Morgunblaðið - 01.06.1999, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Vísir. Lau. 29. mai 22:24
.ísland í öðru sæti
íslendingar vorn lánlitlir ("All Out of Luck") í kvöld í Eurovision
söngvakeppninni - lentu í öðru sæti á eftir Svíum eftir spennandi talningu.
w-
3'Gri?oND
NEI, nei, þetta eru ekki sorgarviðbrögð út af fyrsta sætinu, Selma mín. Þetta er gleðigrátur.
Morgunblaðið/Kristinn
Bægsla-
gangur
ÞAÐ hefur viðrað vel til útivist-
ar undanfarið og fjölmargir
lagt leið sína á sundstaði til að
ylja sér og kæla sig svolítið.
Meðal þeirra eru þessir ungu
herramenn sem brugðu sér í
Sundlaug Kópavogs og geystust
niður vatnsrennibrautina.
Svanur skotinn
vegna kvartana
LÖGREGLAN á Selfossi skaut
taminn svan á Stokkseyri nýlega
vegna kvartana foreldra bama á
staðnum og vegna þess að sá sem
hafði vanið svaninn hafði reynt að
losa sig við hann út í náttúruna án
árangurs.
í Morgunblaðinu á föstudag birt-
ist bréf til blaðsins frá Þórgunni
Jónsdóttur á Stokkseyri þar sem
hún kvartar undan því að svanurinn
hafí verið skotinn við leikskólalóð
bæjarins.
Lögreglan á Selfossi sagði að
kvartað hefði verið undan ágengni
svansins við börn en hann hefði lagt
í vana sinn að stökkva í unga
krakka. Reiðir íbúar hafi í vetur
kvartað undan þessu. „Eigandi“
svansins hafí reynt að losna við
hann en hann hafí alltaf sótt heim
aftur. Eftir að leikskólinn á Stokks-
eyri hafði einnig kvartað var ákveð-
ið að skjóta svaninn. Svanir eru
friðaðir samkvæmt lögum en lög-
reglan sagði að í þessu tilviki hefði
verið talið heimilt að skjóta dýrið
enda ekki gert nema að höfðu sam-
ráði við yfirmenn lögreglunnar í
héraðinu.
Líkams-
árás á
Laugavegi
ÞRIR menn réðust á norskan
ferðamann á Laugaveginum
um fímmleytið á laugardags-
morgun. Hlaut maðurinn lít-
ilsháttar áverka í andliti en
árásarmennimir höfðu af hon-
um 13.000 norskar krónur,
sem jafngildir um 125 þúsund
íslenskum krónum. Mennimir
náðust og voru hnepptir í
varðhald. Til stóð að yfirheyra
þá síðdegis í gær.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hálfur bíll
ÓVENJULEG sýn blasir við
gestuin í bílasal Ingvars Helga-
sonar hf. Þar er sundurskorinn
Subaru Forester bifreið sem
notuð er til að sýna öryggis-
búnað bflsins og alla innri upp-
byggingu hans en fyrir
skemmstu hlotnaðist Subaru
Forester bflnum viðurkenning í
Bandaríkjunum fyrir góða út-
komu í árekstrarprófi. Subaru
verksmiðjurnar eiga nokkra
slíka sýningarbfla sem fara á
milli landa á evrópskum mörk-
uðum en hér verður hann í
þrjár vikur. Sigþór Bragason,
sölustjóri hjá Ingvari Helga-
syni, segir að bfllinn hafí vakið
mikla athygli viðskiptavina
sem eiga ekki því að venjast að
sjá vélar ræstar í hálfum bfl-
um. Með Sigþóri á myndinni er
Toshimi Oshima, sem er
tengiliður Subaru verksmiðj-
anna við umboðsmenn í Evr-
ópu.
Nýr formaður Hringsins
Söfnum áfram
fyrir börn
NÝLEGA var skipt
um formann kven-
félagsins Hrings-
ins. Hringurinn var stofn-
aður 26. janúar 1904 og
var fvrsti formaður Krist-
ín Vídalín Jakobson. Hún
stjómaði félaginu fyrstu
40 árin. Hringurinn hefur
löngum unnið mikið starf
í þágu íslenskra barna.
Fráfarandi formaður nú
er Elísabet Hermanns-
dóttir en hinn nýi formað-
ur er Borghildur Fenger.
En hvað skyldi bera hæst
í starfi Hringsins um
þessar mundir?
„Við emm alltaf að
safna peningum fyrir nýj-
um sérhönnuðum bama-
spítala á Landspítalalóð-
inni. I áranna rás höfum
við verið að efla tækjakost
barnaspítalans, þá ekki síst
Borghildur Fenger
vökudeildarinnar, sem er deild
fyrir nýbura. Við höfum tækja-
vætt þessa deild að miklu leyti
og slík tæki em mjög fullkomin
og dýr en úreldast fljótt. Því
þarf sífellt að endurnýja og það
er ósk okkar að tækjakosturinn
sé alltaf á við það sem best
þekkist erlendis. Við höfum líka
reynt að styrkja lækna og
hjúkrunarfólk sem annast ung-
börn í sínu starfí með styrkveit-
ingum eftir atvikum. Við höfum
líka styrkt sjúklinga sem þurft
hafa að fara utan í aðgerðir sem
ekki er hægt að framkvæma hér
heima.“
- Hefur Hríngurinn alltaf unnið í
þágu barna fyrst ogfremst?
