Morgunblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Davíð Qddsson forsætisráðherra á stjórnmálafundi á Akureyri
Nýjar stofnanir þurfa ekki
sjálfkrafa að vera í Reykjavík
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins
sagði að stjómmálamenn yrðu að
vera vakandi fyrir því að setja nýjar
stofnanir á vegum ríkisins niður á
landsbyggðinni, það væri farsælla en
að slíta grónar stofnanir upp með
rótum og flytja út á land. Nýjum
stofnunum þyrfti ekki sjálfkrafa að
koma alltaf fyrii- í Reykjavík. Petta
kom fram í svari Davíðs við íyrir-
spurn á opnum stjórnmálafundi á
Akureyri en þar var hann spurður
um áform um flutning ríkisstofnana
út á landsbyggðina.
Davíð hélt framsögu á fundinum,
en auk hans sátu fyrir svöram þrír
efstu menn á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra, Tómas Ingi Olrich
alþingismaður og Soffía Gísladóttir
sem skipar þriðja sæti listans. Allt
að 250 manns sóttu fundinn, sem
halclinn var í Nýja bíói.
Á fundinum komu meðal annars
fram fyrirspumir um byggðamál,
fjármál flokkanna, ferðaþjónustu,
samgöngumál og menningarhús. Da-
víð sagði í svari við fyrirspum um
byggðamál og fækkun opinberra
starfa á landsbyggðinni að fólk hefði
verið að flytja til höfuðborgarsvæðis-
ins alla þessa öld, fækkaði fólki á
landsbyggðinni þá fækkaði þar að
sama skapi opinberum störfum og
tók hann kennara og starfsfólk heil-
brigðisstofnana sem dæmi um það.
Hann sagði dýrt fyrir þjóðfélagið að
fólk flykktist á eitt svæði, en vilji
væri til þess að skapa þannig skilyrði
að fólk sæi sig ekki knúið til að flytj-
ast búferlum af landsbyggð á höfuð-
borgarsvæðið. Batt hann vonir við að
ráðstafanir fyndust sem dygðu til að
veita viðspymu, vandað hefði verið
til undirbúnings, m.a. með ítariegri
könnun Félagsvísindastofnunar á
aðstæðum og vilja íbúa landsbyggð-
arinnar.
Atvinnulífíð eigi Háskólann
á Akureyri
Tómas Ingi Olrich gagnrýndi
skýrslu þar sem fram kemur að op-
inberum störfum hafi fækkað á
landsbyggðinni og kvaðst hafa skoð-
að Norðurlandskjördæmi eystra sér-
staklega. Meðal þess sem komið
hefði í ljós væri að við breytingar á
þjónustu við fatlaða þegar Akureyr-
arbær tók sem reynslusveitarfélag
við af ríkinu virtist af skýi-slunni sem
störfum hefði fækkað, en þau hefðu
aðeins flust til. Þá hefðu tíu störf
flust frá Akureyri til Húsavíkur þeg-
ar þar var stofnað sambýli fyrir fatl-
aða og þau væra í
skýrslunni talin
glötuð í kjördæm-
inu.
Tómas Ingi
gerði Háskólann
á Akureyri einnig
að umtalsefni og
starfsemi hans
yrði best styrkt
með enn frekara
samstarfi. við at-
vinnulífið. Vildi
hann skoða annað eignarform á skól-
anum og taldi ekki fráleitt að stofn-
unin yrði í eigu atvinnulífsins, en
víða í Bandaríkjunum þar sem há-
skólar væra öflugir tækju einkafyi'-
irtæki þátt í rekstri þeirra. Stofnun
hugbúnaðardeildar við skólann
myndi einnig styrkja háskólann og
landsbyggðina í heild.
Halldór Blöndal sagði ekki vafa á
að fjölmörg störf myndu skapast á
landsbyggðinni, m.a. á sviði upplýs-
ingatækni. Framhald yrði á þeirri
þróun að störfum myndi fjölga á
Akureyri í ýengslum við flutning
Landssíma Islands á svarþjónust-
unni 118. Þá taldi hann að störf í
ferðaþjónustu yrðu fleiri í kjölfar
þess að fleiri ferðamönnum yrði
beint út á landsbyggðina.
Stutt en snörp kosningabarátta
fellur að skapferli Islendinga
I ræðu sinni kom Davíð víða við,
hann ræddi meðal annars um kosn-
ingabaráttuna
sem hann sagði
að mörgu leyti
ólíka því sem áð-
ur hefði tíðkast.
Hún væri t.d.
styttri nú en áður
og það þótti hon-
um gott, það ætti
vel við skapferli
íslendinga að
vinna í skorpum.
