Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Hallinn á vöruskiptum við útlönd 3,9 milljarðar fyrstu fjóra mánuði ársins Neysluvörur 20% alls innflutnings Stjórn Aiusuisse-Lonza Ahersla á hagsmuni hluthafanna BT • Skeifunni 11 • Reykjavík • S: 550 4444 BT • Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • S: 550 4020 NÝR stjómarformaður Alusuisse- Lonza, eiganda álversins í Straumsvík, mun styðja þá stefnu aðalforstjóra fyrirtækisins, Sergio Marchionne, að lögð skuli ofurá- hersla á að hagsmunir hluthafa verði sem best tryggðir, segir í dagblaðinu The Wall Street Jo- urnal í vikunni. I lok mars sagði fyrrverandi stjómarformaður, Theodor Tschopp, af sér tveim dögum áður en Alusuisse og þýska.samsteypan Viag AG skýrðu frá því að ekki hefðu tekist samningar um sam- mna vegna deilna um mat á eign- araðild hvors um sig. Að sögn blaðsins var Tschopp orðinn óá- nægður með framvmdu mála í við- ræðunum við Viag. Marehionne á einnig sæti í stjóm Alusuisse-Lonza en fækkað var í stjóminni úr ellefu í fjóra á aðalfundi í vikunni. Martin Ebner, sem tók við stjómarformennsk- unni, ræður nú ásamt öðmm stjómarmanni, Christian Blocher, yfir um 30% af hlutafé fyrirtækis- ins en þeir eiga samstarf í fleiri fyrirtækjum og em báðir mjög um- svifamiklir í svissnesku fjármálalífí auk þess sem Blocher hefur látið til sín taka í stjómmálum. Þótt ekki hafí náðst samningar við Viag, sem er að hluta til í opin- berri eigu, er ljóst að Alusuisse hyggst ekki hætta við að reyna að treysta undirstöður sínar með samrnna við Viag eða önnur fyrir- tæki til að auka arðsemina. Banda- ríska dagblaðið hefur eftir sér- fræðingi í fjárfestingum að einkum megi gera ráð fyrir að fyrirtækið færi út kvíamar á sviði álpakkn- inga. Ebner stjómar öflugu fjárfest- ingafyrirtæid en hóf feril sinn sem stjómandi lítils banka þar sem hann beitti óhefðbundnum aðferð- um og var framan af litinn hom- auga af ráðsettari hluta fjármála- heims landsins. Hann nýtur nú orðið mikils álits, er orðinn stór- auðugur og var endurkjörinn í stjóm Alusuisse-Lonza með þorra atkvæða. Ebner tjáði stefnu sína í stuttri yfirlýsingu að loknum aðalfundin- um og sagði að aðalhlutverk stjóm- endanna ætti að vera að auka eign hluthafanna og tengja ætti laun ráðamanna þess við afkomuna. Fyrirtækjum sem gengi vei væri stjómað af fámennum stjómum sem gætu teldð ákvarðanir hratt. „Arangursrík fyrirtæki em rek- in af tilþrifamiklum leiðtogum eins og Bill Gates,“ sagði Ebner. Ný tegund markaðssetningar á Netinu Fá borgað fyrir aug- lýsingar á skjánum NETFYRIRTÆKIÐ AllAdvanta- ge.com í Kalifomíu hefur tekið upp nýja aðferð við markaðssetningu á Netinu sem felst í því að notendum er boðin greiðsla gegn því að hafa lítinn auglýsingaglugga opinn á skjánum í hvert sinn sem þeir em á Netinu. Fyrirtækið býður not- endum hálfan bandaríkjadollar fyr- ir hvem klukkutíma sem þeir rápa á Netinu en að auki eiga menn þess kost að hafa tekjur af nýjum not- endum sem þeim tekst að afla. Þannig mun hver notandi hafa 10 centa tekjur af hverjum klukku- tíma sem nýir notendur hafa aug- lýsingagluggann opinn hjá sér. Ef þeir síðan afla enn nýrra notenda mun upphafsmaðurinn hafa 5 centa tekjur af hverjum þeirra og svo koll af kolli í fimm „liði“. Sá böggull fylgir skammrifi að einungis er greitt fyrir 40 klukku- stunda notkun í hverjum mánuði sem jafngildir 20 dollurum. Að auki fær hver notandi aðeins greitt fyrir notkun nýrra notenda sem svarar þeim tíma sem hann sjálfur er á Netinu. Enn sem komið er, er þessi þjónusta ekld