Morgunblaðið - 01.06.1999, Side 57

Morgunblaðið - 01.06.1999, Side 57
MORGUNB LAÐIÐ SÚSANNA BR YNJÓLFSDÓTTIR Súsanna var fædd á Ytri-Ey á Skagaströnd 6. janúar 1910. Hún dó á Landakotsspít- ala 22. maí síðastlið- inn. Súsanna var dóttir Brynjólfs Lýðssonar bónda og smiðs, sem ættaður var úr Stranda- sýslu, frá Skriðins- Enni, f. 3.11. 1875, d. 27.4. 1970. Móðir Súsönnu var Kristín Indriðadóttir, f. 21.2. 1873, d. 2.5. 1941, dóttir Indriða Jónssonar bónda á Ytri-Ey. Systkini Súsönnu voru: Ind- riði, f. 17.8. 1897, d. 8.12. 1977, sjómaður og verkamaður í Reykjavík; Guðbjörg, f. 12.11. 1898, d. 3.7. 1982, húsmóðir í Reykjavík; Ragnheiður, kenn- ari, f. 22.5. 1901, d. 10.6. 1994; Magnús sjómaður, f. 18.7. 1903, fórst á stríðsárunum, 25.3. 1941; Jóhann, bóndi og sfðar handverksmaður á Akureyri, f. 15.8. 1905, d. 26.8. 1990; Lýður skólastjóri í Vestmannaeyjum, f. 25.10.1913. Súsanna fluttist alfarin að heiman til Reykjavíkur 1932. Vann hún fyrst öll algeng störf, en snéri sér síðan að námi í saumaskap, sem lauk með því að hún fór utan til Ósló og tók þar Diplom próf 11. september 1936 með meistararétt- indi í sníðun og saumi hjá Moes- gaard Til- skærerakademi. Eftir heimkomuna veitti hún forstöðu saumastofu ýmist í eigin nafni eða fyrir aðra til ársins 1942. Hinn 16. desember 1939 giftist hún Ás- geiri Jónssyni fram- kvæmdastjóra og var heima- vinnandi húsmóðir frá 1942. Son eignuðust þau 11. maí 1950, Jón, sem starfar við rekstur þungavinnuvéla. Súsanna var mjög listhneigð og liggja eftir hana mörg frá- bær verk á sviði saumaskapar, einnig fékkst hún við föndur úr leðri og smíðar úr beini. Hún var mjög trúhneigð og starfaði um áratuga skeið í kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar. I sókn- arnefnd Dómkirkjunnar var hún varamaður 1965-1969, en aðalmaður 1969-1977. Súsanna átti við heilsuleysi að stríða hin síðari ár. Útför Súsönnu fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst atöfnin klukkan 13.30. Samkvæmt tímatali okkar er kom- ið vor. Pó andar köldu að norðan og hrollur er í mönnum. Það breytir því þó ekki að þeir fuglar himins, er telja sér hag í því að hafa hér dvöl í skjóli sólar og birtu nokkra mánuði ársins, hafa þegar orpið á þessu kalda landi og sumir þegar kveikt nýtt líf. En á sama tíma fjarar annað líf út. Nú fannst Dúddu frænku tími til kominn að kveðja. Andlát hennar kom eng- um á óvart því hún hafði átt við van- heilsu að stríða undanfarin ár. Alltaf er þó söknuður við ástvinamissi. Sá er þetta ritar hafði sem bam heyrt talað um Boggu frænku og Dúddu frænku auk annarra systkina mömmu. Hann hafði kynnst móður sinni og Boggu frænku og haft allt aðra skoðun á uppeldi sínu en þær. Lögmál prakkara í þá daga var heil- agt. Sjálfsagt hefur prakkarinn haft lélegan verjanda og málstaður verið tæpur því hann tapaði öllum málum fyrir þeim systrum. En þá var ein eftir af systrunum en það var Dúdda frænka. Batt hann miklar vonir við hana. Hann hafði séð mynd af henni og fannst hún bera af þeim systrum að hinum ólöstuðum og hún hafði aldrei dæmt í lögum ólátabelgsins. Svo rann upp sá dagur að von var á Dúddu frænku á „Osinn“ þar sem við bjuggum. Snáðinn hafði heyrt að hún væri búin að festa ráð sitt og nú ætti að sýna manninn og sjá aðra. Guttinn heyrði líka að þau ættu rosa- lega fallega „drossíu". Allt þetta kom á daginn er þau óku í hlað því út úr bílnum steig nett og falleg ung kona. Það var Dúdda