Morgunblaðið - 08.06.1999, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIE
Laurence J. Kotlikoff, prófessor í hagfræði við Boston University, er einn upphafsmanna kynslóðareikninga.
Sverrir Sveinn Sigurðarson ræddi við hann um byrðar sem velt er yfír á kynslóðir framtíðarinnar.
„Ungt fólk verður
beinum skaða“
Niðurstöður kynslóðareikn-
inga í nokkrum iöndum
Nauðsynleg aukning (- lækkun) tekju-
skatta í % til að ná kynslóðajafnvægi
175,7
74,0
64,0
„ÞESSI nýja aðferð við mat á fjár-
málum hins opinbera, sem nefnist
kynslóðareikningar (á ensku
„generational accounting"), geng-
ur í stuttu máli út á að öðlast skiln-
ing á því, hver muni greiða fyrir
útgjöld hins opinbera. Einhver,
annaðhvort við sjálf, börnin okkar
eða barnabörn munu á endanum
þurfa að greiða kostnað við rekst-
ur ríkisins, og þessi aðferðafræði
metur hver muni borga brúsann
miðað við núverandi stefnu stjórn-
valda.“
Þetta segir Laurence J. Kotlikoff,
prófessor í hagfræði við Boston
University í Bandaríkjunum og einn
upphafsmanna kynslóðareikninga,
en hann var einn fyrirlesara á af-
mælisráðstefnu Hagfræðistofnunar
Háskóla Islands, sem haldin var um
efnahagsstefnu smárra opinna hag-
kerfa á tímum alþjóðavæðingar, og
fjallaði hann um niðurstöður kyn-
slóðareikninga víðsvegar um heim í
fyrirlestri sínum.
Laurence Kotlikoff útskýrir að
kynslóðareikningum tengist hug-
takið kynslóðajafnvægi. Samkvæmt
hans skilningi gengur kynslóðajafn-
vægi út á að sérhver kynslóð greiði
sama hlutfall tekna sinna til hins
opinbera. í mörgum löndum og þar
á meðal Bandaríkjunum sé fyrirsjá-
anlegt að nettó skattahlutfall fram-
tíðarkynslóða muni verða töluvert
miklu hærra en það er í dag. „Þetta
er í mínum huga óréttlátt,“ segir
Kotlikoff.
Þú hefur rætt um „fjárhagslega
misnotkun“ á börnum okkar. Get-
urðu útskýrt það?
„Stjómvöld í Bandaríkjunum og í
nokkrum öðrum löndum hafa verið
að færa æ stærri fjárhæðir til eldri
kynslóða frá hinum yngri. Þetta
leiðir til þess að yngra fólk mun
þurfa að bera mjög háa skatta í
framtíðinni. Þetta skaðar einnig
efnahagslíflð því að yngra fólk eðli
málsins samkvæmt sparar meira á
meðan eldra fólk eyðir. Með því er
þjóðhagslegur spamaður minni og
fjárfestingar einnig. Fjárfestingar
vísa til þess hve mikið þarf af fram-
leiðslutækjum í efnahagslífinu, og
með því að draga úr fjárfestingum
er dregið úr hækkun raunlauna hjá
Argentína
Brasilía
Frakkland
Austurríki
Japan
Hnnland
Spánn
Svíþjóð
Þýskaland
Ítalía
Bandaríkin
Holland
Portúgal
Belgía
Noregur
Bretland
Ástralía
ísland
Danmörk
Kanada
-0,8
-4,1
55,6
013,3 _
s” R|
□8,° 1 'n
r„s71
I Nýja Sjáland
írland
Taíland
Útgiöld til menntamála eru meöhöndluö
sem tilfærslur frá hinu opinbera, dreift niöur
á aldursflokka, en ekki sem útgjöld ríkisins
Morgunblaðið/Þorkell
LAURENCE J. Kotlikoff: Ef þú segir manneskju að þú sért með stjómarstefnu sem muni hjálpa henni en
jafnframt koma sér illa fyrir börnin hennar eða barnaböm fjárhagslega, þá býst ég við að þessi persóna
myndi hafna slíkri stefnu. Sfjórnmálamenn hafa komist upp með að tala ekki um óæskilegar hliðar þeirrar
stefnu sem þeir reka, en tala aðeins um þægilegu hliðarnar.
sjóðs, sem eru hagfræðilega merk-
ingarlausar að mínu viti.
Ef þú spyrð eldri manneskju
hverra hag hún ber mest fyrir
brjósti, þá er svarið oftast „börnin"
eða „barnabörnin“. Ef þú segir
þessari manneskju að þú sért með
stjórnarstefnu sem muni hjálpa
henni en jafnframt koma sér illa
fyrir börnin hennar eða barnaböm,
þá býst ég við að þessi persóna
myndi segja að hún vilji ekki slíka
stefnu. Eg held að stjómmála-
ungu fólki. Ungt fólk verður því fyr-
ir beinum skaða við síhækkandi
skatta, og við sköðum efnahagslífið
óbeint með þessari „fjárhagslegu
misnotkun“.
Ekki talað um
hagsmuni barnanna
Er hægt að segja að það ójafn-
vægi sem kynslóðareikningar leiða í
ljós sums staðar sé til komið vegna
sa mkeppni stjómmálamanna um
hylli kjósenda, þar sem boðin séu
bestu lífskjörin í samfélaginu næsta
kjörtímabilið, en kynslóðir framtíð-
arinnar hafi ekki rödd sem heyrist
og því engin pólitísk áhrif til að
gæta sinna hagsmuna?
„Einmitt. Börn framtíðarinnar,
sem koma til með að greiða skuldir
ríkisins sem verða til í dag, hafa enn
ekki fæðst. Og jafnvel böm sem em
þegar fædd hafa ekki rödd sem
hlustað er á, auk þess sem þau gera
sér ekki grein fyrir því sem er að
gerast.
