Morgunblaðið - 01.06.1999, Síða 64
y 64 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
YOU KN01a),CHARLIE 0ROU)N,
BA5EBALL 15 A REAL
TMINKIN6 6AME..
I WAS JU5T THINKIN6
MOU) DIFFERENT THI5
lOORLP MI5HT BE IF
BEETHOVEN HADMARRIEP
ANTONIE BRENTANO..
BUT,TMEN,U)HAT IF
HE HAP MARKIEP
ÖIOLIETTA 6UICCIARPI?
I JU5T PON'TKNOU)
CATCHER5 HAVE
TOO MUCH TIME
TOTHINK..
Þú veist, Kalli Bjarna,
hafnabolti fær mann
til að hugsa...
Ég var að hugsa um hve
heimurinn gæti verið allt
öðruvísi ef Beethoven hefði
gifst Antonie Brentano..
En hvað ef hann hefði
gifst Giulietta Guicciardi?
Ég veit það bara ekki
Gríparar hafa of
mikinn tíma
til að hugsa..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Mannréttindi
- að reykja ekki
Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
LESENDABRÉF í JP Köbenhavn
28. apríl 1999, frá Bo Larsen, Nan-
sensgade 31,1366 Köbenhavn K.
Kæri sjúkrahúsnotandi!
Ég heimsótti þig í dag og sá að þú
hafðir enn á ný verið lagður inn til
rannsóknar á krabbameini því, sem
að þér er. Það krabbamein hefur á
liðnum tveimur árum etið sig inn í
þig og skilið eftir sig augljós merki.
Við hlið þér í öðru hvítu sjúkra-
rúmi lá ungur maður, sem nýlega
var skorinn upp. Guð var ekki jafn
gjöfull við ykkur tvo. Hann var
fæddur með líkamlegan ágalla, sem
þú þurftir ekki að bera, þegar þú
varst ungur. Hann á erfítt líf, en lifír
áfram. Hann berst íýrir því, sem lífíð
hefur kennt honum. Hann vill ná því
besta út úr því, jafn lengi og hægt er.
En þú neytir allra bragða til að
minnka lífsmöguleika þína. Þú
breytir jafnvel ekki lífsvenjum þín-
um eftir fjórða uppskurðinn!
Ungi maðurinn við hlið þína getur
ekki leyft sér þau „mannréttindi"
og lúxus að byrja að reykja. Sjúk-
leiki hans dræpi hann auðveldlega,
áður en að þvi kæmi. Er ekki und-
arlegt, hversu ólík við erum? Einn
er á verði um líf sitt, en öðrum virð-
ist standa á sama um það.
Eigum við að haga okkur á annan
veg og bjóða þeim, sem i raun og
veru vilja lifa, betri umhyggju, en
þeim líknarmeðferð, sem stendur á
sama?
Já, hvers vegna spyr ég þig? Er
það ekki þannig, sem við högum
okkur í voru litla landi? Við tökum
frá þeim, sem mest hafa, og réttum
þeim, sem minnst hafa.
En mín eiginlega spurning til þín,
kæri sjúkrahúsnotandi, er: Getum
við haft sama háttinn á í sjúkrahús-
geiranum?
Við tökum frá þeim, sem eiga nóg
eftir af lífinu, en gefum þeim sem
minna eiga eftir af þvi.
Ofanritað varð til, eftir að ég tók
að hugleiða alvarlega umsögn, sem
sjúklingur á Ríkisspítalanum lét frá
sér fara í blaðinu „JP Köbenhavn"
fímmtudaginn 22. apríl 1999: „Það
eru „mannréttindi að reykja“. Jæja,
gott og vel, en eru það þá ekki
mannréttindi að vera laus við reyk-
ingar? (Auðunn Bragi Sveinsson
snaraði.)
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON,
Hjarðarhaga 28, Reykjavík.
Máttur
fjölmiðlanna
Frá Ólafi H. Hannessyni:
NÚ hafa Manchester United unnið
bæði Englandsmeistaratitil og bik-
arkeppnina í knattspymu og eiga
það eflaust skilið. Þeir eru með eitt
af bestu liðum Englands og spila
fallega og árangursríka knatt-
spyrnu, ef Roy Keane er undanskil-
inn, sem er að öðrum ólöstuðum,
einhver grófasti leikmaður sem sést
á vellinum. Hann hefur þó aldrei
fengið rauða spjaldið ef ég man rétt
og þykir mörgum það furðulegt.
Sumir segja að dómararnir þori
ekki að reka fyrirliða United út af,
slík er yfirburðastaða
Manchesterliðsins í fjölmiðlum.
Velta United skiptir milljörðum og
nálgast íslensku fjárlögin, svo menn
sjá að þeir eru ekkert lamb að leika
sér við.
Þegar Manchester United léku
við Tottenham í síðasta leik um
meistaratitilinn og sigruðu með
tveimur mörkum gegn einu, voru
það ekki rétt úrslit. Þegar Beckham
skoraði jöfnunarmarkið var gróf-
lega brotið á einum liðsmanna
Tottenham áður en boltanum var
spymt til Beckhams, sem skoraði. A
síðustu mínútum leiksins sleppti
dómarinn augljósri vítaspyrnu á
Manchester United, þar sem bolt-
anum var sparkað af 7-8 metra færi
í hönd eins leikmanns Manchester
United og það er mikið lengra færi
en dómarar hafa leyfi til að meta
sem „playing distance“ sem er 6 fet
eða tæpir tveir metrar að hámarki.
Af hverju sleppti dómarinn víta-
spymunni og af hverju sýndi hvor-
ug sjónvarpsstöðin atvikið ekki aft-
ur í endursýningu, eins og venjan er
í slíkum tilfellum? Hvað hafa marg-
ar vítaspyrnur verið dæmdar á
Manchester United á heimavelli
þess á undanförnum ámm, miðað
við önnur félög? Það gæti orðið
skemmtileg tölfræði.
Einn besti dómari Bretlands, ef
ekki Evrópu, Ellery, átti að dæma
leikinn en boðaði forföll eftir stans-
lausar árásir á sig í fjölmiðlum,
bæði frá Ferguson framkvæmda-
stjóra Manchester og ljósvakamiðl-
um Murdock, sem á Sky-sjónvarps-
veldið og er að reyna að kaupa
Manchester United. Astæðan fyrir
þessum fólskulegu árásum var sú,
að dómarinn leyfði sér að dæma
vítaspyrnu á Manchester United og
rak Dennis Irwin út af í leik á móti
Arsenal.
Svona er nú knattspyrnan, en
maður veltir oft vöngum eftir á. ís-
lenskir fjölmiðlamenn í lofti og á
láði sem fjalla um iþróttir era mjög
góðir og hæfir, en af hverju segja
þeir ekki sannleikann þegar
Manchester United á í hlut? Ég trúi
því ekki að annarleg sjónarmið ráði
fór en hvað þá?
ÓLAFUR H. HANNESSON,
Snælandi 4, Reykjavík
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.