Þá nefndi hann
að neikvæður nöldurtónn sem ein-
kenndi baráttu andstæðinga Sjálf-
stæðisflokksins virtist ekki eiga upp
á pallborðið hjá landsmönnum.
Bjartsýni og kraftur sem skilaði
mönnum fram á veg virtist falla fólki
betur í geð.
Þá ræddi hann um kosningamál
og nefndi nokkur sem verið hefðu í
umræðunni, málefni aldraðra og ör-
yrkja, sjávarútvegsmál og kvóta og
einkavæðingu. Hvað aldraða og ör-
yrkja varðaði sagði hann fólk geta
skoðað orð og efndir. Kjör þessa
fólks hefðu batnað á kjörtímabilinu,
þótt enginn héldi því fram að það
lifði í vellystingum. Aftur á móti
hefðu kjörin hranið þegar þeir flokk-
ar sem nú væra í stjórnarandstöðu
stóðu við stjórnvölinn og höfðu tök á
að lagfæra kjörin. Að einhverju leyti
yrði kosið um kvótamál, ekki væri al-
gjör sátt um kerfið meðal lands-
manna, en sjálfstæðismenn tækju
öllum hugmyndum um lagfæringar
opnum önnum. Hugmyndh- Sam-
fylkingar um að henda kvótakerfinu
og taka upp eitthvað nýtt árið 2002
sköpuðu meiri hættu en svonefndur
2000-vandi. Afar mikilvægt væri að
ná Iangtímasátt um fiskveiðistjóm-
unarkei'fíð.
110 þúsund nýir vinir!
„Sumir segja að kosið verði um
einkavæðingu," sagði Davíð. „Segja
að við séum að gefa vinum okkar rík-
isfyrirtæki.“ Kvaðst hann í því sam-
bandi stoltur af því að hafa eignast
110 þúsund nýja vini, þ.e. kaupendur
hlutabréfa í Búnaðarbanka, Lands-
banka og Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins. Samfylkingin hefði hins
vegar tapað 20 þúsund vinum frá því
kosningabaráttan hófst.
Ræddi forsætisráðherra um góðan
árangur ríkisstjómarinnar og bætt
lífskjör og sagði allt útlit fyrir að
næstu ái' yrðu góð héldu menn rétt á
spilum. Kjósendur stæðu nú frammi
fyrir þvi alvöramáli að kjósa sér
stjóm fyrir næsta kjörtímabil og bað
hann menn hafa í huga í því sam-
bandi að andstæðingar flokksins
myndu hækka skatta á landsmenn.
Hann hafði skýringu á því af
hverju Samfylkingunni gengi illa í
kosningabaráttunni: „Samfylking-
unni fer ekki að ganga vel fyrr en fer
að ganga illa í landinu," sagði Davíð.
„Látum ekki kjörseðilinn koma sem
rakettu í formi skattahækkana upp
úr kjörkassanum á eftir okkur.“
Morgunblaðið/Kristján
HUSFYLLIR var á fundi með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í Nýja bíói á Akureyri á fímmtudagskvöld.
Langyngsti fundargesturinn var Margrét Hörn Jóhannsdóttir, fimm vikna gömul. Ekki var hún ein á ferð,
heldur fylgdi foreldrum sfnum, Kristínu Ólafsdóttur og Jóhanni Gunnari Arnarssyni, á fundinn.
Davíð Oddsson forsætisráðherra á stj órnmálaíundi á Akureyri
Sjómannaafsláttur ekki
afnuminn á kjörtímabilinu
Fjármálaráðherra segir eðlilegt að útgerð
taki á sig kostnaðinn þegar fram í sækir
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
mun ekki standa að afnámi sjó-
mannaafsláttarins á næsta kjörtíma-
bili. Þetta kom fram í svari Davíðs
Oddssonar forstætisráðherra og for-
manns Sjálfstæðisflokksins á opnum
stjórnmálafundi í Nýja bíói á Ákur-
eyri í fyrrakvöld er hann var spurður
um framtíð sjómannaafsláttarins.
„Ég hygg að það sé ekki gott fyrir
sjómenn að hafa þessi mál í óvissu og
ég segi að sjómannaafslátturinn
verði ekki afnuminn á því kjörtíma-
bili sem í hönd fer og ég tel að hann
verði ekki afnuminn nema tryggt sé í
framtíðinni að sjómenn standi jafn-
vel eftir sem áður,“ sagði Davíð.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
og varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sagði á landsfundi flokksins í
mars sl. að sjómannaafslátturinn
væri barn síns tíma. Slíkur afsláttur
myndi ekki verða settur á við núver-
andi aðstæður en hefði verið rétt-
lættur áður á forsendum þess tíma.
