Morgunblaðið - 08.06.1999, Side 1
126. TBL. 87. ARG.
ÞRIÐJUDAGUR 8. JUNI1999
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fundi G-8 hópsins um Kosovo-deiluna frestað en samkomulag sagt innan seilingar
Loftárásir NATO heíjast
af fullum krafti að nvju
Belgrad, Bonn, London. Reuters, AFP.
FUNDI G-8 hópsins svokallaða, samstarfsnefnd-
ar sjö helstu iðnríkja heims og Rússa, var frestað
í gærkvöldi án þess að Rússar og vesturveldin
kæmust að samkomulagi um orðalag ályktunar
sem leggja átti íyrir öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna vegna Kosovo-deilunnar. Verður fundinum
fram haldið í dag. Atlantshafsbandalagið (NATO)
herti loftárásir sínar á skotmörk í Júgóslavíu á ný
í gærkvöldi og greindu fjölmiðlar þar í landi frá
því að þrír hefðu fallið þegar NATO lét sprengj-
um rigna yfír skotmörk nærri bænum Boljevac,
um tuttugu kílómetra suðaustur af Belgrad.
Líkur höfðu virst á því fyrir helgi að NATO
gæti senn hætt loftárásum sínum á Júgóslavíu
eftir að Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti
hafði í orði kveðnu samþykkt friðartillögur sem
Martti Ahtisaari, samningamaður vesturveld-
anna, og Viktor Tsjernómyrdín, samningamaður
Rússa, lögðu fram. Babb kom hins vegar í bátinn
á sunnudag, þegar viðræður Michaels Jacksons,
hershöfðingja í her NATO, og júgóslavneskra
herforingja um hvemig staðið skuli að brott-
hvarfi Serbíuhers frá Kosovo fóru út um þúfur.
Náðist ekki í Jeltsín
Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands,
sagði eftir fund utanríkisráðherra G-8 ríkjanna í
Bonn í Þýskalandi í gær, að vesturveldin og
Rússar væru afar nálægt því að jafna ágreining
sinn, og að þeim myndi án efa takast að ljúka við
að semja ályktun sem leggja á fyrir öryggisráð
SÞ. „Þessi ályktun mun ekki gefa stjómvöldum í
Belgrad neitt færi á að skjóta sér undan því að
standa við gerðan samning. Öryggisráðið mun
ekki leyfa þeim að komast upp með neitt múður,“
sagði Cook.
Er greint frá því í breska dagblaðinu The
Daily Telegraph í dag að strandað hafi á því í
gær að ígor ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, náði ekki sambandi við Borís Jeltsín
Rússlandsforseta til að fá hann til að leggja
blessun sína yfir ályktunina. Var Jeltsín sofandi
eða „vant við látinrí1, að sögn blaðsins.
Deilendur saka hvor annan um að hafa reynt
að umskrifa sér í hag tillögurnar sem Ahtisaari
og Tsjernómyrdín lögðu fram, sérstaklega þann
kafla sem snýr að brottflutningi Júgóslavíuhers
frá Kosovo og um það hvernig friðargæslusveith’,
sem eiga að vera skipaðar bæði Rússum og her-
mönnum NATO, halda inn í Kosovo en sveitimar
eiga að tryggja að flóttafólk geti snúið aftui- til
síns heima heilu og höldnu. Krefjast Serbar þess
nú að áður en nokkrum erlendum hermönnum
verður hleypt inn í Kosovo skuli öryggisráð SÞ
samþykkja ályktun þar að Iútandi.
Féll gengi evrunnar, gjaldmiðils Evrópusam-
bandsríkjanna, nokkuð á fjármálamörkuðum í
gær vegna óvissu um framtíð friðammleitana.
■ Sjá umfjöllun á bls. 26
Páfi biður fyrir friði
á Balkanskaga
Reuters
Mannrán og
morð í Kdlumbíu
JÓHANNES Páll páfi, sem
fæddur er í Póllandi, veifar til
mannfjöldans í borginni
Bydgoszcz í Póllandi í gær en
hans heilagleiki er nú í þrettán
daga heimsókn til ættjarðar
sinnar. Mun páfi, sem er sjötíu
og níu ára, m.a. heimsækja fæð-
ingarstað sinn, Kraká, í ferð-
inni en margir óttast að þessi
för sé hans hinsta til PóIIands.
Páfi Iék hins vegar við hvern
sinn fingur í gær og kvaðst
jafnvel geta orðið við óskum
manníjöldans, sem sungið hafði
pólskan þjóðsöng til heiðurs
gestinum þar sem þeirri ósk
var lýst að hann næði eitt hund-
rað ára aldri.
