Morgunblaðið - 01.06.1999, Side 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MYNPBÖNP
j Vönduð
fjölskyldu-
mynd
Mikilmennið
(The Mighty)___________
II r a m a
★★★'A
Framleiðendur: Jane Startz og Simon
Fields. Leikstjóri: Peter Chelsom.
Handrit: Charles Leavitt. Byggt á
skáldsögu Rodman Philbrick. Kvik-
^ myndataka: John De Borman. Aðal-
hlutverk: Sharon Stone, Kieran Culk-
in og Elden Henson. (97 mín) Banda-
ríkin. Skífan, maí 1999. Öllum leyfð
MIKILMENNIÐ er gerð eftir
vinsælli bamabók eftir Rodman
Philbrick og fjallar um vináttu
tveggja drengja sem eru algerar
andstæður hvað vitsmuni og líkams-
byggingu varðar.
Annar er risavax-
inn og treggáfað-
ur en hinn líkam-
lega vanþroskaður
og bráðskýr. Báð-
ir eru útskúfaðir
af jafnöldrum sín-
um en saman
mynda þeir sterka
heild sem fleytir
þeim áfram í harðri lífsbaráttunni.
Hér er á ferðinni kvikmynd sem
óhætt er að segja að beri höfuð og
herðar yfir þann gæðastaðal sem
rfkjandi er í gerð bandarískra fjöl-
skyldumynda. Kvikmyndin kallast
skemmtilega á við skáldsöguformið
og kemur jafnframt til skila ákaf-
lega djúpri og innihaldsríkri sögu
um mannleg samskipti, ljósar og
' dökkar hliðar tilverunnar. Leik-
stjórinn hefur góða stjóm á dramat-
ískri uppbyggingu og nær að hrífa
áhorfandann án þess að fara út í
óhóflega væmni. Traustir leikarar
leggja sinn skerf til heildarinnar, en
þar standa þau Kieran Culkin
(yngri bróðir Macaulay úr Aleinn
heima), Elden Henson og Sharon
Stone uppúr. Mikilmennið er vönd-
uð og hjartnæm kvikmynd sem á
erindi við böm jafnt sem fullorðna.
Heiða Jóhannsdóttir
FÓLK í FRÉTTUM
JOHN Wayne í Óskarsverðlaunaham sem
hinn eineygði, ölkæri og illskeytti Roost-
er Cogburn marskálkur í True Grít.
ALRIKISLÖGREGLUMAÐURINN Lloyd Nolan hvetur sína menn til dáða í The House On 92nd Street.
HENRY
HATHAWAY
HANN hafði það orð á sér að
vera illvígasti og kröfuharðasti
leiksljóri HoIIywood þegar kom
að leikurunum, jafnframt einn sá
áreiðanlegasti og gifturikasti
hvað snerti gæði og velgengni
rnyndanna. A einum lengsta ferli
leikstjóra í allri kvikmyndasög-
unni gerði hann hartnær 70
myndir. Henry Hathaway
(1898-1985) gekk snemma til liðs
við iðnaðinn í Hollywood. Móðir
hans var leikkona og stráksi
fylgdi henni gjarnan til vinnu
sinnar í kvikmyndaverunum. Það
leiddi til þess að hann var sjálfur
farinn að taka að sér smáhiut-
verk á fyrsta áratug aldarinnar.
Síðan tóku við störf bak við
myndavélarnar, þar kunni hann
fljótlega betur við sig og eftir
herþjónustu í fyrra stríði varð
hann einn eftirsóttasti aðstoðar-
leikstjóri borgarinnar.
Sem slíkur starfaði hann allan
þriðja áratuginn, ósjaldan með
mönnum á borð við Josef von
Sternberg og Victor Fleming.
Öfugt við aðstoðarleikstjóra í
Evrópu, sem starfa náið með að-
alleikstjóranum, er hlutskipti
þeirra bandarísku frekar í ætt
við verkstjórastarf á tökustað og
hefur lítið að gera með hina
skapandi hlið kvikmyndagerðar-
innar. Sú reynsla, sem Hathaway
fékk á þessum árum, nýttist hon-
um einkar vel, hann þótti með
traustustu og kunnáttusömustu
mönnum sinnar stéttar, gerði
sjaldan eða aldrei umtalsverð
mistök, myndir hans hinsvegar
undantekningarlitið vel og oft
langt yfir meðallagi. Hinn afger-
andi, persónulegi stíll Hathawa-
ys, sú afdráttarlausa og skilvirka
nálgun sem yfirleitt einkennir
myndir hans, skapast að miklu
leyti af ákveðinni notkun töku-
vélanna, sem hann notar gjarnan
líkt og klippiborð. Atriðin yfir-
leitt fastmótuð af þessari bein-
skeyttu notkun. „Það liggur
grundvailarástæða að baki hvers
atriðis," sagði hann einhvem
tíma, „drífðu þig á braut um leið
og þú hefur fangað það. Þetta er
spurning um tímasetningu og að
koma því frá sér sem manni ligg-
ur á hjarta og forða sér síðan frá
utanaðkomandi áhrifum“.