Um væri að ræða niðurgreiðslu á
launakostnaði útgerðarinnar og
þessum kostnaði ætti að koma af rík-
inu á launagreiðandann.
„Ég tel að þegar litið er til sög-
unnar sé sjómannaafslátturinn nið-
urgreiðsla á útgerðarkostnaði í land-
inu, þ.e.a.s. niðurgreiðsla á launa-
kostnaði útgerðarinnar. Mín skoðun
er sú að við eigum að reyna að koma
þeim kostnaði af ríkinu yfir á launa-
greiðandann, þ.e. útgerðina. Þetta
Verður ekki gert í einu vetfangi mið-
að við hvernig mál hafa þróast á
löngum tíma í þessu sambandi,"
sagði Geir á landsfundinum
Landsfundur ályktaði um yfír-
töku útgerðar á afslættinum
í ályktun síðasta landsfundar
Sjálfstæðisflokksins er vikið að sjó-
mannaafslættinum í umfjöllun um
skattamál. Þar segir að lækka þurfi
tekjuskattshlutfallið. „Jafnframt
verði samið um sérstaka fjármögn-
un eða yfirtöku útgerðar á sjó-
mannaafslætti við heildarendur-
skoðun á skattlagningu atvinnu-
greinarinnar," sagði í ályktuninni
sem samþykkt var á landsfundin-
um.
Geir H. Haarde sagðist í samtali
við Morgunblaðið í gær aldrei hafa
haldið því fram að ráðast ætti í þessa
breytingu á sjómannaafslættinum í
einu vetfangi „Eg tel hins vegar að
það sé eðlilegt þegar fram í sækh' að
útgerðin taki þetta á sig,“ sagði
hann.
Samfylkingin
á Vesturlandi
Margrét mæt-
ir á sumar-
skemmtun
• MARGRÉT Frímannsdóttir, tals-
maður Samfylkingarinnar, heldur
hvatningarávarp á sumarskemmt-
un Samfylkingarinnar á Vestur-
landi sem haldin verður á Hótel
Akranesi laugardaginn 1. maí kk
22.
Jóhannes Kristjánsson skemmt-
ir, frambjóðendur sýna á sér
óvæntu hliðina og heimamenn
sýna iistir sínar. Að því ioknu leika
Geirfuglarnir fyrir dansi fram á
nótt. Aðgangseyrir er 1.500 krón-
ur.
Sjálfstæðiskonur
Hádegisfundur
með Soffíu
• SOFFÍA Gísladóttir, félagsmála-
stjóri á Húsavík, verður gestur á
hádegisverðarfundi sem Sjálfstæð-
iskonur í Norðurlandskjördæmi
eystra efna til í dag, laugardaginn
1. maí, kl. 12, á veitingahúsinu
Græna hattinum. Soffía skipar 3.
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
kjördæminu fyrir komandi alþingis-
kosningar.
1. maí kaffi í
Kópavogi
• SAMFYLKINGIN í Kópavogi held-
ur 1. maí kaffi! Þinghóli, Hamra-
borg 11, kl. 15. Ræðumenn verða
Margrét Frimannsdóttir og Rann-
veig Guðmundsdóttir.
Framsóknar-
súpa á Hótel
ísafirði
• FRAMSÓKNARMENN bjóða upp
á framsóknarsúpu á Hótel ísafirði
kl. 11 í dag, laugardag.
Hótel Borg á mánudag
Fundur um
menningarmál
• BANDALAG íslenskra lista-
manna boðar til opins fundar um
menningarmál á Hótel Borg mánu-
daginn 3. maí kl. 17 til 19.
Gestir fundarins verða: Björn
Bjarnason, Sjálfstæðisflokki, Val-
gerður Sverrisdóttir, Framsóknar-
flokki, Guðrún Ögmundsdóttir,
Samfylkingu, Kolbrún Halldórsdótt-
ir, Vinstrihreyfingunni - grænu
framboði, Birgitta Jónsdóttir,
Húmanistaflokknum og Margrét
Sverrisdóttir, Frjálslynda flokkn-
um.
Samfylkingin
á Reykjanesi
Opinn fundur í
Stapa
• SAMFYLKINGIN á Reykjanesi
stendur fyrir opnum fundi f Stapa,
mánudaginn 3. maí kl. 20.30.
Ræðumaður kvöldsins verður Mar-
grét Frímannsdóttir, en ávörp
flytja Rannveig Guðmundsdóttir,
Sigríður Jóhannesdóttir og Jón
Gunnarsson. Þá sitja frambjóðend-
ur Samfylkingarinnar fyrir svörum.
Fundarstjóri verður Þórunn Svein-
bjarnardóttir.