Stjómmálamennimir em ekki
hreinskilnir við hina eldri sem era
foreldrar, afar og ömmur. Með kyn-
slóðareikningum er reynt að knýja
stjórnmálamennina til hreinskilni,
því við getum ekki stungið höfðinu í
sandinn; það emm annaðhvort við
sem greiðum reikninga hins opin-
bera í dag, eða að bömin okkar
þurfa að greiða þá.
Þess vegna fá kynslóðareikningar
nú aukinn hljómgmnn um allan
heim, og að stóram hluta meðal op-
inberra stofnana. En það verkefni
er enn eftir á mörgum stöðum að fá
stjórnmálamenn til að veita þessu
athygli. Þeir era enn margir hverjir
fastir í þessum hefðbundnu aðferð-
um til að meta fjármál ríkisins, með
áherslu á halla eða afgang ríkis-
Gylfi Magnússon, sérfræðing-
ur hjá Hagfræðistofnun HÍ
Líklega jafnvægi
í fjármálum hins
opinbera
V Windows, Word og Excel
V Windows 95/98
V Outlook, tímareiöa og póstur
V Word ritvinnsla
V Word fyrir lengra komna
V Excel töflureiknirinn
V Excel framhaldsnámskeiö
V PowerPoint glærugerö
V Internetiö
V Vefsíöugerö
V Access gagnagrunnurinn
V Vefsíöugerö fyrir kennara
V Námsefnisgerö fyrir kennara
V Netumsjón í skólum
V Námskeiö fyrir 9-15 ára I
V Námskeiö fyrir 9-15 ára II
V Windows NT netumsjón
V Fjarnám
Námskeið í allt sumar!
Tölvunámskeið
Itarlegar upplýsingar á vefnum
77 námskeið í boði á tímabilinu júní til ágúst
(sjá lista til hliðar). http://www.tv.is/skoli/
Tilboð og fréttir í Netklúbbi TV
Skráðu þig í netklúbbinn okkar og fáðu send
reglulega tilboð, fréttir og hagnýt ráð um
tölvunotkun. http://www.tv.is/netklubbur/
Yftr 3000 manns sóttu námskeið hjá okkur 1998
Námskeiðspunktar veita aukinn afslátt
30 daga símaþjónusta innifalin
Góð staðsetning næg bflastæði
Skiptistöð strætisvagna rétt hjá
Höfum boðið námskeið fyrir böm og unglinga
í 11 ár, lengur en nokkur annar
Tölvu- og
verkfræöiþjónustan
Grensásvegi 16 • Reykjavík • sími 520 9000
m
£
jsj'
£
£
TALAN 8%, sem birt-
ist fyrir Island í töflu
yfir kynslóðareikn-
inga, er meðaltalstala
fyrir árin 1994-1996
og sýnir að tekjuskatt-
ar hefðu þurft að vera
8% hærri til að jafn-
vægi væri á fjármálum
opinberra aðila hér á
landi gagnvart kyn-
slóðum framtíðarinn-
ar.
Gylfi Magnússon,
dósent við viðskipta-
og hagfræðideild Há-
skóla Islands, sem
vann að kynslóða-
reikningunum segir
hins vegar að niður-
Gylfi
Magnússon
staðan hafí ekki verið sú sama fyr-
ir hvert áranna þriggja.
„Við sáum að þróunin var sú að
árið 1994 var talan talsvert hærri,
1995 var hún um það bil 8%, en ár-
ið 1996 miðað við ástandið þá, að
þá hefði hún verið neikvæð. Það
hefði því mátt lækka tekjuskatta
þá, og ég á von á því að það hafi
snúist enn frekar í þá áttina á ár-
unum 1997 og 1998,“ segir Gylfi
Magnússon.
Gylfi segir að á þessu séu ýmsar
skýringar. íslendingar t.a.m. séu
enn tiltölulega ungir og fijósemi
sé mikil, þannig að það stefhi ekki
f að vandi vegna skulda hins opin-
bera verði jafn ískyggilegur hér
eins og í sumum öðrum löndum.
„Annað er að n'kisfjármálin eru
ekki í svo slæmum skorðum hér á
landi. Það er nokkum
veginn jöfnuður á
gjöldum og tekjum, og
ekkert útlit fyrir að
það stefni í óefni,“
segir Gylfi.
Gylfi segir að mikl-
ar fjárfestingar hafi
verið í samgöngukerfi
og öðmm grunnþátt-
um samfélagsins, og
séu líkur á að þær geti
minnkað f framtíðinni
þegar mestu þörfum í
þeim efnum hafi verið
fullnægt. Hann bætir
einnig við að góðærið í
efnahagsmálum hafi
einnig sitt að segja,
þar sem það hafi leitt
til hærri skatttekna rfkisins og
annarra opinberra aðila vegna
aukinnar veltu í samfélaginu, án
þess að skatthlutföll hafi verið
hækkuð. Aðspurður segir Gylfi að
staðan myndi vissulega breytast ef
yrði samdráttur í efnahagslífinu.
En þeir geri reyndar ráð fyrir
1,5% hagvexti til framtíðar í kyn-
slóðareikningunum, þó slíkar spár
séu alltaf erfiðleikum háðar, en
það sé talsvert minna en sá 5%
hagvöxtur sem verið hafi hér á
undanfömum ámm.
„Þetta er það sem við rákumst á
þegar við fómm að gera þessa
kynslóðareikninga fyrir Island,
sem benti til þess að myndin fyrir
Island væri bara nokkuð góð, mið-
að við óbreytta stefnu,“ segir Gylfi
Magnússon dósent.