Morgunblaðið - 01.06.1999, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 43
MENNTUN
stæði skóla,“ segir hún.
Helga telur reyndar að efni frá
ráðuneyti, skrifstofum, kennara-
samtökum, í námskrám og kennslu-
bókum einkennist af ruglandi máli
og að misst hafi verið sjónar af
æðsta boðorði kennarans: Að þjálfa
nemendur í að vega og meta það
sem þeir sjá og heyra. Að kenna
nemendum að spyrja gagnrýnna
spurninga.
Jafningjar eða yfirmenn?
Helga segir að í stað vinnufyrir-
komulags þar sem jafningjar vinni
hlið við hlið sé komið stigveldis-
skipulag skóla. Deildarstjórar, fag-
stjórar, sviðsstjórar, kennslustjórar
og ýmsir aðrir millistjómendur eru
komnir til sögunnar. „Flestir álíta
þetta leið til hins betra, með þessu
móti sé valdi dreift. En þetta er í
fullkominni mótsögn við það sem
áður segir um gæðastjórnun. Með
þvi að skipa einn af kennurunum
deildar-, fag-, eða kennslustjóra er
um leið dregið úr sjálfstæði og
frumkvæði annarra kennara á við-
komandi sviði. Sé t.d. deildarstjóri í
ákveðinni deild í framhaldsskóla
ekki sá færasti í hópnum hlýtur
starfið innan viðkomandi deildar að
versna. Sá besti í hópnum fær ekki
að njóta sín, hann verður að sníða
sér of lítinn stakk til þess að hæfa
deildarstjóranum," segir hún.
Hvenær gáfust framhaldsskóla-
kennarar upp?
Helga telur að framhaldsskólinn
hafi ekki farið varhluta af uppeldis-
stefnunni. Hann hefur hingað til
getað varist henni en hefur nú tap-
að, að hennar mati. „Kjarasamning-
amir árið 1997 era vendipunkturinn
og sameining kennarafélaganna
næsta stig,“ segir hún, „starfsdeild-
ir undir forsjá sérkennara er þriðja
stigið og það fjórða er ný námskrá
fyrir framhaldsskólann þar sem
verulega er dregið úr námskröfum."
Helga segir að lengi hafi verið
stefnt að þessu. ,Árið ' 1983 talar
Wolfgang Edelstein um uppeldisleg
vanskil framhaldsskólans en með
litlum árangri. Skólameistarar,
kennarar á framhaldsskólastigi og
stéttarsamtök þeirra stóðu vörð um
menntunina. 1988 varð Svavar
Gestsson menntamálaráðherra og
Gerður G. Óskarsdóttir ráðgjafi
hans. Þá var hafin skipuleg sókn
þess efnis að taka í taumana og
koma uppeldislegum böndum á
framhaldsskólann. Bókin Innra
starf framhaldsskólans sem kom út
árið 1989 er liður í þessari sókn. Þar
eru gerðar tillögur um minni mála-
kennslu, samskiptaáfanga og at-
vinnulífsnám. Uppeldisstefna
grannskólans endurborin. Tillög-
urnar fengu ekki hljómgrann hjá
framhaldsskólakennurum, þeir
stóðu ennþá í fæturna og kom ekki
til hugar að færa menntun þjóðar-
innar niður á við. 1991 kom út bókin
Til nýrrar aldar eftir sömu höfunda.
Þar er uppeldisstefnan útfærð í
smáatriðum. En það er ekki nóg.
Uppeldisskólinn vill fá allt undir sitt
vald; uppeldi og umönnun smá-
barna og utan þess. En það er ekki
nóg, í pakkanum eiga líka að vera
listir, íþróttir og tómstundir. Rous-
seau (franskur, d. 1778) yrði áreið-
anlega glaður, fullkomin tök ríkisins
á mannlífi og menntun út ævina.“
Helga segir að kennarar hafi látið
undan árið 1997, en hvers vegna?
„Líklega vegna þess að kynslóða-
skipti höfðu orðið bæði í Skóla-
meistarafélaginu og HÍK. Árið 1999
er svo lokahnykkurinn; menntunin
sjálf er ekki lengur aðalatriðið í
skólunum," segir hún.
Nótur draumóramanna þagni
Helga leggur í fyrirlestri sínum
áherslu á kennarann. „Við erum
kennarar, hvorki vinnukonur, fé-
lagsráðgjafar né geðlæknar."
