Morgunblaðið - 08.06.1999, Side 64
63 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
í DAG
MARGRÉT Vala Guðmundsdóttir og Davíð Sævarsson
draga nöfn vinningshafa.
F engu vikudvöl í sumar-
búðum í verðlaun
NÝLEGA var dregið í getraun
sem sumarbúðirnar Ævintýra-
land efndu til. Spurningar
tengdar Húnaþingi vestra voru í
kynningarbæklingi sumarbúð-
anna og verðlaunin voru viku-
dvöl þar fyrir þrjá getspaka
krakka.
„Nokkur hundruð svör bárust
en þau Davíð Sævarsson og Mar-
grét Vala Guðmundsdóttir
drógu nöfn vinningshafanna
þriggja úr bréfabunkanum.
Nöfn þeirra eru: Svava Hlín
Hilmarsdóttir, Safamýri 38,
Reykjavík, Iris Sif Hermanns-
dóttir, Stararima 29, Reykjavík,
og Elva Rut Sigmarsdóttir,
Heiðarhrauni 12, Grindavík.
Sumarbúðirnar Ævintýraland
eru starfræktar í annað sinn í
Reykjaskóla í Hrútafírði og eru
ætlaðar 6-12 ára börnum. Boðið
er upp á vikudvöl í senn og eru
dagleg námskeið í grímugerð,
ieiklist, frjálsum íþróttum og
myndlist innifalin þar sem fag-
fólk leiðbeinir börnunum. Gæsla
er allan sólarhringinn og kvöld-
vökur á hverju kvöldi. Reiðnám-
skeið standa einnig til boða. I
kringum verslunarmannahelg-
ina verður vika fyrir eldri börn-
in, eða 12-14 ára, með nám-
skeiðum, grillveislu, varðeldi
o.fl.,“ segir í fréttatilkynningu.
Vinningaskrá
5. útdráttur 7. júní 1999.
íbúðarvinningur
Kr. 1.000.000 Kr. 2.000.000 (tvöfaldur)
Ferðavinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvðfaldur)
16399
21581
51817
78275
F erðavinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (Þ
2171 25868 30135 46337 60496 62650
22708 29762 34100 59105 62378 75792
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfalfi ur)
710 13508 23955 40730 53788 67851
1224 13665 26080 41419 54273 69162
1459 15695 27331 41789 54958 70509
3836 16473 28065 42086 55352 73596
4242 17405 28292 42633 55435 73852
5421 17945 28461 44499 55636 74056
6448 17974 28993 44722 55705 74274
7439 18019 30496 44755 55991 74851
8067 18466 32300 45422 56089 75124
8414 18895 35308 45987 60338 75860
8817 19096 35642 48122 60442 76446
8950 19523 35843 49556 60756 77050
9165 21842 37111 49563 62269 77662
9179 22158 39095 51890 62663 77919
10209 22328 39411 52323 64204 78396
12055 22561 40317 52932 64427
12327 23393 40554 53165 66678
Næsti útdráttur fer fram 10.18. & 24. júní 1999
Heimasíða á Intcmeti: www.das.is
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakklæti
MIG langar til að koma ó
framfæri þakklæti til
starfsfólks Islandsbanka
í Lækjargötu fyrir frá-
bæra þjónustu. Sérstak-
ar þakkir til Einars Rún-
ars Guðmundssonar og
Pálínu Friðgeirsdóttur
þjónustufulltrúa, svo og
til útibússtjórans Árna.
Þau gjörsamlega björg-
uðu því að ég lenti ekki á
götunni. Þetta fólk er
svo mannlegt. Það er
alltaf verið að skrifa um
það neikvæða í sambandi
við bankana - en ég vil
taka fram að í mínu til-
felli var þetta jákvætt,
bankarnir hjálpa líka
fólki.
Einnig við ég taka
fram að starfsfólk Fast-
eignasölunnar Óðals er í
sérflokki fyrir mannleg
samskipti og heiðarleika.
Þeir björguðu mér með
góðri þjónustu og vil ég
sérstaklega nefna Jó-
hann.
Ég óska þessu fólki
alls góðs og vona að það
taki áfram á móti fólki
með sama jákvæða hug-
arfarinu. Ég hafði það á
tilfinningunni að ég væri
einhvers virði eftir sam-
skipti mín við þetta fólk
á erfiðum tíma. Þetta
fólk hefur unnið sitt verk
með sóma.
Jónína Dagný
Hilmarsdóttir,
ánægður
viðskiptavinur.
Frábærar tertur
OKKUR langar til að
hrósa Garðari S. Hann-
essyni, bakaranema í
Bakarameistaranum,
Suðurveri, fyrir frábær-
ar tertur sem hann bak-
aði fyrir vinnustað okk-
ar fyrir nokkru. Þær
voru þvílíkt lostæti og
engu líkar.
Ánægðir viðskiptavinir.
Dýrahald
Gárapar óskast
ÓSKA eftir gefins gárap-
ari. Upplýsingar í síma
5553041.
