Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT AFP KONA stendur í geðshræringu í Minsk í Hvíta-Rússlandi eftir að hafa lagt blóm á vett- vangi harmleiksins í gær, en a.m.k. 54 létust í troðningi á neðanjarðarbrautarstöð í borg- inni, og um 150 særðust. Harmleikur í Minsk Minsk. Reuters. AÐ MINNSTA KOSTI54 ungmenni létu lífið og um 150 slösuðust eftir geysilegan troðning á neðanjarðarjámbrautarstöð í Minsk, höfuð- borg Hvíta-Rússlands, í gær. Tildrög slyssins voru þau að mikill fjöldi ungmenna hafði safnast saman á bjórhátíð í miðborg Minsk á sunnudagskvöld. Veður tók hamskiptum og mikill hvirfilvindur, þrumur og eldingar gengu yfir miðborgina. Við það leitaði fólkið skjóls í nærliggjandi lestarstöð og var troðn- ingurinn svo gífurlegur að þeir sem létust eru flestir taldir hafa troðist undir - meirihlutinn ungar stúlkur, klæddar háhæluðum skóm sem urðu afar sleipir í bleytunni. „Um það bil 300 manneskjur lágu hér hver ofan á annarri," sagði lögreglumaður á vakt við Alexander Lúkasjenkó, forseta Hvíta- Rússlands, er heimsótti staðinn í gær. „Við bárum út þá einstaklinga sem lágu efst og voru þeir enn á lífi. Er að var komið í annað sinn voru eingöngu látnir og mikið slasaðh- eftir,“ sagði lögreglumaðurinn. Taldi hann að flestir hinna látnu hefðu verið stúlkur á aldr- inum fjórtán til átján ára sem hefðu kafnað eða troðist undir. Sjónvarpsstöðvar í Hvíta-Rússlandi sýndu í gær myndir af skyldfólki ungmennanna þar sem það reyndi að fá upplýsingar um afdrif ástvina á sjúkrahúsum borgarinnar. Embættismenn sögðu að 78 manns væri enn haldið á sjúkrahúsi og þar af væru 35 enn í gjörgæslu. Þá hefðu tveir lögreglumenn týnt lífi á sunnudagskvöld er þeir reyndu að stöðva ungmennin á leið þeirra inn í lestar- stöðina. Lúkasjenkó sagði í gær að atburðurinn væri mikill harmleikur sem Hvít-Rússar ættu enn erfitt með að skilja. Nefnd sett á laggirnar til að rannsaka slysið Embættismaður innanríkisráðuneytisins sagði í gær að talið væri að allt að 2500 manns hefðu verið viðstödd hátíðahöldin í miðborginni. Aður hafði verið talið að þar hefðu um 10.000 manns verið saman komin. „Við slíkar aðstæður er afar erfitt að koma í veg fyrir harmleik líkt og þann sem gerðist í gær,“ sagði hann. Taldi hann víst að margh- hefðu verið undir áhrifum áfengis og að fæst- ir hinna látnu hefðu verið með auðkennisskír- teini. I gær var talið að flest ungmennanna kæmu frá nærliggjandi borgum og bæjum. Sagt var frá því í hvít-rússneskum fjöl- miðlum að Vladimir Jermoshin, borgarstjóri Minsk, hafi sett á laggirnar nefnd er rann- saka ætti slysið og veita aðstandendum ung- mennanna aðstoð. Þá hefur Lúkasjénkó sett sérstaka rannsóknarnefnd á laggirnar sem kanna á sakhæfi þeirra sem eru ábyrgir. Frábær sérútbúin fellihýsi fyrir íslenskar aðstæður. Gott rými, yfir- burða tjalddúkur og sterkt þak og gólf eru atriði sem þú vilt vita af í góðu horfi þegar ferðast er um ísland. Þægindi og öryggi eru staðalbúnaður Starcraft Arcticiine. Einföld tjöldun, mikið pláss, áfast eldhús og