Skyldan er að mennta. Hún hafnar
annarri ábyrgð á nemendum en
þeirri sem felst í „góðri kennslu,
hlýlegu en ákveðnu viðmóti og virð-
ingu fyrir nemendum og foreldr-
um“. Hún segir: „Þar sem svo
margir af uppeldissinnum, ef ég má
taka svo til orða eru allsráðandi í
skólakerfinu er ekki von til þess að
þaðan sé von á raunhæfum breyt-
ingum til bóta. Kennarar, sem vilja
auka frelsi sitt til orðs og æðis,
verða að taka málin í eigin hendur.
Þeir verða að neita því að dansa eft-
ir nótum draumóramanna eða
þeirra sem hafa hag af óbreyttu
ástandi. Kennarar verða að leita
sannleikans sjálfir og endurheimta
völd yfir eigin starfi."
mál. Samhliða þess-
ari þróun verður
agaleysi æ algengara
og verði ekki spyrnt
við fótum taka of-
beldismenn öll völd í
skólunum."
Á að loka skóla-
skrifstofum?
Morgunblaðíð/Ámi Sæberg
FLEST góð fyrirtæki hér á landi og jafnvel einhveijar opinberar stofnanir hafa áttað
sig á kjarna málsins, fallið frá stigveldisskipulagi og silkihúfugerð og komið á skipu-
lagi sem gefur hinum bestu í hópi starfsmanna svigrúm til að láta hæfileika sína vaxa
og þroskast í þágu starfsins," segir Helga.
anum verið breytt úr gamla barna-
skólanum eða klassíska skólanum
sem ó rætur sínar að rekja „til
mennta- og menningarhefðar forn-
ríkjanna við Miðjarðarhaf; með
grísku og rómversku heimspeking-
ana í broddi fylkingar“, eða leitinni
að sannleikanum, í uppeldisskóla
sem fól m.a. í sér drauminn um jafn-
réttisskóla (t.d. blandaðir bekkir).
Meðal sporgöngumanna hans hér
var dr. Wolfgang Edelstein (sjá bók
hans Skóli - nám - samfélag). Hún
telur að síðan hafi sjálfstæði kenn-
ara og vald yfir eigin starfi minnk-
að. „Valdaleysi kennara og van-
máttur hefur aukist svo mjög að nú
óttast nokkur hluti grannskóla-
kennara beinlínis um líkamlegt ör-
yggi sitt í vinnunni,“ segir hún.
Afleiðingarnar blasa við að henn-
ar mati: „Ekki aðeins er námsár-
angurinn slæmur heldur stefnir í
hreint öngþveiti. Ráðvillt böm virð-
ast eiga að fara með völdin, ráða sér
sjálf og setja kennurum skilyrði.
Það hefur gleymst að réttindum
fylgja skyldui-. Eins og nú er komið
fyrir kennurum stefnir í að skyld-
umar einar verði þeirra megin en
rétturinn nemenda og þeirra for-
eldra sem þekkja ekki muninn á
réttu og röngu.“
Helga segir að flest Evrópuríki
hafi klassíska menntun (leitin að
sannleikanum, varðveisla arfleifðar)
í öndvegi; aðeins fá hafa komið á
uppeldisskóla líkum þeim sem hér
er. „En hvarvetna eru afleiðingam-
ar þær sömu; móðurmálið drabbast
niður, þekkingu í raungreinum og
stærðfræði hrakar, vanþekking á
sögu og bókmenntum verður al-
menn og ólæsi þykir ekki tiltöku-
Hún telur að
fræðsluskrifstofur
sem stofnaðar voru í
kjölfar grannskóla-
laga árið 1974 hafi,
þrátt fyrir margt
gott, orðið dragbítur
á raunveralegar
framfarir í skólamál-
um og aukið veru-
lega á ósjálfstæði
skóla. Ástæðan er að
í hugmyndafræði
uppeldisskólans hafi
miðstýring og fagleg
forræðishyggja verið
allsráðandi. Hún
segir að með flutn-
ingi grunnskólans til
sveitarfélaganna hafi
nýjar fræðsluskrif-
stofur verið stofnað-
ar með gömlu hug-
myndirnar að leiðar-
ljósi. „Hugmyndirnar
eru illilega á skjön
við nútímahugmynd-
ir um góða stjórnun
og i beinni andstöðu
við það sem kallast gæðastjórnun.
