Morgunblaðið - 01.06.1999, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ
-52 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
Ráðgjöf fyrir náms-
og vinnumarkað
Með sérfræðingum í Sérfræðiráði Hollráða er tryggð
fagmennska og sérfræðiþekking á öllum sviðum.
M e ð a l viðfangsefna e r u:
X Áhugasuiðskannanir.
X Handleiðsla - hópráðgjöf, tilfinningaleg úrvinnsla vegna erfiðleika i
starfi, einkalífi. sorgar og/eða áfalla.
X Samskipti á vinnustað, starfsandi og starfshvatning.
X Jtð miðla i töluðu máli - leiðsögn um ræðuflutning og virka þátttöku
i umræðum.
X Atvinna og einkalíf - streitustjórnun og bætt líðan.
X Lífsstill - mataræði, svefn og hreyfing.
X Námstækni - vinnubrögð í námi.
X Leiðsögn vegna atvinnuleitar s.s. framsetning umsókna, atvinnuviðtöl.
X Hönnun og skipulag vinnuumhverfis.
Hollráð • Hellusundi 3 • 101 Reykjavík • Sími 561 2428 • Fax 561 3328 • hollrad@hollrad.is
G
Fjöibrautaskólinn I Garðabæ iSSS
við Skólabraut, 210 Garðabæ, stmi 520 1600, fax 565 1957
Innritun
í Fjölbrautaskólann í Garðabæ fyrir haustönn 1999 er hafin. Boðið er upp ó
nóm fyrir nýnema samkvæmt nýrri aðalnómskró ó þessum braulum:
Bóknám til stúdentsprófs:
Félagsfræðabraul----—
Málabraut ------------ Þessar brnutir hofn fiölmirq kiörsvii
Nátlúrufræíibrauf
fþróttabraut (skv. eldri námsskrá)
Listnám:
Listnámsbraul (myndlisl og fata- og lextílhönnun).
Almennt nám — undirbúningur f/rir annað nám:
Almenn námsbraut
Kjörsvið — mjög fjölbreytt nám!
Á öllum þessum brautum eru kjörsvið (linur) sem nemendur velja sér í lok vorannar órið 2000.
Kjörsviðin bjóða upp á mikla sérhæfingu og dýpkun í námi.
Helstu kjörsvið eru eðlisfræðikjörsvið, kjörsvið erlendra tungumála, kjörsvið fata- og
textílhönnunar, félagsfræðikjörsvið, fjölmiðlafræðikjörsvið, hagfræðikjörsvið,
liffræðikjörsvið, markaðsfræðikjörsvið, myndlistarkjörsvið, sagnfræðikjörsvið,
sálfræðikjörsvið, stærðfræðikjörsvið, tölvufræðikjörsvið o.fl.
Námshestar. Skólinn býður nú upp á sérstaka þjónustu á bóknáms- og listnámsbrautunum fyrir
nemendur með gáðar einkunnir úr 10. bekk (meðaltal skólaeinkunna og einkunna á samræmdum
prófum). Þetta er nýjung í starfi skólans og er byggð á hugmyndinni; hópur — hraði — gæði.
Sami innritunartími gildir fyrir nemendur sem þegar hafa stundað nám ó framhalds-
skólastigi. Þeir halda námi sínu áfram samkvæmt eldri námskrá nema annars sé áskað.
Umsóknir um skólavist skal senda til Fjölbrautaskólans í Garðabæ, við Skólabraut, 210 Garðabæ.
Skrifstofa skólans er opin allo virka daga kl. 8.00—16.00.
Simanúmerið er 520 1600.
Netfang: fg@fg.is
Heimasiða: http://www.fg.is
Þeir sem þess óska geta fengið send umsóknareyðublöð. Umsóknir þurfa að berast skólanum eigi síð-
ar en 4. júni nk. Umsóknum skal fylgja stoðfest Ijósrit af grunnskólaprófi.
Umsóknareyðublöð eru einnig á heimasíðu skólans.
Nómsráðgjafar og stjórnendur eru til viðtals og aðstoða nemendur við námsval.
Hringið og fáið sendan upplýsingabækling um skólann!
Vakin er athygli á því að skólinn starfar í nýju og mjög glæsilegu húsnæði með fullkomnum kennslu-
búnaði, s.s. öflugum tölvum og mjög góðri lesaðstöðu.
Vegna mikillar aðsóknar í skólann er mjög mikilvægt að allar umsóknir verði
sendar beint til Fjölbrautaskólans í Garðabæ í tæka tið.
Skófameistari.
UMRÆÐAN
Vindstyrkur - vindhraði
í DAG, 1. júní, hætt-
ir Veðurstofa Islands
að nota vindstyrksein-
inguna vindstig í veð-
urþjónustunni en mun
þess í stað taka í notk-
un vindhraðaeininguna
metrar á sekúndu, m/s.
Ástæður þessarar
breytingar hafa víða
verið raktar og verða
þær ekki endurteknar
hér. Þar sem menn
gera sér misvel grein
fyrir hvaða samband er
milli vindhraða og
vindstyrks þykir mér
rétt að vekja athygli á
nokkrum viðmiðunum sem auðvelt
er að nota og flestir þekkja, svona
rétt á meðan menn eru að venjast
nýju einingunni. Einnig er vert að
benda fólki á hvar hægt er að fá
greinargóðar upplýsingar um mis-
munandi vindhraðaeiningar og
tengsl þeirra við vindstigin tólf, sem
kennd eru við enska flotaforingjann
Beaufort.
Hægviðri, hafgola
og hávaðarok
Eins og flestir vita hefur hugtak-
ið hægviðri verið notað sem sam-
heiti yflr lognið, andvarann og kulið.
