Morgunblaðið - 08.06.1999, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 55
Kjör hinna
verst settu
UM SL. áramót
hækkuðu laun lífeyris-
þega um 4%. Við það
fóru laun lífeyrisþega
sem fá alla fjóra bóta-
flokkana í 66.000
krónur á mánuði og
við 7% hækkunina á
grunnlífeyri 1. apríl
sl. hækkuðu þau í
67.000 krónur eða um
1.100 krónur á mán-
uði. Það er ekki svo
slæmt eða hvað? Fá
ekki allir öryrkjar þá
upphæð? Samkvæmt
staðtölum almanna-
trygginga 1997 fengu
5,8% öryrkja full ör-
orkulaun og samkvæmt upplýs-
ingum Tryggingastofnunar ríkis-
ins (TR) nú nýverið, hefur þeim
öryrkjum fækkað verulega sem
fengu full örorkulaun árið 1998 og
voru þeir 3,6% eða 296 einstak-
lingar af 8.239. Hvað veldur
þessu? Hafa öryrkjar þá svona
Hjálparstarf
s
I dag hlýtur öllum
að vera Ijóst hver staða
hinna verst settu er í
íslensku samfélagi, seg-
ir Harpa Njáls. Hópar
fólks lifa við skort
og fátækt.
góðar greiðslur úr lífeyrissjóðum
sem skerða örorkulaun svona
mikið?
Öryrkjar eru margbreytilegur
hópur fólks sem á það eitt sameig-
inlegt að hafa misst heilsuna.
Margir hverjir á unga aldri eða
miðjum aldri vegna sjúkdóma,
slysa eða fötlunar allt frá fæð-
ingu. I ýmsum tilvikum er um fólk
að ræða sem á sáralítinn eða eng-
an rétt til greiðslna úr lífeyris-
sjóði. I nýútkominni skýrslu Þjóð-
hagsstofnunar kemur fram að
rúmlega helmingur öryrkja fær
greiðslur úr lífeyrissjóði. Ef litið
er nánar til þess hóps er það um
fjórðungur öryrkja sem nýtur
þokkalegra greiðslna úr lífeyris-
sjóðum og fær 30.000 krónur á
mánuði eða meira. Það er jafn-
framt staðreynd að hartnær
helmingur öryrkja á Islandi fær
engar lífeyrissjóðsgreiðslur, þ.e.
hátt í fjögur þúsund manns. A sl.
ári fengu öryrkjar að stærstum
hluta, þ.e. 75% öryrkja, aðeins
grunnbótaflokkana tvo, örorkulíf-
eyri og tekjutryggingu sem eru
um 46.000 krónur á mánuði og
þaðan af minna, samkvæmt upp-
lýsingum TR. Það eru því aðeins
um 25% öryrkja sem fá hærri
laun en það frá TR, en þó aldrei
hærri en 67.000 krónur á mánuði.
Rétt er að minna á að ellilaun eru
nánast þau sömu og laun örorku-
lífeyrisþega, þessir hópar búa
nánast við sama launakerfi. I nið-
urstöðum rannsóknar norrænu
ráðherranefndarinnar 1996, um
þróun fátæktar á Islandi sem tók
til áranna 1986-1995
segir að hlutfall aldr-
aðra sem búa við fá-
tækt sé tiltölulega
hátt hér á landi miðað
við hin Norðurlöndin
og ljóst að þeir lenda
oft undir fátækra-
mörkum. I þessari
rannsókn voru aldr-
aðir 16% af þeim hópi
hér á landi sem lifði
undir fátækramörk-
um.
Öryrkjar og aldr-
aðir hafa ekki
verkfallsrétt
Eg minni á að ör-
yrkjar og aldraðir hafa hvorki
samnings- né verkfallsrétt við sína
launagreiðendur. Það þætti ekki
stórt í kjarasamningum hags-
munahópa ef samið væri um há-
markslaun fyrir brot af launþega-
hópnum. Þá er ljóst að þó lífeyris-
sjóðsréttindi fólks hafi verið að efl-
ast á undanfömum árum, er hópur
fólks í dag sem hefur sáralítið úr
lífeyrissjóðum eða nýtur ekki
slíkra réttinda. Rétt er að minna á
að mikill munur er á aðstöðu líf-
eyrisþega sem búa í eigin húsnæði
eða þeirra sem búa á leigumark-
aði.
Hvað veldur því að kjör lífeyris-
þega eru svo naumt skömmtuð?
Laun lífeyrisþega eru ákvörðuð
af Alþingi með lögum nr. 118/1993
um félagslega aðstoð sem ákvarðar
laun þessa fólks. Það er Trygg-
ingastofnun ríkisins sem framfylg-
ir þeim lögum. Samkvæmt túlkun
þessara laga og reglugerðar býr
fólk sem hefur um 46.000 krónur á
mánuði í laun, þ.e. grunnlífeyri og
tekjutrygginu, við skerðingará-
kvæði þessara laga (þ.e. 75% ör-
yrkja eins og komið hefur fram).
Það er fólk, sem vegna hjúskapar-
stöðu missir strax þriðjung af laun-
um sínum burtséð frá öðrum að-
stæðum. 2.335 örorkulífeyrisþegar
urðu íyrir skerðingu eða sviftingu
tekjutiyggingar vegna tekna maka
árið 1998 og litlu færri voru í sömu
stöðu árið 1997. Öryrki sem á maka
á vinnumarkaði getur farið niður í
15.000 krónur á mánuði og neðar.
Ef hann hefur ekki aðrar tekjur,
verður hann algerlega háður maka
sínum efnahagslega sem leiðir af
sér aðrar hömlur fyrir einstakling-
inn.
