Morgunblaðið - 22.06.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 22.06.1999, Síða 1
STOFNAÐ 1918 137. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bill Clinton útilokar að Serbar fái efnahagsaðstoð á meðan Milosevic er þar við völd NATO veitir Júgdslavíu rafmagn, matvæli og lyf Reuters HALLDÓR Ásgrúnsson utanríkis- Tveir breskir friðargæsluliðar létust í sprengingu í Kosovo Bonn, Búdapest. Reuters. TVEIR friðargæsluliðar úr sérsveitum Gurkha í breska hemum, auk tveggja óbreyttra borgara, fórust í sprengingu er þeir voru að fjarlægja hergögn úr skólahúsi í bænum Orlate í Kosovo í gær. Peir voru fyrstu liðsmenn friðargæslusveita NATO sem láta lífið í aðgerðum í héraðinu. A fundi Bandaríkjamanna og Evrópusambandsins um aðstoð við upp- byggingu í Kosovo, sem haldinn var í Bonn í gær, var fyrst og fremst rætt um skiptingu kostnaðar og hve langt ætti að ganga í að aðstoða Serba við að byggja upp land sitt eftir loftárásir NATO. Morgunblaðið/Kristinn KEIZO Obuchi, forsætisráðherra Japans, og Chizuko Obuchi, eigin- kona hans, við komuna til Keflavíkur í gærkvöldi. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði á fréttamannafundi með Ger- hard Schröder, kanslara Þýska- lands, og Jacques Santer, forseta framkvæmdastjórnar ESB, að mannúðaraðstoð við Júgóslavíu gæti falið í sér veitingu rafmagns til að halda sjúkrahúsum gangandi og gera almenningi í landinu kleift að hita hús sín í vetur. En Clinton útilokaði að NATO myndi aðstoða Serba við að endurbyggja brýr sem eyðilögðust í loftárásum banda- lagsins. Sagði hann að það væri hluti af efnahagsuppbyggingu en ekki mannúðarstarfi, og á meðan Slobodan Milosevic væri við völd í Júgóslavíu kæmi slíkt ekki til greina. Ráðstefna um uppbyggingu haldin fjúlf Schröder sagði á fréttamanna- fundinum að í neyðarhjálp við Serba myndi felast að NATO veitti þeim matvæli og lyf, því ekki væri hægt að láta fólk svelta vegna þess að það hefði rangan forseta. Hins vegar fengju Serbar enga efnahags- aðstoð fyrr en lýðræði yrði þar í heiðri haft. Sagði Sehröder að ráð- gert væri að halda ráðstefnu um uppbyggingu Balkanlanda í júlí, og myndi hún fara fram í Sarajevo, höfuðborg Bosníu. Clinton hringdi í gær í Hashim Thaci, foringja Frelsishers Kosovo (UCK), til að lýsa yfir ánægju sinni með að hreyfmgin samþykkti í fyrri- nótt að leggja niður vopn. Eftir fundinn í Bonn í gær hélt Clinton til Slóveníu, þar sem hann ræddi við forseta landsins. Við komuna hvatti hann Serba til að binda enda á „blóðuga valdatíð“ Milosevic. Clint- on mun í dag heimsækja flótta- mannabúðir Kosovo-Albana í Mak- edóníu. Blair hvetur Serba til að steypa Milosevic af stóli Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hvatti í gær serbnesku þjóðina til að steypa Slobodan Milosevic af stóli, og sagði að Serb- ar gætu ekki lengur horft framhjá grimmdarverkum sínum í Kosovo. Blair sagði ennfremur að Serbía gæti ekki endurheimt sess sinn meðal siðmenntaðra þjóða á meðan ákærður stríðsglæpamaður væri þar við völd. Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO, tók í sama streng í gær á ráðstefnu bandalagsins í Búdapest. Sagði hann að Milosevic myndi aldrei eiga samleið með ríkjum Evr- ópu og að Júgóslavía yrði í auka- hlutverki í álfunni uns hann léti af völdum. Um 300 bandarískar herflugvélar sem tóku þátt í árásum á Júgóslavíu voru í gær kallaðar heim, til stað- festingar á formlegri tilkynningu NATO á sunnudag um að loftárás- um væri lokið, eftir að Serbar höfðu lokið brottflutningi herliðs síns úr Kosovo. ■ Erfitt verður/26 ráðherra heilsar Elisabeth Rehn, sendimanni Sameinuðu þjóðanna í Bosm'u, í Sarajevo í gær. Sendinefnd Evrópuráðsins til Bosníu-Hersegóvínu Miklar framfarir í landiim Sarajevo. Morgunblaðið. „BOSNÍA-Hersegóvína á heima í Evrópu," sagði Daniel Tarschys, að- alframkvæmdastjóri Evrópuráðsins, á blaðamannafundi í Sarajevo í gær eftir fund sendinefndar ráðsins, und- ir forystu Halldórs Asgrímssonar ut- anríkisráðherra með forsetum Bosn- íu-Hersegóvínu. Markmið ferðarinnar var að leggja inngöngu landsins í Evrópu- ráðið lið, en aðildarumsóknin verður á næstunni lögð fýrir þing ráðsins. A morgun mun utanríkisráðherra segja þinginu frá meginmðm"stöðu ferðar sendinefndarinnar. Kvaðst Halldór í samtali við Morgunblaðið í gær hafa séð miklar framfarir í land- inu á undanförnum þremur árum og sagði að vonir stæðu til að innan skamms tíma verði það aðildarríki Evrópuráðsins. ■ Klafar fortíðar/24 Keizo Obuchi, forsætisráðherra Japans, á fslandi Merki um aukin sam- skipti þjóðanna KEIZO Obuchi, forsætisráðherra Japans, og Chizuko Obuchi, eigin- kona hans, komu ásamt fjölmennu fylgdarliði til Islands í gærkvöldi. Boeing 747-400 þota japanska ríkisins lenti á Keflavíkurflug\'elli á áttunda tímanum í gærkvöldi. Ami M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra tók á móti japönsku forsætisráðherra- hjónunum fyrir hönd íslenska ríkis- ins. Sadaaki Numata, yfírmaður fjöl- miðla- og almannatengsla japanska utanríkisráðuneytisins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gærkvöldi að unnlð yrði að því að efla samskipti Japans og Islands með ýmsu móti. „Við ætlum að stofna japanska upp- lýsingaskrifstofu hér í Reykjavík á þessu ári. Eg vona að hún verði mik- ilvægur grundvöllur fyrir miðlun hvers kyns upplýsinga um Japan hér á landi. Við teljum að þessi nýmæh og heimsókn Obuchis séu leiðir til að efla samskiptin enn frekar og við fógnum ennfremur stofnun íslensks sendiráðs í Tókýó. Allt eru þetta já- kvæðir atburðir og merki um aukin samskipti þjóðanna tveggja,“ sagði hann. Davíð Oddsson forsætisráðherra mun eiga fund með Keizo Obuchi í Höfða kl. 9 í dag. Davíð sagði í gær að hann myndi einkum ræða við Obuchi um viðskipti landanna og gagnkvæm sendiherraskipti en stefnt er að því að opnað verði ís- lenskt sendiráð í Japan árið 2001. Önnur breiðþota til vara A annað hundrað embættismenn og háttsettir menn úr japönsku þjóðh'fi, auk um 40 japanskra fjöl- miðlamanna, komu einnig með þotu japanska forsætisráðherrans í gær. Alls fylgja um 220 manns Keizo Obuchi hingað til lands en fyrir nokkru komu fjórir tugir japanskra starfsmanna til Islands vegna heim- sóknarinnar. Mikill viðbúnaður var í kringum komu forsætisráðherrahjónanna sem héldu strax að lokinni móttöku- athöfn á Keflavíkurflugvelli að Hótel Loftleiðum. Þar sátu þau kvöldverð með japönsku fjölmiðlafólki. I gær- kvöldi kom svo önnur Boeing 747- 400 þota til Keflavíkur á vegum jap- anska ríkisins en hún er höfð til vara fyrir japönsku forsætisráðherra- hjónin. Ræðir við forsætisráðherra Norðurlandanna I framhaldi af fundi Obuchis og Davíðs í dag mun japanski forsætis- ráðherrann eiga fund með forsætis- ráðherrum Norðurlandanna, sem staddir eru hér á landi. Að því búnu verður efnt til fréttamannafundar. Japönsku forsætisráðherrahjónin, forsætisráðherrar Norðurlandanna og eiginkonur þeirra munu svo snæða hádegisverð á Bessastöðum í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, for- seta Islands. ■ Lítum á Norðurlönd/34/35

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.