Morgunblaðið - 01.06.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 29
ERLENT
Meintur
morðingi
náðist
LÖGREGLA í Svíþjóð hand-
tók í gær fyrrverandi málaliða
sem grunaður er um að hafa
skotið tvo lögregluþjóna til
bana í kjölfar bankaráns sl.
föstudag. Maðurinn heitir
Jackie Arklöv og er 25 ára.
Hann varð fyrir skoti þegar
hann var tekinn höndum og
var fluttur á sjúkrahús, en sár
hans munu ekki lífshættuleg.
Bankaránið var framið í bæn-
um Kisa, um 50 km suður af
Linköping. Fingrafór Arklövs
fundust á skotfærum sem voru
notuð við ránið. Annar ræningi
særðist í skotbardaga við lög-
reglu á fóstudag, og er á
sjúkrahúsi. Þriðja ræningjans
er leitað.
Gangaöryggi
kannað
ÍTARLEG rannsókn mun fara
fram á öryggismálum í öllum
veggöngum í Sviss í kjölfar
þess að á laugardag kom upp
mannskæður eldur í veggöng-
um í Ölpunum í annað sinn á
árinu. Alls létu 46 lífið í þeim
slysum. Hefur vinnuhópur þeg-
ar hafíst handa við rannsókn á
lengri göngum, að sögn sam-
gönguráðuneytisins sviss-
neska. Sum ganganna eru á
helstu tengibrautum milli
Norður- og Suður-Evrópu. Á
laugardag var einum veggöng-
um í Sviss lokað eftir að rann-
sóknir leiddu í Ijós að þau gætu
breyst í dauðagildru kæmi upp
eldur í þeim, þar eð loftræsti-
kerfí reyndust ófullnægjandi.
Hátt í 200
í gíslingu
VINSTRISINNAÐIR upp-
reisnarmenn í Kólumbíu
hnepptu á annað hundrað
manns í gíslingu sl. sunnudag.
Fólkið var við messu í kirkju í
úthverfí Cali þegar einkennis-
klæddir menn birtust og skip-
uðu því að fara um borð í flutn-
ingabíla sem biðu útifyrir.
Rúmlega 80 gíslar voru látnir
lausir nokkru síðar í fjöllunum
sunnan borgarinnar, en í gær
taldi fulltrúi kólumbíska hers-
ins að enn væru um 60 manns í
haldi ræningjanna. Mannrán
eru hvergi í heiminum eins tíð
og í Kólumbíu, en talið er að
þetta sé umfangsmesta rán
sem þar hefur nokkurn tíma
verið framið.
Ermarsunds-
göng lokast
VERKFALL franskra starfs-
manna við Ermarsundsgöngin
varð til þess að umferð um þau
stöðvaðist að hluta til í gær.
Um eitt hundrað starfsmenn
tóku þátt í verkfallinu og not-
uðu þeir bíla til þess að loka
munna ganganna skammt frá
Calais. Vildu starfsmennirnir
með þessu krefjast bættra
vinnuskilyrða. Úmferð frá
Frakklandi til Bretlands stöðv-
aðist af þessum sökum, en um-
ferð í hina áttina gekk snurðu-
laust fyrir sig, þótt nokkrar
tafir yrðu er til Frakklands
kom.
Svíar hafna innlimun VES í ESB
Stokkhólmi. Reuters.
SVIAR sögðust á dögunum ætla
að leggjast gegn öllum tillögum
um að varnarbandalagið Vestur-
Evrópusambandið (VES) verði
innlimað í Evrópusambandið
(ESB) og sögðu að málið yrði ekki
rætt á leiðtogafundi ESB í Köln í
þessari viku.
Ingrid Iremark, fjölmiðlafull-
trúi Görans Perssons, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, sagði að frétt-
ir um að Þjóðverjar hygðust
leggja fram tillögu um innlimun
VES í ESB á leiðtogafundinum
væru villandi. „Þetta er mikill
misskilningur,"
sagði hún.
„Menn í Evrópu-
sambandinu hafa
talað um þetta
en ekki ríkis-
stjórnirnar.
Engin slík til-
laga verður lögð fram á fundinum
í Köln.“
Hlutlausu löndin
á móti samrunanum
Þýska varnarmálaráðuneytið
sagði á miðvikudag að ráðherrar
frá ríkjum Evr-
ópusambands-
ins og evrópsk-
um aðildarríkj-
um NATO utan
ESB myndu
ræða breytingar
á skipan varnar-
mála í Evrópu á óformlegum fundi
sem haldinn var í Bonn í gær.
Ráðuneytið sagði að þýska stjórn-
in vildi að á leiðtogafundinum yrði
samþykkt að innlima Vestur-Evr-
ópusambandið, sem er 50 ára gam-
alt, í Evrópusambandið.
Jan-Erik Enestam, vamarmála-
ráðherra Finnlands, hefur sagt að
hlutlausu löndin í ESB myndu
hafna tillögunni. Iremark sagði að
sænskir jafnaðarmenn hygðust
einnig leggjast gegn tillögunni ef
hún yrði lögð fram. „Sænskir jafn-
aðarmenn aðhyllast hlutleysi - við
myndum ekki styðja slíkan sam-
runa.“
Græni flokkurinn í Svíþjóð sagði
íyrir helgi að hann kynni að slíta
stjómarsamstarfinu við jafnaðar-
menn ef stjórnin hafnaði ekki sam-
runa VES og ESB.
EVRÓPA*
í Evrópukeppni landsliða
á Laugardalsvelli 5. júní kl. 16
Hólf C, F og G í eldri stúku og M, N, 0 og P í nýrri stúku
Fullt verð: 2.000 kr. • Safnkortsverð: 1.800 kr.
Öll sætl númeruð
Hólf A, B, H og I í eldri stúku og K, L, R og S í nýrri stúku
Fullt verð: 1.500 kr. • Safnkortsverö: 1.200 kr.
Öll sæti númeruð
HÓIf J og T í nýrri Stúku (Bðrn eðafullorðnirmeð börn)
Fullt verð, fullorðnir: 1.500 kr. • Safnkortsverð: 1.200 kr.
Fullt verð, börn 16 ára og yngri: 500 kr. • Safnkortsverð 400 kr.
Ónúmeruð sæti
Tryggið ykkur uppáhaldssætin í tíma!
Eftirfyrri umferð í riðlinum eru Frakkland og Ukraína efst með 11 stig,
ísland með 9, Rússland með 6, Armenía með 4 og Andorra með 0.
Olíufélagiðhf
Ipfjj
lllg fgg
—T3l
Hébbi
■ibhhbs