fortjald, auk frábærrar endingar eru atriði sem gera Camp-let að einstökum tjaidvagni. Ef allir vagnar eru skoðaðir sést að betri kostur er varla á boðstólum. gíSLI JÓNSSON ehf Bíidshöfða 14, 112 Reykjavík, sími 587 6644. Umboðsmenn á Suðurnesjum, Toyota-salurinn í Njarðvfk, sími 421 4888. Viðgerðir hafnar í al- þjóðlegu geimstöðinni Canaveral-höfða. Reuters. GEIMFARAR opnuðu alþjóðlegu geimstöðina á sunnudag til að gera við ýmis tæki og flytja þangað birgð- ir fyiir geimfara sem eiga að dvelja í henni á næsta ári. Aður höfðu geim- faramir farið í hartnær átta tíma geimgöngu og lent í erfiðleikum við að koma einum þeirra, Tamara Jem- igan, aftur í geimfeijuna Discovery. Jernigan, sem er bandarísk, og Rússinn Valerí Tokarev urðu fyrst til að fara inn í geimstöðina sem var í um 386 km hæð yfir Norður- Kyrrahafi austan við Japan. Geimferjan verður tengd við geimstöðina þar til á fimmtudag meðan geimfaramir flytja í hana 1.632 kg af tölvum, súrefnishylkj- um, sjúkrakassa og aðrar birgðir, svo sem föt og ruslapoka. Birgðirn- ar eru ætlaðar geimförum sem eiga að gista í geimstöðinni í nokkra mánuði í senn frá næsta ári. Fyrsta verkefni geimfaranna var hins vegar að gera við ýmsan bún- að, m.a. hleðslutæki í rússnesku geimstöðvareiningunni -Zarja, sem sér stöðinni fyrir orku. Einnig þurfti að gera við fjarskiptatæki í bandarísku einingunni Unity, sem hefur tekið á móti merkjum frá jörðu en ekki svarað þeim frá því um miðjan apríl. Voru ekki í hættu Áður höfðu tveir geimfaranna farið í tæplega átta tíma geimgöngu til að festa krana á geimstöðina. Gangan stóð næstum tveimur klukkustundum lengur en ráðgert hafði verið og megnið af þeim tíma voru geimfaramir í þrýstijöfnunar- klefa Discovery meðan Tamara Jemigan streittist við að festa líf- taug við búning sinn. Geimfararnir gátu ekki þrýstijafnað klefann fyrr en líftaugin var tengd. Þótt geimgangan hefði staðið um einni og hálfri klukkustund lengur en NASA, geimrannsóknastofnun Bandaríkjanna, telur æskilegt var hvorugur geimfaranna í hættu þar sem búningar þeirra voru hannaðir fyrir mun lengri geimgöngur. Þetta er í annað sinn sem Jemig- an lendir í vandræðum í þrýstijöfn- unarklefa geimferju. Hún varð að fresta tveimur geimgöngum árið 1996 þegar ekki var hægt að opna ytri hlera geimferjunnar Columbia. Þrátt fyrir vandamálin tókst geimförunum að færa 95 kg krana úr farmhluta geimstöðvarinnar og festa hann utan á Unity. Kraninn verður notaður til að stækka geim- stöðina og er með 1,5 m bómu sem hægt er að lengja í 2,7 metra. Kran- inn getur lyft hlutum sem em nokkrum sinnum þyngri en hann sjálfur. Einingamar tvær vora tengdar saman í desember en smíði geim- stöðvarinnar hefur tafist vegna vandamála við að Ijúka rússneskri þjónustueiningu hennar. Gert er ráð fyrir því að Discovery snúi aftur til jarðar á sunnudaginn kemur. Stefnt er að því að fyrsta áhöfnin sem á að dvelja í geimstöð- inni verði flutt í hana með rúss- neskri geimferju i mars á næsta-árir „I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.