Með því að halda fast við skipulag
sem fjölgar silkihúfum á kostnað
góðra og færra starfsmanna er ver-
ið að reyra skólann fastan við fortíð-
ina,“ segir hún og að „flest góð fyr-
irtæki hér á landi og jafnvel ein-
hverjar opinberar stofnanir hafa
áttað sig á kjama málsins, fallið frá
stigveldisskipulagi og silkihúfugerð
og komið á skipulagi sem gefur hin-
um bestu í hópi starfsmanna svig-
rúm til að láta hæfileika sína vaxa
og þroskast í þágu starfsins."
Tilvist skólaskrifstofanna gerir
að mati Helgu ekkert annað en að
draga úr frumkvæði einstakra skóla
og kennara. „Þessar skrifstofur á að
leggja niður og færa hvort tveggja
vald þeirra og fjármuni til skólanna.
Þá fyrst má fara að tala um sjálf-
Hagnýt þekking
á ferðamálum
Námið í ferðamálafræðum er byggt upp af nám-
skeiðum sem annars vegar snúa beint að ferða-
málafræðum, segir Anna Dóra Snæþórsdóttir
_____ferðalandafræðingur, og hins vegar_
hagnýtum ffrunnnámskeiðum úr nokkrum deild-
um og skorum Háskólans.
í haust hefst við jarð- og land-
fræðiskor Háskóla Islands nýtt
eins og hálfs árs nám í ferðamála-
fræðum sem lýkur með
diplóma prófi. Markmið þess
er að útskrifa nemendur
með þekkingu á tengslum
ferðamennsku og ferðaþjón-
ustu við náttúra, efnahagslíf
og menningu íslands, og búa
fólk undir stjórnunar- og
sérfræðistörf í ferðaþjónustu
hjá fyrirtækjum eða stofn-
unum. Nemendum úr öðram
deildum Háskólans stendur
einnig til boða að taka skyldunám-
skeið ferðamálafræðanna sem 30
eininga aukagrein til BA- eða BS-
prófs.
Ferðaþjónusta er sú atvinnu-
grein sem hefur verið í hvað örust-
um vexti í heiminum undanfarinn
áratug og miklar vonir era bundn-
ar við áframhaldandi vöxt hennar.
Island hefur fylgt þeim þróun sem
orðið hefur í greininni og hefur
ferðamönnum fjölgað mikið.
Ferðaþjónusta er orðin önnur
stærsta gjaldeyrisskapandi grein-
in, næst á eftir sjávarútvegi með
um 12% af útflutningsverðmæti
vöru og þjónustu. Fjölmörg at-
vinnutækifæri hafa skapast í ferða-
þjónustu, bæði á höfuðborgarsvæð-
inu og í dreifbýlinu og er áætlað að
á Islandi starfi rúmlega 5.000
manns við ferðaþjónustu.
Náttúran er hins vegar við-
kvæm fyrir ágangi manna og getur
mikill fjöldi gesta leitt til hnignun-
ar umhverfis og félagslegra vanda-
mála. Því þarf að skipulegga og
stjóma ferðamennsku þannig að
komist verði hjá því að eyðileggja
náttúrulegt og manngert um-
hverfi. Leita þarf nýrra sóknar-
færa og nýta þá fjölmörgu mögu-
leika sem við höfum sem allra best.
Á þann hátt getur ferðaþjónustan
orðið sjálfbær atvinnugrein og
haft langtíma markmið að leiðar-
ljósi.
Viðfangsefni ferðamálafræða
tengjast því mörgum sviðum vls-
inda: viðskipta- og markaðssvið-
um, hugvísindum, náttúruvísind-
um, stjómun, skipulagsfræðum og
mannvirkjagerð. Það þarf því að
leita til ýmissa
fræðigreina og
tefla kenningum
og aðferðum
þeirra saman.
Námið í
ferðamálafræð-
um er því byggt
upp af nám-
skeiðum sem
annars vegar
snúa beint að
ferðamálafræðum og hins vegar
hagnýtum grunnnámskeiðum úr
nokkrum deildum og skoram Há-
skólans. Ur raunvísindadeild:
landafræði, jarðfræði og líffræði,
úr viðskipta- og hagfræðideild:
rekstrar-, markaðsfræði og reikn-
ingshald og úr heimspekideild:
námskeið um menningu Islend-
inga. Einhver námskeið verða
kennd í fjarkennslu og í samstarfi
við Háskólann á Akureyri.
