Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lakari verkefnastaða hjá Slippstöðinni hf.
17 manns sagt upp
SLIPPSTÖÐIN á Akureyri hefur
sagt upp 17 starfsmönnum vegna
erfiðrar verkefnastöðu undanfarna
mánuði. Starfsmennirnir vinna víða
í fyrirtækinu en Ingi Björnsson,
framkvæmdastjóri Slippstöðvarinn-
ar, sagði nauðsynlegt að grípa til
þessara aðgerða vegna þeirrar
stöðu sem uppi er.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa
verið um 140 talsins en að undan-
fömu hefur orðið talsverður sam-
dráttur í viðgerðar- og breytinga-
verkefnum fyrir fiskiskipaflotann.
Að sögn Inga breytist starfsemi
þjónustufyrirtækis eins og Slipp-
stöðvarinnar óhjákvæmilega í sam-
ræmi við sveiflur í útgerðinni.
Þessum samdrætti er fyrirtækið
nú að bregðast með fækkun starfs-
fólks og jafnframt breyttu skipu-
lagi, sem tekur gildi um mánaða-
mótin júní-júlí og gerir því fært að
auka sveigjanleika og mæta betur
sveiflum á markaðnum.
Ingi sagði að ekki hefði komið til
uppsagna í fyrirtækinu í langan
tíma.
Bátar rákust
saman
BADDÝ GK-227, um 6 tonna trilla, og Jón Erl-
ings GK, um 30 tonna bátur, lentu í árekstri
vestur af Stafnesi um klukkan 18 í gærkvöld og
var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til að
sækja mann, sem meiddist er óhappið varð.
Leki gerði vart við sig hjá Baddý, en dælur
höfðu undan þannig að báturinn sigldi til hafn-
ar í Sandgerði í fylgd varðskips.
Maðurinn sem meiddist var fluttur á slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur, en að sögn
læknis hlaut hann minniháttar meiðsl og var
fljótlega útskrifaður.
Selma í
sjöunda
himni
TEKIÐ var á móti íslensku Evró-
visjón-förunum, sem hrepptu
annað sætið í söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva í Jerúsal-
em á laugardagskvöid, með
blómum og hamingjuóskum þeg-
ar þau komu til landsins seint á
sunnudagskvöld. í samtali við
Morgunblaðið kvaðst Selma
Björnsdóttir í sjöunda himni yfir
úrsiitum keppninnar og sagði
góðan keppnisanda hafa rikt
baksviðs þegar stigin voru talin
og íslenska og sænska lagið áttu
í sem mestri keppni. Plötusamn-
ingur er í sjónmáli og að sögn
Steinars Berg hjá Skífunni er
ætlunin að byggja upp feril
Seimu á markvissan hátt og ekki
einungis verið að reyna að mark-
aðssetja lagið, sem hún flutti í
keppninni, „All Out of Luck“.
Sænska lagið stolið?
A mánudag birtist í þýska dag-
blaðinu Bild frétt þess efnis að
sænska sigurlagið í keppninni,
„Take Me to Your Heaven“, sem
skrifað er á sænska lagahöfund-
inn Lars Didrikson væri nákvæm
eftirlíking af laginu „Out of the
Blue“ eftir þýska lagahöfundinn
David Brandes. Hyggst Brandes
sækja málið fyrir rétti.
Ekki er Brandes sá eini sem
viil eigna sér lagið því sænski
lagahöfundurinn Hans Lager-
holm segir í samtali við sænska
blaðið Expressen að hann hafi í
félagi við tvo aðra danslagahöf-
unda samið vinningslagið undir
nafninu 1001 nótt fyrir íjórum
árum og dreift til margra
sænskra útgefenda og dans-
hljómsveita. I samtalinu kemur
fram að þeir hyggist leita réttar
síns og krefjast skaðabóta.
■ Evróvisjón/69/72-73
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bann við olíuflutningum undir
Hvalfjörð tii athugunar
Dreifendur
undrast hu g-
myndirnar
OLIUDREIFENDUR segjast
undrandi á hugmyndum Spalar hf.
um að banna flutninga á olíum og
bensíni í gegnum Hvalfjarðargöng
nema að næturlagi. Spölur hefur
lagt tíllögur þessa efnis fyrir ríkis-
lögreglustjóra. Slökkviliðsstjórinn í
Reykjavík segir slökkviliðið vanbúið
komi upp eldur í göngunum og lýsir
einnig óánægju með öryggisbúnað
ganganna.
Knútur HauksSon, framkvæmda-
stjóri Olíudreifingar, sem dreifir
eldsneyti fyrir Olíufélagið og Olís,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að Spölur hefði ekki haft sam-
band við fyrirtækið vegna þessa.
„Við þurfum ýmsar útskýringar.
Hvaða eldsneyti ætla þeir að
banna? Líka svartolíu? Þetta er
ekki allt eldfimt eins og bensín og
áhættuflokkarnir eru margir,“ sagði
Knútur. Hann sagðist hafa beðið
Spöl um fund vegna frétta af þess-
um óskum fyrirtækisins og kvaðst
telja að það væri annað en eldsneyt-
isflutningar sem valdið gæti hættu,
t.d. akstur með gaskúta og slíkt.
Hann sagði að auðvitað mundi
kostnaðarauki fylgja því íyrir fyrir-
tækið að aka fyrir Hvalfjörðinn.
