Morgunblaðið - 01.06.1999, Síða 20

Morgunblaðið - 01.06.1999, Síða 20
 20 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Canon Ljósritunarvélar 215 » Afköst 21 eintak á mínútu • Engin upphitun^alltaf viðbúin » Duplex prentun • 600 x 600 dpi ( 600 x 1200 dpi smoothing) • Stækkun og minnkun 25 - 800 % • Prentaðferð: Laser Dry Electrostatictransfer • Staðlaður pappírslager 2 x 500 blöð + 50 • Nettengjanleg sem fax og prentari Verö kr. 259.900.- Ljósritunarvélar verö frá kr. 38.900 .- NÝHERJI Skipholt 37 • Sími: 569 7700 www.nyherji.is VIÐSKIPTI Markaðsvirði þriggja verðmestu bankanna „Væntingar um stóran kaup anda hækka verð FBA“ Fjárfestingarbanki atvinnu- lífsins hf. er verðmætasta fjármálafyrirtækið á Verð- bréfaþingi íslands, með markaðsvirði upp á 17 milljarða króna samkvæmt gengi á hlutabréf- um fjármálastofnana sem skráð eru á Verðbréfaþingi íslands, vikuna 24.-28. maí. FBA er jafnframt ann- að verðmætasta félagið á íslenskum hlutabréfamarkaði á eftir Eim- skipafélagi íslands hf. sem er metið á rúma 25 milljarða króna. Annað verðmætasta fjármálafyr- irtækið er Islandsbanki hf. sem hef- ur markaðsvirðið 16.407 milljónir króna. Landsbanki Islands hf. er þriðji verðmætasti bankinn, en mark- aðsvirði bankans er 15.795 milljónir króna samkvæmt yfirliti fyrir vik- una 24.-28. maí. FBA var samkvæmt þessu með lægstu tekjumar og hagnaðinn af þessum þremur, en var engu síður metinn á hæstu verði. Landsbank- inn sem er stærsti banki þjóðarinn- ar og af ýmsum nefndur „þjóðbank- inn“ hefur hins vegar lægst mark- aðsvirði þessara þriggja. Lítt virkur markaður með bréf í Landsbankanum „Þetta er í sjálfu sér einfalt,“ seg- ir Þorsteinn Víglundsson, yfirmaður greiningardeildar Kaupþings, að- spurður um ástæður þessarar verð- lagningar í fyrirtækjunum þremur. „Ef skoðaðir eru viðskiptabankarn- ir tveir, Landsbankinn og íslands- banki, þá sést að það munar um 10 prósentustigum á kostnaðarhlutfalli bankanna. Islandsbanki er kominn mun lengra í hagræðingu en Lands- bankinn, og er enn að vinna að hag- ræðingu. Það endurspeglast í trú fjárfesta á bankanum, en hann skil- aði mun betri arðsemi á seinasta ári en Landsbankinn." Þorsteinn Víglundsson segir að erfitt sé að bera beint saman banka eins og Fjárfestingarbanka atvinnu- Fjárfestingarbanki atvinnulífsins ís|ands. banki i milljónum króna Markaðsvirði Landsbanki íslands J J 15.795,0 Vaxtatekjur 1998 4.172,5 8.720,1 10.523,6 Hreinar rekstrartekjur 1.616,3 6.406,3 7.444,9 Hagnaður1998 734,2 1.415,3 910,6 Eigiðfé 31/12 1998 8.846,7 7.452,6 9.741,1 r Ríkisvíxlari í dagId. ii:oo mun fara fram útboð á ríldsvíxlum hjá Lánasýslu ríkisins. Að þessu sinni verður boðið upp á 31/, mánaða rikisvíxil, en að öðru leyti eru skilmálar útboðsins í helstu atriðum þeir sömu og í síðustu útboðum. í boði verður eftirfarandi flokkur ríkisvíxla í markflokkum: Núvcrandi Áædað hámaik llokkur RV99-0817 Gjalddagi 17. ágúst 1999 T ánstími 3 XL mánuðir staða* tekiiuiatilboða* 4.864 3.000 * Milljónirkróna. Markflokkar ríldsvíxla lífsins og viðskiptabankana tvo. „Það má segja að Fjárfestingarbankinn sé langtum hagkvæmari, eðli málsins samkvæmt. Hann starfrækir ekki net útibúa og aðra kostnaðarsama þjónustu við einstaklinga eða neitt slíkt. A móti kemur að vaxtamunur bankans er mun lægri en hjá við- skiptabönkunum, en engu síður ætti bankinn að geta skilað mun betri arðsemi en Landsbankinn.“ V/H hlutfóll bankanna þriggja, eða markaðsvirði deilt með hagnaði sem segir til um hve lengi óbreyttur hagnaður félagsins væri að greiða upp andvirði fjárfestingar í bréfum félagsins miðað við gengi þeirra, eru með þeim hætti samkvæmt síð- asta vikuyfirliti að FBA er með V/H hlutfallið 23,2, íslandsbanki með V/H hlutfallið 11,6 og Landsbank- inn _með V/H hlutfallið 17,3. „íslandsbanki á eftir að lenda í fullum skatti strax á næsta ári sem þýðir að hagnaður eftir skatt myndi ekki haldast sá sami þótt rekstrar- hagnaður héldist. Auk þess hafa menn trú á að Landsbankinn eigi eftir að hagræða, og hann á mun meira inni en íslandsbanki í þeim efnum,“ segir Þorsteinn. Hann bæt- ir við að bæði hjá FBA og íslands- banka sé e.t.v. gert ráð fyrir mögu- legum samruna við aðrar fjármála- stofnanir sem muni geta leitt af sér aukið hagræði. Andri Sveinsson, verðbréfamiðl- ari hjá Búnaðarbanka Verðbréfum, segist telja að markaðirnir séu með væntingar um hagræðingu á fjár- málamarkaði. „Fyrir liggur að bréf ríkisins í FBA verða seld á þessu ári, og markaðurinn er búinn að reikna inn álag á hlutabréf í bankanum vegna áhuga annarra fjármálastofnana að kaupa stóran hluta í FBA,“ segir Andri, og aðspurður segir hann að þó að fyrir liggi einnig að hlutabréf ríkisins í Landsbankanum verði seld þá muni það að ölium líkindum verða í mun smærri skömmtum. „Svo kemur auðvitað inn í mynd- ina að FBA er eina fjármálafyrir- tækið sem hefur birt þriggja mán- aða rekstraruppgjör. Þær tölur voru góðar sem gefur vísbendingar um að framhaldið verði gott. Eg held það hafi áhrif,“ segir Andri. Aðspurður um mismunandi V/H hlutföll bankanna þriggja segir Andri að það skipti máli að fremur lítið af hlutabréfum standi til boða t.d. í Landsbankanum. „Lífeyris- sjóðirnir hafa keypt stóran hluta af þeim 15% af bankanum sem eru í al- mennri eigu. Þannig að það er ekki nema brotabrot af bankanum sem eru á markaði. Eg vil því meina að það séu ekki virk viðskipti með hlutabréf Landsbankans þar sem framboð á bréfum í bankanum er ekki nóg,“ segir Andri Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.