Morgunblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Framhald í
næstu bók
ERLENDAR
BÆKUR
Spennusaga
ÚT í GRÁTT „FADE TO GREY“
eftir Jane Adams. Pan Books 1999.
261 síða.
ÁHUGI afþreyingariðnaðarins á
svokölluðum „snuff'-myndum eða
myndum sem eiga að sýna raun-
veruleg morð og nauðganir á mynd-
bandi, virðist hafa aukist nokkuð
hin síðari ár þótt enn hafí ekki sann-
ast, að því séð verður, að slíkar
myndir séu til. Spennutryllirinn
Atta millimetrar með Nicolas Cage,
sem sýnd er í Stjörnubíói, segir af
einkaspæjara sem leitar „snuff*-
myndaframleiðanda en hún kemur
upp í hugann þegar lesin er nýjasta
saga breska spennusagnahöfundar-
ins Jane Adams. Hún segir af leit
lögreglunnar að fólki er hverfur
með dularfullum hætti og hún segir
af nauðgunarárásum á ungar stúlk-
ur og hún segir af manni sem býr til
„snuff'-myndir. Bókin, sem heitir
Ut í grátt, eða „Fade to Grey“ og
kom nýlega út í vasabroti hjá Pan-
útgáfunni, er hæfílega spennandi og
laus við smekklaust ofbeldi, frá-
sagnarmátinn hraður, kaflar stuttir
og samtölin drífandi. En hún er í
heild full yfirborðsleg og því miður
fæst lausnin ekki í sögulok. Þeir les-
endur sem vilja vita hvernig sagan
endar verða að útvega sér fram-
haldið, sem mun væntanlegt í bóka-
búðir og heitir Lokaramminn eða
„Final Frame“; mér skilst að hún sé
þegar komin út innbundin í Bret-
landi.
Saga frá Norwich
Maður sér söguna mjög auðveld-
lega fyrir sér í formi einhvers af
þeim ágætu bresku sakamálaþátt-
um sem Ríkissjónvarpið sýnir
reglulega. Út í grátt er fjórða saka-
málasaga Jane Adams. Fyrsta bók-
in, „The Greenway", kom út árið
1995 og var mjög vel tekið og Jane
fylgdi henni eftir með „Cast the
First Stone“ og „Bird“. Adams er
frá Leicester þar sem hún býr í dag
og er menntuð I þjóðfélagsfræði.
Þrjár af bókum hennar, Út í grátt
meðtalin, segir af störfum lögreglu-
foringjans Mike Croft og lögreglu-
liði hans í borginni Noi-wich og eru
þær að því leyti hefðbundnar lög-
reglusögur.
Jane Adams hrúgar í Út í grátt
persónum og atburðum sem við
fyrstu sýn virðast ekkert eiga sam-
eiginlegt. Lítið þekkt sjónvarpsleik-
kona fínnst látin á heimili sínu og
þykja kringumstæðurnar grunsam-
legar. Ungum stúlkum er nauðgað í
borginni, sem eiga það sameiginlegt
að vera ljóshærðar. Kveikt er í bif-
reið í tvö hundruð og fímmtíu kíló-
metra fjarlægð og inni í henni finnst
lík. Ung stúlka hverfur frá heimili
sínu. Strákur að nafni Terry hverf-
ur á sama tíma. I ljós kemur að það
getur verið að nauðgararnir séu
tveir. Manni er haldið föngnum í
kjallara og fangari hans tekur það
upp á myndband.
Áhersla á spennuna
Öllu þessu kemur Jane Adams
heim og saman áður en lýkur og býr
lesandann undir næstu bók, „Final
Frame“, þar sem eltingarleikurinn
heldur áfram. Hún leggur mikla
áherslu á spennandi frásögn, að
leiða lesanda sinn dýpra og dýpra
inn í ráðgátuna og fer kannski helst
til hratt yfir sögu í þeim tilgangi.
Sagan er nokkuð traust svo hún
þarf varla að óttast að missa athygli
lesandans en flýtirinn verður til
þess að atburðir og persónur eiga
það til að flækjast fyrir lesandan-
um. Hún gefur sér lítinn tíma til
þess að undirbyggja atburðarásina
eða stoppa við persónusköpun og
flókin samskipti persónanna svo
sagan verður kannski ekki eins
grípandi og ella en hún gætir þess
líka að engar upplýsingar sem
skipta máli vanti.
Hvað sem því líður er Jane Ad-
ams efnilegur spennusagnahöfund-
ur líkt og landi hennar Tam
Hoskyns, annar ungur kvenkyns
sakamálahöfundur, sem vakið hefur
athygli í Bretlandi.
Arnaldur Indriðason
Skólalúðrasveit Árbæjar og Breiðholts
Morgunblaðið/Halldór
SKÓLALÚÐRASVEIT Árbæjar og Breiðholts æfír dagskrá afmælistónleikanna.
