Morgunblaðið - 08.06.1999, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
LANDIÐ
MORGU NBLAÐIÐ
STÓRSÝNING
Bfla- og búvélasýningar
Ingvars Helgasonar og
Bflheima um landið
Þridjudaginn 8. júní
Kirkjubæjarklaustur 9-11
Vík...................... 13-15
Hvolsvöllur........ 16.30-19.30
Midvikudaginn 9. júní
Hella..................... 9-12
Flúóir................... 14-17
\ Ingvar
I Holfjason hf.
J SmmrUfimí
StmiS2Sa000
Bílheimar ehf.
Vorgleði og skólaslit
Grunnskóla Grindavíkur
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
Skólaslit á Hellissandi
Hellissandi - í lok maí fóru fram
skólaslit grunnskólans. Líklega
voru það sannmæli hjá forseta bæj-
arstjómar í Snæfellsbæ, Asbirni
Ottarssyni, að enginn skóladagur sé
nemendum eins kærkominn og
ánægjulegur og skólaslitadagurinn,
að geta stokkið frjáls út í vorið og
þurfa ekki að hugsa fyrir heimalær-
dómi og skólagöngu að morgni.
„Þannig var það alla mína skóla-
göngu og mér kemur ekki á óvart
að þannig sé það ennþá,“ sagði As-
bjöm.
A.m.k. gerðu nemendur góðan
róm að þessari ræðu hans og hlógu
og klöppuðu.
Skólastjórinn Guðlaug Sturlaugs-
dóttir sleit skólanum eftir að hafa
gert grein fyrir starfi vetrarins. I
skólanum vora 117 nemendur í vet-
ur í 10 bekkjardeildum, þar af luku
11 nemendur námi úr 10. bekk.
Bestum árangri í 10. bekk náði
Alma Sif Kristjánsdóttir. Bestum
árangri í dönsku náði Aron Baldurs-
son. Guðlaug sagði vetrarstarfið
hafa gengið sérlega vel og mjög
ánægjulegt hefði verið að veita skól-
anum forstöðu. Hún gat þess að hún
léti nú að störfum við skólann eftir
tveggja ára skólastjórn og tæki við
starfi við Borgarskóla í Reykjavík.
Jafnframt upplýsti hún að Anna
Þóra Böðvarsdóttir sem verið hefur
aðstoðarskólastjóri á undanförnum
árum léti nú af því starfí. Höfðu
þær báðar orð á því hvað starfstími
þeirra við skólann hefði verið
ánægjulegur.
Ásbjöm Óttarsson forseti bæjar-
stjórnar þakkaði þeim vel unnin
störf og kvaðst vona að skólinn
mætti njóta starfskrafta þeirra þótt
síðar yrði.
Fundað um
símenntun
Egilsstöðum - Fræðslunet Austur-
lands boðaði fulltrúa allra símennt-
unarmiðstöðva á landinu á fund um
símenntunarmál. Fundurinn var
haldinn í Neskaupstað og sátu
fundinn auk fyrrnefndra, fulltrúar
nokkurra háskóla, stofnana sem
vinna að fræðslumálum og mennta-
málaráðuneytis. Þá ræddu starfs-
menn Landssímans og Nýherja um
tæknilegar leiðir til að koma fjar-
kennslu áleiðis til nemenda víða um
land. Unnið var í starfshópum og
fjölluðu hóparnir um kennslufræði
og tækni fjamáms, fjármögnun
fjarnáms, stjóm og skipulag fjar-
náms og aðbúnað fjarnema. Þá var
fjallað um stofnun samtaka sí-
menntunarmiðstöðva.
Mikill áhugi var fyrir að efla fjar-
nám og fjarmenntun og voru fund-
armenn sammála um að auknir
möguleikar til menntunar væra ein
mikilvægasta forsenda jákvæðrar
byggðaþróunar í landinu. Á fundin-
um var kosið framkvæmdaráð sí-
menntunarmiðstöðva en tilgangur
ráðsins er að vinna að hagsmuna-
málum miðstöðvanna og að undir-
búa stofnun samtaka símenntunar-
miðstöðva. í ráðinu sitja: Hörður
Ríkharðsson, Emil Björnsson, Jón
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
FUNDUR um málefni símenntunar sem haldinn var í Neskaupstað.
Hjartarson, Kristin Jónsdóttir,
Rögnvaldur Ólafsson, Skúli Thor-
oddsen, Ama Yrr Sigurðardóttir og
Stefán Jóhannsson.
Ánægja var með framkvæði
Austfirðinga í því að boða til þessa
fundar því brýnt þótti fyrir þessa
aðila að hittast og ræða sameigin-
leg hagsmunamál.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
VERKEFNISSTJÓRN GUIDE 2000, talið frá vinstri: Þorvarður Guð-
mundsson ferðamálafulltrúi, Húnaþingi vestra, Rögnvaldur Guð-
mundsson verkefnisstjóri, Guðrún Þóra Gunnarsdóttir deildarsljóri
ferðamálabrautar á Hólum, Deborah Robinson ferðamálafulltrúi í
Skagafirði og Sigurður Engilbertsson frá INVEST.