Þessi skerðingarákvæði laga
hafa einnig til langs tíma varðað
hópa öryrkja sem eru einstæðir
foreldrar og hafa þeir misst þriðj-
ung af tekjum sínum þess vegna.
Nú á allra síðustu vikum hefur
Tryggingaráð úrskurðað í kæru-
máli einstæðs foreldris og fá þeir
nú heimilisuppbót og sérstaka
heimilisuppbót ef þeir hafa ekki
aðrar tekjur. Ekki leiðréttist
þetta þó sjálfkrafa samkvæmt
upplýsingum frá TR. Því vil ég
benda öllum einstæðum foreldr-
um, öryrkjum sem eru með börn á
framfæri, á að sækja þarf um
þessa hækkun. Það er áhyggju-
efni ef fólk áttar sig ekki á þess-
um réttarbótum. Það er ástæða til
að minnast allra þeirra öryrkja,
einstæðra foreldra og bama
þeirra sem hafa liðið árum saman
fyrir ákvæði í íslenskri löggjöf
sem á sér enga stoð í heilbrigðri
skynsemi. Mér vitanlega er í öllu
öðru félagslegu tilliti talið að við
það að eignast bam bætist við
munnur að metta, einstaklingur
sem ala þarf önn fyrir.
Fleiri dæmi um lífeyrisþega,
sem ég hef mætt í starfi mínu hjá
Hjálparstarfi kirkjunnar, vil ég
nefna. það em einstaklingar sem
leigja herbergi eða íbúð á frjálsum
markaði og eru háðir leigusala sín-
um um það hvort hann vill láta af
hendi leigusamning eða löglegar
kvittanir. Ef ekki, missir lífeyris-
þeginn um 20.000 krónur á mánuði
frá TR, þótt þeir eigi rétt á því að
öllu öðru leyti. Þetta er vitneskja
sem ég hef öðlast við að aðstoða líf-
eyrisþega sem eiga ekki til hnífs og
skeiðar. Staðreyndir sem eru mjög
duldar í íslensku samfélagi. Eitt-
hvað hlýtur nú að vera að og þurfa
að lagfæra hér.
Samkvæmt laganna hljóðan
eiga þeir sem ekki hafa aðrar
tekjur en frá lífeyristryggingum
almannatrygginga rétt á heimilis-
uppbót og sérstakri heimilisupp-
bót. Þessar staðreyndir undir-
strika mikilvægi þess að fólki sem
hefur aðeins laun frá Trygginga-
stofnun ríkisins sé ákvörðuð ein
upphæð, laun til að lifa af. Laun
sem grundvölluð eru á raunhæf-
um neyslugrunni. Það hlýtur að
verða næsta skref í því endurmati
og endurskoðun sem nú á sér
stað.
Er þetta sæmandi velferðarþjóð
við upphaf nýrrar aldar?
Þeir sem hafa bága afkomu geta
leitað til félagsmálastofnana í sínu
sveitarfélagi og fengið viðbótar-
styrk að viðmiðunarmörkum, fá-
tækramörkum. Er það eðlileg sam-
félagsúrlausn að ríkið ákvarði laun
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.
fólks það lág að það sé í vítahring
fátæktar? Eg er sannfærð um að
enginn sem komið hefur að þessari
lagasetningu eða skerðingará-
kvæðum, hefur gert sér grein fyrir
afleiðingunum. Við skulum ekld
gleyma því að fólk sem missir
heilsuna eða hverfur af vinnumark-
aði hefur jafnframt greitt til samfé-
lagsins með sköttum sínum og
skyldum í sameiginlega sjóði okkar
allra.
í dag hlýtur öllum að vera ljóst
hver staða hinna verst settu er í ís-
lensku samfélagi. Hópar fólks lifa
við skort og fátækt. Það er að stór-
um hluta fólk sem hefur lífsafkomu
frá hinu opinbera. Það er fólk sem
hefur misst heilsu, atvinnu, aldrað
fólk, einstæðir foreldrar og bama-
fólk á lágum launum. Að sjálfsögðu
standa sumir betur innan þessara
hópa og það er vel. Áhersla mín er
á alla þá sem lifa við skort og víta-
hring fátæktar í íslensku samfé-
lagi. Það er veruleg ástæða að bera
ugg í bijósti vegna hinna verst
settu og framtíðar barna þeirra,
sem um leið er framtíð samfélags-
ins.
Höfundur er félagsfræðingur, um-
sjónarmaður innanlandsaðstoðar
Hjálparstarfs kirkjunnar og stundar
MA-nám við Háskóla íslands.
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
✓
Isaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
5 gerðir - margir litir
60 úra i'rábær reynsla.
Einar
Farestveit&Co.l
Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900
Þátttaka í happdrætti Krabbameinsfélagsins
er stuðningur við mikilvægt forvarnastarf
MIÐI NR.
Vinningar:
nreqið U.júní 1999
1 Honda HR-V, Sport 4x4.
Verðmæti 1.900.000 kr
1 Bifreið eða greiðsla
upp f íbúð.
Verðmæti 1.000.000 kr
168 Úttektir hjá ferðaskrifstotu
eða verslun.
Hver að verðmæti
100.000 kr.
að verðmæti 19,7
milljónir króna
fjftldi útfletinn* 157.000 J
Veittu stuðning - vertu með!
Dregid17.júní
>pnum
dag
'agana Opið
.-16. Júní kl. 10-23 alla daga
Við erum hér
glntiIi&NÝTT
Stakkahlíð 17 Sími: 568 5544
^fifiAur
fTÓNABÆR
5
"
■ ■.
HAMRAHLÍÐ
I
1
f
—J
I KRINGLAN