Morgunblaðið - 22.06.1999, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999 57
4
I DAG
Árnað heilla
BRIDS
llmsjón Guóniundur
l'áll Arnarson
Sem ríkjandi Evrópumeist-
arar spiluðu ítalir fyrsta
sýningarleikinn á EM á
Möltu. Þeim gekk allt í
haginn gegn gamalreyndu
liði Austurríkismanna og
unnu 25-2. Hér fengu þeir
14 IMPa í slemmuspili:
Austur gefur; AV á
hættu.
Norður
A D3
V Á107542
♦ Á
*ÁKG5
Suður
AG
VK98
♦ KG87
+ D10962
Á báðum borðum varð
suður sagnhafi í sex hjörtum
eftir sterka laufopnun norð-
urs og gervisvar á hjarta.
AV skiptu sér ekkert af
sögnum. Hvemig myndi les-
andinn spila með tígli út?
En með litlu hjarta út?
ítalinn Ferraro fékk út
tígul. Hann tók strax ás og
kóng í hjarta og vann sjö
þegar trompið kom 2-2:
Norður
+ D3
¥ Á107542
♦ Á
+ ÁKG5
Vestur Austur
+ K9654 + Á10872
»63 ¥ DG
♦ D965 ♦ 10432
+ 43 +87
Suður
+ G
VK98
♦ KG87
♦ D10962
Austurríkismaðurinn
Terraneo fékk út tromp.
Hann lét lítið úr blindum
og austur setti drottning-
una. Terraneo ákvað þá að
spila upp á blanka drottn-
ingu og svínaði hjarta í öðr-
um slag. Norberto Bocchi í
austur fékk slaginn á gos-
ann og var ekki höndum
seinni að taka á spaðaás.
í mótsblaðinu er Terra-
neo gagnrýndur fyrir að
taka ekki fyrsta slaginn á
hjartaás, því þá getur hann
prófað tígulinn: tekið ásinn,
farið heim á trompkóng og
reynt að trompa niður
tíguldrottningu þriðju ef
hjartað skilar sér ekki. Það
var reyndar áætlun Ferr-
aros. Eigi að síður virðist
sem leið Ferraros hafi ekki
verið sú besta. Eða hvað
ætlar hann að gera ef vest-
ur kemur með blankan
hónór í hjartaásinn? Töl-
fræðin segir að þá sé betra
að svína í trompinu, en það
þýðir að hann getur ekki
prófað tígulinn. Því sýnist
betri leið að spila strax
hjarta á kónginn. Þegar
austur fylgir með mann-
spili er næsta skrefið að
taka tígulkóng og trompa
tígul. Komi drottningin
ekki er tölfræðilega best að
fara heim á lauf og svína í
hjartanu. Þessi spila-
mennska leiðir til taps, svo
F erraro var greinilega
nokkuð heppinn.
Ég vil gjarnan eignast
börn, en konan mín er
hrædd við storka.
O /\ÁRA afmæli. í dag,
O v/þriðjudaginn 22.
júní verður áttræð Þor-
björg Bjarnadóttir, Ei-
ríksgötu 9, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum
laugardaginn 26. júní í
Þórshöll, 4. hæð, Brautar-
holti 20 frá kl. 18.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329, sent
á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
Með morgunkaffinu
VILTU fara að slá blettinn.
Konan á neðri hæðinni er
farin að kvarta.
ÉG ER mið kvef, en annars
er ekkert annað að frétta.
GAFSTU honum
hundamat aftur!
Á ÉG von á bami? Maðurinn minn verður aldeilis glaður,
hann er nefnilega ófrjór.
UOÐABROT
Brot úr
Hávamálum
HÁVAMÁL
Veiztu, ef þú vin átt,
þann er þú vel trúir,
og vilt þú af honum gott geta,
geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
Ef þú átt annan,
þann er þú illa trúir,
viltu af honum þó gott geta,
fagurt skaltu við þann mæla,
en flátt hyggja
og gjalda lausung við lygi.
Það er enn um þann,
er þú illa trúir
og þér er grunur að hans geði,
hlæja skaltu við þeim
og um hug mæla;
glík skulu gjöld gjöfum.
Ungur var eg forðum,
fór eg einn saman,
þá varð eg villur vega;
auðigur þóttumk,
er eg annan fann,
maður er manns gaman.
STJ ÖRNUSPÁ
eftir Franees Drakc
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gæddur góðri skipu-
lagsgáfu og hefur hæfíleika
til þess að fara fyrir öðrum
á ýmsum sviðum.
Hrútur
(21. mars -19. apríl) "rf
Vertu óhræddur við að
segja hug þinn því þá munu
aðrir taka mark á þér.
Svaraðu bréfum og skila-
boðum strax.
