Morgunblaðið - 08.06.1999, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 47
1
I
okkar vottum þér og fjölskyldu þinni
innilega samúð okkar nú þegar við
kveðjum Snorra Svein Friðriksson.
Minningin um góðan dreng lifír.
Gisli B. Björnsson.
Snorri Sveinn var fjölhæfur maður
og það er undravert hve mörg ágæt
verk liggja eftir hann þegar þess er
gætt að hann gekk ekki heill til skóg-
ar nema hluta ævi sinnar. I æsku
varð hann fyrir slysi sem setti mark
sitt á líf hans eftir það. Hinn líkam-
legi skaði sem fylgdi í kjölfarið varð
aldrei að fullu bættur. En þrátt fyrir
áfallið réðst hann í að afla sér bestu
menntunar í sjónlistunum, fyrst
heima á Sauðárkróki en síðan í
Reykjavík og Stokkhólmi þar sem
hann útskrifaðist frá Konstfackskol-
an 1961. Eldskírn sína hlaut hann
hér heima við hönnunarvinnu er
nýttist honum afar vel við leik-
myndagerð og stjómun hjá Sjón-
varpinu allt frá árinu 1970. Þennan
þátt í störfum og afrekum Snorra
Sveins þekkja allflestir landsmenn,
enda var hann borinn uppi af þekk-
ingu, vandvirkni og óbilandi trú á að
verk af þessu tagi þurfi að lifa sjálf-
stæðu lífi en vera ekki einskonar
endurómur úr fortíðinni. Vatnslita-
myndimar við sögur Halldórs Lax-
ness - sem Vaka-Helgafell gaf út -
tengjast leikmyndaverkunum og eru
minnisstæðar mörgum sem sáu þær
þegar þær voru færðar upp á skjá-
inn. Mér finnst reyndar að það hafi
gerst í gær að glitrandi passíubreið-
urnar komu á móti mér í fordyri
Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti
en síðan er víst liðinn meira en ára-
tugur. Ég ætla ekki að tíunda
veggskreytingar Snorra á mörgum
opinberum byggingum né heldur
umhverfisverkið á Eiðistorgi á Sel-
tjamamesi. Það munu aðrir gera í
fyllingu tímans. Eitt er þó víst að
þær bera höfundi sínum fagurt vitni.
Ég kynntist Snorra fyrst að
nokkru ráði þegar við lentum saman
i stjórn FÍM 1974. Hann var rétt-
sýnn og úrræðagóður en kunni ekki
þá list að ota sínum tota á kostnað
annan-a. Við sem störfuðum með
honum og þekktum til verka hans
munum sakna hans - þótt stundum
væri vík milli vina.
Hjörleifur Sigurðsson.
Ég mun gera þér orð.
Ég hef leitað að því
í huga mínum
í leyndum bak við hurðir
allra orða.
Ég mun gera þér
orð
þegaréghef
fundið það.
(JónúrVör.)
Þessi orð skáldsins leita á hugann
þegar ég rifja upp minningar um
góðvin minn Snorra Svein Friðriks-
son, myndlistarmann, sem í dag er
lagður til hinstu hvílu. Fráfall hans
er mikiil sjónarsviptir og autt skarð
eftir sem seint verður uppfyllt. Hann
var mér traustur félagi og einlægur
vinur, sem orð verða ekki auðfundin
til að lýsa fyrir þeim, sem ekki
þekktu hann.
Snorri Sveinn hneigðist ungur að
fræðum guðspeki og viðurkenningu
þeirra á bræðralagi manna og sí-
felldri viðleitni til endurnýjunar í leit
að dýpri sannindum um manninn og
tilveruna. Á þeim vettvangi lágu leið-
ir okkar upphaflega saman. I sam-
fylgd okkar að málefnum guðspeki
varð mér ljós siðgæðisþroski hans og
manngöfgi. Hæfileikar hans til list-
sköpunar opnuðu mér skilning og
betri innsýn í dulheima myndlistar-
innar. - Við kynni okkar var ofinn
þráðurinn, sem batt okkur traustum
böndum í sameiginlegri leit þeirra
sanninda sem stóðu hjarta okkar
næst.
Snorri Sveinn bar gott skyn á feg-
urð heimsins og lét ekki undir höfuð
leggjast að lofa hana í línum og htum.
