Morgunblaðið - 01.06.1999, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 59
MINNINGAR
MATTHÍAS SVEINN
VILHJÁLMSSON
inn hans var betri en nokkurt sæl-
gæti. Þegar kom að því að við fær-
um aftur suður fylgdi yfirleitt bögg-
ull með harðfiski með okkur og
stundum hákarl að auki, en Matti
verkaði hákarl í mörg ár.
Margar Ijúfar minningar tengj-
ast góðum stundum með þeim
hjónum í sumarbústað í Borgar-
firði og þegar við fórum eitt sumar
norður í Grímsey og Matti veiddi
þar lunda í háf. Og þegar þau
heimsóttu okkur til Kaupmanna-
hafnar sumarið sem Unnnur dóttir
okkar fæddist.
Ég hitti Matta síðast nú um pásk-
ana er flest bömin hans og tengda-
böm vom saman komin á Isafirði.
Þá var hann orðinn mjög sjúkur og
ljóst að hverju stefndi, en þó var
stutt í glaðværðina sem var honum
svo eðlislæg. Ég er þakklátur fyrir
að hafa fengið að kynnast svo góð-
um manni sem hann var og votta
Guðrúnu og öllum aðstandendum
mína dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Matthíasar
Vilhjálmssonar.
Erlendur Geirdal.
tMatthías Sveinn
Vilhjálmsson
fæddist á ísafirði
hinn 9. desember
1933. Hann lést á
Fjórðungssjúkra-
húsi Isaijarðar 18.
maí síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Isafjarðarkirkju
29. maí.
Með söknuði og hlý-
hug vil ég minnast
tengdafóður míns,
Matthíasar Vilhjálms-
sonar, sem nú er látinn
langt um aldur fram. Ég kynntist
Matta þegar ég kom inn í fjölskyld-
una fyrir rúmum þrettán árum. Frá
fyrstu tíð tók hann mér vel og alla
tíð síðan fann ég fyrir umhyggju
hans og góðvild í okkar garð. Matti
var traustur heimilis-
faðir sem lét fjölskyld-
una ganga fyrir öllu.
Og hann kunni best við
sig heima, við hlið eig-
inkonunnar Guðrúnar
Valgeirsdóttur, sem
alla tíð stóð við hlið
hans eins og klettur.
Það er sárt til þess að
hugsa að svo samlynd
hjón skuli ekki fá að
njóta saman ævikvölds.
Mér eru minnisstæð-
ar allar heimsóknirnar
okkar Kolbrúnar og
dætra okkar til for-
eldra hennar vestur á ísafjörð.
Börnin hændust að afa sínum, hann
spilaði við þau og þau lærðu fljótt að
afi var bestur. Það var líka eftir-
sóknarvert að fá að sitja við hlið
hans í vörubílnum. Og harðfiskur-
JÓHANN ÞÓRIR
*
Ástvinum hans færi ég innilegar
samúðarkveðjur.
‘SLU&ííí' *,
Ég vil yrkja um Jóhann Þóri,
ég vil þakka kynni góð.
Hetjukarlinn hugumstóri
horfinn er af lífsins slóð!
Oftast þreytti hann ævitaflið
undirlagður tímaþröng.
Sparað gat hann aldrei aflið,
ör við störfm vökulöng.
Akveðinn með orku í taugum
óð hann fram og leysti mál.
Galvaskur með eld í augum
uppkveiktan frá heitri sál!
Hann var frjór í eðh og anda,
ávallt til í næsta leik.
Verkin hans sem vörður standa,
víða glæddi hann loga á kveik!
Hugsjónum sín vopn hann vígði,
vanur margri orrahríð.
Lífs á velli dáðir drýgði,
drengur góður alla tíð!
(Rúnar Kristjánsson.)
Rúnar Kristjánsson,
Skagaströnd.
JONSSON
Blómastofa
Fridjtnns
Jiii 11 IIIIl miir
h
h
H
Erfisdrykkjur
A N
Sími 562 0200
ar hugsjónir hans
voru annarsvegar.
Mörgum varð hann að
liði og oft var honum í
litlu launað og stund-
um mátti hann þola
þungar raunir, en
alltaf stóð hann á því
að mannfólkið væri
gott, þegar öll kurl
kæmu til grafar. Það
þyrfti aðeins að leita
af gullinu í hverjum
og einum og hirða
minna um hitt sem
síðra væri. Jóhann
Þórir gat þar trútt um
talað, því gullið í honum var auð-
fundið.
Ég kveð hann með einlægri virð-
ingu og sakna þess mjög að hans
hressi tónn hljómar ekki lengur yf-
ir skákborði lífsins. Fari hann í
friði.
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöid
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
+ Jóhann Þórir
Jónsson fæddist
21. október 1941.
Hann lést 2. maí síð-
astliðinn og fór út-
för hans fram frá
Langholtskirkju 10.
maí.
Jóhann Þórir er lát-
inn! Það er ótrúlegt að
þessi kraftmikli hug-
sjónamaður sé horfinn
úr heimi svo langt um
aldur fram. Hann var
á margan hátt ein-
stakur maður, næmur
á strengi mannlífsins og náttúru-
barn í eðli sínu. Ég kynntist hon-
um og hreifst af fjörmiklu hugar-
flugi hans og lifandi sýn til fortíðar
og framtíðar. Hann var íslenskur í
sál og sinni og hugsun hans var
víðfeðm, eins og Útsær Einars
Benediktssonar, sem hann mat
öðrum ljóðum framar. Skákmenn-
ingarleg afrek Jóhanns Þóris eru
þjóðkunn og sýna glöggt hvílíkur
maður hann var að afköstum, þeg-
LEGSTEINAR
f Qraníf
í RFT I TTHR ATTXT 14
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
HEIMASÍÐA: www.granit.is SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629
Legsteinar
Lundi
v/Nýbýlaveg
SOLSTEINAK 564 3555
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
EIRÍKUR ODDSSON,
Hlíðargerði 23,
er látinn.
Guðmunda K. Þorgeirsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Útför mannsins míns,
SIGURJÓNS JÓNSSONAR,
Vatnsendabletti 18,
Kópavogi,
fer fram frá Bústaðakirkju í dag, þriðjudaginn 1. júní, kl. 13.30.
Elín Stephensen
og aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURÐUR ÁRNASON,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 3. júní kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hins látna, er bent á
Skálatúnsheimilið.
Guðrún Kolbrún Jónsdóttir,
Árni B. Sigurðsson,
Sigurður Þór Sigurðsson,
Þóra K. Sigurðardóttir,
Rut Sigurðardóttir,
Sturla Sigurðsson,
Álfheiður Erla Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and
lát og útför föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
bakarameistara,
Skólastíg 14,
Stykkishólmi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Fransiskus
spítala í Stykkishólmi og Dvalarheimilis aldr
aðra.
Ingveldur Sigurðardóttir, Þór Hróbjartsson,
Skúli Sigurðsson,
Óiafur Sigurðsson, Eyrún Birgisdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okk-
ur samúð og vináttu við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR ÁGÚSTSDÓTTUR
frá Kirkjubæ,
Eskifirði.
Sérstakar þakkir til þess góða fólks, sem
annaðist hana síðustu árin á hjúkrunarheimil-
inu Ljósheimum, Selfossi.
Katrín Ingvarsdóttir, Kristinn Guðnason,
Júlíus Kr. Ingvarsson, Þóra Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý
hug við andlát og útför
KRISTINS RUNÓLFSSONAR,
Hraunteigi 26,
Reyhjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu
í Reykjavík.
Guðbjörg Eiríksdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.