Morgunblaðið - 01.05.1999, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 01.05.1999, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 37 ERLENT Bandamenn Milosevic hætta friðarviðræðum í Svartfjallalandi Getur aukið hættu á b o rgarasty rj ö 1 d Reuters FYRSTA fórnarlambið úr röðum óbreyttra borgara í árásum NATO á Svartfjallaland var borið til grafar í gær. Ættingjar Paska Juncaj, sem beið bana í árás nálægt höfuðborg iandsins á miðvikudag, gráta hér við kistu hennar. Podgorica. Reuters. HÆTTAN á borgarastyijöld í Svartfjallalandi jókst í gær þegar einn af helstu flokkum landsins, sem styður stjórnvöld í Belgrad, sleit viðræðum við stjórnarflokk- ana sem ætlað var að tryggja frið í landinu. Sósíalíski þjóðarflokkurinn (SNP), flokkur Momirs Bulatovic, forsætisráðherra Júgóslavíu, kvaðst í gær hafa slitið viðræðun- um við stjóm Milos Djukanovic, forseta Svartfjallalands, sem er í júgóslavneska sambandsríkinu með Serbíu. Þessar tvær helstu fylkingar á þingi Svartfjallalands samþykktu þegar árásir NATO á Júgóslavíu hófust að halda daglega fundi til að afstýra því að borgarastyrjöld skylli á milli stuðningsmanna og andstæðinga Slobodans Milosevic Júgóslavíuforseta. Fulltrúar SNP gengu út af fund- inum í gær eftir að NATO herti árásir sínar á skotmörk í Svart- fjallalandi til muna. Þeir sökuðu stjómina um að hafa snúið baki við Júgóslavíu. „Við getum ekki lengur tekið þátt í slíkum viðræðum með þessum hætti,“ hafði óháða dag- blaðið Vijesti eftir Predrag Bulatovic, varaformanni Sósíalíska þjóðai-flokksins. Svartfellingar era klofnir í af- stöðunni til Milosevic. Stjórn landsins hefur hunsað herlög, sem stjórnvöld í Belgrad hafa sett í Jú- góslavíu og hvatt unga menn til að sniðganga herkvaðningu júgóslav- neskra yfirvalda. Stjómin hefur einnig reynt að halda júgóslav- nesku hersveitunum í Svartfjalla- landi í skefjum og leyft um 65.000 Albönum, sem Serbar hafa hrakið frá Kosovo, að dvelja í landinu. Afstaða stjórnarinnar í Svart- fjallalandi hefur reitt Milosevic til reiði og stuðningsmenn hans í landinu Mta á Djukanovic forseta sem svikara. Óttast að Milosevic reyni að magna ólguna Leiðtogi Sósíah'ska þjóðarflokks- ins beið nauman ósigur fyrir Djukanovic í forsetakosningunum árið 1997. Flokkurinn hefur lýst forsetanum sem „raddalegum eig- inhagsmunasegg" vegna tilrauna hans til að komast hjá árásum NATO meðan Serbía „brennur“. Stjórnin hefur hins vegar sakað herinn um að undirbúa valdarán. Branko Perovic, utanríkisráðherra Svartfjallalands, kvaðst óttast að Milosevic myndi reyna að magna ólguna í landinu þar til borgara- styrjöld skylli á. Sósíalíski þjóðarflokkurinn sak- aði stjórnarflokkana um að hafa brotið friðarsamkomulag þingsins. „Þeir hafa lagt stein í götu Jú- góslavíuhers og hegða sér eins og Svai-tfjallaland sé sjálfstætt ríki,“ sagði Predrag Bulatovic. Hann bætti við að stjórnarandstöðuflokk- urinn myndi virða anda friðarsam- komulagsins og að þingið þyrfti að „finna aðrar leiðir" til að tryggja frið í landinu. NATO takmarkaði árásir sínar á Svartfjallaland í fyrstu af ótta við að hemaðurinn gæti orðið stjórn- inni að falli. Arásirnar hafa þó ver- ið hertar á síðustu dögum og flug- vélar bandalagsins hafa gert árásir á flugvöll nálægt Podgorica, höfúð- borg Svartfjallands, og eyðilagt júgóslavneskar herflugvélar og ol- íubirgðastöðvar. Stjórn Svartfjallalands óskaði eftir því að landið yi'ði undanþeg- ið alþjóðlegu olíusölubanni á Jú- góslavíu, sem átti að taka gildi í gær, og buðust til þess að leyfa erlendum eftirlitsmönnum að kanna hvort Svartfellingar stæðu við loforð sín um að hindra að Serbar og her Júgóslavíu fengju olíu. „Olíusölubann myndi marka endalok Svartfjallalands," sagði Vojin Djukanovoc, efnahagsmála- ráðherra landsins. „Frekari vanda- mál gætu leitt til borgarastyrjald- ar.“ Beiðni stjórnarinnar setur NATO í mikinn vanda. Bandalagið viil ekki skaða efnahag Svartfjalla- lands en hyggst hins vegar tryggja að engin olía berist til Serbíu eða júgóslavneska hersins. Helsta vandamálið er að eina mikilvæga höfn Júgóslavíu, Bar, er í Svart- fjallalandi. Olíuhreinsunarstöðvar Serbíu hafa verið eyðilagðar í árásum NATO, siglingar um Dóná hafa stöðvast vegna sprengjuárása á brýr og flest nágrannaríkin hafa fallist á að skrúfa fyrir olíuleiðslur til Serbíu. Fjöldaslátrun á ung- hænum í Astralíu Sydney. Reuters. UM einni milljón kjúklinga hef- ur verið slátrað vegna út- breiðslu svokallaðrar Newcastle-veiki sem sögð er berast hratt milli dýra. Stjórn- völd í Ástralíu segja sömu örlög bíða álíka fjölda unghæna til viðbótar í New South Wales. Sýkingin kemur upp í öndun- arfærum fuglanna og frá því í byrjun mánaðarins hefur hún borist hratt á milli fuglanna sem allir drepast af völdum hennar. Sýking þessi berst almennt ekki í menn, að sögn sérfræð- inga. Talið er að hún tengist heldur ekki vírusum annars staðar eins og í Malasíu, en þar hefur víras í svínum orðið um hundrað manns að bana auk þess sem nær einni milljón svína hefor verið slátrað. Tveimur millj. slátrað Nú þegar hefur sýkingarinn- ar orðið vart á 10 býlum, en slátra þarf fuglum á a.m.k. 20 býlum til viðbótar til að stemma stigu við útbreiðslu sýkingar- innar. Gert er ráð fyrir að alls verði að fella tvær milljónir fugla og að verkinu ljúki í næstu viku. Utsala - PELSINN - Utsala Verðdæmi: Minkapels Þvottabjarnarpels Fenjabjórpels Pelsfóðurskápur verð áður kr. 695 verð áður kr. 385 verð áður kr. 225 verð áður kr. 95 dús. verð nú kr. 399 dús. verð nú kr. 199 3Ús. verðnúkr. 157 dús. verð nú kr. 59 )US. JÚS. )ÚS. )ús. 50% afsláttur af öllum fatnaði Opið í dag, laugardag, frá kl. 10.00-17.00 V/SA "E") Raðgreiðslur í36 mánuði Ath. opið sunnudag frá kl. 14.00-17.00 PEISINN Kirkjuhvoli, Kirkjutorgi 4, sími 552 0160.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.