Morgunblaðið - 08.06.1999, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Júlíus
FALLEGASTI bíllinn að mati áhorfenda, Ford Thunderbird 1955.
Fornbílasýning í Laugardalshöll
í TILEFNI af 95 ára afmæli bfls-
ins á íslandi, hélt Fornbflaklúbb-
ur íslands bflasýningu í Laugar-
dalshöll um nýliðna helgi. Þar
kenndi ýmissa grasa og var hver
bfllinn öðrum glæsilegri. Áhorf-
endur áttu kost á að velja falleg-
asta bflinn og komu án efa marg-
ir til greina. Sigurvegarinn varð
Ford Thunderbird, árgerð 1956,
en í öðru sæti lenti CadiIIac frá
1955. Athyglisverðasti sýningar-
gripurinn var Ford Skyiiner frá
árinu 1957, en hann er með fell-
anlegu stálþaki. I öðru sæti á eft-
ir honum kom svo forseta-
Packardinn, árgerð 1942, en nú
er verið að gera hann upp.
Innbrotaalda var á Akranesi um helgina
Þjófarnir eltir
upp til fjalla
INNBROTAALDA reið yfir Akra-
nes aðfaranótt laugardags, að sögn
lögreglu, en brotist var inn í
heimahús, vélsmiðju, verkfæra-
geymslu, 6-7 bíla og fyrirtækisbíl
stolið. Að sögn lögreglu voru þrír
menn viðriðnir málið, og voru þeir
handteknir á laugardeginum og
hafa verið úrskurðaðir í viku
gæsluvarðhald.
Þjófamir brutust inn í íbúðarhús
og stálu þaðan skartgripum og
fjármunum á meðan íbúamir
sváfu. Þá bmtust þeir inn í 6 til 7
bíla og stálu úr þeim útvarpstækj-
um og öðm verðmætu.
Ekki létu þjófamir þar við sitja
heldur bmtust þeir inn í vélsmiðju
Ólafs R. Guðjónssonar og stálu
þaðan nýrri tölvu, prentara, símum
o.fl. Þá stálu þeir fyrirtækisbflnum,
sem var fullur af verkfæmm, en
hann fannst síðan á laugardeginum
i Svínadal í grennd við sumarbú-
stað, sem þeir höfðu brotist inn í.
Granur leikur á að þeir hafi
einnig brotist inn í verkfæra-
geymslu Hvalfjarðarstranda-
hrepps og stolið þaðan verkfæmm,
m.a. rafstöð, loftpressu o.fl., en
þýfið fannst í fyrirtækisbílnum í
Svínadal.
Akranes- og Borgameslögregla
handtók tvo mannanna í Svínadal,
en þurfti að elta þá upp til fjalla,
þangað sem þeir höfðu flúið. Þriðji
maðurinn hafði verið handtekinn á
Akranesi nálægt brotavettvangi
um morguninn.
Að sögn lögreglu er ekki búið að
finna allt þýfið, en mennimir hafa
allir komið við sögu lögreglu áður.
Forstjóri Baugs um kaupin á 10-11
Ekki áhyggjur
af riftun
EKKI varð af fundi fulltrúa Baugs
og Samkeppnisstofnunar í gær
vegna kaupa fyrirtækisins á versl-
anakeðjunni 10-11 og verður fund-
urinn haldinn fyrir hádegi í dag, en
Samkeppnisstofnun hefur kallað
eftir upplýsingum um kaupin. Jón
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, segist ekki hafa neinar
áhyggjur af því að Samkeppnis-
stofnun rifti kaupum Baugs á versl-
anakeðjunni.
Jón Ásgeir segir að þeir telji að
samkeppnisstaða Baugs breytist
ekkert við kaupin á 10-11. Baugur
hafi haft markaðsráðandi stöðu fyrir
kaupin á 10-11 og hefði það einnig
eftir kaupin. Að auki myndi Baugur
selja verslanir, sem myndi minnka
markaðshlutdeidina á móti, þannig
að breytingin væri ekki svo mikil.
„Við erum bara að upplýsa Sam-
keppnisstofnun um stöðu mála. Það
er mjög eðlilegt og það höfum við
gert áður,“ sagði Jón Ásgeir.