Það liggur kannski ekki eftir
Hathaway neitt hinna óumdeilan-
legu snilldarverka kvikmynda-
sögunnar, en maðurinn var ein-
stakur fyrir óslitna röð hágæða-
mynda á ferli sem spannaði yfir
Qörutíu ár. Það hefur enginn
leikið eftir. Hann hóf leikstjórn-
arferilinn hjá Paramount á
íjórða áratugnum en eftir mis-
sætti flutti hann til 20th Century
Fox, þar sem hann vann nánast
sleitulaust síðan. Hélt velli langt
framá sjöunda áratuginn. Þegar
leikstjórar af hans kynslóð hurfu
unnvörpum af sjónarsviðinu og
settust í helgan stein - ekki síst
vegna breytinga hjá kvikmynda-
verunum - stýrði Hathaway
þremur af sínum vinsælustu
myndum: How the West Was
Won (‘62), The Sons ofKatie Eld-
er (‘65) og True Grit (‘69). Hann
sagðist þó aldrei hafa hafnað
handriti hjá Fox (breytti þeim
frekar eftir eigin höfði), því voru
myndir hans af margvíslegaum
toga. Ekki minnist þessi afkasta-
maður þess að hafa átt eitt ein-
asta vansælt augnablik við störf
sín.
Á fyrstu leikstjórnarárunum
fékkst Hathaway einkum við B-
vestra með Randolph Scott,
gerða eftir sögum Zane Grey. A-
myndir tóku fljótlega við, þeirra
á meðal nokkrar með Gary
Cooper, sem þá var að ná miklum
vinsældum. Ein þeirra, The Lives
ofBengal Lancer (‘35), var til-
nefnd sem besta mynd ársins og
Hathaway sem besti leikstjórinn.
Þá var röðin komin að Peter
Ibbetson (‘35), Ijóðrænu, róman-
tísku drama á allt öðrum nótum
en fyrri myndir hans. Hathaway
komst eigi að síður mjög vel frá
sínu, en sneri aldrei aftur að
slíku verkefnavali. Þeir Cooper
héldu áfram samstarfinu, m.a. á
höfum úti í myndinni Soul At Sea
(‘37).
Orðstír Hathaways jókst til
mikilla muna með vestranum
The Trail ofthe Lonsome Pine
(‘36), fyrstu myndinni sem var
raunverulega tekin í lit á töku-
slóðum. Hefðbundin saga af
gamla skólanum með Henry
Fonda og Sylviu Sydney, og varð
fyrsta litmynd sögunnar til að
njóta umtalsverðra vinsælda. Nú
var Hathaway búinn að ávinna
sér traustan orðstír sem Qölhæf-
ur og dugandi kvikmyndasmiður
og leiðin lá til Darryls F. Zanuck
og Johns Wayne hjá Fox. Fyrsta
samstarfsverkefni þeirra félaga
af mörgum var Home in Indiana
(‘44). í kjölfarið fylgdu íjölmarg-
ar (oftast svart/hvítar) stríðs-
myndir og spennumyndir, sem
hann leikstýrði framá sjötta ára-
tuginn.
Beinskeyttur stíll Hathaways
hentaði einkar vel nýjustu sveifl-
unni í kvikmyndaborginni -
spennumyndum teknum á vett-
vangi atburðanna. Fyrst var The
House on 92nd Street (‘45),
frumraun leikstjórans við fílm
noir formið. Þá kom James
Cagney í Thirteen Rue Madel-
eine (‘46), gerð til heiðurs helju-
dáðum OSS herdeildanna í
HENRY Hathaway (lengst t.v.) að störf-
um ásamt Paul Dougla (í miðju) og Ric-
hard Basehart í Fourteen Hours.
seinna stríði. Kiss ofDeath (‘47)
er af mörgum talin í hópi bestu
rökkurmynda sögunnar. í Caii
Northside 777 (‘48) hélt hann sig
enn í myrkri veröld glæpa, hélt
með James Stewart og öðrum úr-
valsmannskap norður til Chicago
og þykir nota tökuslóðirnar
óhemju vel. Fourteen Hours (‘51)
er athyglisverð og vel gerð mynd
um mann sem hyggst fremja
sjálfsmorð og velviljaðan
lögreglumann sem letur
hann verknaðarins. Ric-
hard Basehait og Paul
Douglas fara báðir á kost-
um í aðalhlutverkunum.
