Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
HLÍF Arndal veitir viðtöku viðurkenningu frá formanni Sjálfsbjargar
í Árnessýslu Svani Ingvarssyni fyrir gott aðgengi fyrir alla.
Flóttamennirnir komnir
til Reyðarfjarðar
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
SLEGIÐ var upp grillveislu vegna komu flótta-
mannanna til Reyðaríjarðar.
Reyðarfirði - Fimmtudaginn 27.
maí sl. komu 24 flóttamenn frá
Kosovo til dvalar á Reyðarfirði.
Tekið var á móti þeim við Anda-
pollinn, þar sem mættir voru for-
seti bæjarstjórnar, félagsmálafull-
trúar og fulltrúar Rauða krossins
ásamt tæplega 300 íbúum Fjarðar-
byggðar. Þar var mikil grillveisla
og barnakór söng nokkur íslensk
lög. Að því loknu fóru fjölskyldurn-
ar í íbúðirnar sem búið var útbúa
fyrir þær með öllu því sem þarf til
heimilisrekstrar.
Deild Rauða krossins á Reyðar-
firði hafði veg og vanda af söfnun
húsmuna og annars sem til þurfti
með stuðningi deildanna á Eski-
firði og Neskaupstað. Hópurinn
samanstendur af fimm fjölskyld-
um, þar af 14 bömum. Fjögur fara
í leikskóla og sex í grunnskóla.
Grunnskólabömin hafa þegar hitt
skólasystkini sín í skóianum en
leikskólabömin fara í heimsókn á
mánudaginn.
Hver fjölskylda fær 2-3 íslensk-
ar stuðningsfjölskyldur sem eiga
að aðstoða þær við að aðlagast ís-
lensku samfélagi. Öll bjuggu þau í
borginni Pristina í Kosovo. Níu
manns unnu utan heimilis, þrír
heimilisfeðumir era skósmiðir og
ráku skóverslanir, einn er hag-
fræðingur, tveir yngri mennirnir
era iðnaðarmenn, konumar hafa
lítið unnið utan heimilis, ein þeirra
vann á lögfræðiskrifstofu áður en
stríðið skall á. Konumar eru mikl-
ar handverkskonur, prjóna og
hekla af mikilli kúnst.
Kennsla í íslensku hefst strax
eftir helgina hjá bömunum og fer
hún fram í Grunnskólanum. Lára
Jóna Þorsteinsdóttir leikskóla- og
sérkennari hefur verið ráðin til að
kenna þeim í sumar og mun hún
einnig fylgja þeim áfram í Grann-
skólanum næsta vetur.
Nú er verið að skipuleggja
kennslu 14 fullorðinna og mun hún
einnig byrja í næstu viku. Náms-
efni kemur frá Námsflokkum
Reykjavíkur og byrjar námskeið á
þeirra vegum fyrir leiðbeinendur
á Reyðarfirði 2. júní. Nú er verið
að útbúa fyrir þau aðstöðu til
kennslu og félagsstarfs á efri hæð
Kaupfélagshússins. Verkefnis-
stjóri er Guðný Björg Hauksdótt-
ir.
HARPA Garðarsdóttir, Erling Þórir Egilsson og Tryggvi Freyr Torfa-
son hlutu verðlaun í ljóðasamkeppni grunnskólabarna í Hveragerði.
Glæsilegt bókasafn
opnað í Hveragerði
Hveragerði - Bókasafn Hveragerðis
var opnað á dögunum í nýju og
glæsilegu húsnæði við Austurmörk.
Nýja húsnæðið leysir af hólmi
gamla bókasafnið sem rekið var í
mjög litlu rými áföstu við bæjar-
skrifstofur Hveragerðisbæjar. Á
nýja staðnum er öll aðstaða til fyrir-
myndar; þar eru nettengdar tölvur
til afnota fyrir bæjarbúa, einnig er
þar sérstök lesstofa auk þess sem
sjálft safnið er miklu rýmra en áður
og vinnuaðstaða öll eins og best
verður á kosið.