Lykilatriði til að ná fram
meiri hagræðingu
Hann sagði að þeir hefðu bent á
það að með því að vera með 10-11
innan sinna vébanda næðu þeir rétt
þeirri stærð á innkaupasviðinu sem
þeir þyrftu til þess að ná fram auk-
inni hagræðingu í matvöminnkaup-
um, þ.e.a.s. að kaupa vörana milli-
liðalaust til landsins, sem þeir teldu
lykilatriði til að ná fram meiri hag-
ræðingu í þessari grein. „Við teljum
að við megum ekki missa það afl
sem 10-11 hefur gefið okkur til að
ná þessu fram,“ sagði Jón Ásgeir
ennfremur.
Fjórir meiddir
eftir árekstur
HARÐUR árekstur varð með
tveim bifreiðum á Suðurlandsvegi
rétt vestan við Hellu á sunnudag
þegar lítil fólksbifreið hafnaði aftan
á kerra, sem dregin var af jeppa.
Einn farþegi var í hvorri bifreið og
þurftu þeir ásamt ökumönnunum
að leita sér læknisaðstoðar vegna
hálsmeiðsla. Fólksbifreiðin var
óökufær eftir áreksturinn en
nokkrar skemmdir urðu á jeppan-
um þar sem dráttarbeisli kerrann-
ar olli skemmdum á honum er það
gekk inn undir hann við höggið.
Þjónusta númer eitt!
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. 12-16
BÍLAÞING HEKLU
Niíryie-r ciff ( nofv?vm t>(h>m!
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
Til sölu Nissan Patrol
Diesel SLX, árgerð 1996.
Ekinn 72.000 km.
33 tommu dekk.
Ásett verð kr. 2.700.000.
Nánari upplýs. hjá Bílaþingi
Heklu í síma 569 5500.
www.bilathmcj.is • www.bilathinq.is • www.bilathinq.is
Skipta með sér formennsku í fastanefndum þingsins
Sjálfstæðismenn stýra 8
og framsóknarmenn 4
Stjórnarandstaðan fær ekki formennsku nefnda
ÞINGFLOKKAR Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks völdu
formannsefni flokkanna fyrir
fastanefndum Alþingis á fundum í
gær. Skv. samkomulagi stjórnar-
flokkanna fá sjálfstæðismenn for-
mennsku í átta nefndum og fram-
sóknarmenn í fjóram. Ekki er hins
vegar gert ráð fyrir að stjórnar-
andstaðan fái formennsku í nefnd-
um þingsins en fulltrúar stjórnar-
andstöðunnar stýrðu þremur
nefndum á seinasta kjörtímabili.
Kosið verður í fastanefndir Al-
þingis á morgun, miðvikudag.
Samkvæmt upplýsingum Sigríð-
ar Önnu Þórðardóttur, formanns
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
var sú tillaga samþykkt á þing-
flokksfundi sjálfstæðismanna í
gær að Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir verði formannsefni
flokksins í allsherjarnefnd, Vil-
hjálmur Egilsson í efnahags- og
viðskiptanefnd, Arnbjörg Sveins-
dóttir í félagsmálanefnd, Hjálmar
Jónsson í landbúnaðarnefnd, Sig-
ríður Anna Þórðardóttir í mennta-
málanefnd, Árni Johnsen í sam-
göngunefnd, Tómas Ingi Olrich í
utanríkisnefnd og Einar K. Guð-
finnsson í sjávarútvegsnefnd. Þau
Vilhjálmur, Sigríður Anna og
Tómas Ingi stýrðu sömu nefndum
á seinasta þingi en önnur for-
mannsefni eru ný. Þá var Einar
Oddur Kristjánsson tilnefndur í
embætti varaformanns fjárlaga-
nefndar og Guðjón Guðmundsson í
embætti varaforseta Alþingis. Á
þingflokksfundinum í gær var Ein-
ar K. Guðfinnsson kjörinn varafor-
maður þingflokksins og Ásta Möll-
er ritari.
Valgerður endurskoðar
hug sinn
Á þingflokksfundi Framsóknar-
flokksins skipuðust mál þannig að
Jón Kristjánsson verður for-
mannsefni í fjárlaganefnd, Hjálm-
ar Árnason í iðnaðarnefnd, Ölafur
Öm Haraldsson í umhverfisnefnd
og Valgerður Sverrisdóttir í heil-
brigðis- og trygginganefnd. í for-
sætisnefnd verður ísólfur Gylfi
Pálmason. Valgerður og Hjálmar
era nýir nefndaformenn. Þá verð-
ur Kristinn H. Gunnarsson for-
maður þingflokksins og með-
stjórnendur eru Jón Kristjánsson
og Hjálmar Ámason.