Þórir Haraldsson, framkvæmda-
stjóri dreifingar hjá Skeljungi,
sagðist ekki geta gert sér nákvæma
grein fyrir þeim hugmyndum sem
uppi eru hvað þetta varðar. Hann
sagði einnig að það sama gæti ekki
gilt um flutninga á svartolíu og gasi.
„Ef við skoðum hvað það er sem
hefur valdið óhöppum erlendis, þá
eru það ekki eldsneytisflutningar,
heldur til dæmis málning. Við telj-
um okkur vera að flytja eldsneyti á
mjög auðveldan hátt. Þeir hljóta að
missa talsverðan spón úr aski sínum
með þessum reglum,“ sagði Þórir.
„Það verður ódýrara fyrir okkur að
aka fyrir fjörðinn en að nota menn á
næturvinnukaupi til að flytja olíu í
gegnum göngin.“
■ Á borgin eða Spölur/12
Hugbúnaðarfyrirtæki ákært fyrir brot á höfundalögum
Afritaði Windows 95
og dreifði ókeypis
eða stórfelldu gáleysi og varða þau
sektum eða allt að tveggja ára fang-
elsi. Það brot sem um ræðir í þessu
tilviki eru aðgerðir sem brjóta í
bága við einkarétt höfundar.
Allt að 80% ólögmætar
Jón H. Snorrason bendir á að
samtök rétthafa hugbúnaðarfram-
leiðenda, BSA, telji að miðað við
tölvueign og -notkun og borið sam-
an við sölutölur, hafi raunin verið
sú að allt að 80% af hugbúnaði í
notkun hérlendis væru ólögmæt og
afhent án greiðslu eða gegn óveru-
legri greiðslu. „Við leggjum ekki
mat á þessa tölu og einbeitum okk-
ur að hverju máli fyrir sig, en það
er ljóst að við töldum tilefni til
ákæru í þessu tiltekna máli og telj-
um ekki um einstakt tilfelli að
ræða. Þarna er um að ræða við-
skiptahætti sem geta átt sér stað
hvar sem er, þ.e. að þeir sem sejja
tölvur láta hugbúnað fylgja með
ókeypis. Ef það er gert í miklum
mæli er um skuggalegt umfang að
ræða,“ segir Jón.
Hann segir að fleiri samsvarandi
mál séu til rannsóknar hjá efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra,
en þau séu á mismunandi stigi og
ótímabært að tjá sig um eðli þeirra
eða umfang.
EMBÆTTI ríkislögreglustjóra gaf
í gær út ákæru á hendur hugbúnað-
arfyrirtæki í Reykjavík og stjómar-
formanni og framkvæmdastjóra
þess vegna brota á höfundalögum.
„Þetta mál er ekki síst merkilegt
fyrir þær sakir að það er hið fyrsta
sinnar tegundar þar sem þessi rétt-
indi eru fótum troðin. Aður hafa
komið upp mál þar sem t.d. kvik-
myndir hafa verið fjölfaldaðar á
myndböndum með ólögmætum
hætti, en þetta er annar hluti rétt-
indamála," segir Jón H. Snorrason,
saksóknari embættis ríkislögreglu-
stjóra.
„Rétthafarnir hafa lengi haft
grunsemdir um að hugbúnaði væri
dreift hérlendis ólöglega í mjög
miklum mæli og það væm mjög
gróf brot þar sem mikil réttindi og
miklir fjármunir færa forgörðum,"
segir Jón.
Fyrirtækinu og framkvæmda-
stjóranum er gefið að sök að hafa á
tímabilinu 15. janúar til 10. septem-
ber 1997, afritað stýrikerfið
Windows 95 inn á harða drifið í tölv-
um og látið fylgja með í sölu á þeim
til að minnsta kosti 30 einstaklinga
án sérstaks endurgjalds. Var þetta
gert án leyfis Microsoft Cor-
poration, sem á höfundarrétt að
stýrikerfinu.
Hróbjartur Jónatansson hæsta-
réttarlögmaður gerir þá kröfu fyrir
hönd Microsofts að hinn ákærði
greiði ríflega 1,3 milljónir króna í
skaðabætur, auk miskabóta.
Krefst embætti ríkislögreglu-
stjóra að ákærðu verði dæmdir til
refsingar fyrir brot sem varða m.a.
við höfundalög þar sem segir að
höfundur hafi einkarétt til að gera
eintök af verki sínu og til að birta
það í upphaflegri mynd eða
breyttri; í þýðingu og öðrum aðlög-
unum. I kafla laganna um refsiá-
kvæði er bent á að refsing skuli háð
því að brotin séu framin af ásetningi
Sérblöð í dag
www.inbf.is
sjsiim
Heimili
►VERÐ á einbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið •
að hækka. í Fasteignablaðinu er fjallað um cinbýlishúsa- .
markaðinn og lýst nokkrum húsum, sem nú eru til sölu. •
Fylgzt er með lagningu hringtorga í Fornalundi við Breið- .
höfða. •
Með Morgun-
blaðinu í dag
er dreift blaði
frá Skrípa-
myndum,
„Myndasögu-
klúbbur
íslands“.
íslenska liðið í handknattleik
kom inn úr kuldanum / B8
•••••••••••••••••••••••••••••••
Sundmenn sigursælir á Smá-
þjóðaleikum í Liechtenstein / B6