Samvinnuverkefnið GUIDE 2000
Menningarauðlind-
ir á Norðurlandi
vestra skráðar
Blönduósi - Samvinnuverkefni Iðn-
þróunarfélags Norðurlands vestra
(INVEST), Danmerkur, írlands og
Italíu um að skrá og flokka helstu
menningarauðlindir í löndunum fjór-
um var kynnt á Blönduósi fyrir
skömmu. Verkefnið nefnist GUIDE
2000 og lýkur því í byrjun ársins
2001.
Eins og fyrr greinir er megin
markmið með verkefninu að skrá og
flokka það sem kallast má menning-
arauðlindir og nýta síðan þá vinnu í
nýsköpun í ferðaþjónustu. Evrópu-
sambandið styrkir þetta verkefni og
einnig Nýsköpunarsjóður náms-
manna og sveitarfélögin á Norður-
landi vestra. Að skráningu lokinni er
hugmyndin að útbúa handbók og
halda námskeið um möguleika á þró-
un á menningarferðaþjónustu. Jafn-
framt verður unnin heimasíða um
verkefnið og niðurstöðum verkefnis-
ins gerð skil á Netinu. Stefnt er að
því að hafa þrjá háskólanema sem
búsettir eru á Norðurlandi vestra við
skráningarvinnuna í sumar. Til að
sinna þessu verkefni fyrir hönd
INVEST hefur verið skipuð 6 manna
verkefnisstjóm og er Rögnvaldur
Guðmundsson ferðamálafræðingur
verkefnisstjóri.
N orðfírskt hand-
verksfólk sýnir
Grindavík - Vorgleði Grannskóla
Grindavíkur var haldin nýlega.
Mikið fjölmenni var að venju enda
vorgleðin vinsæl bæði hjá foreldr-
um og nemendum. Boðið var upp á
ýmsa skemmtilega leiki og leiktæki
auk sýningar á einhverjum af vor-
verkum nemenda.
Meðal þess sem var í boði var
andlitsmálun, boltaleikir, snú snú,
hjólreiðaþrautabraut, knattspyrna,
karfa, tónlist, flugdrekaflug, stultur
vora á staðnum og farið var í fjölda
leikja. Nemendur í 2. bekk B og
kennarar sáu um hlutaveltu til
styrktar landssöfnun RKI og
Hjálparstofnun kirkjunnar og söfn-
uðust 5.700 kr. Þá sá foreldra- og
kennarafélagið um að grilla pylsur
fyrir gestina og er óhætt að full-
yrða að þetta hafí verið með betri
dögum vetrarins þrátt fyrir skúra-
veður.
Skólaslit fóra fram daginn áður
hjá l.-7.bekk en á mánudaginn 31.
maí vora skólaslit hjá 8.-10.bekk í
Grindavíkurkirkju. Fram kom í
máli Gunnlaugs Dan, skólastjóra,
að næsta skólaár er síðasta árið
sem skólinn er tvísetinn en búið er
að ganga frá því að skólinn verði
einsetinn haustið 2000. Þá kom
fram í máli Gunnlaugs að 40 nem-
endur væra nú að ljúka námi sínu í
10 bekk í tveimur bekkjardeildum
auk verkmenntadeildar sem kallast
Smiðjan".
Morgunblaðið/Garðar Páll
ÚTSKRIFTANEMENDUR FS-hópsins.
FS-hópur útskrifar
I vetur var að ljúka þriðja sam-
vinnuári skólans og Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja en í því hefur
falist að nemendur Grannskóla Gr-
indavíkur ljúk samræmdum prófum
ári fyrr og stunda nám í FS en þó í
Grindavík undir leiðsögn kennara
þar. Því væri boðið eins og aðal-
námskrá segir upp á nám við allra
hæfí. Einn af þessum nemendum
sem vora í þessum FS-hópi, Eyþór
Atli Einarsson, flutti ávarp nem-
enda við góðar undirtektir gesta.
Það voru fjórir nemendur í þessum
FS-hópi í vetur og luku allt að 21
einingu frá Fjölbrautaskóla Suður-
nesja.
Bestan námsárangur í 8.-10 bekk
sýndi nemandi í næsta FS-hópi,
Daníel Pálmason, en hann lauk
einmitt samræmdum prófum nú í
vor þrátt fyrir að vera í 9. bekk. Að
lokum var síðan foreldrum og nem-
endum í 10. bekk auk kennara boð-
ið í kaffísamsæti í safnaðarheimili
Grindavíkurkirkj u.
Neskaupstað - í tilefni af 70 ára
afmæli Neskaupstaðar, sem er á
þessu ári, er fyrirhuguð fjölbreytt
menningar- og skemmtidagskrá í
sumar og haust.
Liður í því var mikil handverks-
sýning sem haldin var í Nesskóla
nú nýverið þar sem handverks-
fólk úr bæjarfélaginu sýndi af-
rakstur vinnu sinnar.
Mikil þátttaka var í sýningunni
því þar sýndu allir aldurshópar
eða frá grunnskólanemum til
eldri borgara og allt þar á milli.
Fjöldi manns sótti sýninguna og
segja má að fullt hús hafi verið
báða dagana sem hún stóð yfir.