Hvolpar fást gefins
11VIKNA gamlir hvolpar
til heimihs í Vík fást gef-
ins. Blandaður labrador
og border collie. Greindar
skepnur. Upplýsingai-
gefur Gunnar í sima
4c87 1465.
Kettlingar óska eftir
heimili
TVEIR fjörugir, kassa-
vanir kettlingar óska eft-
ir heimili. Upplýsingar í
síma 482 3027.
Tapað/fundið
Kvenúr týndist á
Akureyri
KVENÚR með
gylltu/silfur armbandi
týndist í Fosshlíð á Akur-
eyri eða nágrenni í lok
mars. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
462 3929.
HÖGNI HREKKVÍSI
SKAK
Vmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
búlgarska meistaramótinu í
mai. Vasil Spasov (2.585)
hafði hvítt og átti leik gegn
Drenchev(2.330).
19. Rxe6! - fxe6 20. Bxe4 -
Bd5 (Eða 20. - Bxe4 21.
Dc4+ og hvítur vinnur
manninn til baka með
léttunnu tafli) 21. Bxd5 -
Hxd5 22. Bf4 og svartur
gafst upp.
Með morgunkaffinu
Mundu nú að setja heilann í gang áður en
þú setur tunguna í gfr.
COSPER
SVONA sítt Ijóst hár myndi klæða þig mjög vel.
Víkverji skrifar...
A
ISLENDINGAR unnu góðan og
verðskuldaðan sigur á liði Ar-
meníu á laugardaginn í riðlakeppni
Evrópumóts landsliða í knatt-
spyrnu. Islenska liðið var mun betri
aðilinn allan leikinn og átti mun
fleiri marktækifæri heldur en Ar-
menar. Með sigrinum á Armenum
og tapi Frakka gegn Rússum um
helgina er staða íslenska liðsins í
riðlinum betri heldur en frönsku
heimsmeistaranna og er það ljúf til-
hugsun ef íslenska liðið kemst
áfram en ekki það franska. Næst
leikur íslenska liðið gegn því rúss-
neska og vonandi heldur liðið áfram
að bjóða áhorfendum upp á svipaða
leikgleði og úrslit og á laugardag-
inn.
XXX
VÍKVERJI hefur mjög gaman af
því að ferðast til útlanda en eitt
skyggir oft á ferðalagið, tafir á flugi.
Nýverið brá hann sér í stutta sólar-
landaferð. Tæplega fimm hundruð
Islendingar höfðu fengið sömu hug-
dettu en flugvél Atlanta sem tekur
478 farþega var fullbókuð. Ekki urðu
miklar tafir á fluginu út. Að vlsu fór
vélin um 40 mínútum of seint i loftið
en megnið af þeim tíma tókst að
vinna upp vegna mikils meðvindar. Á
flugvellinum úti tók hinsvegar við
klukkutíma bið eftir farangrinum
enda ófá tonnin sem farþegar fluttu
með sér á milli landa.
Til þess að tryggja það að þau
sem ætluðu að sækja Víkverja á
flugvöllinn þegar heim kæmi þyrftu
ekki að bíða mjög lengi á vellinum
ef um seinkanir yrði að ræða ákvað
Víkverji að hringja heim til íslands
þegar hann var á leiðinni upp í flug-
vélina. Allt gekk að óskum og útlit
fyrir að vélin færi í loftið á réttum
tíma farþegum til mikillar ánægju
og þeim sem heima biðu þar sem
vélin átti að lenda seint um kvöld.
Mjög fáir farþegar voru með flug-
vélinni á heimleiðinni eða einungis
um 70 manns. Allir voru komnir um
borð á skikkanlegum tíma og var
Víkverji dagsins orðinn sannfærður
um að komast í fyrsta skiptið í loftið
með Atlanta leiguflugi á réttum
tíma. Fljótlega eftir að vélin átti að
fara í loftið tilkynnti flugstjórinn um
að færibandið er flutti farangurinn í
vélina hefði rekist utan í flugvélina
og ganga þyrfti frá tjónaskýrslu.
Leið og beið og tæplega einum og
hálfum tíma eftir auglýstan brottfar-
artíma fór vélin í loftið. Tafir af
þessu tagi eru mjög bagalegar en því
miður ekkert við þessu að gera.
Eins eiga flugliðarnir hrós skilið
fyrir góða þjónustu um borð á með-
an beðið var og gerðu þeir allt sem í
þeirra valdi stóð til þess að auð-
velda farþegum biðina og þá sér-
staklega farþegum af yngri kyn-
slóðinni. Jafnframt er mjög óvana-
legt að flugstjóri veiti jafn oft og
jafn greinargóðar upplýsingar um
tafír eins og var í þessum biðtíma.
Mættu fleiri taka hann til fyrir-
myndar þar sem ekkert er verra en
að vita ekki neitt þegar beðið er eft-
ir flugi.