Skyldunámskeið verða: úr ferða-
málafræðum; inngangur að ferða-
málafræðum, efnahagsáhrif og
markaðsfræði ferðaþjónustu,
ferðamennska og umhverfi, stjórn-
un og skipulag í ferðaþjónustu.
Námskeið um íslenskar aðstæður;
náttúra íslands, haglýsing og
menning Islendinga. Onnur
skyldunámskeið verða: svæða-
landafræði, umhverfisfræði og
rekstrarhagfræði. Eftirfarandi
námskeið eru valnámskeið (velja
þarf a.m.k. 11 einingar): umhverfi
og skipulag, hagræn landafræði,
byggðalandafræði, svæði og menn-
ing, vistfræði, reikningshald,
markaðsfræði, menning og mark-
aður. Hægt er að fá sendan bæk-
ling með lýsingu á náminu hjá
nemendaskráningu Háskólans,
sími 525 4309, og stendur innritun
nemenda yfir til 4. júní nk. Nánari
upplýsingar er hægt að fá á net-
fanginu annadora@ni.is.
Ný námsleið í
íslensku við HI
Markhópur námsleiðar-
innar er fólk sem hefur
lokið stúdentsprófí,
segir Eiríkur Rögn-
valdsson prófessor, og
hefur áhuga á störfum
þar sem kunnátta og
þjálfun í vandaðri með-
ferð íslensks máls er
nauðsynleg.
í haust hefst ný námsleið í hag-
nýtri íslensku innan íslenskuskorar
heimspekideildar Háskóla Islands.
Námið tekur eitt og hálft ár
(45 einingar) og nemendur út-
skrifast með diplóma. Tungu-
málið er grandvallarþáttur í
mannlegum samskiptum.
Sífellt fleiri átta sig á því að
markviss og vönduð beiting
móðurmálsins skiptir máli á
öllum sviðum upplýsingaþjóðfélags-
ins. Þörf fyrir fólk með trausta und-
irstöðu í meðferð íslensks máls mun
því fara ört vaxandi á næstu árum.
Hinni nýju námsleið er ætlað að
koma nokkuð til móts við þá þörf.
Markhópur námsleiðarinnar er
fólk sem hefur lokið stúdentsprófi
og hefur áhuga á störfum þar sem
kunnátta og þjálfun í vandaðri með-
ferð íslensks máls er nauðsynleg, en
krefjast ekki
djúprar fræði-
legrar þekking-
ar. Þetta þýðir
þó alls ekki að
kröfur til nem-
enda verði minni
en í hinu hefð-
bundna BA-námi
í íslensku, en
þær verða að
nokkra leyti ann-
ars konar. Þau
námskeið sem nemendur taka eru
að hluta til þau sömu og nemendur í
BA-náminu taka en að hluta ný
námskeið sem sérstaklega era búin
til fyrir hina nýju námsleið.
Markmið namsins er að gefa nem-
endum yfirlit yfir meginatriði ís-
lensks málkerfis og þjálfa þá í með-
ferð, framsetningu og frágangi ís-
lensks texta í ræðu og riti. Að loknu
námi eiga nemendur að geta skrifað
villulausan texta, lesið yfir texta og
lagfært stafsetningu og málfar, lesið
prófarkir og leiðrétt með viðeigandi
táknum, flutt mál sitt skýrt og
áheyrilega, með góðri framsögn og
raddbeitingu, samið nytjatexta af
ýmsu tagi svo sem leiðbeiningar,
auglýsingar og kynningarefni.
Nám í hagnýtri íslensku ætti að
henta vel sem undirbúningur fyrir
störf á ýmsum sviðum. Má þar nefna
ýmiss konar fjölmiðlastörf (frétta-
mennsku, greinaskrif, þýðingar,
prófarkalestur), störf við margskyns
textagerð, t.d. hjá auglýsingastofum
og stærri fyrirtækjum, störf hjá út-
gáfufyrirtækjum við yfirlestur
handrita og prófarka, umbrot o.þ.h.,
og hvers kyns ritstörf.