Naut
(20. aprfl - 20. maí)
Þú hefur byr í seglin á
vinnustað þínum og átt að
notfæra þér það því það get-
ur skipt sköpum fyrir fram-
tíð þína.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 'ft’A
Þögnin er oft gulls ígildi.
Líttu í kringum þig og skoð-
aðu þá hluti sem þú hefur
talið sjálfsagða til þessa og
lærðu að meta þá.
Krabbi
(21. jún! - 22. júlí)
Vandasöm verkeftii bíða þín
en gangir þú heill til starfa
muntu leysa þau og afla þér
aukins frama og vinsælda.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér finnast öll spjót standa
á þér og langar mest að
draga þig í hlé. Hertu upp
hugann því sókn er besta
vörnin.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) vtmL
Það er nauðsynlegt að
staldra við og gefa sér tíma
til að skoða hlutina vand-
lega. Haltu svo áfram þegar
niðurstaðan liggur fyrir.
v°s m
(23. sept. - 22. október) ^
Það er nauðsynlegt að eyða
tíma með ungviðinu og um
leið að finna barnið í sjálfum
sér. Láttu það ganga fyrir
öllu öðru.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) "wfe
Þú þarft ekki að vera með
nein látalæti í umgengni við
aðra. Vertu bara þú sjálfur
og sinntu þínum störfum
sem best þú getur.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. desember) ítSf
Nú virðist vera rétta tæki-
færið fyrir þig að koma mál-
um þínum áfram. Gættu
þess að þú fáir þá viður-
kenningu sem þú átt skilið.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4HP
Samstarfsmenn þínir munu
koma auga á hæfileika þína
og vilja njóta þeirra. Vertu
örlátur og þú munt upp-
skera ríkulega.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) VSKt
Þú þarft að fara vandlega í
gegnum fjármálin. Það er
ástæðulaust að kaupa allt
sem hugurinn gimist, betra
er að vanda vahð.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú átt gott, með að umgang-
ast aðra svo þú skalt nýta
þér þann hæfileika sem best
þú getur. Þú þarft líka að
vinna í eigin vandamálum.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
0RYGGIS-
HJÁLMAR
ONDUNAR-
GRÍMUR
JSP«9S')
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
ARVÍK
ÁRMÚLA1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
RUMTEPPADAGAR
AÐEINS ÞESSA VIKU
BANKASTRÆTI 10 - SIMI 561 1717
Þjónustu- og
framleiðslufyrirtæki
1. Ein stærsta og best staðsetta bílasala landsins tii sölu. Góð sam-
bönd. Inni og úti aðstaða.
2. Dúndur skyndibitastaður til sölu sem einnig hefur mikla ís- og sæl-
gætissölu. Framundan er mikið að gera og góður hagnaður. Siðlegur
opnunartími.
3. Glæsileg sólbaðsstofa með 5 nýlegum bekkjum til sölu. Trimformtæki
til staðar. Skipti á góðum bíl kemur til greina upp í viðskiptin.
4. Framleiðslufyrirtæki sem framleiðir heilsuskó, vinnuskó og inniskó.
Auðveld og vinsæl framleiðsla sem getur verið hvar sem er á land-
inu.
5. Veitingasala á Vesturlandi til sölu. Salirfyrir 100 manns. Bar. Öll
leyfi. Dansleikir um helgar allt árið. Brjálaður tími framundan. Góð
staðsetning á vinsælum stað. Rúturnar stoppa þarna með hungraða
ferðamenn.
6. Lítil prjónastofa fyrir eina manneskju til sölu. Allar vélar sem til
þarf. Mikið af hráefni fylgir með. Skipti á bíl möguleg.
7. Heildverslun í fatnaði með góð sambönd til sölu. Vörulager fyrir
6,4 millj. fylgir með en það er verðið á pakkanum. Ekkert verð fyrir
samböndin. Selst vegna veikinda.
8. Framleiðslufyrirtæki í sælgæti. Þægilegt starf fyrir 1-2. Allar vélar
sem til þarf. Getur verið hvar sem er á landinu.
9. Silkiprentun á boli og þess háttar. Allar vélar og tæki sem til þarf.
Endalausir möguleikar. Fæst á mjög góðu verði. Lítið og þægilegt
fyrirtæki. Núverandi eigandi getur kennt nýjum eiganda.
10. Framleiðslufyrirtæki á myndböndum og tónböndum. Mikil notkun
er á þessum hlutum og verðið samkeppnishæft. Auðvelt í framleiðslu.
Getur verið hvar sem er á landinu.
11. Stórt framleiðslufyrirtæki í keramikmunum til sölu. Flytur inn efnið
sjálfur, steypir, mótar (mikið til af mótum), sprautar og skreytir, selur
sjálfur og heldur einnig námskeið fyrir einstaklinga.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
mifTTr77T,7T^ITVIT71
SUÐURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
r
Fréttagetraun á Netinu