„í upphafi var félagið stofnað
sem skemmtifélag. A öðm ári
fóm konurnar 46 sem stofnuðu
félagið að hugsa um sængurkon-
ur en eftir tveggja ára starf
snera þær sér að umönnun
berklasjúklinga sem vora á bata-
vegi eftir hælisvist. Hressingar-
hæli Hringsins var reist í Kópa-
vogi 1926 af Hringskonum. Þar
var pláss fyrir 26 sjúklinga auk
starfsfólks. í þau þrettán ár sem
hressingarhæli Hringsins var
rekið dvöldu þar hátt í fjögur
hundrað sjúklingar. Félagið
fékk ábúð á jörðinni Kópavogi,
sem var ríkisjörð, rak þar bú-
skap frá 1931 til 1948. Árið 1939
falaðist ríkið eftir að fá hælið til
kaups og þá afréðu félagskonur
að gefa ríkinu hressingarhælið
með öllu sem því fylgdi. Arið
1942 markaði félagið sér ný
stefnumið í líknarmálum og af-
réð að stuðla að því að koma á
fót sérhönnuðum bamaspítala í
Reykjavík. Það er ennþá megin-
markmið okkar, sem við vinnum
ötullega að. Félagið hefur lofað
að leggja fram 100 milljónir til
hins nýja barnaspítala sem nú er
að rísa.“
- Hafið þið nokkuð lofað þarna
upp í ermina á ykkur?
„Nei það höfum við alls ekki
gert. Þessa peninga ______________'
eigum við og þeir era Bók um
vel ávaxtaðir." félagið að
►Borghildur Fenger er fædd
á Akureyri 20. janúar 1929.
Hún lauk kvennaskólaprófí í
Reykjavík 1947 og hefur
starfað sem húsmóðir og síð-
ar í gestamóttöku Hótels
Loftleiða. Hún hefur tekið
ríkan þátt í félagsmálum, að-
allega í skátastarfi. Hún átti
sæti í stjórn Bandalags ís-
lenskra skáta og var aðstoð-
arskátahöfðingi í sjö ár. Hún
er nú formaður kvenfélagsins
Hringsins. Borghildur var
gift Hilmari Fenger stór-
kaupmanni, sem lést fyrir
þremur árum. Þau eignuðust
tvo syni.
- Hvernig hnfið þið
aflað allra þessara
peninga?
„Það gerum við aðallega með
sjálfboðavinnu. Hringurinn er
líknarfélag þar sem mikið er
unnið og allt í sjálfboðavinnu.
Stór hópur félagskvenna kemur
saman vikulega níu mánuði árs-
ins og vinnur að gerð basar-
muna, annar hópur annast
páskabasar, jólakortasala er
mjög stór þáttur í fjáröflun
koma út
okkar og sérstakur hópur sér
um þann undirbúning. Jólakort
Hringsins hafa komið út óslitið
frá árinu 1973. Minningarkort
Hringsins hafa verið til sölu frá
árinu 1914. Hringurinn hefur
kökusölu samtímis jólabasarn-
um, þá reynir á allar félagskon-
ur að baka. Jólakaffi og happ-
drætti eru í byrjun desember
árlega. Eins og sést á þessari
upptalningu eru farnar ótal
leiðir til að afla fjár. Félagið
hefur alltaf átt því láni að fagna
að eiga góða og trygga stuðn-
ingsmenn, fólk sem kaupir af
okkur jóla- og minningarkort,
kemur í jólakaffið okkar og
hvað annað sem við bjóðum til
kaups eða skemmtunar. Ekki
má gleyma þeim fjölmenna hópi
sem gefur okkur peningagjafir,
smáar sem stórar, og styrkir
okkur á margvíslegan máta.
Allt rennur það í barnaspítala-
sjóð Hringsins.“
- Hvað eru margar konur starf-
andi í Hríngnum í dag?
„Þær era rúmlega þrjú hund-
rað. Þar af er virkur rúmlega
helmingur félagskvenna.“
-Koma ungar konur til starfa
hjá ykkur?
„Já, undanfarin ár hafa bæst í
hópinn margar ungar konur.
Félagsgjöldin standa undir
_________ rekstri félagsheimil-
isins, við reynum að
vera sparsamar,
hverjum eyri er
margvelt áður en við
eyðum honum.“
- Eru einhverjar breytingar á
döfinni í félagsstarfinu?
„Við stefnum í sömu átt og áð-
ur. En til stendur, í tilefni af 95.
afmælisári félagsins, að Björg
Einarsdóttir rithöfundur haldi
áfram starfi sínu við að skrá
sögu félagsins, en bókin um fé-
lagið mun koma út innan
skamms.