Myndlistin var honum í blóð borin og
henni helgaði hann öðru fremur starf
sitt í lífinu. Hann bjó yfir djúpu innsæi
og fijóum sköpunarhæfileikum. Um
það vitna listaverk hans sem víða má
finna. í mínum huga ber hæst ljó-
mann af þeirri list hans að lifa í fegurð
og einfaldleika. Líf hans verður mér
því hvatning og minning hans blessuð.
Hann var vitur maður, góðgjam og
hæverskur að eðlisfari. Hann talaði
hljóðlátri rödd sem á var hlýtt. Hana
mun ég áfram heyra í lifandi minn-
ingu um boðbera listar í lífi og starfi.
Góðra vina skal með gleði minnast
og hinna bestu með mestum fognuði.
Ég þakka Snorra Sveini samfylgd-
ina og með ljóði vinar okkar Sigvalda
Hjálmarssonar, „Lág rödd“, kveð ég
hann hinstu kveðju.
Leyfmér
aðgista
í garði þínum
þvíég
nae ekki háttum
hjá sumamóttinni
þegar þú vaknar
verð ég á braut
en skil eftir
lágarödd
ítijánum
Dagnýju eiginkonu Snorra Sveins,
börnum þeirra, bamabörnum og
öðmm ástvinum votta ég hluttekn-
ingu mína og konu minnar.
Sigurlaugur Þorkelsson.
Mönnum gengur misvel að halda ró
sinni í dagsins önn þar sem hvert
áreitið öðru verra dynur á skilningar-
vitunum. Á stómm vinnustað, fjöl-
miðh sem tengist flestum þáttrnn
þjóðlífsins, er jafnan mikih erih og
iðulega reynir á stöðuglyndi og lagni í
mannlegum samskiptum. Mikilvægt
er að þeir sem veljast til stjómunar-
starfa á slíkum vinnustöðum hafi
hæfileika til að geta unnið skipulega
undir miklu álagi, geti laðað fram það
besta í fólki, hvatt til dáða, leyst úr
deilumáliun, verið samstarfsfólki sínu
traustur félagi hvað sem á gengur.
Alla þessa kosti hafði Snorri Sveinn
Friðriksson í ríkum mæli. Hann var
því óumdeildur leiðtogi sinna manna
sem deildarstjóri leikmyndadeildar
Sjónvarpsins. Ég er einn af þeim sem
vom svo lánsamir að fá að starfa með
Snorra Sveini í nær 30 ár og fyrir það
er ég almættinu þakklátur.
Snorri Sveinn var að mörgu leyti
óvenjulegur maður, hár vexti, ljós yf-
irhtum, virðulegur með höfðinglegt
svipmót. Hann var vitur maður og
skhningur hans ekki ahur þessa
heims. Áhugamál hans vom á andlega
sviðinu, guðspeki, fagurfræði og leit
að þeim sannleika sem er öhu æðri.
Lífssýn hans birtist í verkum hans,
myndlist sem var fuh af dulúð og feg-
urð. Á síðari árum málaði hann aðal-
lega vatnshtamyndir, unnar á hand-
unninn úi’valspappír, myndir sem
vom algerlega lausar við thgerð og
sýndarmennsku, verk fullnuma lista-
manns sem af kunnáttusemi dregur
hverja línu hárrétt, myndbygging og
htir vinna saman í fuhkomnu jafn-
vægi. En einhvers staðar á myndflet-
inum er komið fyrir örhtlum óróa sem
breytir ahri myndinni í ólgandi tóna-
flóð. Ef th vih hafði Snorri Sveinn
numið leyndardóm myndhstarinnar.
Ógleymanlegar verða þær stundir,
einkum á síðari árum, sem ég fékk
tækifæri th að ræða við hann um
myndlist. Og ógleymanlegur verður
maðurinn Snorri Sveinn Friðriksson.
Eftirlifandi eiginkonu hans og böm-
um votta ég dýpstu samúð.
Rúnar Gunnarsson.
