Morgunblaðið - 01.06.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.06.1999, Qupperneq 1
120. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ahtisaari heldur til fundar við Milosevic í Belgrad Vilja kanna nánar sáttatilboð Júgóslava Brussel, Washington, Moskvu. Reuters. AP. MARTTI Ahtisaari, forseti Finn- lands, heldur á morgun til Belgrad, ásamt samningamanni Rússa í Kosovodeilunni, Viktor Tsjernó- myrdín, og munu þeir eiga fund með Slobodan Milosevoc Júgóslavíufor- seta. Tilgangur fundarins er að komast að því hvað sé raunverulega fólgið í því tilboði júgóslavneskra stjórnvalda að verða við tillögum G- 8-ríkjanna um frið í Kosovo. Ahtisa- ari er sáttafulltrúi Evrópusam- bandsins (ESB). Utanríkisráðherra Bretlands, Robin Cook, greindi frá þessu í Brussel í gær, þar sem utanríkisráð- herrar ESB-ríkjanna sátu á fundi. Skilyrði G-8-hópsins fyrir friðar- samkomulagi við Júgóslava eru mildari en markmið hemaðarað- gerða Atlantshafsbandalagsins. Munar þar mest um tillögur um samsetningu þess erlenda herliðs sem tæki við stjórninni í Kosovo og gætti þess að flóttafólk frá héraðinu fengi óáreitt að snúa aftur til síns heima. I G-8-hópnum eru sjö helstu iðnríki heims og Rússar, og kveða tillögur þeirra ennfremur á um að júgóslavneskur her verði á brott frá Kosovo og komið verði á fót bráða- birgðastjórn þar. „Við höfum séð þetta áður“ Cook var spurður hvort hann teldi rétt að sendifulltrúi ESB ætti orða- stað við Milosevic, sem nýverið hefði verið ákærður fyrir stríðsglæpi. Sagði Cook ákæruna undirstrika hversu mikilvægt væri að hersveitir NATO yrðu til taks þótt friðarsamn- ingar tækjust. „Ég treysti ekki Milosevic. Ég treysti 50 þúsund NATO-hermönnum,“ sagði Cook. Hann sagði viljayfirlýsingu Jú- góslava skref í rétta átt, en Milos- evie yrði að sýna í verki að honum væri alvara. Ef Júgóslavíuforseti vildi binda enda á átökin yrði það að vera „á forsendum NATO“. f gær brást Bandaríkjastjórn með varúð við yfirlýsingum Jú- góslava. „Við höfum séð þetta áður,“ sagði Michael Hammer, talsmaður bandaríska þjóðaröryggisráðsins, um viðbrögð Júgóslava. Kvaðst hann telja fullsnemmt að lýsa því yf- ir að mikill árangur hefði náðst. Tsjernómyrdín sagði í gær að Rússar væru að missa þolinmæðina vegna pattstöðunnar í viðræðum um frið í Kosovo, og sagði þá ekki geta haldið áfram þátttöku í þeim ef eng- inn árangur sæist. Hann sagði Rússa þó ekki vera í þann veginn að draga sig út úr viðræðunum. Hann mun í dag eiga fund með Ahtisaari og Strobe Talbott, aðstoðarutanrík- isráðheiTa Bandaríkjanna, í Bonn. Júgóslavneskir fjölmiðlar sögðu að 10 hefðu látist er flugvélar NATO hafi gert árás á borgina Novi Pazar í gærkvöldi. Þetta hafði ekki fengist staðfest. Þá hefðu árásir á raforku- ver valdið rafmagnsleysi í höfuð- borginni Belgrad og víðar. ■ Stór hluti Serbíu/31 Mandela flytur kveðjuræðu á fundi ANC Segir of snemmt að fagna frelsi Jdhanncsarborg. The Daily Telegraph. Kosningabaráttunni í Suður-Afríku lauk í gærkvöldi og kvöldið áður flutti Nelson Mandela forseti tilfinn- ingaþrungna kveðju- ræðu á kosningafundi Afríska þjóðarráðsins (ANC). Mandela skor- aði á alla félaga í ANC að styðja Thabo Mbeki varaforseta, sem á að taka við forsetaembætt- inu eftir kosningamar á morgun, en varaði við því að Mbeki þyrfti að takast á við mjög erfið úrlausnarefni. Mandela flutti ræð- una á knattspyrnuleikvangi í Soweto og sagði stuðningsmönnum sínum að of snemmt væri að fagna frelsi suður-afrískra blökkumanna því enn væru mörg vandamál óleyst. „Marg- ir hafa þjáðst til að við getum öðlast frelsi, en mörg ykkar farið heim og vaknið á morgun án atvinnu... Þrátt fyrir mikinn ávinning eru enn of mörg okkar heimflis- laus, fátæk og ólæs. Baráttunni lauk ekki fyrir fimm árum [í fyrstu kosningunum eftir afnám kynþátta- aðskilnaðarins]. Það að kveða niður 350 ára kúgun tekur lengri tíma en fimm ár.“ Mandela lætur formlega af forseta- embættinu eftir kosn- ingarnar og hyggst þá hætta afskiptum af stjórnmálum. Flestar skoðana- kannanir benda tfl þess að Afríska þjóðarráðið fái tvo þriðju þingsæt- anna, sem myndi gera því kleift að breyta stjórnarskránni án stuðnings annarra flokka. Enginn hinna flokk- anna er með meira en 10% fylgi ef marka má kannanimar, en um 15% höfðu ekki gert upp hug sinn. Mandela heilsar stuðn- ingsmönnum í gær. Rússland Kristenko kemur í stað Za- dornovs Moskvu. AFP. