Morgunblaðið - 08.06.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
PRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 29
220 Pak-
istanar
sagðir
hafa fallið
INDVERJAR sögðu í gær að
220 pakistanskir hermenn
hefðu fallið í árásum indverska
hersins í Kasmír og að skæru-
liðar, sem réðust inn á yfir-
ráðasvæði Indverja, hefðu ver-
ið hraktir í átt að markalínu
Indlands og Pakistans.
Ekki er vitað hversu margir
skæruliðar hafa beðið bana í
árásunum. Indverjar sögðu að
60 indverskir hermenn hefðu
fallið, 21 særst og 14 væri
saknað.
Þegar árásir Indverja
hófust fyrir tveim vikum voru
skæruliðarnir um sjö km innan
við landamærin en að sögn
indverska hersins eru þeir nú
um 3,5 km frá markalínunni
sem skiptir Kasmír í tvennt.
Spænska
stjórnin ræðir
við ETA
SPÆNSKA stjómin og að-
skilnaðarhreyfíng Baska,
ETA, hafa haldið fyrstu beinu
viðræðumar frá því hreyfingin
lýsti yfir vopnahléi í septem-
ber. Jose Maria Aznar forsæt-
isráðherra skýrði frá viðræð-
unum eftir að dagblaðið E1
Mundo greindi frá því að full-
trúar stjómarinnar og ETA
hefðu komið saman á leynileg-
um stað í Evrópu utan Spánar
fyrir þrem vikum. Viðræðum-
ar hefðu þó ekki borið árang-
ur.
Lockerbie-
réttarhöldum
frestað
SKOSKUR dómstóll ákvað í
gær að fresta réttarhöldum yf-
ir tveimur Líbýumönnum, er
hafa verið ákærðir vegna
sprengjutilræðisins yfir
Lockerbie sem varð 270 manns
að bana árið 1988. Réttarhöld-
in eiga nú að hefjast 4. febrúar
á næsta ári.
800 kg af
kókaíni
fínnast
FRANSKA lögreglan kvaðst í
gær hafa fundið 804 kg af
kókaíni í íbúð í einu úthverfa
Parísar og er þetta einn mesti
kókaínfundur Frakklands. Tíu
manns hafa verið yfirheyrðir
vegna málsins, m.a. Frakki
sem hafði áður verið handtek-
inn fyrir eiturlyfjasmygl og
Kólumbíumaður sem er talinn
hafa komið til Frakklands frá
Spáni.
Hörð átök
í Nígeríu
NÍGERÍSKUM hermönnum
var í gær skipað að skjóta á
alla þá sem hunsa útgöngu-
bann í olíuborginni Warri sem
sett var vegna fjögurra daga
átaka þjóðflokka í borginni. Að
minnsta kosti 18 hafa beðið
bana í átökunum og kveikt hef-
ur verið í mörgum byggingum
í borginni.
Ehud Barak lofar að
stöðva landnám gyðinga
Jersúsalem. Reuters.
NÝKJÖRINN forsætisráðherra
ísraels, Ehud Barak, hét því í gær
að hann myndi stöðva landnám gyð-
inga á Vesturbakkanum og endur-
skoða ákvarðanir fráfarandi ríkis-
stjómar Benjamins Netanyahus um
landnám.
í kosningabaráttunni lofaði
Barak því að hefja friðarviðræður
við Palestínumenn. Hann sagði í
viðtali við ísraelska útvarpið í gær
að ríkisstjórn undir sinni forystu
væri ólíkleg til að „halda áfram
landnámi í hæðunum umhverfis Na-
blus“, borg sem er undir stjóm Pa-
lestínumanna.
Palestínskir embættismenn fógn-
uðu yfirlýsingum Baraks. „Þetta er
skref í þá átt að endurheimta það
traust sem glataðist í tíð fyrrver-
andi ríkisstjómar Israels, vegna
harðlínustefnu hennar,“ sagði Nabil
Abu Rdainah, aðstoðarmaður Yass-
ers Arafats, forseta heimastjómar
Palestínumanna.
Um 170 þúsund Israelar búa í
landnámsbyggðum innan um hátt í
þrjár milljónir Palestínumanna á
Vesturbakkanum og Gaza, en ísra-
elar hertóku þau svæði í sexdaga-
stríðinu 1967.
Palestínumenn segja landnámið
ólöglegt og brot á gerðum bráða-
birgðasamningum. Yfir 20 land-
námsbyggðir hafa risið á hæðum á
Vesturbakkanum slðan í október,
að því er ísraelsku friðarsamtökin
Peace Now greindu frá.
Reuters
EHUD Barak, nýkjörinn for-
sætisráðherra ísraels, við setn-
ingu þingsins í gær.
Nú getur þú greitt fyrir
aksturinn með öllum
greiðslukortum í Hreyfilsbílum.
Tölvukerfið hefur einnig góða sýn yfir staðsetningu
bílaflotans og metur álag eftir hverfum, þannig að auðvelt
er að stýra þjónustunni hverju sinni.
-Bíll fyrir þig,
-hvar sem er,
Nýtt tölvukerfi Hreyfils er
spennandi kostur fyrir neytendur.
hvenær sem er.
XHREVFiU/
-handan vW hornW7
5 88 55 22
Bílar fyrír 4-8farþega og bílar
fyrir hjólastóla
Styttri tími, betri þjónusta,
-betri Hreyfill,
ánægöari viðskiptavinir.