Valgerður Sverrisdóttir sagðist
hafa endurskoðað hug sinn varð-
andi embætti þingflokksformanns
en þegar tilkynnt var um val
flokksins á ráðherram var gengið
út frá því að hún yrði áfram for-
maður þingflokksins og látið að þvi
liggja að hún tæki síðar við ráð-
herraembætti. „Fyrsta hugmyndin
var sú að ég yrði áfram formaður
þingflokksins, en þegar ég fór að
hugsa málið betur sá ég að það var
skynsamlegra að hætta nú með
nýju kjörtímabili."
Valgerður kvaðst ekki vilja
svara því hvort þessi ákvörðun
þýddi að koma myndi að þvi fyrr
en seinna að hún tæki við embætti
ráðherra, það yrði að koma í ljós.
Steingrímur J. Sigfússon
Harma þessa
ákvörðun
„MÉR fannst það virðingarverð viðleitni til þess að
efla sjálfstæði þingsins og harma því þessa ákvörðun
nú,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-
hreyfingarinnar - Græns framboðs, er hann var spurð-
ur um þá afstöðu stjómarflokkanna að enginn úr
stjórnarandstöðu gegndi formannsembætti í nefndum
Alþingis.
„Það styrkir þingið og er til þess fallið að efla sjálf-
stæði þess að sýna að ekki þyrfti allt að ráðast af
meirihluta og minnihluta þegar verkum væri skipt. Ég
harma þetta sem ákveðið afturhvarf til eldri tíma og
fráhvarf frá því að líta á þingið sem sjálfstæða stofn-
un,“ sagði Steingrímur.
Hann kvaðst líka harma hvemig að þessari ákvörð-
un er staðið. „Mér finnst leiðinlegt að stjómarflokk-
amir skuli ekki hafa fyrir því að tilkynna stjómarand-
stöðunni þessa ákvörðun eða ræða hana við okkur áður
en hún kemur í fjölmiðlum. Þetta er svipað framsetn-
ingunni á því þegar þjóðinni var tilkynnt að ónefndur
maður yrði forseti Alþingis, sem ég hélt að þingið ætti
sjálft að kjósa sér. Það hefði í það minnsta verið
skemmtilegra að segja að um þetta yrði gerð tillaga.
Þetta er kannski ekki stórmál en mér finnst þetta ekki
nógu góð byrjun á þessum samskiptum.“
Margrét Frímannsdóttir
Finnst þetta
frekar afturför
„MÉR fannst það framfaraskref á síðasta þingi og af hinu
góða að stjórnarandstaðan hafði formennsku í þremur
nefndum og því finnst mér það frekar afturfór nú að svo
skuli ekki vera lengur," sagði Margrét Frímannsdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar, er hún var innt álits á þvi
að ekki væri gert ráð fyrir að fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar sætu sem formenn nefnda Alþingis.
„En þessi ákvörðun kemur mér ekki á óvart miðað við
það hvemig stjórnarhættir stjómarflokkanna hafa verið
og mér fannst ég stundum greina óþolinmæði frá þeim
vegna þessa fyrirkomulags á síðasta þingi,“ sagði Mar-
grét ennfremur. Hún sagði að sér virtist sem verið væn
að hygla á vissan hátt þeim þingmönnum sem ekki
kæmust að sem ráðherrar eða forsetar þingsins. „Þetta
lítur nú þannig út að hver einasti þingmaður Framsókn-
arilokksins hafí einhver aukalaun, annaðhvort fyrir þing-
formennsku, þingflokksformennsku eða setu í forsætis-
nefnd. Það verður fróðlegt að sjá hveraig skipast af
þeirra hálfu í þær nefndir og ráð utan þingsins sem eru
launuð," sagði hún ennfremur.
„Ég hefði viljað sjá stjórnarandstöðuna fá formennsku
í þremur nefndum eins og síðast, mér fannst það gefast
vel, þeir sem sinntu formennskunni gerðu það mjög vel
og hvergi bar skugga á að mínu viti. Það hefðu verið eðli-
leg vinnubrögð að halda þessu áfram.“