Morgunblaðið - 10.07.1999, Blaðsíða 1
153. TBL. 87. ÁRG.
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Samsetning næstu framkvæmdastjórnar ESB kynnt í Brussel
Reuters
Hörð átök
námsmanna
í Iran við
lögregluna
Teheran. AFP.
ÁTÖK brutust út í gærdag í Teher-
an milli öryggissveita írönsku lög-
reglunnar og um 500 námsmanna er
mótmæltu hömlum sem fjölmiðlum í
Iran hafa verið settar. Talið er að
tugir námsmanna hafi særst í átök-
unum og a.m.k. einn hafí látið lífíð.
Síðdegis brutust átök út á ný á svæð-
inu umhverfis háskólann í höfuð-
borginni og urðu erlendir frétta-
menn vitni að því er námsmenn
lögðu eld að vegatálmum sem lög-
reglan hafði komið fyrir.
„Fjöldi námsmanna og lögreglu-
manna særðist í átökunum og voru
þeir fluttir á nærliggjandi sjúkra-
hús,“ sagði talsmaður innanríkis-
ráðuneytisins í viðtali við írönsku
fréttastofuna IRNA Sagði hann að
lögreglan hefði skipt sér af mótmæl-
unum án þess að ráðfæra sig við
ráðuneytið og handtekið fjölda
námsfólks. Talið er að upp úr hafi
soðið er íylgjendur harðlínuafla í Ir-
an reyndu að stöðva mótmæli náms-
mannanna.
Efnt var til aðgerða námsmann-
anna til að mótmæla lögbanni því er
valdamikill hópur harðlínumanna
innan írönsku klerkastéttarinnar
hefur sett á viss dagblöð í landinu.
Samkvæmt banninu hefur t.a.m. eig-
endum Salams, útbreiddasta dag-
blaðs hófsamra afla í Iran, verið
bannað að gefa út blaðið. Samkvæmt
dómnum er írönskum dagblöðum
óheimilt að birta efni sem getur vald-
ið „ólgu meðal almennings“.
Flóð í Las
Vegas
MIKIL röskun varð á umferð í Las
Vegas í Nevada í Bandaríkjunum í
gær vegna flóða. Hér vaða bflar
elginn á hraðbrautinni Interstate
15, sem liggur þvert í gegn um
borgina. Urhellisrigning á fimmtu-
dag olli flóðunum, sem eyðilögðu
meðal annars hjólhýsasvæði og
gerði ófáa ökumenn innlyksa f bfl-
um sínum. Tvö dauðsföll eru rakin
til flóðanna.
General
William Cohen vonar að Júgóslavíuforseta verði steypt af stóli
Motors dæmt
til að greiða
metupphæð
Los Angeles. AP.
KVIÐDÓMUR í Kalifomíu dæmdi í
gær bílaframleiðandann General
Motors til að greiða 4,9 milljarða
bandaríkjadala, um 350 milljarða
ísl. króna, í skaðabætur til sex-
menninga sem hlutu slæm brunasár
þegar eldsneytistankur í Chevrolet
Malibu-bifreið þeirra sprakk í loft
upp. Þetta er hæsta upphæð sem
nokkrum hefur verið dæmd í skaða-
bótamáli í Bandaríkjunum. GM
hefur þegar áfrýjað úrskurðinum.
Sexmenningamir hlutu slæm
bmnasár þegar mikill eldur kviknaði
í Malibu-bifreið þeirra af árgerðinni
1979 eftir að dmkkinn ökumaður
hafði keyrt aftan á hana árið 1993.
Lögmenn fólksins héldu því fram að
GM hefði um árabil vitað að elds-
neytistankur bifreiðarinnar var gall-
aður, en þessu neitar GM og segir
ekkert athugavert við útbúnaðinn.
Brussel. AP, Reuters.
ROMANO Prodi, næsti forseti framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins (ESB), batt í gær enda á margra vikna vangaveltur
og sögusagnir með því að kynna á blaðamannafundi í Brussel þá
19 einstaklinga, sem ráðherraráð ESB og Prodi tilnefna til setu í
nýrri framkvæmdastjórn. Lýsti hann því yfir að skipun hinnar
nýju framkvæmdastjórnar markaði upphaf mikils umbótaátaks.
Reuters
ROMANO Prodi var ánægður á svip er hann kynnti
á blaðamannafundi í gær hvetjir hefðu verið til-
nefndir til að skipa með honum nýja fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins.
„Þegar ég var útnefndur
hét ég því að hrinda af
stað nýju umbótaskeiði
innan framkvæmdastjórn-
arinnar (...) Þetta er það
sem borgaramir, almenn-
ingur í Evrópu, vænta af
okkur. Þetta er það sem
ég ætla mér að koma í
framkvæmd, frá og með
deginum í dag,“ lýsti Prodi
yfír fyrir troðfullum sal
blaða- og fréttamanna.
Prodi lýsti því ennfrem-
ur yfir að verkaskiptingu í
framkvæmdastjóminni
yrði breytt og að skipting
málefna í stjórnardeildir
(,,DG“) yrði stokkuð upp
til að gera starfsemi fram-
kvæmdastjómarinnar
hagkvæmari og skilvirk-
ari. Yfimmsjón með þess-
ari endurskipulagningu
verður á könnu Neils Kinnocks,
fyrrverandi leiðtoga brezka Verka-
mannaflokksins, sem jafnframt
verður annar varaforseti fram-
kvæmdastjómar Prodis.
