Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 9
FRÉTTIR
Tjónabifreiðir sér-
staklega skráðar
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef-
ur ákveðið að tjónabifreiðir skuli
vera skráðar sem slíkar í skráning-
arskírteini viðkomandi bifreiðar frá
og með deginum í dag, en tilgangur
þessa er að veita neytendum upp-
lýsingar um tjónabifreiðir og
hvetja til betri viðgerða á tjónabif-
reiðum.
Ákvörðunin var tekin í framhaldi
af niðurstöðu nefndar á vegum ráðu-
neytisins sem kannaði umfang tjóna-
bifreiða í umferðinni, en niðurstaða
nefndarinnar var sú að í umferð væri
talsvert af bifreiðum sem ekki væri
almennilega gert við eftir umferðar-
óhöpp.
Lögi'egla, sem kemur að umferð-
aróhappi, tryggingafélag, sem fær
upplýsingar um ökutæki sem hefur
lent í umferðaróhappi, og tollstjóri,
er annast tollafgreiðslu á innfluttri
tjónabifreið, skulu meta hvort tjón
Ferðamálaráð Evrópu
Ferðamála-
stjórí kosinn
í fram-
kvæmda-
stjórn
Á AÐALFUNDI Ferðamálaráðs
Evrópu (European Travel
Commission) nú í maí var Magnús
Oddsson ferðamálastjóri kosinn í
framkvæmdastjóm.
Innan ETC fer fram umræða og
stefnumótun um ferðamál álfunnar,
m.a. samskipti við ESB á sviði
ferðamála en aðalskrifstofa ráðsins
er í Brussel. Þá vinnur ETC að
markaðsmálum Evrópu á fjarmörk-
uðum með fulltrúum í Bandaríkjun-
um, Kanada, Asíu, Ástralíu og Suð-
ur-Ameríku. Á vegum ráðsins er
unnið að viðamiklum könnunum og
rannsóknum á sviði ferðamála bæði
í Evrópu og á okkar mikilvægustu
markaðssvæðum utan álfunnar,
segir í fréttatilkynningu. Mikið upp-
lýsingastreymi er innan ráðsins um
þróun og horfur í ferðamálum í
heiminum.
ETC var stofnað árið 1948 og eru
nú 29 þjóðir í ráðinu og fer fjölg-
andi. Magnús er fyrsti Islendingur-
inn til að taka sæti í framkvæmda-
stjórn ECT.
--------------
Samband ungra
sj álfstæðismanna
Ásdís Halla
Bragadóttir
hyggst hætta
formennsku
ÁSDÍS Halla Bragadóttir hyggst
ekki gefa kost á sér til áframhald-
andi formennsku í Sambandi ungra
sjálfstæðismanna á 35. þingi þess,
sem haldið verður í Vestmannaeyj-
um 20. til 22. ágúst. Þetta kom fram
á fundi SUS á föstudagskvöld.
Á fundinum óskaði SUS Davíð
Oddssyni forsætisráðheiTa til ham-
ingju með þann árangur, sem tvær
fyrri ríkisstjórnir hans hefðu náð,
og fyrir að leiða þriðju ríkisstjóm-
ina í röð fyrstur íslenskra stjórn-
málamanna. I fréttatilkynningu frá
SUS segir einnig að stjórnin telji
„að í staðinn fyrir að fjölga ráðherr-
um úr 10 í 12 hefði verið æskilegra
að stokka strax upp í ráðherraliðinu
og fækka ráðherrum líkt og lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins hefur
margsinnis ályktað".
bifreiðanna sé þess eðlis að þær
verði skráðar sem tjónabifreiðir í
skráningarskírteini.
Hægt að endurmeta tjón
Hægt er að endurmeta tjón bifreið-
ar hjá tjónaskoðunai'deild trygginga-
félaganna eða faggiltum skoðunar-
stöðvum og ef endurmatið leiðir til
þess að bifreiðin telst ekki vera tjóna-
bifreið er tjónaskráningin felld niður.
Einnig getur eigandi tjónabifreið-
ar fengið tjónaskráningunni breytt.
Ef bifreiðin fer til viðgerðar á viður-
kenndu réttingarverkstæði er mögu-
legt að tjónaskráningin verði felld úr
skráningarskírteininu, en skráningin
kemur eftir sem áður fram í skrán-
ingarferli bifreiðarinnar. Ef gert er
við bifreiðina og hún síðan skoðuð af
faggiltri skoðunarstofu, þar sem
framvísað er vottorðum um hjóla-
stöðu- og burðarvirkismælingu frá
viðurkenndu verkstæði er unnt að fá
tjónaskráningu í skráningarskírteini
breytt í „Viðgerð tjónabifreið".
Full búð
of nýjum efnum
Skipholti 17a, sími 551 2323
• i
Stuttkápup Stórar stærðir. 30% afsláttur. Opið 11-18, laugard. 11-14. Jernj Eiðistorgi 13, 2. Iiæð yfir torginu, sími 552 3970.
Aukin
Ökuskóli
íslands
ökuréttindi
(Meirapróf)
Leigubill, vörubifreiö, hópbifreið og eftirvagn.
Ný námskeið hefjast vikulega.
Gerið verðsamanburð.
Sími 5683841, Dugguvogur2
Blússurnar
fást hjá okkur
Tískuskemmm
Bankastræti 14, sími 561 4118
X
s
rPÓSTVE RSLU N ! N
SVANNI
Stangarhyl 5
pósthólf 10210, 130 Reykjavík,
sími 567 3718 - fax 567 3732
JAKKAR, BUXUR,
PILS OG TOPPAR
MARGAR STÆRÐIR
Opið virka daga frá kl. 10—18
og laugardaga frá kl. 10.—14.
Útskriftargjafir
DEMANTAHUSIÐ
Nýju Kringlunni, sími 588 9944
-/eli
ina.
Isamfellur
Ný sending í svörtu, hvítu og gráu.
-/eli
inet
sundbolir í úivali
Laugavegi 4 sími 551 4473
Nýtt-Nýtt
Scampi sundbolir,
bikini og slæðupils
Þeir eru sterkir og fjaðra sjálfstætt undir barninu, með
fjögurra punkta öryggisbelti og vandaðri fótavörn.
Bandarískar og evrópskar öryggisviðurkenningar.
Hraðlosunarbúnaður, sem passar á flest hjól.
Bögglaberi óþarfur. Fyrir börn 0-25 kg.
Verð frá kr. 5.464 stgr.
m Opið laugard. kl.10-16
ORNINNF*
Skeifunni 11, sími 588 9890
BARNASTÓLARNIR
VINSÆLU