fáanleg utan Banda- ríkjanna en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa íslenskir not- endur þegar hafið að skrá sig á heimasíðu fyrirtækisins. Útflutningur alls (fob) Sjávarafurðir Landbúnaðarafurðir 39.955,6 28.943,9 500,0 46.716,4 32.404,4 768,0 +16,8% +11,8% +53,5% Iðnaðarvörur 9.960,0 10.085,1 +1,2% Ál 6.268,2 6.420,4 +2,3% Kísiljárn 803,8 651,9 -19,0% Aðrar vðrur 551,8 3.458,8 - Skip og fiugvélar 110,1 3.057,8 - Innflutningur alls (fob) 52.209,0 50.637,4 -3,1% Matvörur og drykkjarvörur 4.110,0 4.459,7 +8,4% Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.192,3 12.256,6 -7,2% Óunnar 628,7 488,7 -22,3% Unnar 12,563,6 11.767,9 -6,4% Eidsneyti og smurolíur 2.890,1 2.293,1 -20,7% Óunnið eldsneyti 93,1 54,2 -41,9% Bensín, þ.m.t. flugvélabensín 641,4 457,2 -28,8% Annað unnið eldsn. og smurolíur 2.155,6 1.781,7 -17,4% Fjárfestingarvörur 13.551,0 13.754,7 +1,4% Flutningatæki 9.534,0 7.860,4 -17,6% Fólksbílar 3.057,4 4.525,7 +47,9% Flutn.t. til atv.rek. (ekki skip, flugv.) 945,3 1.009,7 +6,7% Skip 884,0 996,8 +12,7% Flugvélar 3.492,2 4,0 - Neysluvörur ót.a. 8.856,8 9.949,1 +12,2% Vörur ót.a. (t.d endursendar vörur) 74,9 63,7 -15,1% Vöruskiptajöfnuður 12.253,3 -3.921,1 - Miðað er við meðaigengi á vöoiviðstóptavog; á þann mælikvarða er meðaiverð erlends gjaldeyris í janúar-apnl 1999 0,1 % hærra en árið áður. Heimild: HAGSTOFA tSLANDS í APRÍL voru fluttar út vörur fyrir 10,8 milljarða króna og inn fyrir 13,6 milljarða. Vöruskiptin í apríl voru því óhagstæð um 2,8 millj- arða, en í apríl í fyrra voru þau óhagstæð um 1,5 milljarða. í frétt frá Hagstofu íslands kemur fram að fyrstu fjóra mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 46,7 milljarða króna en inn fyrir 50,6 milljarða. Halli var því á vöruskipt- um við útlönd sem nam 3,9 millj- örðum króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 12,3 milljarða á föstu gengi. Vöru- skiptajöfnuðurinn var því betri fyrstu fjóra mánuði þessa árs en á sama tíma árið áður. Heildarverðmæti vöruútflutn- ings fyrstu fjóra mánuði ársins var 16,8% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning- una má aðallega rekja til meiri út- flutnings á sjávarafurðum. Sjáv- arafurðir voru 69% alls útflutn- ings á tímabilinu janúar-apríl 1999 og var verðmæti þeirra 12% meira en á sama tíma árið áður. Sala á skipum og flugvélum úr landi á einnig stóran þátt í að verðmæti vöruútflutnings var meiri í ár en í fyrra. Útflutningur á iðnaðarvörum á tímabilinu var álíka og árið áður. Heildarverðmæti vöruinnflutn- ings fyrstu fjóra mánuði ársins var 3,1% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mikil aukning var á innflutningi á fólksbílum á tímabilinu, en verðmæti þeirra var 48% meira árið 1999 en árið áður. Neysluvörur námu 20% alls inn- flutnings janúar-apríl árið 1999 og var verðmæti þeirra 12% meira en á sama tíma árið áður. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum um 21% miðað við sama tímabil í fyrra. VÖRUSKIPT VIÐ ÚTLÖND Verðmæti innflutnings og jan. - apríl 1998 og 1999 1993 (fob virði í milljónum króna)jan.-apríl 1999 Breyting á jan.-apríl föstugengi* «C mmmmifí Sólheimum 35, s/mi 533 3634. Allan sólarhringinn. Vonum að allir hafi haft gaman að. Líttu við með kvitt- unina oa náðu í Ef svo er viljum við hjá BT gefa þér geisladiskinn með besta Eurovision laginu: "All Out of Luck" 1.-4. jútií i 3L-húsinu (2. hæð) Frá kl. 17_2°.. , -c verður oprö kus haustiðj g g g Skóli án veggía UpplysT ar í sima
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.