Morgunblaðið - 01.06.1999, Side 69

Morgunblaðið - 01.06.1999, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 69 FÓLK í FRÉTTUM Nr. i var vikuri Mynd i Otgefandi Tegund 1. i 1. 3 i Ronin i Warner myndir Spenna 2. ; 2. 2 i Holy Mon i Sam myndbönd Gaman 3. : NÝ 1 : Negotiotor | Warner myndir Spenna 4. : 3. 3 : Primary Colors i Skífan Gaman 5. i 4. 2 ; Antz ! CIC myndbönd Gaman 6. i NÝ 1 i Rounders ! Skífan Spenna 7. i 9. 2 i Pleosantville i Myndform Gaman 8. i 15. 2 i Fear and Loathing in Las Vegas i Sam myndbönd Gaman 9. i 8. 5 jldxi ! Hóskólabíó Spenna 10.: 6. 6 : Truman Show : CIC myndbönd Goman 11.: u. 4 j Divordng Jack : Stjörnubíó Spenno 12.: 5. 8 : There's Something About Mary i Skífan Gaman 13. i 7. 7 i Snake Eyes i Sam myndbönd Spenna 14.'; 12. 5 i Thunderbolt i Skífan Spenna 15.! 13. 3 i In the Company of Men i Hóskólabíó Gaman 16. i 19. 3 i Clay Pigeons i Myndform Spenna 17. i NÝ 1 i Your Fríends and Neighbors : Hóskólabíó Gaman 18. i NÝ 1 : Dead Man on Campus : CIC myndbönd Gaman 19.: 10. 11 : Out of Sight i CIC myndbönd Gaman 20.: 18. 5 1 DirtyWork i Warner myndir Gaman Ronin á toppnum aðra vikuna í röð SPENNUMYNDIN Ronin trónir enn á toppi listans aðra vikuna í röð en fast á hæla henni kemur gamanmyndin Hans Heilagleiki með Eddie Murphy í aðalhlutverki. Ný mynd er í þriðja sætinu, spennumyndin Samningamaðurinn með Samuel L. Jackson í aðalhlut- verki. Þrjár aðrar nýjar myndir eru á lista vikunnar, þær Rounders með Matt Damon og Edward Norton í aðalhlutverkum, Vinir þínir og nágrannar og Látinn mað- ur á skólalóðinni. VINSÆLUSTU jyiYNDBÖNDIN A ISLANDI P „Erum í sjöunda himniu HLÝJAR móttökur biðu íslensku Evróvision keppendanna við heim- komuna seint á sunnudagskvöld. Markús Öm Antonsson Útvarps- stjóri og Sigurður Valgeirsson dag- skrárstjóri innlendrar dagskrár- deildar Sjónvarpsins færðu Selmu Bjömsdóttur söngvara íslenska lags- ins „All Out of Luck“ og hinum að- standendunum hamingjuóskir og blómvendi og lýsti Útvarpsstjóri yfíi’ ánægju sinni með árangur íslenska liðsins. Björn Bjamason menntamálaráð- herra sagði í samtali við Préttavef Morgunblaðisins á sunnudagsmorg- un, að sér hefði þótt keppnin mjög spennandi og að hann væri mjög stoltur af Selmu og félögum. Sagðist hann hafa náð tali af liðsstjóranum á laugardagskvöld til að geta óskað ís- lensku keppendunum persónulega til hamingju. Vorum í stanslausum viðtölum Pjöldi fréttamanna beið komu ís- lensku Evróvision keppendanna í Leifsstöð við heimkomuna og í sam- tali við blaðamann Morgunblaðsins sagðist Selma Björnsdóttir vera orð- in reynslunni ríkari eftir Evróvision keppnina eftir að hafa komið fram fyrir framan hundruð milljónir áhorfenda, auk þess að hafa hlotið mikla fjölmiðlareynslu. „Maður öðlaðist mikla fjölmiðla- reynslu eftir þennan tíma. Við vorum í stanslausum viðtölum og ég var far- in að tala ensku við íslendingana eft- ir þrjá daga,“ sagði Selma og hló. „Okkur fannst líka gott að fá við- brögð á lagið sem voru mjög góð,“ bætti hún við. Aðspurð sagði hún að þrátt fyrir Sigurlag- ið stolið? SÆNSKA sigurlag söngva- keppni evrópskra sjónvarps- stöðva, „Take me to your heaven“ í flutningi sápuóp- erustjömunnar Charlotte Nilsson er eignað þeim Lars Didriksson lagahöfundi og Gert Lengstrand textahöf- undi. En á mánudag birtist í þýska blaðinu Bild frétt þess efnis að lagið væri stolið og að raunverulegur höfundur þess væri Þjóðverjinn David Brandes. Hann segist ætla að útkljá málið fyrir rétti. Brandes samdi árið 1997 lagið „Out of the Blue“ og segir að það sé svo líkt laginu sem Charlotte flutti í Jer- úsalem að hægt sé að tala um sama lagið. Að því er fram kemur í blaðinu flutti hljóm- sveitin Bad Boys Blue lagið „Out of the Blue“ í Skandin- avíu en það náði platínusölu á sínum tíma. Samkvæmt reglum keppn- innar má