Hér er vindhraðinn allt að 3 m/s., og
fínnum við harla lítið fyrir þeirri
hreyfíngu loftsins. Vindhraðann 5
m/s. merkjum við hins vegar vel,
þótt sú gola sé ekki til ama í flestum
athöfnum okkar.
Allir þekkja síðan hafgoluna sem
mörgum finnst kasta rýrð á sólríka
sumardaga; svalur vindur sem blæs
af hafi og er oftast'á bilinu 6-10 m/s.
Byfyar um eða fyrir hádegi og end-
ist fram yfir kvöldmatartíma og er
sterkust í þröngum fjörðum og döl-
um eins og t.d. í Eyjafirði. Við efri
mörk hafgolunnar eru færaveiðar á
trillum orðnar afar leiðinlegar, rek-
ið mikið og færin beint út í sjó.
Við 15 m/s. er vindur orðinn all-
hvass og til verulegra óþæginda;
þurr mold og sandur er farinn að
fjúka, tjöld farin að berjast mikið og
jafnvel rifna upp og hætta er á að
lausir munir á svölum og í görðum
geti fokið til. Trillur og smærri bát-
ar hafa ekkert að gera á sjó.
Þannig er hægt að
halda áfram upp skal-
ann og þegar komnir
eru 20-25 m/s. eru
flestir famir að tala
um hávaðarok. Slík
veður eru sjaldgæf að
sumarlagi og ættu
menn því ekki að finna
fyrir slíku fyrr en í
haust, nema þá upp á
hálendi þar sem alla
jafna er hvassara en á
láglendi. Ofsaveður
eða stórviðri er síðan
komið þegar vindhraði
fer yfir 30 m/s. Þá eiga
menn ekki að ferðast
meira en brýn nauðsyn ber til enda
má reikna með foktjóni og sköðum
og vindhviður eru stórhættulegar.
Hviðumar varhugaverðar
Þær viðmiðanir sem hér að ofan
hafa verið raktar eiga við um jafnan
Veðurþjónusta
Við erum sannfærð um
að þessi breyting verð-
ur að flestu leyti til
mikilla bóta, segir
Magnús Jónsson, auk
þess að vera í reynd
nauðsynleg aðlögun að
breyttum aðstæðum
ogtækni.
vind eða meðalvind í 10 mínútur.
Ein helsta ástæða þess að nota ein-
inguna m/s. er hins vegar sú, að
með henni er hægt að veita mikil-
vægar upplýsingar um vindhviður
sem standa í nokkrar sekúndur.
Þetta fyrirbæri, sem er afar breyti-
legt í tíma og rúmi og er aðalskað-
valdurinn þegar um foktjón eða slys
er að ræða, hefur hins vegar enga
skírskotun til vindstiganna. Hvið-
umar, þar sem hraðinn getur oft
verið 30-50% meiri en meðalvind-
hraðinn, eru mestar og hættuleg-
astar þegar vindur stendur af fjöll-
um eða þegar loft er mjög óstöðugt
eins og t.d. í dæmigerðum élja-
bólgnum útsynningi að vetrarlagi.
Þess vegna ættu menn að gjalda
varhug við ferðalagi í „skjóli“ fjalla
eins og Esju, Hafnarfjalls eða Eyja-
fjalla, svo nokkur séu nefnd, jafnvel
þótt meðalvindhraði sé 15-20 m/s.
Hviður geta þá hæglega verið yfir
30 m/s. og slíkur vindhraði er orðinn
varasamur vegfarendum.
Upplýsingar víða
Til að kynna þessa breytingu sem
best hefur Veðurstofan reynt að
nýta sér flesta miðlunarmöguleika.
Vefsíða stofnunarinnar, www.ved-
ur.is, hefur að geyma margvíslegar
upplýsingar um þetta mál auk þess
sem vindur hefur um nokkurt skeið
verið gefinn upp í m/s. í flestum
veðurathugunum og á svokölluðum
veðurspáritum á vefsíðunni. Þá hef-
ur stofnunin látið gera lítið hand-
hægt kynningarspjald sem hægt
verður að fá á fjöíförnum stöðum,
auk þess sem töflur um tengsl vind-
hraða og veðurhæðar er að finna í
almanökum og flestum vasabókum
sem margir aðilar gefa út á formi
minnis- eða dagbóka. Þá munu fjöl-
miðlamir flestir, ekki síst dagblöð
og sjónvarpsstöðvar, liðsinna okkur
vel bæði með kynningu og auglýs-
ingum. I textavarpi Sjónvarpsins er
svo hægt að skoða þessa töflu á síðu
168.
Lokaorð
Við á Veðurstofunni gerum okkur
grein fyrir að öllum breytingum
fylgir eitthvert óhagræði meðan
verið er að laga sig að þeim. Hins
vegar erum við sannfærð um að
þessi breyting verður að flestu leyti
til mikilla bóta auk þess að vera í
reynd nauðsynleg aðlögun að
breyttum aðstæðum og tækni. Hin
næstum tveggja alda gömlu vind-
stig hafa þjónað hlutverki sínu vel
og voru reyndar stórkostleg fram-
för og nýjung þegar þau voru tekin
upp. Beaufort-kvarðinn verður því
áfram til þótt notkun hans minnki
nú hratt í takt við öra tækjavæð-
ingu veðurathugana almennt.
Höfundur er veðurstofustjóri.
Magnús Jónsson
*
i Skilafrestur auglýsingapantana I í næsta blað er til kl. 16 miðvikudaginn 2. júní. AUGLÝSINGADEILD
Sfmi: 569 1111 * Bréfasími: 569 1110* Netfang: augl@mbl.is