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, reyndi í gær að binda enda á heift- arlega valdabaráttu, sem geisað hefur í Kreml undanfarið, er hann útnefndi umbótasinnann Viktor Kristenko fyrsta aðstoðarforsætis- ráðherra í stað Míkhaíls Zadom- ovs, sem sagði af sér á föstudag. Ný ríkisstjórn Sergejs Stepas- híns, sem er fjórða stjórnin í Rúss- landi á fjórtán mánuðum, er af mörgum talin lítt líkleg til að end- ast lengi. Kristenko er fyrryerandi aðstoðarfjármálaráðhema. I apríl í fyrra var hann gerður að aðstoðar- forsætisráðherra, en gegndi því embætti einungis í fimm mánuði, eða þar til Jeltsín leysti upp þáver- andi ríkisstjórn Sergeis Kíríjenkós. Nikolaíj Aksyonenko, fyrrverandi jámbrautamálaráðherra, mun einnig gegna embætti aðstoðarforsætisráð- herra, og að sögn Itar-Tass- frétt- astofunnar mun hann verða æðsti yf- irmaður efnahagsmála. Snýr sér að lánardrottnum Zadomov fær nú það hlutverk að sjá um samskipti Rússa við alþjóð- legar lánastofnanir, þar á meðal Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF). Hann sagði af sér sem aðstoðarfor- sætisráðherra eftir harkalegar defl- ur um yfirráð í fjármálaráðuneyt- inu. Míkhaíl Kasíjanov, fyrrverandi aðstoðarfjármálaráðherra, er nú orðinn hæstráðandi í því ráðuneyti. ■ Mikil valdabarátta/30 Reuters ÖCALAN hlustar á ákæruatriði í landráðamálinu á hendur honum við upphaf réttarhaldanna í gær. • • Ocalan biðst væeðar Imrali. AFP. -* í GÆR hófust réttarhöld í máli tyrkneska ríkisins gegn Abdullah Ocalan, skæmliðaforingja kúrd- ískra aðskilnaðarsinna (PKK), sem ákærður hefur verið fyrir landráð og fyrir að stuðla að dauða 29.000 manns frá því að vopnuð barátta PKK gegn tyrkneska hemum í suð- austurhluta Tyrklands hófst 1984. Á hann yfir höfði sér dauðadóm ef dómarar hins sérskipaða herréttar beita lagabókstafnum til fúlls. í varnarræðu sinni lýsti Öcalan yfir ábyrgð sinni á öllum þeim atrið- um sem ákært er fyrir. Hann bað félaga sína í PKK að leggja niður vopn. Býðst til að stuðla að afvopnun skæruliða PKK Hann sagðist jafnframt enn hafa óskorað vald innan PKK og ef stjómvöld gæfu sér tíma og ráðrúm myndi hann stuðla að afvopnun skæruliða innan þriggja mánaða. Fór hann fram á að sér og félögum sínum í PKK yrði veitt sakampp- gjöf. „Ég hef loks komist að því að ég get - jafnvel þótt það sé of seint - þjónað Tjrklandi. í landinu em tján- ingarfrelsið og lýðréttindin tryggð, hví þá að krefjast einhvers sem þeg- ar er til staðar?“ sagði Öcalan. Réttarhöldin og aðdragandi þeirra hafa verið gagnrýnd víða. Þau fara fram á hinni rammgerðu Imrali-fangelsiseyju í Marmarahafi. Tyrknesk stjómvöld hafa boðið fulltrúum nokkuri-a ríkja, Islands sem forysturíkis Evrópuráðsins þeirra á meðal, að vera viðstaddir réttarhöldin. Að sögn skrifstofu- stjóra alþjóðadeildar utanríkisráðu- neytisins er enn verið að vinna að frágangi þeirra mála og er niður- stöðu vænst hið fyrsta. ■ Öcalan heitir Tyrkjum/30 y Ihalds- menn úr teinóttu fötunum London. Morgunblaðið. fMYNDARFRÆÐIN GUR fhalds- flokksins, Amanda Platell, hefur nú gefið talsmönnum flokksins dagskipun um að leggja tví- hnepptu, teinóttu jakkafotunum og fara í önnur; léttari í lit og sniði. Amanda Plateil hóf störf hjá fhaldsflokknum fyrir sveitar- stjórnarkosningarnar í sfðasta mánuði og hófst þegar handa við að breyta ímynd formannsins, William Hague. Hann fór allt í einu að birtast á götum úti, frjálslegur til fara og jafnvel bindislaus. Og nú er röðin komin að öðrum forystumönnum flokks- ins. Teinóttu jakkafötin, þessi dökku með hvítu röndunum, eru talin undirstrika valdsmannsbrag þess sem þeim klæðist og Am- anda Platell segir að það sé ekki sú hlið sem eigi að snúa að kjós- endum. Þeir fælist bara slík föt. Ekki eru allir þingmenn flokks- ins ánægðir með þessa dagskipun og sumir hafa gefið yfirlýsingar um að þeir muni hafa hana að engu. Það eru einkum þeir eldri í þingmannahópnum, sem hafa tek- ið tilmælin óstinnt upp. Af þessu tilefni hafa memi riíj- að upp sögur af því, að Margaret Thatcher hafi í forsætisráðherra- tíð sinni skipað fjármálaráðherr- anum Nigel Lawson að láta skera hár sitt og einnig hafi brúnu skómir, sem Kenneth Clarke gekk jaftian á, farið mjög í taug- amar á henni!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.