Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
MORGUNBLADIÐ
Landssími íslands hf. er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins og er hlutafélag
í samkeppni á markaðiþarsem stöðugar nýjungar eru og verða allsráðandi á
komandi árum. Fyrirtækið stefniraðþví að vera áfram ífararbroddi á sínu sviði.
Landssíminn leitast við að veita bestu mögulegu fjarskiptaþjónustu sem völ erá
hverju sinni, og rekur eittfullkomnasta fjarskiptakerfi heimsins.
GERVITUNGL
Landssíminn óskar eftir að ráða áhugasama og duglega VERKFRÆÐINGA,
TÆKNIFRÆÐINGA OG RAFEINDAVIRKJA til starfa hjá gervitungla-
fjarskiptadeild.
Þeir sem verða ráðnir munu hafa aðsetur í jarðstöðinni Skyggni, í fögru
umhverfi við rætur Úlfarsfells.
Störfin felast í þróun og uppsetningu fjarskiptakerfa á jarðstöðvum Lands-
símans og í framhaldi af því, rekstri þeirra og viðhaldi.
Við leitum að einstaklingum með tæknimenntun á sviði rafeinda og fjarskipta,
sem sýna frumkvæði í starfi og eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt. Einnig
þarf að hafa góða skipulags- og samstarfshæfileika og vilja til að tileinka sér
nýjungar. Góð enskukunnátta er áskilin.
í boði eru góð laun, áhugaverð og krefjandi verkefni, möguleiki á endur-
menntun í starfi og góður starfsandi.
Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
OFANGREIND STÖRF HENTA JAFNT KONUM SEM KÖRLUM.
Nánari upplýsingar veita Auður Bjarnadóttir og Herdís Rán Magnúsdóttir frá
kl. 9-12 í síma 533-1800. Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs fyrir
14. júní merktar „Landssíminn - Gervitungl"
RÁÐGARÐUR
Furugerði 5 • 108 Reykjavík • www.radgardur.is
r
Laus staða
Staða deildarstjóra endurskoðunarsviðs
Seðlabanka íslands er hér með auglýst laus
til umsóknar. Staðan veitist löggiltum endur-
skoðanda eða viðskiptafræðingi með reynslu
af endurskoðunarstörfum.
Laun skv. kjarasamningi starfsmanna bank-
anna.
Vakin skal athygli á því að í Seðlabankanum
f er í gildi áætlun í jafnréttismálum.
Upplýsingar um stöðuna veitir Lilja Steinþórs-
dóttir, aðalendurskoðandi, en umsóknirskulu
sendar til starfsmannastjóra fyrir 1. júlí nk.
Viltu verða kennari í
Kópavogi?
Þá ertækifærið núna. Það vantar kennara í
Kópavogsskóla næsta vetur. Um er að ræða
kennslu á yngsta stigi eða miðstigi.
Kópavogsskóli er í grónu hverfi og mjög góð
samvinna og samstaða ríkir í kennarahópnum.
Skólinn hefurgert samning við Kópavogsbæ
um fjárhagslegt sjálfstæði og unnið er að
mörgum áhugaverðum þróunarverkefnum
í góðri samvinnu við foreldra. Eingöngu kenn-
arar með fullgild réttindi koma til greina.
Laun skv. kjarasamningi KÍ og HÍK og launa-
nefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingargefurskólastjóri, Ólafur
Guðmundsson, eða aðstoðarskólastjóri Jóna
Möller í síma 554 0475.
Umsóknarfrestur til 10. júní.
Tvær kennarastöður
eru lausar við Brúarásskóla
á Norður-Héraði næsta skólaár
Æskilegar kennslugreinar eru íþróttir, hand-
> mennt og kennsla yngri barna.
Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Upplýsingar veita Ásmundur Þórarinsson, for-
maður skólanefndar, í síma 471 1912, Elsa
Árnadóttir, skólastjóri, í símum 471 1046 og
471 1047 og Jónas Þór Jóhannsson, sveitar-
stjóri, í síma 471 2715.
IÐNSKÖUNN f REYKJAVfK
Staða kennara
Laus ertil umsóknar staða kennara í íslensku.
Ráðning erfrá 1. ágúst 1999.
Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Upplýsingar um starfið veita: kennslustjóri,
starfsmannastjóri eða skólameistari
í síma 552 6240.
Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra fyrir
15. júní nk. Öllum umsóknum verður svarað.
Flugmálastjórn
Rafeindavirki
— radíódeild
Flugmálastjórn auglýsir starf eftirlitsmanns
flugöryggistækja í radíódeild Flugmálastjórnar.
Um er að ræða eftirlit og umsjón með flugleið-
sögu og fjarskiptabúnaði víðs vegar um landið.
Reynsla við rekstur slíkra tækja er æskileg.
Umsækjendurskulu hafa lokið námi í rafeinda-
virkjun eða sambærilegu námi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Rafiðnað-
arsambands íslands.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist Flugmálastjórn
eigi síðar en 16. júní 1999. Öllum umsóknum
verður svarað.
Bifvélavirki
— Akureyrarflugvelli
Flugmálastjórn auglýsir starf bifvélavirkja á
Akureyrarflugvelli. Um er að ræða viðgerðir
og viðhald véla og tækjabúnaðar, ásamt vinnu
við snjómokstur og fleiri störf. Krafist er rétt-
inda meiraprófs bifreiðastjóra og réttinda í
stjórnun þungavinnuvéla.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samiðnað-
ar — sambands iðnfélaga.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Flugmálastjórn
eigi síðar en 16. júní 1999. Öllum umsóknum
verður svarað.
Nánari upplýsingar um störfin og umsóknar-
eyðublöð fást hjá starfsmannahaldi,
sími 569 4100.
Kennarar
Kennara vantar við Grunnskólann í Sandgerði
næsta vetur.
Við leitum sérstaklega að yngri barna kennara,
sem hefur íslenskt táknmál á valdi sínu.
Meðal annarra kennslugreina:
Sérkennsla, almenn kennsla, íslenska, íþróttir,
tónmennt, handmennt, eðlis- og efnafræði.
Margháttuð fyrirgreiðsla.
Upplýsingar veita Guðjón Þ. Kristjánsson,
skólastjóri, og Pétur Brynjarsson, aðstoðar-
skólastjóri, í síma 423 7439.
Sölumaður
Tölvur — jaðartæki
Tölvuverslun óskar eftir að ráða sölumann til
sölu- og afgreiðslustarfa á tölvubúnaði og jað-
artækjum. Umsækjandi þarf að hafa góða und-
irstöðuþekkingu á PC-tölvum og þarf að geta
hafið störf strax eða sem fyrst. Um framtíðar-
starf er að ræða.
Umsóknum skal skila í afgreiðslu Mbl.merkt
„S — 8117" fyrir 7. júní nk.
ROLF JOHANSEN & COMPANY
Sölumenn
Óskum eftir að ráða sölumenn til starfa sem
geta hafið störf strax. Þurfa að hafa einhverja
reynslu af sölumennsku. Nánari upplýsingar
veitir Þorsteinn Þór Steinsson í síma 696 6700,
Veitingahúsið Perlan
á Öskjuhlíð
Langar þig að vinna við fjölbreytt og skemmti-
legt starf í björtu og fallegu umhverfi?
Getum bætt við okkur þjónanemum og/eða
aðstoðarfólki í veitingasal.
Upplýsingar á staðnum eftir kl. 13.00 í dag og
næstu daga eða í síma 562 0200.