Við opnunina flutti Einar
Mathiesen bæjarstjóri ávarp og
sagði það sérstaklega ánægjulegt að
bóksafnið er fyrsta stofnun Hvera-
gerðisbæjar sem hefur fullkomið að-
gengi fyrir alla. Við opnunina færði
Svanur Ingvarsson, formaður Sjálfs-
STÓRSÝNING
Bfla- og búvélasýningar
Ingvars Helgasonar og
Bflheima um landió
Þriójudaginn 1. júní
Staðarskáli............. 9-11
Hvammstangi........... 13-15
Blönduós.............. 17-20
Midvikudaginn 2. júní
Varmahlíö............... 9-12
Sauðárkrókur........... 14-17
Ketilás (búvélasýning). 19-21
Siglufjörður (bílasýning).. 19-21
©K.'.oiiht. Bílheimar ehf.
SmL; Strvorhöfíia 2a ■ UmiS2S 9000
mmL^i*000 www.bilheimor.it
bjargar á Suðurlandi, forráðamönn-
um safnsins sérstakt viðurkenning-
arskjal fyrir gott aðgengi. Formaður
bókasafnsnefndar, Laufey S. Valdi-
marsdóttir, kynnti sögu safnsins og
aðdraganda að stofnun þess. Við
opnunina voru kynnt úrslit í ljóða-
samkeppni grunnskóla barna í
Hveragerði. Þar hlutu verðlaun þau
Harpa Garðarsdóttir, Erling Þórir
Egilsson og Tryggvi Freyr Torfa-
son. Starfsmenn hins nýja bókasafns
eru tveir þær Hlíf S. Arndal og Pá-
lína Snorradóttir.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
REYKLAUSIR ferðafélagar úr Menntaskólanum á Egilsstöðum á leið til
Benidorm í vel merktum bolum.
Krabba-
meinsfé-
lag styrkir
nemendur
Egilsstöðum - Útskriftarhópur
Menntaskólans á Egilsstöðum á
þessu vori er nánast reyklaus.
Alls útskrifuðust 37 nemendur
og einungis einn þeirra reykir.
Hluti nemendanna hefur verið
að afla fjár sem nota á í ferðasjóð
útskriftarnemanna en þau ætla
að fara til Benidorm. Krabba-
meinsfélag Fljótsdalshéraðs og
Borgarfjarðar eystri ákvað að
styrkja nemenduma til þessarar
farar og veitir þeim styrk sem
samsvarar þriggja vikna neyshi á
tóbaki miðað við að um 30% nem-
enda væm reykingafólk.
Það em fimmtán nemendur
sem fara út. Þau létu prenta á
boli þar sem þau vekja athygli á
því að þessi hópur er reyklaus.
Aftan á bolunum er skrifað á
nokkmm tungumálum að hópur-
inn er reyklaus.
Morgunblaðið/Hafdís Bogadóttir
NEMENDUR í 1. og 2. bekk Grunnskóla Djúpavogs munduðu veiðistangirnar á bryggjusporðinum við
Djúpavogshöfn með tilþrifum síðustu klukkustundir þessa skólaárs.
Djúpavogi - Nemendur í 1. og 2. bekk
Grunnskóla Djúpavogs munduðu
veiðistangimar á bryggjusporðinum
við Djúpavogshöfn með tilþrifum síð-
ustu klukkustundir þessa skólaárs, en
vordögum er nú að Ijúka við skólann.
Er þetta annar veturinn sem tekið er
vetrarfrí og skólinn lengdur fram á
vorið til að nemendur megi á hlýrri
árstíma efla skilning og þekkingu á
eigin umhverfi og náttúru.
Meðal þeirra verkefna sem nem-
endur hafa tekið sér fyrir hendur
eru fuglaskoðun, veiði, gróðursetn-
Yordögum
að ljúka
ing, dvöl í sveit, vinna við öflun ör-
nefna, aðallega tengdum Tyrkjarán-
inu, en þá var margt fólk tekið hönd-
um á Djúpavogi og í nágrenni.
Nemendur 8. og 9. bekkjar munu
síðan í júní dvelja í Slysavamarbúðum
í Hamraborg. Er ætlunin að nemend-
ur sem ljúka námi frá Grunnskóla
Djúpavogs útskrifist með skírteini
þaðan. Nemendur 10. bekkjar eru á
leið til Hollands þar sem endapunkt-
urinn í Comenius, samevrópsku fugla-
verkefni sem sex skólar víðsvegar að
úr Evrópu hafa staðið að, verður sett-
ur. Munu nemendumir frá Djúpavogi
hitta nemendur hinna skólanna sem
þeir hafa einungis kynnst í gegnum
bréfaskriftir og Netið og eru eflaust
ánægjulegir dagar framundan.
Skólastjóri Grunnskóla Djúpavogs
er Freyja Friðbjarnardóttir.