Morgunblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 96

Morgunblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 96
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Stjórnendur IS grípa til aðgerða og selja húseignir Leita samstarfs um rekstur verksmiðja STJÓRN íslenskra sjávarafurða hf. kynnti í gær margháttaðar aðgerðir í rekstri til að styrkja afkomu fyrir- tækisins. Eru stjórnendur félagsins að kanna möguleika á að fá fyrir- tæki til samstarfs um rekstur físk- réttaverksmiðja ÍS erlendis. Staða aðstoðarforstjóra IS verður lögð niður og láta aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri sölu- og mark- aðsmála fyrii’tækisins af störfum nú um mánaðamótin. Þá verður hús- ríæði Þróunarseturs á Kirkjusandi og Vöruhúss á Höfðabakka selt. „Við höfum fundið fyrir áhuga hjá aðilum og við munum kanna þau mál á næstu vikum. Það eru nokkrir aðilar sem koma til greina í því sambandi og ég geri ráð fyrir því að það verði teknar upp viðræður við einhvern aðila fljótlega um þessi mál,“ segir Finnbogi Jónsson, for- stjóri ÍS, um fyrirhugað samstarf um rekstur fiskréttaverksmiðja er- lendis. ÍS hefur glímt við mikla erfíð- leika og taprekstur sem að mestu hefur verið rakið til erfiðleika í rekstri Iceland Seafood Cor- poration í Bandaríkjunum. Að sögn Finnboga er verið að vinna að upp- gjöri fyrir fyrstu fjóra mánuði þessa árs en niðurstöður liggja ekki fyrir. Reksturinn í Bandaríkjunum hefur snúist til betri vegar „Við sjáum þó að reksturinn í Bandaríkjunum hefur verið jákvæð- ur fyrstu þrjá mánuði ársins. Þó að við séum ekki að tala um stóra tölu, þá erum við þó réttum megin við strikið. Það er veruleg breyting frá því sem var í fyrra. Það er hins veg- ar jafn ljóst að nú fer í hönd erfiðari tími á næstu mánuðum,“ sagði hann. Gera á breytingar á skipulagi ÍS þar sem gert er ráð fyrir að fjallað verði um tiltekna þætti starfsem- innar á sameiginlegum vettvangi samstæðunnar, svo sem fjármögn- un og íjárstýringu, hi-áefnisöflun og flutningamál. Áfram er þó gert ráð fyrir sjálfstæðum rekstri dótturfé- laga. „Það er hins vegar alveg ljóst að stjórnunin, til dæmis á fyrirtækinu í Bandaríkjunum, var algerlega í molum og við teljum að móðurfyrir- tækið þurfi að hafa meira eftirlit með rekstrinum á hverjum tíma, þannig að ef eitthvað kemur upp, þá komi það mönnum ekki algerlega í opna skjöldu mörgum mánuðum eða heilu ári síðar. Við viljum því efla fjármálaeftirlitið og fjárstýr- inguna,“ sagði Finnbogi. ■ Selja á húsnæði/49 Morgunblaðið/RAX Björgun á Djúpavogi ÞAÐ er ekki alltaf auðvelt að vera lítill skógarþröstur og margt er að varast, en að þessu sinni fór allt vel. Björk Guðlaugsdóttir sá þröstinn fljúga á glugga á heimili hennar á Djúpavogi í gær og brást við þegar í stað. Hún hlynnti að hálf- rotuðum fuglinum og fyrr en varði var hann tilbúinn að fljúga út í vorið á ný. Gert við rækjutrollið 1. MAÍ, baráttudagur verkafólks, er í dag og samkomur launafólks haldnar víða um land. Einar V. Einarsson, Aðalsteinn Guðmunds- son og Arngrímur Gíslason í Netagerðinni Höfða á Húsavík litu vart upp frá vinnunni er ljós- myndari kom þar við í vikunni. Fyrsti ársfjórðungur Hagnaður FBA 362 milljónir króna HAGNAÐUR af rekstri Fjárfest- ingarbanka atvinnulífsins nam 362 