UM þessar mundir heldur Skóia-
lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts
upp á 30 ára starfsafmæli sitt. Af
því tilefni heldur sveitin tónleika
á morgun, sunnudag, kl. 16 i
Fella- og Hólakirkju.
Á dagskrá tónleikanna eru
bæði innlend og erlend Iög. Fyrir
hlé leika byrjendur, 9-12 ára, og
seinni hluti er leikinn af þeim
sem lengra eru komnir, 11-13
ára.
Framfarafélag Árbæjar og Sel-
áss átti frumkvæðið að því að
sett yrði á laggirnar einhvers
konar skólalúðrasveit til að koma
börnum og unglingum í kynni við
tónlist og tónmenntarþekkingu.
Afmælistón-
leikar í
Fella- og
Hólakirkju
Fenginn var tii verkefnisins Ólaf-
ur L. Kristjánsson, sem hafði
nokkru áður fengist við hljóm-
sveitarsljórn hjá Lúðrasveit
verkalýðsins. Úpp frá því tók
Reykjavíkurborg hljómsveitina
upp á sína arma og hefur svo
verið allar götur síðan, segir í
fréttatilkynningu.
í dag er Skólalúðrasveit Ár-
bæjar og Breiðholts rekin sem
tónlistarskóli. Hægt er að stunda
nám á ýmis hljóðfæri, s.s. flautu,
klarínett, trompett, horn,
básúnu, túbu og slagverk. I
hljómsveitinni eru nú um 70 börn
í námi. Núverandi stjórnandi
sveitarinnar er Lilja Valdimars-
dóttir, en hún hóf sitt hljóðfæra-
nám sem hornleikari við sveitina
á upphafsárum hennar. Hún
stundaði síðar framhaldsnám í
Svíþjóð og er einnig hljóðfæra-
Ieikari við Sinfóníuhljómsveit Is-
lands.
Karl Sijgurbjörnsson
biskup Islands
„Á þriðja þúsund einstaklingar
þurftu að þiggja aðstoð
Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir
nýliðin jól, og það í mesta
góðæri Islandssögunnar. Þetta
fólk er flest öryrkjar sem ættu
samkvæmt viðurkenndum
grundvallarsiðgildum okkar
þjóðar að njóta velferðar og
stuðnings samfélagsins.
Eitthvað er nú að. “
o úr nýárspredikun,
x janúar 1999.
Úr yfirlýsingu Rauða kross íslands:
„Við íslendingar erum meðal auðugustu þjóða heims og getum
tryggt að þeir sem standa höllum fæti vegna sjúkdóma,
atvinnumissis, örorku, aldurs eða annarra aðstæðna
njóti ekki síður en aðrir mannsæmandi lífskjara."
Desember 1998.
Oryrkjabandalag íslands
Bræðra-
leikur í
Múlanum
BRÆÐURNIR og píanistarnir
Jón og Carl Möller leika í Múlan-
um, Sóloni Islandusi, annað kvöld,
sunnudag, kl. 21.30. Með þeim
leika þeir Birgir Bragason á bassa
og slagverksleikarinn Guðmundur
Steingrímsson.
Þeir bræður, Jón og Carl, hafa
leikið um árabil með þekktum
hljómsveitum og tónlistarmönnum
landsins og hafa víða komið við á
tónlistarferli sínum, segir í frétta-
tilkynningu.
Carl Möller er starfandi hljóð-
færaleikari og tónlistarkennari og
hafa verk eftir hann verið flutt
bæði í útvarpi og sjónvarpi ásamt
því að frumflutt hafa verið verk
eftir hann á undangengnum djass-
hátíðum.
Jón Möller er einnig starfandi
hljóðfæraleikari. Jón hefur að
mestu leikið sem „dinnerpíanisti“
síðari misserin.
--------------
Skólatönleikar
Tónskóla
Sigursveins
ÞRENNIR vortónleikar á vegum
Tónskóla Sigursveins verða um
helgina. Tónleikar Suzukideildar
verða í Grensáskirkju í dag kl. 11.
Þar munu um 70 börn leika verk
eftir ýmsa höfunda á fiðlu, selló og
píanó, ýmist saman í litlum hópum
eða einsömul.
A morgun, sunnudag, verða tón-
leikar Breiðholtsdeildar Tónskól-
ans í sal skólans í Hraunbergi 2 kl.
14. Sama dag verða tónleikar al-
mennrar deildar skólans í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar kl. 17.
Á efnisskrá eru, auk einleiksverka,
mörg samleiksverk, þar á meðal
gítarkonsert eftir Vivaldi.
-----♦-♦-♦----
Nýjar bækur
• LÖGMÁLIN sjö um velgengn-
ina eftir Deepak Chopra í þýðingu
Gunnars Dal hefur verið endurút-
gefín. I bókinni fléttar Chopra
saman eðlisfræði og heimspeki,
hinu andlega og gagnlega og aust-
urlenskri speki og vestrænni vís-
indahyggju.
Utgefandi er Bókaútgáfan Vöxt-
ur. Verð: 2.250 kr.