Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ * * Hannes Hlífar og Dagur Arngrímsson skákmenn ársins SKAK SKÁKMENN ÁRSINS 1998 29. maí 1999 HANNES Hlífar Stefánsson var valinn skákmaður ársins 1998. Val Hannesar kemur ekki óvart, enda var árangur hans einstakur á síðasta ári. Langur afrekalisti Hannesar var rakinn hér í skák- þættinum í tengslum við útnefn- ingu hans sem skákmaður Hellis 1998. Að þessu sinni verður því einungis minnst á örfá atriði af þeim lista. Hannes Hlífar varð einn í efsta sæti á Lost Boys-skákmótinu í Antwerpen í Belgíu í júlí með 7Vz vinning af 9. Mótið var gríðarlega sterkt og árangur Hannesar var einn sá besti sem íslenskur skák- maður hefur náð, mælt í skákstig- um, en frammistaðan svaraði til 2.744 stiga. I september mætti Hannes sterkustu skákmönnum Norðurlanda á svæðismóti Norð- urlanda, sem haldið var í Dan- mörku. Hannes sigraði á mótinu og tryggði sér þar með rétt til þátttöku í næstu heimsmeistara- keppni FIDE. í október til nóv- ember tefldi Hannes í landsliðs- flokki á Skákþingi Islands og sigr- aði. Þar með tryggði hann sér í fyrsta skipti titilinn Skákmeistari Islands. Dagur Arngrímsson var valinn efnilegasti skákmaður ársins 1998. Hann stendur vel undir þeim titli og er jafnframt einn af okkar virkustu skákmönnum. Árangur hans á síðasta ári var jafn og góður og hann var greini- lega í mikilli framfór. Hann náði öðru sæti í barnaflokki á Skák- þingi Islands. A Islandsmóti barnaskólasveita tefldi hann á fyrsta borði fyrir Melaskóla. Sveitin varð í fyrsta sæti og átti Dagur drjúgan þátt í þeim sigri með því að hljóta 8 vinninga af 9. Hann tók þátt í opnum flokki á Skákþingi Islands og varð í 5.-6. sæti. Dagur varð Islandsmeistari í yngri flokki á landsmótinu í skóla- skák, fékk 9'A vinning, vann 8 skákir og gerði 3 jafntefli. Sigur Dags kom nokkuð á óvart, sér- staklega þar sem hann var aðeins 11 ára og á því tvö ár eftir í yngri flokki. Norðurlandamót barna- skólasveita fór fram 28.-30. ágúst. Melaskóli tók þátt í mótinu fyrir Islands hönd og hafnaði í 2. sæti. Dagur Amgrímsson tefldi á fyrsta borði og fékk 3Vz vinning í 5 um- ferðum. Aftur kom Dagur á óvart á haustmóti TR þegar hann sigr- aði í C-riðli og fékk 8 vinninga af 11. Heimsmeistaramót barna og unglinga fór fram í Oropesa Del Mar á Spáni sl. haust. Dagur var fulltrúi Islands í sínum aldurs- flokki, fékk 5 vinninga af 11 og varð í 55.-66. sæti). A bikarmóti TR náði Dagur mjög góðum ár- angri og varð í þriðja sæti með 8V2 vinning. Jólamót grunnskóla í Reykjavík fór fram í desember og þar var Dagur mættur til leiks ásamt sterkri sveit Melaskóla. Sveitin sigraði í yngri flokki og fékk 22 vinninga af 24 möguleg- um. Aftur var Dagur lykilmaður í sigrinum og vann allar sínar skák- ir, sex að tölu, á fyrsta borði. Dag- ur batt svo endahnútinn á frábært skákár með því að sigra í flokki fæddra 1986-7 á jólapakkaskák- móti Hellis, en þátttakendur á mótinu voru um 200. Aðalfundur Skáksambandsins Aðalfundur Skáksambands Is- lands var haldinn laugardaginn 29. maí. Áskell Örn Kárason var kjörinn forseti Skáksambandsins, en stjómin er þannig skipuð að öðru leyti: Andri Hrólfsson Davíð Ólafsson Helgi Ólafsson Hannes Hlífar Dagur Stefánsson Arngrfmsson Hlíðar Þór Hreinsson Kristján Öm Elíasson Sigurbjörn Björnsson I varastjórn voru kjörnir: Arngrímur Gunnhallsson Hrafn Jökulsson Júlíus Friðjónsson Sævar Bjarnason I máli fráfarandi forseta, Ágústs Sindra Karlssonar, kom fram að fjárhagur Skáksambands- ins hefur batnað mjög mikið und- anfarin tvö ár. Skáksambandið hefur farið mjög sparlega með útnefningar á heiðursfélögum Skáksambands- ins og því er það mikill heiður að komast í hóp þeirra sem þá viður- kenningu hljóta. Á aðalfundinum var Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrverandi forseti Skáksam- bandsins, útnefndur heiðursfé- lagi. Guðmundur á þessa útnefn- ingu fyllilega skilið, þó ekki væri nema vegna þess stóra hlutverks sem hann gegndi í kringum heimsmeistaraeinvígi þeirra Fischers og Spasskys í Reykjavík 1972. Þeir Birgir Sigurðsson og Ein- ar H. Guðmundsson voru heiðrað- ir sérstaklega fyrir störf sín við tímaritið Skák og skákhreyfmg- una. Nýtt taflfélag, Grand-Rokk, gerðist aðili að Skáksambandinu á aðalfundinum. Opna Kaupmannahafnar- mótið 1999 Opna Kaupmannahafnarmótið er eitt vinsælasta erlenda skák- mótið meðal íslenskra skák- manna. Þetta á bæði við um okkar sterkustu meistara og eins yngri skákmennina, sem eru að taka þátt í sínum fyrstu alþjóðlegum mótum. Opna Kaupmannahafnarmótið, eða „Politiken Cup“ eins og það er einnig kallað, fer fram í 21. skipti í sumar. Mótið, sem er öllum opið, verður haldið 3.-14. júlí á Egmont Kollegiet í Kaupmannahöfn. Tefldar verða ellefu umferðir í einum opnum flokki. Föstudagur- inn 9. júlí er frídagur. Tímamörk- in eru 40 leikir á 2 klst., síðan 20 leikir á 1 klst. og að lokum 30 mín- útur til að ljúka skákinni. Skráning á mótið er þegar hafin og hafa 50 skákmenn skráð sig til leiks. Þar á meðal eru tveir ís- lenskir skákmenn, þeir Þröstur Þórhallsson og Róbert Harðarson. Þess má geta að í fyrra tóku hvorki fleiri né færri en 17 íslend- ingar þátt í keppninni. Þá sigraði Hannes Hlífar Stefánsson á mót- inu, en fjölmargir hinna yngri skákmanna náðu mjög góðum ár- angri. Nánari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu Taflfélags- ins Hellis: www.simnet.is/hellir. Skákmót á næstunni Tilkynningar um skákmót og aðra viðburði sendist til umsjónar- manna skákþáttar Morgunblaðs- ins. Tölvupóstfangið er dadi@vks.is. Einnig má senda annað efni og athugasemdir við skákþættina á sama póstfang. 4.6. Skákþing Hafnarfjarðar 7.6. Hellir. Atkvöld 9.6. Boðsmót TR 16.6. Guðmundar Arnlaugss.-mótið 25.6. Hellir. Jónsmessumót (kl. 22) Daði Orn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson í DAG VELVAKAMII Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Flug hugans OFT þegar við erum úti í náttúrunni, þá talar fegurð náttúrunnar til okkar á sinn sérstaka hátt. Við finnum fyrir kyrrðinni, þögninni. En svo erum við aftur fóst í viðjum vanans og förum að festa okkur og hugann í því sem við erum að gera í það og það sinnið. Svo erum við búin að vera lengi föst í vananum, þá þurfum við aftur að losna úr viðjum hans og hvar annars staðar en á okkar uppáhalds nátt- úruperlu okkar fagra lands? Og við látum hug- ann reika um slétturnar eða fjöllin. Þá leitar oftar en ekki á hugann að það hlýtur að vera eitthvað annað til en þetta vanalega sem við öll búum við dags daglega. Því í draumum okkar er til fagurt og betra líf held- ur en þetta daglega. En þá er komið að þessari nýju hugsun um drauma, því að ég hef kynnst vís- indum sem segja okkur að þegar okkur dreymi, þá sé það til annarrar plánetu þar sem allir okkar draumar rætast. En til að skilja hvað átt er við þeg- ar okkur dreymir, þá er- um við samskynja þeirri persónu sem er að lifa og framkvæma það sem okk- ur er að dreyma um í það og það skiptið. Þannig er það líka þegar við fáum hugmyndir til að bæta okkar hag og annarra í samfélagi, eins og það að við getumflogið í flugvél- um sem við fengum hug- boðið um hvernig smíða átti á sínum tíma. En að fá hugboð um það að ferðast með hugann til annarrar plánetu og skoða mannlíf- ið þar sem allt er miklu fullkomnara, sem er eins og að upplifa sinn uppá- haldsdraum í raunveru- leikanum með því að nota hugsunina eina saman, það er vísindalegt afrek út af fyrir sig. En á vísinda- máli kallast það lífgeislun hnatta á milli. Um leið og skilningur er