Morgunblaðið - 01.06.1999, Page 18
6 0 T T F ó L K • SlA
18 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Fyrsta ffokks
afgreiðsfa
EJS er leiðandi á sviði afgreiðslutækni
(yrir verslanir, veitingahús og gármálaiyrirtæki.
Fímmtudagínn 3. júní bjóðum við til kynningar
á afgreiðslutækni með áherslu á lausnir fyrir
verslanir og veitingahús. Lausnir fyrir mismunandi
þarfir verða kynntar I þingsal 5 en hugbúnaðarlausnir
og tækjabúnaður verða til sýnis í hliðarsal.
“ Afgreiðslukerfið Auður er hannað af EJS og
er fáanlegt fyrir allar gerðir nútíma afgreiðslu-
s tækja. Tæknimenn BS setja afgreiðslukerfin upp, kenna
starfsfólki og veita rekstrar- og viðhaldspjónustu samkvæmt
vottuðu gæðakerfi.
EJS er eina tölvufyrirtækið á íslandi með
gæðavottaða þjónustu.
Oagskrá:
í pingsal 5 („bíósal") verða kynningar sem miðast við
þarfir mismunandi notenda
13:00 Sérverslanir
14.-00 Veitingahús
15:00 Matvöruverslanir
16:00 Vörustýringarkerfið MMDS og
verkefni EJS fyrir verslanakedjur
í Astralíu og Asíu
Samhliða kynníngarfyrirlestrum verður kynning á vörum
og pjónustu EJS í þingsal 4 frá kl. 13:00 - 17:00.
EJS hf. 4- 563 3000 ♦ www.ejs.is ♦ Grensásvegi 10 * 108 Reykjavík
VIÐSKIPTI
Olis hf. kaupir allt hlutafé í Ellingsen ehf. og tekur
við rekstri félagsins
--------------------------- Morgunblaðið/Árni Sæberg
VERSLUN Ellingsens við Ánanaust.
Þjónusta fyrirtækisins
við sjávarútveginn styrkt
OLÍUVERSLUN ÍSLANDS hf.,
Olís, hefur keypt allt hlutafé í Ell-
ingsen ehf. og tekur við rekstri fé-
lagsins í dag. Samningur þess efnis
var undirritaður í gær. Ellingsen
ehf. er gamalgróið fjölskyldufyrir-
tæki og hefur verið í eigu Othars
Peters Ellingsens og afkomenda
hans frá því hann stofnaði verslun í
Reykjavík árið 1916.
Blendnar tilfinningar
Óttar Birgir Ellingsen, fráfar-
andi framkvæmdastjóri Ell-
ingsens, segir að hluthöfum hafi
fundist tímabært að kveðja fyrir-
tækið. „Eignaraðildin var orðin
dreifð og margir voru í rauninni
farnir að hafa áhuga á að fá eign
sína útborgaða," segir hann. „Þeg-
ar við fengum gott tilboð frá Olís
var ákveðið að slá til,“ segir Óttar
og segir aðspurður að fyrirtækið
hafi ekki verið illa statt.
Óttar segir blendnar tilfinningar
INTER
Bíldshöfða 20 Reykjavík
SPEEDQ
Morgunblaðið/Þorkell
EINAR Benediktsson, forstjóri Olís, (t.v.) og Gísli Örn Lárusson,
stjórnarformaður Ellingsens ehf., innsigla samninginn með handa-
bandi. Fyrir aftan eru (f.v.): Jón Halldórsson, framkvæmdastjóri elds-
neytis- og smurolíusviðs Olís, Kristján B. Ólafsson, fjármálastjóri Olís,
Samúel Guðmundsson, forstöðumaður áhættustýringar og hagdeildar
Olís, og Óttar Birgir EUingsen, fráfarandi framkvæmdastjóri Ell-
ingsens ehf.
fylgja sölunni. „Þetta eru ákveðin
kaflaskil; þeim fylgir annars vegar
tilhlökkun vegna nýrra viðfangs-
efna og hins vegar tregi vegna þess
hversu lengi fyrirtækið hefur verið
í eigu fjölskyldunnar." Hann vill
ekki gefa upp kaupverð.
Einar Benediktsson, forstjóri
Olís, segir hvata kaupanna vera
þann, að Olís vilji skjóta enn frek-
ari stoðum undir þjónustu fyrir-
tækisins við sjávarútveginn. Vaxt-
armöguleikar séu ekki miklir á
hefðbundnum eldsneytismarkaði.
„Við höfum ákveðið að hasla okkur
völl í að auka þjónustu við núver-
andi viðskiptavini og einkum þá
sjávarútveginn. Þetta er liður í
þeirri stefnumörkun félagsins,"
segir hann.
Liður í bættri þjónustu
Einar segir að ekkert hafi verið
ákveðið um hvort fyrirtækið hygð-
ist ganga lengra í þá átt. „Við höf-
um engin áform um það á þessari
stundu. Fyrir nokkrum árum fór-
um við að starfa eftir fyrrgreindri
stefnu. Þá hófum við sölu á
hreinsikerfum, hreinsiefnum,
pappírsvöru og ýmsum efnavörum
fyrir fiskiðnaðinn og útgerðina. Sú
starfsemi hefur verið efld með
markvissum hætti á síðustu miss-
erum og núna erum við líklega
orðin einn stærsti söluaðili á þess-
um vörum hér á landi,“ segir Ein-
ar. „Við höfum hugsað okkur að
hafa augun opin fyrir tækifærum
til þess að efla þjónustu okkar við
sjávarútveginn, hvort sem það
verður með kaupum á einstaka
fyrirtækjum eða með því að efla
eigin rekstur.“
Að sögn Einars mun Olís skoða
rekstur Elhngsens á næstu vikum
og kanna hvort breytinga sé þörf.
„Við teljum að Ellingsen ehf. sé
gott félag með traust nafn og
traust viðskiptavina sinna. Við höf-
um hugsað okkur að efla þjónust-
una á grundvelli þess. Við erum op-
in fyrir því að auka starfsemina,“
segir hann.
Aukin erlend verð-
bréfaviðskipti
• ERLEND verðbréfaviðskipti
hafa aukist verulega það sem
af er þessu ári, og í Morgun-
punktum Kaupþings hf. í gær
kemur fram að á fyrstu fjór-
um mánuðum ársins hafi er-
lend verðbréfaviðskipti numið
37 milljörðum króna.
Það er rúmlega 80% aukn-
ing frá sama tímabili í fyrra
þegar verðbréfaviðskipti
fyrstu fjögurra mánaða ársins
námu rúmum 20 milljörðum
króna.