Snorri Sveinn Friðriksson er ekki
lengur í hinni daglegu sviðsmynd hjá
Sjónvarpinu. Hans er saknað eftir
farsælt starf í þágu Ríkisútvarpsins í
nærfellt 30 ár. Samstarfsmenn kveðja
góðan dreng sem nú er allur eftir bar-
áttu við erfiðan sjúkdóm. Sem for-
stöðumaður leikmyndadeildar Sjón-
varpsins var Snorri Sveinn einn af
frumheijunum í gerð íslenzkra sjón-
varpsþátta og kvikmynda. Umgjörð
hinna margvíslegu dagskráratriða og
leikinna mynda Sjónvarpsins var ým-
ist hugverk Snorra Sveins sjálfs eða
unnin undir verkstjóm hans og leið-
sögn. Aht er laut að gerð sviðsmynd-
anna og útliti þeirra og leikenda var á
verksviði leikmyndadehdarinnar und-
ir stjóm Snorra Sveins - teiknun,
smíði, málun, búningasaumur og
fórðun. Á tímum hins svart/hvita
sjónvarps var ekki litadýrðinni fyrir
að fara á málningarverkstæðinu. Þá
var afskaplega mikið málað í gráu.
Litrófið var býsna þröngt í þann tíð.
En svo kom litasjónvarp, sem gjör-
breytti öhu, og það kom í hlut Snorra
Sveins að glæða sjónvarpsmyndina
eðhlegum htum. Það má nærri geta
að litvæðingin boðaði byltingu í sjón-
varpstækninni og þá ekki sízt í öhu
sem snerti sviðsmyndagerð og önnur
úthtsatriði.
Frá löngum starfsferli liggur eftir
Snorra Svein ótrúlegur fjöldi af leik-
myndum sem urðu th og hurfu jafn-
óðum úr sjónvarpssalnum en em
varðveittar á myndbandi eða filmu í
safni Sjónvarpsins. Þessar sögulegu
heimildir sýna öra framþróun og
margs konar tækniframfarir í gerð
leikmynda og andhtsgerva. Þar eru
starfsmenn Sjónvarpsins í ffemstu
röð. Það vekur þó ekki sízt athygli
hve hugkvæmnin hefur verið mikh í
úrlausnum verkefna við þær afar
þröngu aðstæður sem búið er við í
sjónvarpssalnum á Laugavegi 176.
Þar hafa sjónvarpsáhorfendur á öll-
um aldri verið leiddir inn í ævintýra-
heima. Leikmynd Snorra Sveins fyr-
ir sjónvarpsuppfærslu á Guhna hhð-
inu hafði sérstöðu. Tímamótaverk
var þar á ferðinni. Notuð var ný
myndblöndunartækni sem gerði
kleift að hafa vatnshtamyndir eftir
Snorra Svein að baksviði hinna ýmsu
atriða leikritisins. Sjálfir leikaramir
komu fram fyrir myndavélamar á
auðu sviði. Þessi glæshega frumsmíð
sýndarveruleikans í íslenzku sjón-
varpi verður í minnum höfð. Nú
prýða vatnshtamyndimar úr Guhna
hliðinu húsakynni RDdsútvarpsins.
Snorri Sveinn var hstmálari og
verk hans má sjá víða utan vettvangs
Sjónvarpsins. Hann var smekkmaður
sem við treystum vel th að inna af
hendi úthtsteikningar á ýmsum
gögnum Rhdsútvarpsins sem fyrir al-
menningssjónir ber. Hönnun bréfs-
efna, auglýsinga og útht bifreiða
stofnunarinnar voru verkefni sem
Snorri Sveinn skilaði með miklum
sóma. Að leiðarlokum skulu honum
færðar þakkir fyrir góða viðkynn-
ingu, trúmennsku og fagmannleg
vinnubrögð í þágu Ríkisútvarpsins.
Markús Örn Antonsson.
Veistu
aðvoninertil
húnvex
inn í dimmu gili
og eigir þú leið
þarum
þá leitaðu
íurðinni
leitaðu
á syllunum
og sjáðu
hvar þau sitja
h'til og veikbyggð
vetrarblómin
h'til og veikbyggð
einsogvonin.
(Þ-G.)