milljónum króna fyrir skatta fyrstu þrjá mánuði ársins, samkvæmt óendurskoðuðu árshlutauppgjöri. Er þetta meiri hagnaður en varð fyrstu sex mánuði síðasta árs en FBA birtir nú ársfjórðungstölur úr rekstrinum í fyrsta sinn. Bjami Armannsson, forstjóri FBA, segir að fyrsti ársfjórðungur komi mun betur út en gert var ráð fyrir í byrjun ársins. Rekja megi hagnaðinn bæði til ytri skilyrða og þess að nú sé bankinn að uppskera það sem sáð hafi verið til. ■ FBA með/24 Morgunblaðið/Kristján Bankamenn ræða skammtímasamning HUGSANLEGT er að banka- menn -og viðsemjendur komi sér saman um skammtímasamning en samningar bankamanna eru lausir 1. september næstkom- andi. Friðbert Traustason, for- maður Sambands íslenskra bankamanna, tjáði Morgunblað- inu í gær að samningsaðilar virt- ust hlynntir þeirri hugmynd. Formaðurinn sagði samninga 1 bankamanna hafa verið til styttri tíma en margra annarra stétta þar sem talið var hugsanlegt að ýmsar breytingar og sameining- ar banka og sparisjóða væru fyrirhugaðar og því hefðu menn ekki viljað binda samninga of lengi. r Friðbert segir formlegar við- ræður ekki hafnar en í gærmorg- un hittust formenn aðildarfélaga og samninganefnd SÍB. Varpað hafi verið fram ýmsum hug- myndum, m.á. þessari um skammtímasamning en einnig því að samið yrði út árið 2000. Friðbert sagði að þrjár at- vinnugreinar öðrum fremur væru viðkvæmar fyrir árinu 2000, flugumferðarstjóm, heil- brigðiskerfið og fjármálaheimur- inn. Sagði hann því hugsanlegt að samningur myndi ná út árið 2000 ef aðilum þætti ótryggt að vera með lausa samninga á því ári. „Við myndum hafa áhuga á því ef bankamir vilja greiða eitthvað fyrir það,“ sagði Friðbert. Aukin samvinna Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur Miðstöð æðaskurð- lækninga verður á SHR MEÐAL breytinga sem framundan em í rekstri Landspítala og Sjúkra- húss Reykjavíkur er að miðstöð æðaskurðlækninga verður á SHR, teknar verða upp ákveðnar bein- mergsaðgerðir í haust en miðstöð þeirra verður á Landspítala. Þá- verður rekstur rannsóknastofanna aðskilinn frá öðrum rekstri spítal- anna. Magnús Pétursson, forstjóri sjúkrahúsanna, segir að þessar breytingar hafi verið ákveðnar í kjölfar samnings um að ríkið beri frá síðustu áramótum ábyrgð á rekstri Sjúkrahúss Reykjavíkur. Samvinnunefnd spítalanna hefur undirbúið þær ásamt forstjóranum en nefndin var skipuð í framhaldi af samningnum um aukið samstarf spítalanna. Magnús segir að æða- skurðlækningar séu mjög sérhæfð- ar og því væri talið eðlilegt að byggja upp slíka sérgrein á aðeins öðrum spítalanum og eftir athugan- ir og álit ráðgjafa hefði verið ákveð- ið að velja þeim stað á SHR. Þá verður endurhæfing flutt frá Landspítalanum og í húsnæði spít- alans í Kópavogi og rekstur endur- hæfingardeildar og taugadeildar SHR verður aðskilinn og endurhæf- ing beggja spítalanna færð undir eina stjóm. Læknaráð Landspítala óánægt Læknaráð Landspítalans sam- þykkti á aðalfundi sínum í gær ályktun þar sem lýst er óánægju með hvemig staðið hefur verið að ákvörðunum um flutning deilda. Telur ráðið að faglega umræðu hafi vantað og hvetur stjóm spítalans til að gæta að henni áður en flutningur deilda verður ákveðinn. ■ Deildir sameinaðar/12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.