frænka. Hún benti á mig í öllum krakkahópnum sem kom til að skoða fína bílinn og sagði: „Þú með miklu krullumar, ert þú ekki sonur Röggu systur?" Ég kvað svo vera og fékk um leið, að ég held, hlýjasta faðmlag sem ég hafði fengið sem barn og ekki nóg með það. I lófann var sett eitthvað sem aðrir máttu ekki sjá. Á nútímamáli heitir sú fæða þeirra Karíusar og Baktusar „nammi“. Ut úr fína bílnum steig ungur, hár og glæsilegur maður sem mér fannst þá of stór og alvörugef- inn íyrir þessa fallegu frænku mína. Sú skoðun átti eftir að breytast eftir að ég varð fullorðinn og ráðsettur maður. Nú er ég svo frakkur að kalla þennan mann vin minn. Ásgeir og Dúdda eignuðust einn son, Jón, sem ásamt sinni yndislegu konu, Þorbjörgu, hafa skilað þeim hjónunum syninum Ásgeiri Jónssyni - augasteininum á Hólavallagötu 3. Við áttum því láni að fagna að búa í nokkur ár í húsnæði sem Ásgeir og Dúdda áttu og undir sama þaki og þau. Þaðan á öll fjölskyldan hugljúf- ar minningar sem ber að þakka. Minningar barna okkar frá Hóla- vallagötu 3 eru sterkar og hafa ekki dvínað eftir að Joau urðu ráðsett og fullorðið fólk. I þeim veislum sem Ásgeir og Dúdda héldu var allt til reiðu enda voru þau höfðingjar heim að sækja. Þá eru þær viðtökur róm- aðar sem gestir fengi hjá þeim í sumarhúsi þeirra, sem ég vil kalla „Paradís". Það er í landi Ásólfsstaða í Þjórsárdal. Þar gefur að líta auka- vinnu þeirra hjóna sem er alveg ótrúleg. Þar er ekki aðeins yndislegt hús heldur hefur skógrækt verið í hávegum höfð því í hana hefur verið lögð mikil vinna. Ég get ekki skilið við Dúddu frænku án þess að minn- ast á hversu dverghög hún var í höndum eins og hún átti ættir til. LEGSTEINAR f rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsl; Verið velkomin til okkar, eða fáið myndalista. H ■HELGAS0N HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410 MINNINGAR Hún var lærð saumakona og marga flikina hefur hún saumað. Hún föndraði einnig með leður og bjó tú skrautmuni úr beinum. Það var sama hvað hún gerði, hún bar af í allri sinni hógværð. Dúdda var trúuð kona þótt hún bæri ekki tUfinningar sínar á torg. Um það geta þeir borið vitni sem nutu starfskrafta hennar við Dómkirkjuna áratugum saman meðan henni entist heUsa. Naut hún þá dyggrar aðstoðar Ásgeirs. Sjálfsagt fyndist frænku minni nóg komið af kroti hrokkinhærða ólátabelgsins sem hún sá forðum daga í „Osnum“. Nú er svo komið að þar sem krullur voru er komin grá slikja og og jafnvel „kalblettir" enda eru árin orðin mörg. Eitt veit ég fyr- ir víst. Þar sem Dúdda frænka nem- ur nú land hlýtur að finnast auður skiki þar sem hún getur sett niður, þó ekki sé nema eina hríslu. Ásgeiri, Jóni og fjölskyldu biðjum við bless- unar guðs. Þráinn, Soffia og börn. Loksins eftir langa og stranga sjúkdómslegu hefur elli kerling lagt að velli móðursystur mína og gamla fóstru Súsönnu Brynjólfsdóttur ætt- aða frá Ytri-Ey í Húnaþingi. Ég missti ung fóður minn og dvaldist því oft hjá Dúddu frænku eins og hún var alltaf kölluð og Ásgeiri Jóns- syni manni hennar. Á stríðsárunum 1940-1945 var reynt að koma sem flestum börnum burt úr höfuðborginni. Dúdda og Ás- geir áttu yndislegan sumarbústað fyrir ofan Ásólfsstaði í Þjórsárdal. Þama dvaldist ég löngum hjá frænku minni við dúkkuleik og drullukökubakstur. Dúdda var afbragðshúsmóðir. Alltaf var gaman í fjölskylduboðun- um hjá henni, um jólin og nýárin og síðast en ekki síst í sumarbústaðnum