henni ber í varanlegu húsnæði. Ekki eru allir sammála um að reisa 20 þús. manna byggð á núver- andi svæði REK. Milli 5 og 10 þús. væri nær lagi til að byggðin falli að umhverfinu og byggingum á svæð- inu. E.t.v. mun hægt að gera þetta að fallegu svæði með vatnsbúskap Tjarnarinnar og fuglalíf Vatnsmýr- arinnar að leiðarljósi, en ekki stór- ar blokkir, takk. Byggingar í ná- grenni flugvallar í Skerjafirði mega ekld vera háar. Háar blokkir við flugvelli valda sviptivindum og eru flugmönnum þymir í augum. Miðað við teikningar Friðriks mun fuglalíf að öllum líkindum lítið ef nokkuð skaðast og ströndin verður áfram þeirra. Hins vegar má vitna til vandræða vegna fugla við London City flugvöll, sem er á uppfyllingu. Einn af kostum þessarar hug- myndar er þó sá, að óþarft verður að flytja kennslu- og æfingaflugið burt. Völlur í Skerjafirði gæti vel sinnt öllu því flugi sem nú er á REK. Helsta ástæðan fyrir óskum um flutning kennslu- og æfinga- flugs er hávaði. Hann yrði minni. Af flugvöllum í nágrenni Reykja- víkur, s.s. við Selfoss, Mosfellsbæ og á Sandskeiði, er enginn heils- ársflugvöllur. Til að réttlætanlegt sé að flytja kennsluflugið til t.d. Sandskeiðs og gera það að heils- ársflugvelli, þarf að malbika flug- brautina þar, byggja flugskýli, hafa vakt í tumi, slökkvilið o.s.frv. Sama gildir um Mosfellsbæ. Brautirnar þar era of stuttar og sérstakar að- FRAMSÓKN ARFLO KKU RIN N Vertu með stæður ráða nokkra um notkun hans. Selfoss og Keflavík (KEF) era út úr myndinni vegna fjarlægð- ar. Annar kostur er sá að óþarft yrði að fara út í þær fjárfestingar sem fylgja nýjum æfingaflugvelli. Einka- flugið er svo lítið að það þarf ekki að færa. Einkaflugið á vel heima í Reykjavík og yfirvöld mættu gera einkaflugmönnum betur kleift að veija flugvélai- sínar gegn veðri með því að leyfa byggingu fleiri lítilla flugskýla. Með litlum kostnaði væri hægt að færa hina svokölluðu „Bása“, norðan við Hótel Loftleiðir, í Fluggarða og gera þá að vind- og vatnsheldum skýlum og selja þau eða leigja. Farþegaflugið verður í Reykjavík. Þeir 400 þús. farþegar sem fara um REK á hverju ári vilja lenda í Reykjavík. Þangað era þeir að fara. Það er ekkert vit í að færa innan- landsflugið til KEF og það er líka fáheyrt að höfuðborgin hafi ekki sinn eigin flugvöll. Þá yrði umferðin mifli REK og KEF margfalt meiri. Það leiðir til aukinnar slysahættu og mengunar. Að auki myndu fargjöld hækka, sem leiddi til færri farþega, sem leiddi til veni afkomu flugfélag- anna og það er slæmt fyrir alla. Hún er nógu slæm fyrir. Myndu Akur- eyringar ferðast með flugi ef þeir þyrftu að aka til Húsavíkur fyrst? Hvers vegna á að leggja á farþega að lengja ferðatíma þeirra um 45 mín. þegar það er algjör óþarfi? Það er þjóðhagslega hagkvæmt að hafa flugvöllinn í Reykjavík. Margir þættir era óljósir og mikið þai-f að reikna áður en lengra er haldið. Þetta snýst að mestu leyti um peninga sýnist mér, en ég vona að flugöryggi og tryggar flugsam- göngur við höfuðborgina verði ofan á. Höfundur er flugmaður. Samfylkingin er rétta svarið ALLA þessa öld hefur stór hópur ís- lenskra stjómmála- manna barist fyrir sjónarmiðum félags- hyggju og jafnaðar. Sú barátta hefur vissu- lega oft á tíðum skilað miklum árangri, í raun ótrúlegum miðað við aðstæður, því hér á landi, ólíkt því sem þekkist víða í okkar heimshluta, er hægri flokkur sterkasta stjórnmálaaflið. A sama tíma hefur bar- átta félagshyggjufólks einkennst af sundr- ungu. Við eigum nú sögulegt tækifæri til að láta drauminn um sterkt Kosningar Við þurfum að breyta þjóðfélaginu í takt við nýja tíma, segir Asgeir Magnússon, og breyta því rétt. mótvægi við hægriöflin rætast. Samfylkingin er þetta mótvægi. Við getum byrjað nýja öld með öfl- ugri samfylkingu sem um leið gef- ur von um betra þjóðfélag. Við þurfum að breyta þjóðfélag- inu í takt við nýja tíma og breyta því rétt. Við þurfum að auka fjárfestingu í mannauði, því í þeirri fjárfestingu felst upp- spretta efnahagslegra framfara á nýrri öld. Við þurfum að ná sátt um nýtingu okkar helstu auðlinda bæði til lands og sjávar. Við þurfum að stuðla að eðlilegri byggðaþróun í landinu í stað þeirrar endalausu byggða- röskunar sem nú á sér stað sem afleiðing stjórnvaldsaðgerða. Við þurfum á öflugri Samfylkingu að halda. Höfundur er bæjarfulltrúi fyrir Akurcyrarlistann. Ásgeir Magnússon Skrifstofur VÍS eru opnar frá 8-16 alla virka daga í sumar. vir VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSIANDS HF - þar sem tryggingar snúast umfólk Skrifstofur VÍS í útibúum Landsbankans á Höfn í Hornafirði og í Óiafsvík eru opnar frá 9:15-16:00. Sími 560 5000 í þjónustuveri VÍS er opinn frá 8:00-19:00 alla virka daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.