Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Velkomin
■ * *
Hringdu í áskriftardeildina áður en þú ferð í
fríið og láttu okkur vita hvenær þú kemur aftur.
Við söfnum saman blöðunum sem koma út á
meðan og sendum þér þegar þú kemur aftur heim.
Byggjum í
V atnsmýrinni
AÐ FLYTJA flug-
völKnn úr Vatnsmýr-
inni og byggja þar
miðborgarbyggð í
staðinn er eitt stærsta
framfaraspor sem
Reykjavíkurborg get-
ur stigið. Brotthvarf
flugvallarins úr Vatns-
mýrinni mun brjóta af
miðbæ Reykjavíkur þá
hlekki sem hindrað
hafa miðbæinn í að
stækka og dafna. Það
að ekki er hægt að
byggja háhýsi við eða í
miðbæ Reykjavíkur
hefur gert það að verk-
um að miðbærinn hef-
ur litla stækkunarmöguleika og
miðbær án stækkunarmöguleika er
miðbær sem staðnar og hnignar.
Fyrirhugaður flutningur Lands-
símans úr Kvosinni er nýjasta
dæmi þessarar hnignunar.
Stækkum miðbæinn
út í Vatnsmýrina
AUnokkur umræða hefur verið
um hvar hægt er að koma fyrir
flugvelli ef hann yrði fluttur úr
Vatnsmýrinni, um gerð hans
o.s.frv. Flugvöllurinn og staðsetn-
ing hans er hins vegar ekki aðal-
málið í þessu dæmi. Flugvelli má
víða finna stað þannig að hann
verði áfram í nánum tengslum við
miðbæinn, t.d. í Skerjaflrði eða við
Engey. Aðalmálið er að losa miðbæ
Reykjavíkur undan þessum rúm-
lega hálfrar aldar gömlu kvöðum
og styrkja hann með nýrri byggð í
Vatnsmýrinni. Það er lykilatriði
fyrir atvinnuþróunina á höfuðborg-
arsvæðinu og reyndar á landinu
öllu að til verði stór, nýtískuleg og
glæsileg miðborg á næstu áratug-
um.
Erlendis er litið á það sem for-
réttindi að fá að starfa og búa í mið-
borgum enda fasteignaverð í sam-
ræmi við það. I miðborgunum vilja
allir vera, þar eru kaffihúsin, veit-
ingahúsin, verslanimar, menningar-
starfsemin og mannlífíð. í Reykja-
vík ætti þetta einnig að vera þannig.
Vissulega er miðbær Reykjavíkur
glæsilegur á góðum degi og verður
það án efa um ókomin ár. Miðborgir
eru þó og verða alltaf fýrst og
fremst vinnustaðir og það er ekki
síst í þessum miðborgarkjömum
sem peningarnir verða til í dag. Ef
við ætlum að vera þátttakendur í
Randalín eKf.
v/ Kaupvang
/00 Egilsstöðum
sími 471 2433
Handunnar gesta- og
minningabækur fyrir:
✓ Ferminguna
✓ Brúðkaupið
✓ Merka ófanga
✓ Erfidrykkjuna
Leitið upplýsinga um sölustaði
VEIAR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
þessari þróum verðum
við að bjóða upp á eitt-
hvað sambærilegt við
það sem er að finna í
miðborgum Evrópu og
Bandaríkjanna. Við
eigum alla möguleika á
því, við þurfum einfald-
lega að gefa miðbæ
Reykjavíkur tækifæri
til að stækka og vaxa.
Miðbærinn á að stækka
út í Vatnsmýrina og
það ætti að leyfa að
einhver hluti verði tek-
inn undir háhýsi sem
rúma myndu stærstu
fyrirtæki landsins.
Þannig getum við skap-
að einstaka aðstöðu á besta stað.
Glæsileg nýtísku
miðborgarbyggð
Flestir íslendingar hafa staðið
niðri á Lækjartorgi með erlenda
gesti sér við hlið, baðað út hendinni
og sagt: „this is IT“ og við blasir
Bakarabrekkan og gömlu timbur-
húsin sem danskurinn byggði hér á
síðustu öld. Sú aðstaða sem há-
tæknifyrirtækinu Islenskri erfða-
greiningu hf. bauðst í höfuðborg
landsins er við hliðina á dekkjaverk-
stæði uppi á Höfða þar sem það tek-
ur 10 mínútur að labba út í næstu
sjoppu. Eg hygg að það komi fá ef
nokkur erlend hátæknifyrirtæki
hingað til lands á næstu áratugum
Reykjavíkurflugvöllur
Flutningur flugvallar-
ins og stækkun mið-
bæjar Reykjavíkur
og Tjarnarinnar
út 1 Vatnsmýrina,
segir Friðrik Hansen
Guðmundsson, er
stórmál.
ef við höfum ekkert upp á að bjóða
annað en þetta. Vandamál verður
einnig að halda í þau íslensku há-
tæknifyrirtæki sem hér hafa sprott-
ið upp.
Endurbygging flugvallarins frá
grunni er nokkurra ára gömul
ákvörðun sem eðlilegt er að endur-
skoða í ljósi nýrra hugmynda. Flu-
gráð hefur nú lagt til að 50% af
umferðinni um völlinn verði flutt
burtu, þ.e. hluti æfínga- og
kennsluflugsins. Borgarstjórn
Reykjavíkur hefur einnig krafist
þess að umsvifín á vellinum verði
stórminnkuð. Er ekki rétt að stíga
skrefið til fulls og flytja starfsem-
ina í heild sinni úr Vatnsmýrinni?
Er ekki einnig rétt að fresta fyrir-
huguðum milljarðaframkvæmdum
við Reykjavíkurflugvöll en fara
þess í stað út í viðgerð á malbiki
vallarins fyrir 200 til 250 milljónir
sem duga myndu árum saman. Þá
vinnst tími til að skoða betur þessi
mál og um leið er komið á móts há-
værar kröfur um samdrátt í ríkis-
útgjöldum vegna ofþenslu.
Flutningur flugvallarins og
stækkun miðbæjar Reykjavíkur og
Tjarnarinnar út í Vatnsmýrina
ásamt þéttri íbúðabyggð er stórmál
sem við hljótum að ætlast til að tek-
inn verði tími í að skoða. Við eigum
að gefa fleirum kost á því að búa og
starfa í miðbæ Reykjavíkur og
njóta þeirra gæða sem fylgja því að
vera í miðbænum. Flugvöllurinn
getur verið næstum hvar sem er en
við getum bara byggt miðborg á
einum stað.
Friðrik Hansen
Guðmundsson
Vefsíða: www.oba.is
Höfundur er verkfræðingur.