kominn á þessu, þá mun þróunin verða mjög svo ör á öllum stigum mannkyns, að fljúga með flugvél er bara leikur, því að þegar við höfum kynnst flugi hugans, þá viljum við ekk- ert annað. Jón Trausti Halldórsson, áhugamaður um flug hugans. Gosi er ennþá týndur GOSI er átta ára ljósgul- bröndóttur köttur, yndisleg- ur og loðinn. Hann er eyma- merktur RIH245. Ef ein- hver veit eitthvað um ferðir hans vinsamlega hafið sam- band við okkur, hann gæti verið villtur. Við söknum hans afskaplega mikið og bíðum eftir að fá hann heim. Síminn okkar er 561 0652 og 897 4368. Gerða og Fjölnir. ÞESSIR duglegu strákar söfnuðu dósum og gáfu Rauða krossi íslands afraksturinn, kr. 3.550. Þeir heita Óðinn Örn Arnþórsson og Ingi Davíð Ragnarsson. COSPER -1 - n 1 M r^lpfli1" vjj' ■ COSPER £21 ÉG sagði að þú skyldir ekki halia þér út um gluggann, lestin væri að fara af stað. Ég hef áhuga á að heyra sjúkdómsgreiningu þína á sjúkdómnum sem ég fékk greiningu á í læknis- horninu 1' Húsfreyjunni. Sjávarútsýnið er óviðjafnanlegt. Víkverji skrifar... OFBELDI í alls kyns mynd er því miður fylgifiskur mann- skepnunnar. Það er stundum sagt að ekkert dýr jarðarinnar sé jafn- grimmt og mannskepnan. Að fólk skuli geta misþyrmt börnunum sínum og selt syni og dætur í ánauð og vændi er Víkverja ill- skiljanlegt. í Morgunblaðinu síð- astliðinn föstudag var greint frá því að filippeyskar konur séu seld- ar í vændi eða hjónaband fyrir 200 til 350 þúsund krónur hver. Fórn- arlömbin eru seld í vændishús í Suður-Asíu og Austur- og Mið- Evrópu og hjónabönd í arabaríkj- unum, Bandaríkjunum og Þýzka- landi. Mikil er lágkúra mann- skepnunnar. Mikið er fjallað um ofbeldi gegn bömum um þessar mundir og virð- ist full ástæða til. Fram hefur komið að börn hér á landi hafi látizt eftir misþyrmingar foreldra sinna og mörg böm bera þess merki, líkam- leg og andleg, alla sína ævi að þeim hafi verið misþyrmt af foreldmm sínum. Þeir, sem kynnt hafa þessar hryllilegu staðreyndir í fjölmiðlum að undanfömu, hafa lagt á það áherzlu að fólki sitji ekki aðgerðar- laust hjá, verði það á einhvem hátt þess áskynja að börnum sé mis- þyrmt. Víkverji tekur undir það. Við verðum að vera á verði gegn villimennsku af þessu tagi. XXX BANDARÍKJAFORSETI hefur hvatt til aðgerða gegn ofbeldi í þvísa landi og er ekki vanþörf á eins og nýleg dæmi um morð í skólum sanna. Leitað hefur verið orsaka vaxandi ofbeldis að undanförnu og beinast spjótin mjög að kvikmynd- um, einkum bandarískum, og tölvu- leikjum, sem byggjast á því að drepa til að halda lífi. Víkverji er sannfærður um að þama sé or- sakanna að einhverju leyti að leita. Sú mynd, sem birtist í mörgum þessara kvikmynda, er fjarri öllum raunveruleika og til þess eins fallin að brengla vemleikaskyn ungling- anna. Boðskapurinn er sá að sjálf- sagt sé að beita ofbeldi af versta tagi. Það sé jafnvel eina rétta leiðin að settu marki. Víkverji telur að þarna sé nauð- synlegt að grípa í taumana. Ofbeldi er smánarblettur á mannskepnunni. Gera verður allt sem unnt er til að má þann blett af. Ofbeldi í kvik- myndum og tölvuleikjum er ekki rétta leiðin til þess. XXX VÍKVERJA rak í rogastanz þeg- ar hann sá fyrir nokkmm dög- um auglýsingu um íslenzkan gos- drykk eða orkudrykk. Auglýsingin sýndi mikil slagsmál, að því er virtist um unga stúlku. Sá, sem sturtaði í sig umræddum orkudrykk, lúbarði keppinautana og aulýgsingunni lauk með myndskeiði af kyrrstæðum, am- erískum bíl sem dúaði og var þannig gefið í skyn að slagsmálahundurinn væri nú að njóta ávaxtanna af of- beldinu, sem nærðist á orkudrykkn- um „góða“. Skilaboðin virtust aug- ljós: Ef þú drekkur orkudrykkinn getur þú lúbarið alla og náð þér í lag- lega stelpu! Hvar endar þetta?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.