í beijamó og skógarhöggi. Ég og seinna fjölskylda mín áttum hjá þeim Dúddu og Ásgeiri vísa vist á sumrin og gjaman um verslunar- mannahelgina. Dúdda var lærður kjólameistari frá Noregi og á ég enn marga furðu- lega og falleg kjóla eftir hana. Alltaf fór ég, ef mig vantaði flík, í smiðju til hennar. Þar kom maður aldrei að tómum kofunum. Ég vil að lokum þakka forsjóninni fyrir þessa einstöku frænku. Ég og fjölskylda mín vottum Ás- geiri Jónssyni bæði eldri og yngri ásamt Þorbjörgu og Jóni okkar inni- legustu hluttekningu. Selma Hannesdóttir. Útfararstofa íslands sér um: Útfararstjóri tskur að sér umsjón útfarar (samráði við prest og aðstandendur. - Fiytja hlnn iátna af dánarstað í líkhús. - Aðstoða við val á kistu og likklæðum. - Undirbúa lík hins látna í kistu og snyrta ef með þarf. Útfararstofa íslands útvegar: - Prest. - Dánarvottorð. - Stað og stund fyrir kistulagningu og útför. - Legstaö I kirkjugarði. - Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara og/eða annað llstafólk. - Kistuskreytingu og fána. - Blóm og kransa. - Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum. - Líkbrennsluheimild. - Duftker ef líkbrennsla á sér stað. - Sal fyrir erfidrykkju. - Kross og skllti á leiði. - Legstein. - Flutning á kistu út á land eða utan af landi. - Flutning á kistu til landslns og frá landinu. Sverrir Einarsson, Svenir Olsen, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa fslands - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík. Simi 581 3300 - allan sólarhringinn. ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 57 ^ Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, SÓLVEIG ENGILBERTSDÓTTIR, Stigahlíð 36, lést á Benidorm sunnudaginn 30. maí. Ingvar Hjálmarsson, Arndís Gná Theodórs, Sveinbjörn Hjálmarsson, Þóra Benediktsdóttir, Ásbjörg Hjáimarsdóttir, Karl Hjálmarsson, Sigríður Pálsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓFEIGUR ÓLAFSSON húsgagnasmíðameistari, Mávahlíð 21, Reykjavík, andaðist á heimili sínu sunnudaginn 30. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðrún H. Gissurardóttir, Erla Ófeigsdóttir, Ingvar Pálsson, Ólafur Ófeigsson, Ragnhildur Björnsdóttir, Gísli Ófeigsson, Guðrún Bjarnadóttir og fjölskyldur. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HAUKUR HALLGRÍMSSON málarameistari, Kirkjusandi 5, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugar- daginn 29. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Ásta Jenný Guðlaugsdóttir, Marta Hauksdóttir, Brandur Gíslason, Halla Hauksdóttir, Baldur J. Baldursson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SNORRI SVEINN FRIÐRIKSSON myndlistarmaður, Þverási 55, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánu- daginn 31. maí. Dagný Gfsladóttir, Orri Snorrason, Styrmir Snorrason, Hjörný Snorradóttir, tengdabörn og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, BJARNI PÁLL ÓSKARSSON, Eyrartúni 6, Sauðárkróki, lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 28. maí. Jarðarförin ferfram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 5. júní kl. 14.00. Sólborg Júlíusdóttir, dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir minn, tengdafaðir og bróðir, EMIL NICOLAI BJARNASON, lést föstudaginn 21. maí. Jarðarförin hefur farið fram. Jón Nicolai Bjarnason, Rina Bjarnason, Gunnhildur I. Bjarnason, Sigríður Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.