Lauk páfi annasömum degi í
gær með því að biðja fyrir friði
á Balkanskaga en hann sagði
allt of miklu blóði hafa verið út-
hellt þar í átökum undanfarna
mánuði. „Friður er mögulegur,
og friður er skylda okkar,“
sagði páfinn. Um tvö hundruð
þúsund manns hlýddu á boð-
skap páfa í gærkvöldi við athöfn
á flugvelli nálægt háskólabæn-
um Torun og var tekið eftir því
að páfi virtist hinn hressasti.
■ Fórnarlamba/27
Bogota. Reuters, AFP.
MARXÍSKIR uppreisnarmenn
rændu tuttugu óbreyttum borgurum
í Kólumbíu í gær, eftir að tíu lög-
reglumenn höfðu verið myrtir á
sunnudagskvöld, en fjöldi slíkra
ódæða hefur sett svip sinn .á kól-
umbískt samfélag undanfamar vikur.
Talsmenn kólumbísku öryggis-
sveitanna sögðu liðsmenn Upp-
reisnarhers Kólumbíu (FARC) hafa
myrt lögreglumennina seint á
sunnudag í E1 Cesar-héraðinu, í
norðurhluta Kólumbíu.
A sama tíma rændu uppreisnar-
menn Þjóðfrelsishers Kólumbíu
(ELN) tuttugu óbreyttum borgur-
um sem fengið höfðu sér siglingu á
Magdalena-ánni, nærri sjávarborg-
inni Baranquilla. Mannræningjarnir
slepptu ellefu gísla sinna seinna í
gær, en hinna níu var enn leitað.
Þessi mannrán koma einni viku
eftir að ELN rændi meira en eitt
hundrað og fjörutíu manns úr
kirkju í einu af betri hverfum borg-
arinnar Cali, í suðvesturhluta Kól-
umbíu. Halda samtökin 54 enn í
gíslingu, auk 25 annarra gísla sem
þeir rændu 25. aprfl, en mannrán ku
vera helsta fjáröflunarleið ELN.
■ Ótti við/28
Reuters
LÖGREGLUMENN bera kjör-
kassa af kjörstað í Jakarta.
Friðsam-
legur kjör-
fundur
Jakarta. Reuters.
UM 130 milljónir Indónesa gengu að
kjörborðinu í gær og greiddu at-
kvæði í fyrstu þingkosningunum,
sem talist geta frjálsar, í landinu, í
44 ár. Búist hafði verið við því að
óeirðir settu svip á kjördaginn, en
svo fór ekki. Að sögn eftirlitsmanna
fóru kosningarnar að mestu leyti
heiðariega fram, en ekki er búist við
að endanleg úrslit liggi fyrir fyrr en í
kvöld.
Líkur eru taldar á því að helsti
stjómarandstöðuflokkurinn, flokkur
Megawati Sukamoputri, dóttur fyrr-
verandi forseta, Sukarnos, beri sigur
úr býtum, þótt ekki sé talið að neinn
flokkur fái hreinan meirihluta.
Þá er talið líklegt að Golkar-flokk-
urinn, sem var flokkur Suhartos, bíði
afhroð.
Sjö námsmenn særðust er hópi
háskólastúdenta, er kröfðust sann-
gjarnra kosninga, lenti saman við
lögreglu í borginni Surabaya, og í
höfuðborginni, Jakarta, kveiktu
nokkrir kjósendur í kjörkössum.
Nýir tímar
í páfagarði
Páfagarði. AFP.
EFTIR að hafa leyft notkun
útvarps og sjónvarps hefur
páfagarður nú ákveðið að veita
nunnum einnig aðgang að far-
símum, faxtækjum og Netinu,
en sú ki-afa er hins vegar gerð
að þær nýti sér nýfengin rétt-
indi af „fyllstu skynsemi og
hófsemi".
Frá og með síðustu helgi
mega nunnur, sem dýrka guð
sinn í klaustri páfagarðs,
hlusta á útvarpsstöð þá sem
rekin er í páfagarði og jafn-
framt horfa á sjónvarpsfréttir
þar sem fjallað er um málefni
sem varða kirkjuna, t.a.m. ferð
Jóhannesar Páls páfa til Pól-
lands, sem nú stendur yfir.
Þessum undantekningum frá
gildandi reglum verður hins
vegar að halda í lágmarki, að
því er segir í tilskipun páfa-
garðs, til að „standa vörð um
andlega íhugun nunnanna“.