á úrslitakvöldinu „aðeins flytja verk sem hafa ekki verið gefin út á nótum, plötu, sem hluti af plötu, snældu, geisladiski, kvik- mynd eða myndbandi o.s.frv. íyir en eftir 1. janúar 1999“. Þar sem David telur sig eiga upptöku af laginu fyrir þann tíma gæti sænska lagið verið ólöglegt í Eurovision. Á móti kemur að höfundarréttarmál þykja erfið viðureignar því lítið þarf að breyta lagi svo það teljist orðið nýtt lag. En hvort Islendingar yrðu þá dæmdir sigurvegarar í keppninni er alls óvíst því sú staða hefur aldrei áður komið upp f keppninni. Akveðin sjónvarpsnefnd þátttökuland- anna þyrfti að skera úr um málið og ákveða refsingu seka landsins sem gæti þýtt bann við þátttöku árið á eftir. Morgunblaðið/Ámi Sæberg SELMU Björnsdóttur og félögum var vel fagnað við heimkomuna á sunnudagskvöld eftir frammistöðuna í Evróvision keppninni. að spenna hefði ríkt meðal keppenda á meðan stigatalningin fór fram hefði stemmningin meðal þeirra alls ekki borið nokkum keim af flokka- dráttum í kringum íslenska og sænska lagið sem lengi vel börðust uhfi fyrsta sætið uns sænska lagið skreið fram úr því íslenska á loka- sprettinum. „Það voru allir í mjög góðu stuði og fógnuðu hver fyrir öðrum og það var mjög fínn mórall," sagði hún. Aðspurð sagði Selma að flytjend- um lagsins hafi tekist best upp í sjálfri keppninni á lokakvöldinu í samanburði við undangengin rennsli, sem tókust einnig vel og sagðist hún ennfremur vera meira en sátt við úr- slitin sjálf. „Við vorum að vonast eftir 100 stigum og fengum 146 stig, sem er besti árangur Islands hingað til og annað sætið í þokkabót, þannig að við erum alveg í sjöunda himni.“ Selma sagði það hafa komið sér einna mest á óvart allt það fjölmiðla- fár, sem geisaði vegna keppninnar þar ytra og sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir umfangi keppninnar. Þegar Selma var spurð hvort hún hefði kynnst einhverju eftirminni- legu fólki í Jerúsalem minntist hún á nokkra Breta sem urðu einlægir að- dáendur íslendinganna. „Ég kynntist þremur Bretum þarna, sem voru alveg stórkostlegir. Þeir voru frá breskum útvarpsstöðv- um og þeir voru okkar mestu aðdá- endur og fóru með íslenska fánann hvert sem þeir fóru og ég mun verða í sambandi við þá áfram,“ sagði Selma. Plötusamningur í vikunni Að sögn Steinars Bergs forstöðu- manns tónlistardeildar Skífunnar verður lokið við plötusamning milli Selmu og erlends plötuútgefanda í þessari viku, á grundvelli mark- aðsvinnu sem staðið hefur alllengi yfir og er einnig tilkominn vegna ár- angurs Selmu í Evróvision. Ekki fékkst þó uppgefið hvaða útgefanda hér um ræðir. Steinar sagði að vinnan við að V/SA VAKORT Eftirlýst kort nr.: 4543-3700-0022-1781 4543-3700-0027-9888 4507-4300-0022-4237 4507-4500-0026-7523 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Islandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 fyrir að klófesta kort og vísa á vágest VISA ISLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. auka veg Selmu á framabrautinni, helgist ekki eingöngu af því að selja eitt Evróvisionlag, heldur af því að byggja upp feril hennar til lengri tíma og að fleiri lög í hennar flutn- ingi og geislaplata með henni komi út á þessu ári. Hann sagði að ferill allt of margra listamanna sem gert hafa það gott í Evróvision hafi því miður einkennst af því að árangrinum hafi einungis verið fylgt eftir með einu lagi sem hafi hljómað um heimsbyggðina í fá- einar vikur en síðan hafi ekki heyrst meira frá viðkomandi. „Það sem við erum að reyna að gera er að byggja upp feril Selmu til lengri tíma og ef það gengur ekki í tengslum við Evróvision, þá gengur það í tengslum við þær forsendur sem lögðum af stað með upphaf- lega,“ sagði Steinar Berg. Evróvision keppendum vei fagnað við heimkomuna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.