Já, víst var hún bæði hth og veik-
byggð vonin, okkar eina haldreipi
undanfarna daga. Vonin um það,
Snorri minn, að góður Guð gæfi þér
fleiri daga hér á þessari jörð. Það er
erfitt að sætta sig við að svo gat ekki
orðið. Án fyrirvara ert þú nú horfinn
héðan og við sem eftir stöndum erum
fátækari en áður. í hjörtum okkar er-
um við þó rík. Rík á þann hátt að hafa
fengið að þekkja þig og njóta ahs þess
sem þú hafðir fram að færa í lífinu.
Lífsviðhorf þín og mannkostir, innri
fegurð og hlý nærvera þín, gleymist
aldrei þeim sem þig þekktu. Lista-
maður varst þú af Guðs náð og víst er
um það að fahegri vinnu og vitnisburð
um líf sitt skilja fáir eftir sig. Mynd-
imar þínar og verkin þín eru órjúfan-
legur hluti af þér sjálfum og segja um
leið meira um persónuna Snorra
Svein en nokkur orð. Bjart yfirbragð.
Mildir en geislandi litir. Geislandi
eins og persóna þín. Þegar ég sit hér
og skrifa þessi fátæklegu kveðjuorð
th þín, Snorri minn, koma aftur og
aftur fram í huga mér myndimar þín-
ar úr Guhna hliðinu. Hvhík fegurð og
sýn á hið óþekkta. Og nú þegar þú
sjálfur gengur inn um hið Guhna hhð,
inn í óendanlega fegurð þinna eigin
mynda, veit ég að yfir þér er ró, feg-
urð og friður því að þannig varst þú.
Elsku Dagný, Hjömý, Orri,
Styrmir og fjölskyldur. Systkin
Snorra og fjölskyldur. Ég votta ykk-
ur mína dýpstu samúð.
Blessuð sé minning þín, kæri
frændi, og þökk fyrir samfylgdina á
þessari jörð.
t Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Öldugötu 18,
Hafnarfirði,
andaðist á Sólvangi sunnudaginn 6. júní. Útförin verður auglýst slðar.
Trausti Ó. Lárusson, Elín Sigurðardóttir,
Steinunn Lárusdóttir, Halldór Steinsen,
Svala Lámsdóttir, David L.C. Pitt.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN ÞÓRHILDUR BJÖRG JÓNASDÓTTIR,
Kirkjubraut 16
Innri-Njarðvík,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöldi sunnudagsins 6. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Eyjólfur Kr. Snælaugsson.
t
Útför hjartkærrar eiginkonu minnar, dóttur,
móður, tengdamóður, ömmu, systur og mág-
konu,
HÖNNU BJARNADÓTTUR
söngkonu,
Austurbrún 19,
Reykjavík,
fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, Há-
túni 2, Reykjavík, miðvikudaginn 9. júní
kl. 15.00.
Þórarinn Jónsson,
Bjarni Marteinn Jónsson,
Sigríður Þórarinsdóttir, Ólafur Óskar Jakobsson,
Þórarinn Jóhannes Ólafsson,
Jakob Óskar Ólafsson,
Sigurður Anton Ólafsson,
Hanna Lísa Ólafsdóttir,
Pétur Jóhann Ólafsson,
Frosti Bjarnason, Katla Ólafsdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
EIRÍKUR ODDSSON,
Hlíðargerði 23,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðviku-
daginn 9. júni kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Um-
sjónarfélag einhverfra, sími 562 1590.
Guðmunda Kristbjörg Þorgeirsdóttir,
Grétar Eiríksson, Elín Hilmarsdóttir,
Oddur Eiríksson, Alda Steingrímsdóttir,
Guðbjörg Eiríksdóttir, Bjami Brynjólfsson
og barnabörn.
t
Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur,
ESTHERAR MAGNÚSDÓTTUR
hjúkrunarkonu,
Hofteigi 38,
ferfram frá Háteigskirkju föstudaginn 11. júní kl. 13.30.
Gunnar Haugen,
Axel Haugen,
Sigurður Magnússon,
Hrefna María Magnúsdóttir,
Svavar Berg Gunnarsson,
Birkir Gunnarsson.
Svanhildur Svavarsdóttir,
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu minnar, móður okkar og ömmu,
RÓSMARY VILH JÁLMSDÓTTUR,
Lyngási 3,
Holtum.
Þórir Sveinbjörnsson,
börn og barnabörn.
I
Kristín Fjóla.