Óvænt val manna í
sum lykilhlutverk
Fimm konur verða í nýju fram-
kvæmdastjóminni. Ein þeirra gegn-
ir jafnframt embætti annars af
tveimur varaforsetum hennar,
Loyola de Palacio frá Spáni, en þeir
málaflokkar sem hún mun stýra eru
samskipti framkvæmdastjómarinn-
ar við Evrópuþingið, samgöngu- og
orkumál. Daninn Ritt Bjerregaard,
sem fór með umhverfismál í fráfar-
andi framkvæmdastjóm, er ekki í
þessum kvennahópi, þótt hún hafi
gert sér vonir um að danska stjóm-
in tilnefndi hana áfram. I hennar
stað kemur Poul Nielson, sem fram
að þessu hefur gegnt embætti orku-
og þróunarhjálparmála í dönsku
stjóminni. Hann mun fara með þró-
unarhjálparmál í framkvæmda-
stjóminni.
Nokkuð kom á óvart hveijir völd-
ust í sum lykilhlutverkin í liði Prodis.
Pedro Solbes, fjármálaráðherra
Spánar, verður falið að fara með mál-
efni myntbandalagsins, Frakkinn
Pascal Lamy mun taka við
viðskiptamálum af Sir Leon
Brittan, Þjóðverjinn Gúnt-
er Verheugen verður settur
yfir „stækkunarmál" ESB,
og Bretinn Chris Patten,
íyrrverandi rfldsstjóri
Hong Kong, mun hafa yfir-
umsjón með utanrfldssam-
skiptum sambandsins.
Italinn Mario Monti er
einn af aðeins fjómm sem
sæti áttu í síðustu fram-
kvæmdastjóm og halda
áfram. Hann mun bera
ábyrgð á samkeppnismál-
um innan ESB, en sá áður
um málefni innri markað-
arins. Austurrfldsmaður-
inn Franz Fischler heldur
landbúnaðarmálunum á
sinni könnu, en hátt í helm-
ingur allra fjárlaga ESB
fer í hið flókna landbúnað-
arkerfi sambandsins.
Á valdi Evrópuþingsins
Er Prodi kynnti teymi sitt fullyrti
hann að pólitískt jafnvægi ein-
kenndi það, auk þess að vægi
kvenna í því væri viðunandi. Hann
sagðist vongóður um að Evrópu-
þingið tæki þessu fulltrúavali vel.
Það er þó óvíst, þar sem meirihluti
hinna tilnefndu er af vinstri væng
stjómmálanna, en í Evrópuþings-
kosningunum í júní styrktu hægri-
menn mjög stöðu sína.
Segir Milosevic ekki
eiga í nein hús að venda
Kaupmannahöfn, Bclprad, Nis, Pristina. AFP, Reuters.
WILLIAM Cohen, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagðist í gær
vona að Serbar steyptu Slobodan
Milosevic Júgóslavíuforseta af stóli og
legðu þannig gmnn að lýðræðisum-
bótum í landinu. Wesley Clark, yfir-
maður herafla Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) í Evrópu, tók í sama
streng og sagði kröíúr um afsögn
Milosevics, sem gerst hafa háværar
síðustu dagana, vita á gott. „Það er
góðs viti að sjá þann kraft sem býr í
íbúum Serbíu nú þegar þeir hafa gert
sér grein fyrir að Milosevic forseti á
sök á hörmungunum sem yfir Jú-
góslavíu hafa dunið, og að þeir hyggj-
ast láta hann svara til saka,“ sagði
Clark.
Kröfur um afsögn Milosevics fær-
ast nú í aukana og í gær samþykkti
borgarráð í Nis, þriðju stærstu borg
William innar í Belgrad,
Cohen sagði að stjórnar-
andstaðan hygðist
efna til daglegra mótmælaaðgerða
gegn Milosevic næstu vikumar sem
ná myndu hámarki með fjöldamót-
mælum í Belgrad um miðjan ágúst.
Dagblaðið The Washington Times
greindi frá því í gær að stjómarand-
stæðingar í Júgóslavíu hefðu nýlega
kannað hvort eitthvert erlent ríki
myndi reynast reiðubúið að veita
Milosevic hæli, í þeirri von að það
gæti hjálpað til við að koma forsetan-
um frá völdum. William Cohen sagði
hins vegar að Milosevic ætti ekki í
nein hús að venda, og að hann ætti að
gefa sig fram við stríðsglæpadómstól-
inn í Haag.
Fjöldagröf með allt
að 350 líkum
Liðsmenn KFOR-friðargæslusveit-
anna sögðust í gær hafa fundið nýja
íjöldagröf nærri bænum Ljubenic,
suður af bænum Pec í Vestur-Kosovo,
þá stærstu fram að þessu, en óttast er
að allt að 350 Iflc sé að finna í gröfinni.
Það vom ítalskir hermenn sem
fundu fjöldagröfina og hefur svæðið
nú verið girt af og von var á sérfræð-
ingum Alþjóðaglæpadómstólsins til að
rannsaka verksummerki.
Prodi segir mikið
umbótaátak hafíð