Niagara (‘52) er spennu-
mynd í anda Hitchcocks
og ein af bestu myndun-
um á brokkgengum ferli
Marilyn Monroe. Vett-
vangsleikstjórinn Hat-
haway fór víða um lönd
með mannskapinn sinn.
The Black Race (‘50),
Seven Thieves (‘60) og
Circus World (‘64) voru
allar teknar í Evrópu,
White Witch Doctor (53) í
svörtustu Afríku.
Líkt og upphafið snerist
lokaþátturinn á ferli Hat-
haways mest um villta
vestrið, og John Wayne
kom mikið við sögu í
hverri aðsóknar- og stór-
myndinni á eftir annarri.
Það fór vel á því. Kvik-
myndahúsagestir minnast
Hathaways ekki síst fyrir
að vera einn aðal-leið-
sögumaður og arkitekt
þess villta vesturs sem tók hug
manns allan á unglingsárunum,
með sinum heillandi, óspilltu víð-
áttum, sterku persónum, góðum
og siæmum, indíánum, landnem-
um, undir hrífandi tónlist Alfreds
og Lionels Newmans, Elmers
Bernsteins, teknum af listfengi
Luciens Ballards, Charles Langs
og ámóta snillinga, og hefur ekki
vikið Iangt frá manni siðan.
Sigild myndbönd
THE HOUSE ON 92ND
STREET (‘45)
★*★★
Byggð á sönnum atburðum. Á tímum
síðari heimsstyrjaldarinnar komst
Alríkislögreglan á snoðir um njósna-
hreiður nasista í New York. Þar var
einkum verið að afla upplýsinga um
kjarnorkutilraunir Bandaríkja-
manna. Myndin er fjarri því að vera
venjulegur njósnatryllir og er enn í
dag mikill áhrifavaldur. Vettvang-
stökur í heimildarmyndastíl með
traustum en (þá) lítt þekktum leikur-
um (William Eythe, Lloyd Nolan,
Signe Hasso, Leo G. Carroll) gerir
myndina einstaka og trúverðuga. Yf-
ir henni er sjaldséður, raunverulegur
og ógnvekjandi blær sem minnir
áhorfandann óþægilega á að hann er
hvergi hultur fyrir myrkraverkum
illra afla.
TRUE GRIT (‘69)
★★★‘/2
Tveir af fremstu kunnáttumönnum
vestrans, Hathaway og John Wayne,
leiða saman hesta sína, útkoman einn
síðasti alvöruvestri aldarinnar. Way-
ne fer á kostum sem eineygður,
sídrukkinn og viðskotaillur laganna
vörður, sagður besti úrhrakafangari
vestursins. Því er hann valinn af
ungri stúlku (Kim Darby) til að koma
réttlætinu yfir morðingja föður henn-
ar. Krydduð ósviknun\ vel völdum
skapgerðarleikurum í aukahlutverk-
um (Dennis Hopper, Robert Duvall,
Strother Martin, Jeff Corey), sem
gera óhemju mikið fyrir þessa líflegu
skemmtun. Enginn þó betri en „Du-
ke“ Wayne, sem hlaut sinn fyrsta og
eina Óskar á ferlinum, fyrir bragð-
mikla og ógleymanlega túlkun á
rustamenninu ölkæra en hjarta-
hreina, Rooster Cogburn.
KISS OF DEATH (‘47)
irkir'k
Ein magnaðasta film noir allra tíma,
segir ólánssögu atvinnulauss heimil-
isföður, fyrrverandi smáglæpamanns
(Victor Mature). Hann er neyddur af
lögregluyfirvöldum til að blanda sér í
hóp gamalla kunningja í undir-
heimunum, launin eiga að vera sakar-
uppgjöf. Verkefnið tiltölulega
áhættulaust en allt fer á verri veg.
Trúverðug og raunsæisleg mynd með
öflugum leikhóp sem í eru m.a. Karl
Malden, Brian Donlevy o.fl. af bestu
skapgerðarleikurum þessa tímabils.
Enginn slær þó við Richard Wid-
mark, sem framkallaði gæsahúð hjá
áhorfendum hvarvetna, sem
síflissandi, geðbilaður óþokki, í einu
óhugnanlegasta atriði kvikmynda-
sögunnar - er hann rúllar konu í
hjólastól fram af stigabrúninni. Var
endurgerð af Barbet Schroeder ‘65,
með minnisstæðum árangri.
i/m: 0* ff Sæþjörn Valdimarsson